Morgunblaðið - 21.05.1988, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 21.05.1988, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1988 Gassi frá Vorsabæ hefur staðið fyllileg’a undir þeim vonum sem við hann voru bundnar, knapi Eiríkur Guðmundsson. Angi frá Laugarvatni var tvímælalaust sá hestur sem mesta at- hygli vakti á sýningunni nú, knapi er Rúna Einarsdóttir. Sýning stóðhestastöðvarinnar: Veðrahamurinn gerði mönn- um og hestum erfitt fyrir Hestar Valdimar Kristinsson I slagveðursrigningu og slyddu var árleg sýning stóð- hestastöðvarinnar i Gunnars- holti haldin. Átján hestar voru sýndir, þrir þeirra voru utanað- komandi, en hinir af stöðinni. Talið er að hátt i tvö þúsund manna hafi fylgst með sýning- unni og virðist ekkert lát á vin- sældum þrátt fyrir óhagstætt veður. Fjórir hestar hlutu fyrstu verð- laun þegar hestamir voru dæmdir skömmu fyrir sýninguna, en allir utan einn, komu fyrir dómnefnd- ina. Hæstu einkunn hlaut Gassi frá Vorsabæ en hann er undan Hrafni 802 og Litlu-Jörp 4762 og i eigu Hrossaræktarsambands Eyjafjarðar- og Þingeyjarsýslu. Gassi hlaut fyrir byggingu 8.18 og 8.40 fyrir hæfileika og 8.29 í aðaleinkunn. Næstur kom Angi frá Laugarvatni sem er undan Öngli 988 frá Kirkjubæ og Sif 4035 frá Laugarvatni. Angi sem vakti hvað mesta athygli á sýning- unni hlaut í aðaleinkunn 8.26 og sömu einkunn fyrir byggingu og hæfileika. Hrossaræktarsamband Suðurlands keypti Anga að lok- inni sýningu og var kaupverðið um tvær og hálf milljón. Hvorug- ur hestanna telst til stöðvarhesta en voru þjálfaðir af tamninga- mönnum stöðvarinnar þeim Eiríki Guðmundssjmi og Rúnu Einars- dóttur, sem sýndu alla hesta með mikilli prýði við erfiðar aðstæður. Tveir af hestum stöðvarinnar hlutu fyrstu verðlaun þeir Amor frá Keldudal og Pá frá Laugar- vatni en þeir eru báðir fimm vetra. Amor sem er undan Þætti 722 og Nös 3794 hlaut 8.15 fyrir byggingu og 8.21 fyrir hæfileika, aðaleinkunn 8.18. Amor er í eigu Hrossaræktarsambands Suður- lands sem keypti hestinn á nýliðn- um vetri. Pá er undan Eiðfaxa 958 frá Stykkishólmi og Sif 4035 frá Laugarvatni, og þar með hálf- bróðir Anga. Eigandi Pás er Bjami Þorkelsson. Af öðrum hestum sem komu fram má nefna fimm vetra hestinn Feng frá Reykjavík undan Hrafni og Glóð 5181 sem hlaut 7.91 í aðaleinkunn. Af fjögurra vetra hestum bar mest á StSganda frá Sauðárkróki sem er undan Þætti 722 og Ösp 5454 frá Sauðárkóki en hann hlaut I einkunn 7.93, mjög athygli verður hestur. Einn- ig mætti nefna þá Eld frá Hólum undan Þætti 722 og Eldingu 5225 frá Hólum með 7.87 og Kára frá Grund undan Ófeigi 818 og Flug- svinn 4260 frá Torfastöðum en hann hlaut í einkunn 7.83.' Eins og áður sagði var veðrið hið versta meðan á sýningunni stóð og áttu sýningargestir í mikl- um vandræðum með bifreiðar sínar á blautu túninu. Þurfti að draga marga bfla út af sýningar- svæðinu og komu íjórhjóladrifs dráttarvélar Landgræðslunnar þar í góðar þarfir. Eins og áður sagði fer þeim stöðugt fjölgandi sem sækja þessa sýningu og ljóst að illmögulegt er að taka móti öllum þessum fjölda svo vel fari við þessar aðstæður. Á það ekki hvað síst við um þegar illa viðrar og túnin eru blaut. Talað hefur verið um að byggja hringvöll fyr- ir sýningamar en ljóst er að það eitt er ekki nóg því ekki má gleyma öllum þeim fjölda bfla sem áhorfendur koma á. Gæti orðið æði kostnaðarsamt að gera bfla- stæði fyrir þijú til fjögurhundruð bfla. Væri ekki einfaldara að vera með sýninguna á Landsmóts- svæðinu á Gaddstaðaflöt? Væri þá hægt að selja inn á sýninguna gegn vægu gjaldi og gætu sýningargestir leitað skjóls í eða við veitingaskálann í slæm- um veðrum. Með þessu móti væri í leiðinni hægt að afla tekna til bygKingar hesthúss á stóðhesta- stöðinni sem ekki virðist vanþörf á ef marka má þann seinagang sem ræður ríkjum. Mikið hefur verið um það rætt að nýta þurfi þá staði betur sem byggðir eru upp fyrir stórmót og virðist þama kjörið tækifæri til að auka nýting- una í stað þess að eyða fjármunum í uppbyggingu vallarsvæðis í að- eins nokkurra kílómetra fjarlægð frá stað þar sem allt er til alls, vellir, hesthús og afbragðs að- staða fyrir áhorfendur. Eldur frá Hólum einn þriggja Þáttarsona sem komu fram á sýn- ingunni auk þess sem sýndir voru tveir sonarsynir hans, knapi Eiríkur Guðmundsson. Morgunblaðið/V aldimar Kristinsson Kári frá Grund vakti athygli fyrir gott brokk og tölt en auk þess býr hann yfir skeiði, knapi er Rúna Einarsdóttir. HITACHI ORBYLGJUOFNAR vandaðir — öruggir — ódýrir mebjj itgmxSlXs, ^/•RÖNNING •//f// heimilistæki KRINGLUNNI - SÍMI (91)685868 Aðalfundur Hafnarfjarðardeildar RKI heldur aðalfund sinn miðvikudaginn 25. maí kl. 20.00 í fundarsal Slökkvistöðvar Hafnarfjarðar við Flatahraun. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Stjórnin. jRauði Kross lslands Stykkishólmur: Daufustu vertíð Stykkishólmi. ÞAÐ ER nú augljóst að vetrar- vertiðin i Stykkishólmi hefir gjörsamlega brugðist, sérstak- lega hvað netavertíð áhrærir, en á hana hafa menn treyst undan- farin ár, bæði sjómenn og fisk- vinnslustöðvar og blasir því við minni afli og um leið minni tely- ur og auðvitað segir þetta fljótt til sin. Menn hér muna svo lélega vertíð ekki langt aftur í tímann eða jafn- mikla ördeyðu á miðum. Bátar hafa reynt að fara bæði austur og norð- ur í von um afla, en það hefír ekki gefíð mikið, enda þeir komnir á heimaslóðir aftur. Hjá smábátum hér, en þeir eru nokkuð margir, hefir fengist afli á línu og færi, en hann er á takmörkuðu svæði. Um grásleppuvertíðina er það að segja að hún er varla farin af stað. Er það mjög í seinna lagi því oft hefir verið byijað í aprfl. Verð grá- sleppuhrogna hefur lækkað mjög og hafa menn talað um helmings- lækkun frá í fyrra og er það mjög alvarlegt, þegar margir hafa lagt mjög að sér til að eignast báta og útbúa net til veiðanna o.fl. Það er horft til rækjuveiða í von um að þar sé eitthvað að fá sem gefi verulegar tekjur en þar eins og annars staðar er allt f óvissu. að ljúka Fiskvinnslustöðvamar hafa aldr- ei haft minni umsvif hér og þeir eru ekki margir yfírvinnutímamir hjá starfsfólkinu frá áramótum og bregður mönnum við. Þá hefír einn bátur, Haföm, 53 tonna, verið seldur héðan til Hólmavíkur. Hér var stórt flutningaskip, Keflavík, að lesta saltfisk til útlanda á dögunum, en þessi afli stansar ekki lengi í fiskvinnslunum og er mikil bót að því. En „öll él birtir upp um sfðir" og í þeirri von er haldið áfram. \ - Ámi Ms. Keflavík að lesta saltfisk í Stykkishólmi. Morgunbiaflia/Ámi Hcigaaon
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.