Morgunblaðið - 21.05.1988, Blaðsíða 1
76 SIÐUR B LESBOK
114,tbl. 76. árg.
LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1988
Prentsmiðja Morgnnblaðsins
Danmörk:
Schliiter glímir við
stjómarkreppuna
Kaupmannahöfn. Reuter.
POUL Schlilter, starfandi for-
sætisráðherra, fékk í gær umboð
til að stýra stjórnarmyndunar-
viðræðum í Danmörku en tak-
markað þó. Nær það ekki til að
mynda nýja minnihlutastjórn
borgaraflokkanna, aðeins til að
kanna hugsanlegt meirihluta-
samstarf á breiðum grundvelli.
Schliiter er sá þriðji, sem reynir
að koma saman stjóm, en þeir
Svend Jakobsen, forseti Þjóðþings-
ins, og Niels Helveg Petersen, leið-
togi Radikale venstre, gáfust báðir
upp við þá erfiðu þraut. Schluter
kvaðst í gær ekki vera bjartsýnn á
tilraunina og sagðist ekki mundu
kaupa nýja stjóm of dým verði.
Radikalar réðu því, að Schliiter
fékk ekki óskorað umboð til stjóm-
armyndunar og leggja þeir áherslu
á breitt meirihlutasamstarf. Stafar
það meðal annars af því, að þeir
horfa mjög svo til beggja átta,
hægri og vinstri, og óttast klofning
í eigin röðum játist þeir annarri
hvorri fylkingunni. Það er því ekki
ólíklegt, að stjómarkreppan í Dan-
mörku eigi eftir að dragast á lang-
inn.
Sjá „Poul Schltlter..." á bls. 31
Harmleikur
Reuter
Þrítug kona vatt sér inn i bekkjarstofu í Hub-
bard Woods-barnaskólanum í útborginni Win-
netka í Chicago í gær og skaut án afláts af
byssu með þeim afleiðingum að átta ára piltur
beið bana og sjö börn særðust, sum Iífshættu-
lega. Réðst hún síðan inn í íbúðarhús í nágrenn-
inu, tók þar gisla, sem siðar komust undan.
Þegar siðast fréttist hafði konan ekki orðið við
áskorun lögreglu um að gefast upp. Myndin
var tekin við skólann i gær af tveimur konum,
sem reyndu að hugga hvor aðra eftir hinn
hörmulega atburð.
Páfi
sker
afmælis-
tertu
Þingkosningarnar í Frakklandi:
Borgaralegu flokk-
arnir með bandalag
París. Reuter.
BORGARALEGU flokkarnir í Frakklandi hafa myndað með sér
kosningabandalag fyrir þingkosningarnar 5. og 12. júní næstkom-
andi i þeirri von að geta komið i veg fyrir sigur vinstrimanna í
kosningunum. Samkvæmt skoðanakönnunum, sem birtar hafa verið
i vikunni, bendir þó allt til þess Jafnaðarmannaflokkurinn vinni þing-
meirihluta.
í gærkvöldi hafði náðst sam-
komulag milli Lýðveldisfylkingar-
innar (RPR) og Lýðræðisbanda-
lagsins (UDF) um sameiginlegt
framboð í rúmlega 500 af 577 kjör-
dæmum Frakklands undir merkjum
kosningabandalags mið- og hægri-
Einfaldari
flugfarseðill
Genf. Reuter.
FLUGFÉLÖG og ferðaskrífstof-
ur um heim allan hefja senn út-
gáfu nýstárlegra flugfarseðla.
Hefur tekið áratug að þróa seðil-
inn samkvæmt upplýsingum Al-
þjóðasamtaka flugfélaga (IATA).
Að sögn talsmanns LATA, sem
eru samtök 168 flugfélaga um heim
allan, verður sérstök segulræma á
bakhlið nýja flugfarseðilsins sem
mun geyma allar upplýsingar um
væntanlega ferð. Flugmiðinn verð-
ur einfaldari en farseðlar, sem menn
eiga að venjast, og verður hann
jafnframt brottfararspjald. Það hef-
ur í för með sér mikinn spamað
fyrir flugfélögin og er miðinn hann-
aður með það í huga að koma í veg
fyrir farmiðafals.
fiokkanna (URC). í dag rennur út
frestur til að skila nöfnum fram-
bjóðenda og voru taldar litlar líkur
á samkomulagi borgaralegu flokk-
anna um sameiginlegt framboð í
um 70 kjördæmum. Staða Jafnað-
armannaflokksins er talin mjög
vænleg í þessum lqördæmum.
Jafnaðarmannaflokkurinn reyndi
allt til þess að fá Lýðræðisfylking-
una (UDF) til samstarfs um fram-
boð en mistókst. Meðal annars
reyndust ýmsir þingmenn jafnaðar-
manna ekki reiðubúnir að standa
upp fyrir frambjóðanda UDF.
Skoðanakannanir benda til þess
að Jafnaðarmannaflokkurinn fái
rúmlega 40% fylgi í fyrri umferð-
inni, sem yrði mesta kjörfylgi í 17
ára sögu hans.
Frambjóðendur, sem fá undir
12,5% atkvæða í fyrri umferðinni,
detta úr leik. í seinni umferðinni
hefur venjulega verið kosið milli
fulltrúa vinstri flokkanna annars
vegar og hægri flokka hins vegar
þar sem fylkingamar hafa jafnan
myndað með sér bandalag eftir fyrri
umferð.
Möguleikar kosningabandalags
borgaralegu flokkanna (URC)
ræðst af því hvort samvinna tekst
með bandalaginu og Þjóðemisfylk-
ingu Jean-Marie Le Pens. Drög
hafa verið lögð að samstarfí í mörg-
um kjördæmanna, að sögn Jean-
Pierra Stirbois, framkvæmdastjóra
fiokks Le Pens. Þrátt fyrir mikla
fylgisaukningu flokksins í forseta-
kosningunum, en þá fékk hann um
15% atkvæða, stefnir í afhroð hans
í þingkosningunum, ef ekki tekst
samkomulag við kosningabandalag
mið- og hægriflokkanna.
Jóhannes Páll
páfi annar varð
68 ára á mið-
vikudag og i til-
efni afmælisins
var honum
færð vegleg af-
mælisterta er
hann steig um
borð í þotu
ítalska flugfé-
lagsins Alitalia,
sem flutti hann
í gær heim úr
13 daga ferð
um riki róm-
önsku Amer-
íku. Tertan var
skreytt með
fánum þeirra
ríkja, sem páfi
hefur heimsótt,
og hamingju-
óskir á pólsku
höfðu verið rit-
aðar á hana.
Reuter
Noregur:
Stj órnarbifreiðar fái sérlegar
akreinar til afnota í umferðinni
Óaló, frA Rune Timberlid, fréttaritara Morgunblaðsins.
TILLAGA norsku stjórnarinn-
ar um að bifreiðar hennar fái
að aka á sérstökum akreinum
sem ætlaðar eru fyrir strætis-
vagna, leigubifreiðar og
sjúkrabifreiðar hefur leitt til
mótmæla í norska Stórþinginu.
Engar undantekningar hafa
hingað til verið gerðar á því hveij-
■um er heimilt að nota hinar sér-
stöku akreinar í Noregi, það er
hliðarakreinar við hraðbrautir og
miklar umferðargötur. Jafnvel
Ólafur konungur má ekki aka á
þessum sérstaklega merktu ak-
greinum. Carl I. Hagen þingmað-
ur Framfaraflokksins varpaði
fram þeirri spumingu á þingi þeg-
ar hann mótmælti tillögu ríkis-
stjómarinnar um að bifreiðar
hennar fengju að nota akreinam-
ar, hvort Gro Harlem Brundtland
væri mikilvægari persóna en sjálf-
ur konungurinn. Fulltrúar allra
stjómmálaflokka eru sammála
Hagen, jafnvel innan stjómar-
flokksins, Verkamannaflokksins,
em menn ekki hlynntir þessari
tillögu.
Vegamálastjóm ákveður hvetj-
um er heimilt að aka á þessum
umræddu akreinum. Óskum
stjómarinnar um að fá afnot af
þeim hefur hingað til verið hafnað
á þeim forsendum að það séu
aðrir hópar sem hafi meiri þörf
fyrir að komast hratt og ömgg-
lega áfram í umferðinni en ráð-
herrar. Svar ríkisstjómarinnar við
því er að oft sé mikið í húfi hjá
ráðherrum, svo sem mikilvægir
fundir eða ferð til flugvalla.
Meðal almennings em undir-
tektir á sama veg og meðal þing-
manna. Margir telja þetta minna
á aðferðir stjómvalda í Sovétríkj-
unum þar sem lagðar hafa verið
höfðingja-akgreinar svo að
Kremlveijar komist hindmnar-
laust leiðar sinnar um götur
Moskvu.