Morgunblaðið - 17.05.1988, Side 73
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17 MAÍ 1988
73
Norræn ráðstefna
um samgöngur
NORRÆN ráðstefna um sam-
gönjjur í Færeyjum, Grænlandi
og Islandi verður haldin á Hótel
Holiday Inn i Reykjavík dagana
18.—19. maí. Ráðstefnan er
skipulögð og kostuð af Nordiska
kommittén för transportforskn-
ing (NKTF), sem er ein af sér-
fræðinganefndum Norrænu ráð-
herranefndarinnar á sviði sam-
göngumála. Fulltrúi ísiands í
NKTF er Halldór S. Kristjánsson,
skrifstofustjóri i samgönguráðu-
neytinu. NKTF mun halda fund
hér á landi í tengslum við ráð-
stefnuna.
Yfirskrift ráðstefnunnar er Sam-
göngur í útnorðri (Samfærdsel í
Vestnorden) og er tilgangur hennar
að veita stjómmálamönnum, emb-
ættismönnum, sérfræðingum og
fulltrúum flutninga- og verslunar-
fyrirtækja tækifæri til að skiptast
á skoðunum um gildandi og fram-
tíðarsk'ipulag samgangna milli Fær-
eyja, Grænlands og íslands, sem
og tengsl þessara landa við önnur
Norðurlönd.
I upphafi ráðstefnunnar verður
gefíð yfirlit um samgöngur í lönd-
unum þremur, en síðan taka við
erindi og umræður um einstaka
samgönguþætti svo sem siglingar,
loftflutninga og ferðamál. Þá munu
notendur samgöngukerfanna gera
grein fyrir reynslu sinni af þeim og
efalaust koma fram með tillögur
um úrbætur. Ráðstefnunni lýkur
með því að ráðherrar samgöngu-
mála í löndunum þremur, þau Lasse
Klein frá Færeyum, Johanne Petr-
ussen, Grænlandi, og Matthías Á.
Mathiesen, íslandi, ávarpa þátttak-
endur, en ráðherrarnir munu síðan
taka þátt í pallborðsumræðum.
Ráðstefnunni hefur verið sýndur
mikill áhugi og munu á milli 40 og
IÐUNN hefur gefið út nýja bók
í flokki teiknimyndasagna um
kappann Samma og er hún hin
sjöunda í röðinni. Nefnist hún
Fólskubrögð i fyrirrúmi og er
eftir Berck og Cauvin.
í fréttatilkynningu frá bókaút-
gáfunni segir um söguþráðinn:
„Ekki bregðast þeir kumpánar
Sammi og vinur hans Kobbi lesend-
um sínum fremur en fyrri daginn.
Ævintýrin láta ekki á sér standa.
50 erlendir gestir sækja hana. Þá
er reiknað með um 20—30 íslensk-
um þátttakendum.
Ráðstefnustjóri verður Birgir
Guðjónsson, skrifstofustjóri í sam-
gönguráðuneytinu.
Til frekari upplýsinga fylgir hér
með kynningarbréf um ráðstefnuna
ásamt dagskrá hennar.
Fjölmiðlum er velkomið að fylgj-
ast með ráðstefnustörfum.
(Fréttatilkynning)
— Ný uppgötvun á sviði sýklahem-
aðar veldur miklu írafári innan
leyniþjónustunnar og eru Sammi
og Kobbi gerðir út af örkinni til að
klófesta formúluna. Leikurinn berst
inn í búðir farandsirkuss. Þar neyð-
ast þeir félagar til að taka að sér
erfið hlutverk í von um að komast
yfir leyndarmálið. En þeir eru ekki
einir um hituna. Sýningin hefst og
fólskubrögðin láta ekki á sér
standa."
Bjami Fr. Karlsson þýddi.
Sammi — ný
teiknimyndasaga
SKRIFSTOFUVELAR H.F.
l^ekka
um .
,og,KÍ^
Það er ekki oft sem að ljósritunarvélar lækka um
tugi þúsunda en það hefur gerst hjá okkur. Þar að
auki lækka aukahlutir allt að 40% og skápar lækka
að meðaltali um 20%.
Og til þess að kóróna allt þá veitum við 5%
staðgreiðsluafslátt.
yW \Cnf
Hverfisgötu 33, sími: 62-37-37
I J0°ar°-
^t'r * *
#
Ti,b|
i 99^05^
l'10 ,lH 'ik.et
^oo: N -
Mán-fimmtud. 09-18.00
Föstudaga 09-19.00
Laugardaga 10.00-16.00
• SKEMMUVEGI4A, KÓPAVOGI •
Sfmar 76522 og 76532