Morgunblaðið - 21.05.1988, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 21.05.1988, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1988 29 Morgunblaðið/Sverrir Nýstúdentar frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti sem útskrifuðust í gær. Fjölbrautaskólanum í Breiðholti slitið í gær Fjölbrautaskólanum í Breið- holti var slitið í gær í Fella- og Hólakirkju. Athöfnin hófst með þvi að Jónas Þórir lék vorlög. Kristin Arnalds, skólameistari, gerði grein fyrir starfi og próf- um í dagskóla en Stefán Bene- diktsson, aðstoðarskólameistari, í kvöldskóla. í ræðum þeirra kom fram að 2.206 nemendur hafi stundað nám í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti, 1.323 í dagskóla og 883 í kvöld- skóla og kennarar verið 134 tals- ins. 238 nemendur fengu afhent lokaprófskírteini, þar af 165 dag- skólanemendur og 73 kvöldskóla- nemendur. Þeir skiptust þannig: Á eins árs námsbrautum luku 19 nemendur prófi, 10 af grunnámi matvælasviðs og 9 af grunnámi tæknisviðs. Á tveggja ára námsbrautum luku 56 nemendur prófi, 7 snyrtifræði- prófi, 1 listasviðsprófi, 1 uppeldis- sviðsprófi, 46 almennu verslunar- prófi og 1 matartæknaprófí. Á þriggja ára brautum stóðust lokapróf 73 nemendur, þar af 3 sjúkraliðar, 40 sveinsprófsnemar (11 húsasmiðir, 4 rennismiðir, 15 vélvirkjar, 9 rafvirkjar og 1 pípu- lagningamaður) og 30 nemendur luku sérhæfðu verslunarprófi. 90 nemendur luku flögurra ára brautum, stúdentsprófi. Bestum árangri á stúdentsprófi náði Hanna Óiadóttir, eðlisfræðibraut almenns bóknámssviðs. Lauk hún námi á 3 árum og hlaut einkunnina A í öllum námsáföngum. Góðum námsárangri á stúdents- prófi náðu einnig Bjarki Hjálmars- son Diegó, sem lauk bæði félags- fræði- og náttúrufræðibraut, og Baldvin Bjöm Haraldsson, eðlis- fræðibraut. Fengu þau öll fjölda verðlauna fyrir námsárangur sinn. Svava Jónsdóttir nýstúdent lék á klarinett verk eftir Karl Stamitz við undirleik Guðríðar Sigurðardóttur, píanóleikara. Einnig léku Elín Kristinsdóttir, Berglind Reynisdótt- ir og Sonja B. Guðfinnsdóttir, allar nemendur skólans. Loks söng kór Fjölbrautaskólans í Breiðholti lög undir stjóm Friðriks S. Kristinsson- ar kórstjóra. Ávörp fluttu Baldvin B. Haralds- son fyrir hönd nýstúdenta í dag- skóla, Kristín Sonja Egilsdóttir fyr- ir hönd nýstúdenta í kvöldskóla, Magnús E. Magnússon formaður nemendafélags dagskóla og Hjördís Ámadóttir fyrir hönd nemendafé- lags kvöldskóla. Síðast flutti Kristín Amalds skólameistari skólaslitaræðu Oryrkjabandalag Islands: Niðurfellingar krafist á tollum og söluskatti „STJÓRN Öryrkjabandalags ís- lands hefur sent ríkisstjórninni bréf þar sem bandalagið mót- mælir m.a. álagningu söluskatts á hjálpartæki fatlaðra frá sl. áramótum og krefst þess að 30% tollar af t.d. nokkrum tegundum heyrnartælqa, viðvörunar- og öryggisbúnaði og myndbands- tækjum fyrir heyrnarlausra verði felldir niður,“ sagði Arn- þór Helgason, formaður Ör- yrkjabandalagsins, á blaða- mannafundi sem bandalagpð stóð fyrir í gær. „Oryrkjabandalagið leggur til að samtök fatlaðra staðfesti inn- flutningsskýrslur vegna hjálpar- tækja til að tryggja að ekki verði um misnotkun að ræða,“ sagði Amþór Helgason. „Með tilkomu staðgreiðslukerfis skatta em styrkir vegna tækjakaupa fatlaðra til náms og starfa, svo og bifreiða- kaupa, skattlagðir. Endurgreiðslur á skattinum koma að litlum notum þar sem flestir þeirra sem njóta þessara styrkja em lágtekjufólk sem getur ekki veitt sér þann munað að bíða eftir endurgreiðslu ríkissjóðs. Fatlaðir telja sig því hafa orðið fyrir kjaraárás af hálfu núverandi ríkisstjórnar. Öiyrkjabandalagið hefur ítrekað í samtölum og bréfum til fjármála- ráðuneytis farið fram á leiðréttingu á þessum málum. Árangurinn hef- ur einungis orðið sá að nú er regl- an um söluskatt á hjálpartækjum undantekningalaus og ætlunin er að veita einungis opinbemm stofn- unum, sem flytja inn hjálpartæki, 'aukafjárveitingu til að mæta þess- um viðbótarkostnaði," sagði Am- þór Helgason. Iceland Seafood Corporation: Hagnaður í fyrra 62 milljónir króna HAGNAÐUR Iceland Seafood Corporation, sölufyrirtækis Sambandsins í Bandaríkjunum, nam 1.430 þúsundum dollara fyr- Frakkland: Selt úr Ásgeiri RE í BOULOGNE i Frakklandi vom seld sl. fímmtudag 161 tonn úr Ásgeiri RE fyrir 8,5 milljónir króna eða 52,90 króna meðalverð. Úr skipinu vom m.a. seld 145 tonn af grálúðu fyrir 8,4 milljónir króna eða 58,11 króna meðalverð. ir skatta, eða um 62 mil(jónum íslenskra króna, i fyrra, að sögn Sigurðar Markússonar, vara- formanns stjórnar fyrirtækisins. Eftir að skattar hefa verið dregn- ir frá er hagnaður fyrirtækisins hins vegar 730.000 dollarar, eða tæpar 32 milijónir íslenskra króna. Hagnaður Iceland Seafood Lim- ited, sölufyrirtækis Sambandsins í Evrópu, var 158.000 sterlingspund fyrir skatta, eða tæplega 13 milljón- ir króna, en 98.000 sterlingspund eftir skatta, eða um 8 milljónir króna. Deilt um einkaleyfis- rétt á salt- dreifara Morgunblaðið/Einar Falur Nýstúdentar við brautskráningu í Langholtskirkju í gær. Fj ölbrautaskólan- um við Armúla slitið LÖGMAÐUR Trausts hf. í Reykjavík hefur sent forráða- mönnum Galdrastáls sf. í Kópa- vogi bréf þar sem skorað er á fyrirtækið að láta af framleiðslu saltdreifitækis fyrir fiskvinnslu, sem það hefur hafið framleiðslu á í samvinnu við Sölusamtök íslenskra fiskframleiðenda. Fram kemur í bréfinu að Traust hf. telur Galdrastál sf. bijóta einkaleyfisrétt þeirra við fram- leiðslu tækisins. Alexander G. Bridde hjá Galdra- stáli vísaði þessum ásökunum á bug í samtali við Morgunblaðið og sagði „saltarann" þeirra vera mjög frá- brugðinn saltdreifitæki Trausts. Emil Thoroddsen, ráðgjafi á sviði einkaleyfa hjá Iðntæknistofnun, skoðaði tækið á föstudag, en hann er ekki úrskurðaraðili í deilumálum sem þessum, aðeins umsagnaraðili. Ef samlíkingin er augljós er hlutað- eigandi bent á það og reynt er að fá aðila mála til að semja sín á milli. Hugsanlegt er að Emil semji greinargerð, sem lögð yrði fyrir iðn- aðarráðuneytið til umsagnar. Ef samkomulag næst ekki í svona málum er þeim langoftast vísað til úrskurðar dómstóla. Fjölbrautaskólanum við Ár- múla var slitið í gær í Lang- holtskirkju, og voru braut- skráðir 44 stúdentar við það tækifæri, 3 af heilsugæzlu- braut, 6 af íþróttabraut, 9 af nýmálabraut, 3 af náttúrufræði- braut, 1 af samfélagsbraut, 6 af uppeldisbraut og 16 af við- skiptabraut. Skólameistari, Hafsteinn Þ. Stefánsson, setti samkomuna og stjómaði henni.í ræðu hans kom m.a. fram, að 44 kennarar störfuðu við skólann á vorönn og nemendur voru tæplega 600. Litlar breyting- ar hafa orðið á kennaraliði skólans undanfarin ár. Sú breyting verður á rekstri skólans með samþykkt iaga um framhaldsskóla, að ríkis- sjóður mun í auknum mæli standa straum af kostnaði í stað borgar- sjóðs. Enn eru óbyggðar tvær álm- ur við skólahúsið, og er það von kennara og nemenda, að senn rætist úr því og reist verði hús fyrir hátíðasal og mötuneyti. Dux scholae varð að þessu sinni Steinunn Friðgeirsdóttir af ný- málabraut. Hlaut hún vegleg verð- laun fyrir ágætan námsárangur í Díana Ivarsdóttir nýstúdent og söngnemi söng við hrifningu við- staddra. ýmsum greinum. Auk hennar hlutu verðlaun fyrir ágæta kunnáttu í einstökum greinum Ágúst Ólafs- son í stærðfræði, Áslaug Guð- mundardóttir í íslenzku, dönsku og ensku, Magnús Kristjánsson í viðskiptagreinum og þýzku, Sig- urður Þormar og Jóhanna Gylfa- dóttir í frönsku, Hrönn Þorsteins- dóttir í sögu, Inga Margrét Skúla- dóttir í norsku og Stefán Hjálmars- son í viðskiptagreinum. Sérstaka viðurkenningu fengu Áslaug Guð- mundardóttir, Guðrún M. Ólafs- dóttir og Pétur Pétursson fyrir mikil störf að félagsmálum nem- Steinunn Friðgeirsdóttir, sem hlaut hæstu einkunn á stúdents- prófi, flutti ávarp fyrir hönd nemenda. enda, en Áslaug var formaður nemendaráðs síðastliðinn vetur og þau Pétur og Guðrún veittu, ásamt öðrum, forystu þeim hópi, sem vann að útvarpsmálum. Fyrstu stúdentar skólans braut- skráðust fyrir 10 árum og fulltrúi þeirra, Sólveig Jónsdóttir kennari, flutti ávarp og Fanný Gunnars- dóttir færði. skólanum gjöf fyrir þeirra hönd. Díana ívarsdóttir nýstúdent og söngnemi söng við athöfnina og fulltrúi nýstúdenta, Steinunn Frið- geirsdóttir, flutti ávarp fyrir þeirra hönd.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.