Morgunblaðið - 21.05.1988, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 21.05.1988, Blaðsíða 12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1988 Chionodoxa luciliae. Chionodoxa gigantea. 1 /Sj^A-7-' * s- *lws xv/*. tSSt J,'-| &f ■■ afe idi ■ !«•*' jfaií-". ILtÍij*-iSP’tifflfe'•!f^xr m v. %'fc - . «<:íí Snæstjörnur (Chionodoxa) Snæstjömur eru smávaxnar laukjurtir sem blómstra snemma vors, um líkt leyti og vetrargos- ar, dvergliljur og nokkrar aðrar snemmblómstrandi voijurtir, eða frá miðjum apríl til fyrrihluta maí. Líklega er það tegundin Chionodoxa luciliae sem best er þekkt og mest ræktuð. Það var svissneski grasafræðingurinn Pi- erre Boissier, sem fann þessa jurt á ferðalagi sínu um Litlu-Asíu á árunum í kringum 1850. Tegund- ina skírða hann eftir eiginkonu sinni, en hún hér Lucile. Snæstjarnan (C. luciliae) vex á fjallinu Boz Dagh, sem er í vesturhluta Tyrklands, vex hún þar í 1000—2400 m hæð og blómstar um leið og snjóa leysir á vorin. Blómstöngull jurtarinnar verður 10—15 sm á hæð. Blómin geta orðið 10—12 að tölu. Þau eru stjömulaga, himinblá á litinn og dáíítið ljósari næst miðjunni, sem er hvít. Nokkur litaafbrigði em til: C. lucileae alba er hvít, C. ludileae rosea og C. lucileae „Pink Giant" em með bleikum blómum. Cionodoxa gigantea, sem er náskyld áðumefndri tegund, er nokkuð stærri að öllu leyti. Hinn blái litur blómanna er talsvert breytilegur, stundum er hann föl- blár eða ljósfjólublár. Þó held ég að afbrigði með fagurbláum blómum séu algengust í ræktun hér. C. gigantea alba er afar fal- legt en sjaldgæft afbrigði með hreinhvítum stómm blómum. Chionodoxa sardensis er teg- und, sem er sjaldgæfari í ræktun en þær tvær sem áður era nefnd- ar. Blómin em smærri og blómlit- urinn dimmblár, afar sterkur og sérkennilegur. Orlítill hvítur dep- ill er í miðju blómsins. Þessi teg- und fanns á landsvæði, sem heit- ir Sardis og er í grennd við fjallið Mahmoud Dag í vesturhluta Tyrklands. Chionodoxa tmoli er líklega sjálfséðust þeirra snæstjama, sem ræktaðar em hér á landi. Að vaxtarlagi og blómstærð líkist hún C. lucileae, er þó heldur smá- vaxnari og blómin með áberandi stórri, hvítri miðju. Þessi tegund er sögð vaxa niðri í djúpum giljum og þrífs þess vegna best á frekar svölum stað í rakaheldnum jarð- vegi. C.tmoli er kennd við fjallið Mt.Tmolus, sem nú heitir Box Dagh og áður var minnst á. C.tmoli og C. sardensis blómstra um 2 vikum seinna en þær tvær tegundir sem fyrst vom nefndar. Nokkrar fleiri tegundir em til af snæstjömum, en þær em sjaldan ræktaðar. Eina þeirra Chi- onodoxa siehei þyrfti að reyna hér sem fyrst. Þetta er mjög sjald- gæf tegund en er þó stundum fáanleg hjá erlendum laukafram- leiðendum. Hún er frá Tyrklandi eins og þær snæstjömur sem hér hefur verið sagt frá, en hún vex á landsvæðum sem em í austur- hluta landsins. C.siehei líkis að mörgu leyti C.luciliae en er sögð Harer höfuð prýði Heimilishorn Bergljót Ingólfsdóttir Oft á tíðum láta konur klippa hár sitt stutt fyrir sumarið, til þess að minna þurfi fyrir því að hafa. í þeirri miklu tískuborg, New York, virðist þó annað vera uppi á teningnum nú í upphafí sumars ef marka má tískuskrif og mynd- ir. Meðfylgjandi myndir, sem em frá jafn mörgum hárgreiðslu- meistumm, sýna svo ekki verður um villst að gert er ráð fyrir síðu hári sem þó er tekið alveg frá andlitinu á mismunandi vegu. Hárið er fest með hárkömbum af misjafnri gerð, böndum, spennum, slæðum, hámeti o.fl. og yfirleitt em notaðir stórir lafandi eyma- lokkar við. Flegin hálsmál sumarfatnaðar- ins þykja hæfa þessum greiðslum afar vel. Brids Amór Ragnarsson Bridsfélag Tálknafjarðar Úrslit í Firmakeppni félagsins urðu þessi: Ríkisskip spilari Sigurður Skagijörð 442 Esso-nesti spilari Brynjar Olgeirsson 418 Eyrarsparisjóðurinn spilari Símon Viggósson 417 Vélaverkstæði Gunnars spilari ÆvarJónasson 410 Vatnsveita Tálknafjarðar spilari Steinberg Ríkarðsson 405 Rafröst spilari Sveinbjöm Júlíusson 401 Minnt er á skráninguna í Vest- fjarðamótið í sveitakeppni, sem spil- að verður á Núpi í endaðan maí. Ævar Jónasson á Tálknafírði ann- ast skráningu. Einnig er hafín skráning í Bikarkeppni Vestfjarða, sem spiluð verður í sumar (sveita- keppni). Sanitas-bikarkeppni Brids- sambandsins 1988 Bridssambandið hefur ákveðið að lengja umsóknarfrest til þátttöku í Sanitas-bikarkeppninni 1988 til mánaðamóta, sökum dræmrar að- sóknar. 30 sveitir vom skráðar til leiks um miðjan mánuðinn, sem er með minnsta móti. Umsóknarfresturinn rennur út þriðjudaginn 31. maí og verður dregið í 1. umferð um kvöldið og birt í dagblöðunum í vikunni. Skráð er á skrifstofu BSÍ í s: 91-689360. Bikarkeppnin er opin öllum og keppnisgjald aðeins kr. 7.000 pr- sveit. Spilað er með útsláttarfyrir- komulagi, 40 spil í leik (4x10 spila Iotur) og um gullstig. BSÍ tekur þátt í ferðakostnaði sveita, sem þurfa að ferðast vegna spila- mennsku og auk þess verður hægt að fá Sigtún 9 undir leiki í Sanitas- bikarkeppninni. Nánari uppl. veitir skrifstofa BSÍ.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.