Morgunblaðið - 17.05.1988, Síða 71
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17 MAÍ 1988
71
t>essir hringdu
Meiri keilu
Keilari hringdi:
„Ég vil þakka Stöð 2 fyrir góða
sjónvarpsþætti um keilu. Gjaman
mætti sýna meira frá þessari
ágætu fþrótt í sjónvarpi. Talað var
um það í Velvakanda á dögunum
að Bjami Felixson sýndi ekkert
annað en knattspymu. Það er
ekki rétt því víða er komið við í
íþróttaþáttum Ríkissjónvarpsins.
Ég vil sérstaklega þakka fyrir
beinu útsendingamar en sýningar
frá gömlum knattspymuleikjum
mættu vera færri.“
Slæm umgengni
íbúi á Seltjarnarnesi hringdi:
„Er ekki einhver aðili sem á
að sjá um að halda Eiðistorgi
hreinu? Þama er ekki vel gegnið
um og má sjá drasl út um allt.
Þær ágætu verslanir sem þama
em eiga þetta ekki skilið. Þama
þyrfti að gera átak og halda torg-
inu hreinu framvegis."
Falleg auglýsing
Soffía Egilsdóttir hringdi:
„Ég skil ekki hvers vegna svona
falleg auglýsing eins og eyðniaug-
lýsingin getur hneykslað fólk. Mér
fínnst að þeir sem gerðu hana
eigi mikið hrós skilið, og tel það
móðgun við listamennina hvemig
Morgunblaðið birti auglýsinguna.
„Móðir" sem hringdi vill greini-
lega ekki að bömin sín sjái hana
en það er mín skoðun að hún eigi
ekki síst erindi til bama. Þessi
auglýsing gefur rétta mynd af
fallegu og heilbrigðu kynlífí. Það
er jú staðreynd að eyðni er og
verður til og ekki viljum við að
bömin okkar deyi úr fáfræði."
Liíja hringdi:
„Mér fínnst eyðniauglýsingin
falleg og vel við hæfí með tilliti
til þess málstaðar sem henni er
ætlað að vekja athygli á. Ég tel
einnig að hún sé á máli sem ég
held að þeir, sem hafa ástæðu til
að fara varlega, skilji.“
Bjórínn er viðbót við önnur vímuefni
DAGVIST BARIVA
BREIÐHOLT
Seljaborg v/Tungusel
Leikskólinn Seljaborg óskar eftir fóstrum nú
þegar í heilar og hálfar stöður.
Upplýsingar gefa forstöðumenn
í síma 76680.
MIÐBÆR
Grænaborg v/Eiríksgötu
Dagheimilið/leiksk. Grænaborg óskar eftir
fóstrum strax eða í haust.
Ennfremur vantar aðstoðarmann.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma
14470 og 681362 á kvöldin.
Velvakandi góður.
Ég las í laugardagsblaði Morgun-
blaðsins, 7. maí sl., ágætar greinar
hugsjóna- og mannvina, Huldu á
Þingeyri, Sigurlaugar Bjamadótt-
ur, Páls Daníelssonar og Asu Ketils-
dóttur í Skjaldfannadal, og þeirra
ágæta innlegg í baráttuna móti
bjórófreskjunni sem misvitrir þing-
menn em nú að hella yfir. þjóðina,
og enginn veit hversu mikið af bjór-
bölinu hlýst, en þó sammála um að
það sé viðbót við aðra vímu sem
hefír skaðað og eyðilagt fleiri æsku-
menn og heimili á landi vom en
nokkurt annað efni sem menn
neyta.
Ég tek heilshugar undir þá rödd
í laugardagsblaðinu, sem skilur
ekkert í þeirri þjóð sem á þann
heilbrigðisráðherra sem tekur ekk-
ert mark á fæmstu læknum og
vísindamönnum þjóðarinnar, en
réttir upp hönd til að auka bmggur-
um og bjórinnflytjendum meiri
gróða. Mann sem tekur ekkert mið
af viðvömnarröddum Heilbrigðis-
stofnunar Sameinuðu þjóðanna sem
hvetur til aukinnar hömlu á hvers-
konar vímuefni, en hann skýlir sér
á bak við „frelsi“ manna, þótt það
leiði til spillingar og þjóðarógæfu.
Og svo talar hann í leiðinni um
forvamarstarf og greiðir atkvæði
með þeirri leið sem hefír leitt þús-
undir íslendinga í þrot og í lokin á
afvötnunarstöðvar ef þeir hafa þá
ekki verið búnir með líf sitt. Já, það
er talið að á síðustu ámm hafí um
10 þúsund íslendingar lent á af-
vötnunarstöðvum og þannig orðið
byrði þjóðfélagsins meðan hinir
sömu hefðu getað gert þjóðfélaginu
gagn. Er það þetta heilbrigða
mannlíf sem ráðherra ætlar að
rækta hér vor á meðal í sinni ráð-
herratíð? Nei, það er ekki traust-
vekjandi þeim sem þurfa að leita í
heilbrigðiskerfið í dag, því auðvitað
er allt eftir þessu, og hálfnað er
verk þá hafíð er. Arai Helgason
Miskunnarlaus
fréttamennska
Skrifið eða hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til
að skrifa þættinum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur til — eða
hringja milli kl. 10 og 12, mánu-
daga til föstudaga, ef þeir koma
því ekki við að skrifa. Meðal efnis,
sem vel er þegið, em ábendingar
og orðaskiptingar, fyrirspumir og
frásagnir, auk pistla og stuttra
greina. Bréf þurfa ekki að vera
vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og
heimilisföng verða að fylgja öllu
efni til þáttarins, þó að höfundur
óski nafnleyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að
beina því til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti
sinn hlut ekki eftir liggja hér í
dálkunum.
Kæri Velvakandi.
Mikið varð ég undrandi er ég las
fréttaskrifín um Víðirsmálið í DV
hinn 3. maí. Em blaðamenn virki-
lega svona miskunnarlausir gagn-
vart fólki sem missir aleigu sína,
að skrifa í blað sítt hálfsíðu frétt í
refíustfl? Mér fínnst það nú sorg-
legra en svo að slíkt ætti að eiga
sér stað. Ég vona að guð gefi þess-
um aðilum styrk til að standast
þessa raun og þeir haldi heilsu og
sálarró. Það er fyrir öllu.
Fyrst ég er farin að skrifa á
annað borð langar mig til að þakka
fyrir frábærar ræður sem fluttar
vom í Ríkisútvarpinu á sumardag-
inn fyrsta. Ræða Gunnars Eyjólfs-
sonar og ræðu í útvarpsguðsþjón-
usta frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði,
prestur Einar Eyjólfsson. Þetta
vom mjög lærdómsríkar ræður og
hafí þeir þökk fyrir.
6518-8538
Þegnskapur þyrfti að vera meiri
Til Velvakanda.
Núna, þegar daglega er sagt frá
í fjölmiðlum að þegnar þessa litla
þjóðfélags séu að gera kröfur um
hærri laun, þá datt mér í hug að
segja frá því sem fyrir mig kom í
þessu sambandi, og mun nú á þess-
um tímum hljóma eins og skopsaga.
Fyrir fímmtíu til sextíu ámm var
ég bréfhirðingamaður úti á landi.
Arslaun mín fyrir það starf vom
sextíu krónur. Það mun hafa verið
á kreppuámnum að bréf frá póst-
stjóminni var sent til okkar, þar
sem þess var farið á leit við okkur
bréfhirðingamenn, að við sam-
þykktum að laun okkar lækkuðu
um 15 prósent. í bréfínu var sagt
að þetta væri gert til að afstýra
fyrirsjáanlegum halla á rekstri póst-
þjónustunnar. Ég veit ekki annað
en allir bréfhirðingamenn í ná-
grenni við mig hafí samþykkt þessa
launalækkun og skrifað undir.
Mér fínnst núna að við bréfhirð-
ingamenn höfum með þessu sýnt
mikinn þegnskap, og að við vildum
stuðla að því að þessi þjónusta
væri rekin hallalaust en ekki með
skuldasöfnun. Með því að sam-
þykkja þessa launalækkun sýndum
við að við mátum meira þjóðarhag
en eigin hagsmuni.
Enn emm við sjálfstæð þjóð og
viljum vera það um ókomin ár. En
það getur farið svo að við töpum
efnahagslegu sjálfstæði okkar, ef
allir þegnar þessa lands hugsa um
það eitt að skara eld að sinni köku
eins og nú á sér stað hjá öllum
þeim fjölda stéttafélaga og þrýsti-
hópum sem neyta allra bragða til
að fá kröfur sínar samþykktar.
Mér fínnst að þegnskapur okkar
gömlu bréfhirðingamannanna
þyrfti að koma fram í dag ef ekki
á illa að fara.
Gamall bréfhirðingamaður
W%
Reiðnámskeio
sumarið1988
Almenn námskeið í hestamennsku fyrir börn og unglinga 9-16 ára.
Nr. 1
Nr.2
Nr.3
Nr.4
Nr.5
Nr.6
Nr.7
Þriðjudagur
Þriðjudagur
Þriðjudagur
Þriðjudagur
Þriðjudagur
Þriðjudagur
Þriðjudagur
31. maí
7.júní
21. júní
5. júlí
19. júlí
16. ágúst
23. ágúst
þriðjudags
þriðjudags •
þriðjudags
þriðjudags
þriðjudags
þriðjudags
þriðjudags
7. júnf
14. júní
28. júnf
12. júlí
26. júlí
23. ágúst
30. ágúst
Ferðir með áætlunarferðum Hreppar-Skeið frá Umferðarmið-
stöðinni í Reykjavík kl. 17:30 á þriðjudögum og kl. 18:30 á
föstudögum og frá Geldingaholti kl. 9:30 á morgnana og kom-
ið í bæinn kl. 11:30.
Þátttakendur fá fjölþætta þjálfun á hestbaki. Kennd verður
undirstaða hestamennsku, meðhöndlun og umhirða hesta.
Kennt er í gerði og á hringvelli. Einnig verða bóklegir tímar.
Farið verður í útreiðatúra, kvöldvökur og leiki.
Þátttakendur á öllum námskeiðunum mega koma með eigin
hesta.
Ferðir eru ekki innifaldar í námskeiðsgjaldi.
Upplýsingar og bókanir ( Geldingaholti sími: 99-6055.
Hestamióstöðin
Geldingaholt
Reiöskóli, útreióar, tamning, hrossarækt og sala
Gnúpverjahreppi, Ámessýslu, sími 99-6055
I