Morgunblaðið - 17.05.1988, Qupperneq 74
74
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17 MAI 1988
Foreldrafélag misþroska barna:
Kynningar- og
fræðslufundur
FORELDRAFÉLAG misþroska
barna var stofnað nýlega og er
mikill áhugi ríkjandi fyrir félag-
inu, sem sést best á því að stofn-
félagar eru nú orðnir um eitt
hundrað talsins.
Einn höfuðtilgangur félagsins er
að halda kynningar- og fræðslu-
fundi fyrir aðstandendur og annað
áhugafólk. Nú er á döfínni einn
slíkur og verður hann haldinn í
Öldutúnsskóla í Hafnarfirði mið-
vikudaginn 18. maí næstkomandi
kl. 20.30. Gestir fundarins frá
Greiningarstöð ríkisins verða þau
Stefán Hreiðarsson, barnalæknir og
forstöðumaður, og Hafdís Hannes-
dóttir félagsráðgjafi. Frá svæðis-
stjóm um málefni fatlaðra á
Reykjanesi koma svo þau Þór Hall-
dórsson, læknir og framkvæmda-
stjóri, og Helga Bima Hannesdóttir
þroskaþjálfi.
Stefán og Hafdís munu ræða um
greiningarstöðina, hvemig farið er
að því að komast í gréiningu með
böm og hvemig henni er fylgt eft-
ir. Þór og Helga Bima munu hins
vegar kynna svæðisstjórnir, hvaða
hlutverki þær hafa að gegna og
hvemig þær vinna að sínum málefn-
um.
Við vonumst til þess að félagar
og aðrir þeir, er áhuga hafa á mál-
efnum misþroska bama, mæti til
þess að fræðast af fagfólkinu og
einnig til að spyija um það sem þá
fysir að vita.
Þess má að lokum geta að félag-
ið hefur gefið út bækling sem heit-
ir: Er bam þitt óvenulega órólegt?
eirðarlaust? klunnalegt? Bækling
þennan má fá með því að skrifa til
félagsins. Heimilisfangið er:
Foreldrafélag misþroska barna,
pósthólf 5475
125 Reykjavík.
(Fréttatilkynning)
Ljósmynd/BS
Magnús Eiríksson og Pálmi Gunnarsson leika sólarblúsa fyrir blaðamenn í Viðey.
Skífan:
Bræðrabandalag Mannakoma
Hljómplötuútgáfan Skífan gaf
út á föstudag hljómplötuna
Bræðrabandalagið með hljóm-
sveitinni Mannakorn. Mannakorn
skipa þeir Magnús Eiríksson og
Pálmi Gunnarsson, en fjölmargir
tónlistarmenn aðstoðuðu þá við
gerð plötunnar.
Skífan kynnti útkomu plötunnar
með því að bjóða blaðamönnum í
bátsferð til Viðeyjar, en þar biðu
þeirra þeir Magnús og Pálmi og
veitingar voru á boðstólum. Á með-
an menn vom að ná áttum eftir
siglinguna léku Magnús og Pálmi
af fingrum fram á gítar og kontra-
bassa.
í spjalli við blaðamenn upplýstu
þeir Magnús að Bræðrabandalagið
væri fímmta plata hljómsveitarinn-
ar, en ekki vildu þeir halda því fram
að hún yrði sú síðasta. Vinnu við
plötuna kváðu þeir hafa hafist a
þessu ári að Magnús hóf að setja
saman texta og lög, en Pálmi stýrði
upptökum og útsetningar laganna
eru sameiginlegar.
Með þeim Mannakornum að plöt-
unni unnu þeir Eyþór Gunnarsdson,
Gunnlaugur Briem, Tryggvi Húbn-
er, Karl Sighvatsson, Ellen Krist-
jánsdóttir og fleiri. Magnús og
Pálmi lýstu þeim ásetningi sínum
að setja saman hljómsveit til að
kynna plötuna og töldu allar líkur
á að það yrði um næstu. mánaða-
mót að slík hljómsveit yrði til
Steingrímur Th. Sigurðsson við tvö verka sinna.
Akóges:
Húsasmiðjan flytur um set
Steingrímur sýnir
„ÞAÐ ER leyndarmál hvort sýn-
ingafjöldinn fylgi aldri málarans,"
sagði Steingrímur Th. Sigurðsson,
en hann opnar málverkasýningu
í Akóges í Vestmannaeyjum í
kvöld kl. 20.30.
Þetta er 63. málverkasýning
Steingríms heima og erlendis. Hann
INNLENT
hefur áður sýnt í Akóges eða í júní
1972. „Skömmu síðar settist ég að
í Roðgúl á Stokkseyri — það eru viss
tengsl þar á milli sem ég hirði ekki
um að skýra nánar — en minningam-
ar úr „fríríkinu" Vestmannaeyjum
hafa ætíð leitað á hugann síðan,
enda hef ég alltaf verið á leiðinni
þangað undanfarin sextán ár, svo
að þetta er einskonar „comeback“.“
Steingrímur sýnir nú 31 mynd —
af þeirn eru 30 glænýjar — stór hluti
myndanna er unninn í olíu. Við-
fangsefnin eru sjórinn og ströndin
og ennfremur eru nokkrar fantasíur.
Sýningu Steingríms í Vestmanna-
eyjum lýkur kl. 22.30 á hvítasunnu-
dag, 22. þessa mánaðar.
VERIÐ ER er að ljúka nýbygg-
ingu Húsasmiðjunnar við
Skútuvog um þessar mundir.
Húsasmiðjan hefur um áraraðir
starfað við Súðarvog 3—5. Þar
var rými orðið af skomum
skammti og því nauðsynlet að
ráða bót á. Nýtt hús var því byggt
fyrir neðan gatnamót Elliðavogs
og Kleppsmýrarvegar. Nú er verið
að leggja síðustu hönd á innrétt-
ingar hússins er verslunin verður
opnuð 27. maí.
í nýja húsnæðinu, Skútuvogi
16, verða allar deildir Húsasmiðj-
unnar sameinaðar undir einu þaki.
Nýbygging Húsasmiðjunnar er
nær helmingi stærri en gamla
verslunarhúsnæðið.
(Úr fréttatilkynningu)
Hjúkninarskortur al-
þjóðlegt vandamál
Morgunblaðinu hefur boríst
eftirfarandi athugasemd:
„Vegna viðtals sem birtist I
Morgunblaðinu sunnudaginn 8.
maí sl. við framkvæmdastjóra
stjórnunarsviðs Ríkisspítala,
vill Vigdís Magnúsdóttir, hjúkr-
unarforstjóri, koma á framfæri
eftirfarandi upplýsingum:
Það er ekki viðhorf hjúkrunar-
stjómar Landspítalans að hjúkr-
unarfræðingaskortinn megi fyrst
og fremst rekja til lokunar Hjúkr-
unarskóla Islands. Hjúkruna-
rstjóm telur að hjúkrunarfræðing-
ar séu best færir um að sjá um
sín menntunarmál og að nám í
námsbraut í hjúkrunarfræði i
Háskóla íslands veiti raunhæfa
menntun fyrir hjúkrunarstörf.
Hjúkrunarskortur er ekki sérís-
lenskt fyrirbæri heldur alþjóðlegt
vandamál sem orsakast af fjöl-
mörgum og flóknum þáttum. Ekki
er hægt að fullyrða að breytt
menntunarleið hafi úrslitaáhrif
hér á landi frekar en annars stað-
ar.
Hjúkrunarstarfið er mjög
víðfeðmt og fá störf bjóða upp á
jafnmikla íjölbreytni. Hjúkrun nú
á dögum krefst mikillar tækni-
þekkingar auk fæmi í mannlegum
samskiptum. Sýnt hefur verið
fram á að starfsánægja hjúkruna-
rfræðinga hérlendis er mikil og
ætti það að vera hvatning til að
leita í þessi störf.
Er það miður að skoðun ein-
stakra starfsmanna sé kynnt í fjöl-
miðlum eins og talað sé fyrir hönd
allra stjómenda."
Sturla Snorrason framkvæmdastjóri Húsasmiðjunnar.
+ *
Bílaþrenna Vogs og SAA:
Þrjár konur unnu bíla
Fyrir nokkrn hófu Styrktarfélag
Vogs og SÁÁ dreifingu og sölu á
svokallaðri bílaþrennu. Landsmenn
hafa tekið þessu smámiðahappdrætti
geysivel og er nú búið að dreifa mið-
um um allt land. Aðalvinningur í
þessu smámiðahappdrætti er Lancia
skutla og föstudaginn 6. maí voru
afhentir 3 bílar. Á myndinni eru ta-
lið frá vinstri: Kristinn T. Haraldsson
frá Styrktarfélagi Vogs og síðan
þrír vinningshafar sem allir voru
konur að þessu sinni, Guðrún Ás-
grímsdóttir, Soffía Kristjánsdóttir,
Kristín Hjartardóttir og lengst til
hægri er Brynjar Jóhannesson sölu-
stjóri Bílaborgar.
(Fróttatilkynning)