Morgunblaðið - 17.05.1988, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17 MAÍ 1988
55
Yfirlýsing frá SÍNE-
félögum í Kaliforníu
SÍNE, hvetur stjórn SÍNE deildina
í NY til að biðja hann afsökunar.
B) Athugasemdir stjómar SÍNE
vegna málsmeðferðar NY-deildar
SÍNE á ályktun sinni.
Athugasemd nr. 1.
Stjóm SÍNE átelur stjóm NY-
deildar SÍNE harðlega fyrir að hafa
ekki leitað sér upplýsinga hjá stjórn
SÍNE varðandi þá gagnrýni sem
fram kemur í ályktuninni á störf
Kristjáns Ara Arasonar. Það er
ábyrgðarhluti að senda frá sér
ályktun félags um nafngreindan
félaga og því hefði verið réttmætt
að leita álits hans og stjórnar varð-
andi alvarlegustu ásakanirnar. Það
getur vart verið markmið deildar-
innar að álykta á röngum forsend-
um. Og það getur vart verið mark-
mið deildarinnar að stunda mann-
orðsmeiðingar. Stjórn SÍNE vill því
ítreka þau tilmæli sín að deildin
dragi ummæli sín um meint störf
formanns SÍNE til baka og biðji
hann afsökunar. Ennfremur hvetur
stjórn SÍNE stjóm NY-deildarinnar
til að vanda betur vinnubrögð sín
í framtíðinni.
Athugasemd nr. 2.
Stjórn SÍNE átelur stjóm NY-
deildar SÍNE harðlega fyrir að hafa
farið með ályktun deildarinnar í
íslenska fjölmiðlaý og það án þess
að gefa stjórn SINE né formanni
SINE tækifæri til að kynna sér
hana. Ályktunin birtist í islenskum
ijölmiðlum áður en hún barst stjórn
SÍNE. M.ö.o. þá fékk stjóm SINE,
o.þ.m.t. formaður SÍNE, fyrst
fregnir af ályktuninni eftir að hún
hafði birst í Alþýðublaðinu þann
3. maí sl. og þá frá blaðamanni
þessa sama blaðs. Þessa málsmeð-
ferð stjórnar NY-deildar SÍNE er
að mati stjómar SÍNE forkastanleg,
og þá sérstaklega í ljósi þess hve
alvarlegar ásakanirnar eru í garð
Kristjáns Ara Arasonar, formanns
SÍNE. Hér er um mjög ódrengilega
aðför að honum persónulega að
ræða sem á engan hátt er réttlætan-
leg. Hafi NY-deild SÍNE einhveijar
athugasemdir varðandi störf hans
hefði verið rétt að senda stjórn
SINE þær og/eða ræða þær á rétt-
um vettvangi, þ.e.a.s. á sumarráð-
stefnu SÍNE. Það hlýtur að vera
kappsmál deildarinnar að formaður
SINE njóti sannmælis og því hlýtur
hún að leiðrétta þær rangfærslur
og órökstuddu dylgjur sem fram
komu í ályktuninni á sama vett-
vangi og þær vom settar fram.
Athugasemd nr. 3.
Stjóm SÍNE hafa borist mót-
mæli 15 SÍNE-félaga í New York
varðandi það hvernig að ályktuninni
var staðið (sjá meðfylgjandi bréf).
Svo virðist vera sem vorfundur
deildarinnar hafi verið illa boðaður
og dagskrá fundarins ekki tiltekin.
Þannig hafi einungis 8 SÍNE-félag-
ar séð sér fært að mæta á umrædd-
an fund. Skv. beiðni fyrrverandi
trúnaðarmanns, Sólveigar Hreið-
arsdóttur, um fjárstyrk frá SÍNE
til að halda uppi deildarstarfinu,
samanstendur deildin af yfir 70
virkum félögum. Styrkur þessi var
greiddur deildinni að fullu og því
kemur það stjóm SÍNE undarlega
fyrir sjónir að ekki skuli fleiri hafa
mætt á fundinn. Að mati stjórnar
SÍNE var umræddur vorfundur því
engan veginn ályktunarbær. Stjórn
SINE harmar að svo fámennur hóp-
ur sem raun ber vitni skuli hafa
leyft sér að álykta á jafn harðorðan
hátt fyrir hönd jafn stórrar deildar
og NY-deildin er.
Athugasemd nr. 4.
Stjórn SÍNE hefur fengið stað-
fest að á umræddum vorfundi hafi
ekki verið gengið til hefðbundinna
aðalfundarstarfa eins og lög SÍNE
gera ráð fyrir. í 12. gr. laga SÍNE
segir orðrétt:
„1. Allar SÍNE deildir skulu
velja sér trúnaðarmann.
2. Trúnaðarmenn skulu kosnir
til eins árs á aðalfundum deilda sem
haldnir skulu árlega.
3. SÍNE-deild sem i em fleiri en
fjórir félagar skal kjósa sér þriggja
manna stjórn sem skiptir sjálf með
sér verkum. Trúnaðarmaður er þó
sjálfskipaður í stjómina og skal
hann vera formaður hennar.
4. Forfallist trúnaðarmaður skal
þegar boða til fundar í deildinni og
kjósa nýjan til næsta aðalfundar.
5. Trúnaðarmenn og deildar-
stjórar skulu vera tengiliðir milli
félagsmanna og stjórnar SÍNE.
6. Trúnaðarmenn og stjórnir
skulu halda reglulega fundi með
félögum. Boða skal til félagsfunda
um öll erindi frá stjórn SÍNE.
7. Félagsdeildir setja deildar-
stjómum starfsreglur að öðm leyti
og skulu þær hljóta samþykki aðal-
funda.“
Á gmndvelli þessa og á gmnd-
velli þeirra athugasemda sem 15
SÍNE-félagar hafa sent stjórn
SÍNE, krefst stjórn SÍNE að tafar-
laust verði boðað til fundar í deild-
inni af starfandi stjórn hennar.
Stjóm SÍNE óskar eftir að fá senda
fundargerð þess fundar.
Við námsmenn í Kalifiorníu lýs-
um yfir undmn á skrifum þeim sem
birtust í síðasta tölublaði Sæmund-
ar um störf Svanhildar Bogadóttur
í stjórn SÍNE og LÍN. Þar er ákaf-
lega harðlega að henni vegið af
„samstarfsmönnum" hennar í
stjóm SÍNE og á hana bornar slíkar
sakir að ekki verður orða bundist.
Við viljum því lýsa yfir að við
bemm fyllsta traust til hennar
starfa og væri betur ef stjórn SÍNE
sneri sér öll einhuga að hagsmuna-
baráttu stúdenta í stað þess að fylla
síður Sæmundar af persónulegum
ásökunum og óvild.
Ekki er slíkt einungis langt fyrir
neðan okkar virðingu heldur þjónar
það á engan hátt okkar hagsmun-
um.
Los Angelés, 2. maí 1988.
Hilmar Þórðarson (sign)
trúnaðarmaður SINE í t
Kaliforníu.
Caddy 130 fylgir þér hvert sem er
ESAB
Caddy 130 er einfasa, jafnstraums-rafsuöutæki
fyrir pinnasuðu og tig-suðu. Það tekur basískan
vír frá 1,60-3,25 mm.
Caddy 130 vegur aðeins 8 kg og er því sérlega
meðfærilegt!
Hafðu samband við sölumenn okkar sem veita
þér faglega ráðgjöf.
tig-suða
= HÉÐINN =
SEUAVEGI 2,SlMI 624260
ALLUR FYLGIBÚNAÐUR TIL SUÐU
fmmleiðslumeistarinn
Stein Ludrigson
hefurgefið iíónkexinu
nýtt og betm bmgð
\vi súkkulaðihjúpurinn
er besla sendingin fm
dönum síðan \1ð
fengum handritin heim
FRÓN HF. KEXVERKSMIÐJA
SKÚLAGÖTU 28 SÍMI 11400