Morgunblaðið - 21.05.1988, Síða 2

Morgunblaðið - 21.05.1988, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1988 Framboð Vigdísar Finnbogadóttur: Tæp þrjú þúsund skrifuðu undir FRESTUR tU að skila undir- skriftum vegna forsetaframboðs rann út á miðnætti i nótt. Um- bjóðendur Vigdísar Finnboga- dóttur forseta íslands afhentu dómsmálaráðuneytinu undir- skriftarlista til stuðnings fram- boði hennar á fimmtudag. Á list- unum eru nöfn 2961 manns. Lög- um samkvæmt eiga stuðnings- menn að vera minnst 1500 en mest 3000. Undirskriftalistamir lágu fyrir 15. aprfl síðastliðinn en þá áttu yfirkjörstjómir eftir að bera nöfnin saman við kjörskrá. Síðustu listam- ir bámst frá kjörstjómum á mið- ' vikudag og vom öll nöfnin afhent ráðuneytinu kl. 14.00 á fímmtudag. Vigdís Finnbogadóttir forseti er væntanleg til landsins um miðja næstu viku frá Bandaríkjunum. Engar ákvarðanir munu liggja fyrir um tilhögun framboðs hennar, en Vigdís er fyrsti forsetinn í embætti sem þarf að heyja kosningabaráttu. Lögum samkvæmt fara kosning- amar fram síðasta laugardag í júní, þann 25. næsta mánaðar. Þjóðverjar kaupa 80 milljónir í Amarflugi ÞÝSKA fyrirtækið Atlantica mun væntanlega ganga frá kaup- um á hlutafé í Araarflugi fyrir 80 miiyónir króna á næstu dög- um. Auk hlutafjárkaupanna er ætlunin að Arnarflug og Atl- antica eigi með sér viðtækt sam- starf í markaðsmálum, að sögn Kristins Sigtryggssonar, fram- kvæmdastjóra Araarflugs. Kristinn sagði að ákveðið hefði verið fyrir nokkm að auka hlutafé í Amarflugi úr rúmum 200 milljón- um króna í 320 milijónir. Þýska fyrirtækið hefði ákveðið að kaupa flórðung hlutaijárins, 80 milljónir króna, en hins vegar væm ýmsir innlendir aðilar þegar skráðir fyrir hluta aukningarinnar, þannig að hlutafé færi líklega upp í um 400 milijónir króna. Viðræður hafa staðið yfir í nokkra mánuði, að sögn Kristins, og bjóst hann við að formlega yrði gengið frá hlutafjárkaupunum og samstarfssamningi eftir helgina. Hann sagði að Dieter Ginsberg, framkvæmdastjóri Atlantica, hefði átt mestan hlut í að koma þessum viðskiptum á, en Dieter er kvæntur íslenskri konu og talar íslensku. Kristinn sagði að þýska fyrirtæk- ið væri í eigu aðila í ýmsum grein- um ferðamannaþjónustu, sem litu mjög til íslands sem ferðamanna- lands, m.a. með rekstur heilsuhót- ela í huga, sem gæti beint ferða- mönnum hingað utan hins hefð- bundna annatíma. „Við lítum fyrst og fremst á þetta samstarf sem aukna viðurkenningu; bæði á því sem við erum að gera í Amarflugi og á íslandi sem ferðamannalandi. “ Afmæli Siglufjarðarkaupstaðar: Bæjarstjórn sam- þykkir að byggja yfir grunnskólann Siglufirði. BÆJARSTJÓRN Siglufjarðar hélt hátfðarfund í gær á sjötíu ára afmæli kaupstaðarins. Sam- þykkt var að byggja nýtt skóla- hús þannig að baraaskólinn og gagnfræðaskólinn komist undir eitt þak. Lengi hefur verið að því stefnt að grunnskólinn starfí í einu. húsi. Bamaskólahúsið er raunar jafn gamalt kaupstaðnum og gagn- fræðaskólinn nokkuð kominn til ára sinna. Á sama tíma og bæjarstjómin sat á fundi frumflutti Leikfélag Siglufjarðar leikritið „Galdrakarl- inn í Oz“ undir leikstjóm Carmen Bonitch. Þetta er viðamesta verk- efni félagsins sem hefur starfað síðan árið 1951. Þá var opnuð nem- endasýning í grunnskólanum sem ber nafnið „Smámjmdir og þættir í 70 ár“. Hún verður opin í allt sumar, en um miðjan ágúst er stefnt að því að halda afmælishátíð sem einkum verður tileinkuð brottflutt- Um Siglfirðingum. í gærkvöldi var haldin aftnælis- samkoma í Siglufjarðarkirkju. Þar kom kirkjukórinn fram, Lúðrasveit Sigluflarðar lék og Þorvaldur Hall- dórsson guðfræðinemi söng ein- söng. ísak J. Ólafsson bæjarstjóri flutti stutt ávarp en hátíðarræðuna hélt Sigurjón Sæmundsson fyrrver- andi bæjarstjóri. Að samkomunni lokinni nutu gestir kaffíveitinga í saftiaðarheimiiinu. -Matthías Myndin var tekin á slysstað þegar verið var að færa stúlkuna I sjúkrabifreið. Morgunbiaðií/Júiius Hlemmtorg: Unglingnr undir strætisvagni UNGLINGSSTÚLKA varð und- ir strætisvagni við Hlemmtorg klukkan rúmlega fjögur i gær. Hún er talin fót- og handleggs- brotin en ekki i lifshættu. Slysið vildi þannig til að stúikan hljóp gangstéttarmegin meðfram vagninum, sem var að leggja af stað frá Hlemmtorgi, og reyndi að veiqa athygli vagnsstjórans á sér og fá far með vagninum. Vagnstjórinn veitti henni ekki at- hygli en ók vagninum inní beygju austur Hverfísgötu og lenti á stúlkunni. Hún var talin föst und- ir vagninum og auk sjúkrabfls með læknaliði kom tækjabfll slökkviliðsins á vettvang. Ekki kom þó til kasta hans til að ná stúlkunni undan vagninum. Hún var flutt á Borgarspítalann, meidd á hendi og fæti en ekki talin, í iífshættu. Hvítasunnan: Lögreglan mælir hraða og skoðar bifreiðar LÖGREGLAN um land allt verður með viðtækt eftirlit í umferðinni um hvítasunnuhelgina, sem meðal annars er fólgið í hraðamælingum og skoðun bifreiða. Merktar lögreglubifreiðar og ómerktar verða notaðar jöfnum höndum við eftirlitið og þyrla Landhelgisgæslunnar fyigist með umferðinni um vegi landsins. Þar sem búast má við að flöl- margir íbúar höfuðborgarsvæðisins fari burt úr bænum um helgina ætlar lögreglan í Reykjavík að leggja áherslu á að fylgjast með umferð um Suður- og Vesturlands- veg í nágrenni borgarinnar. „Lög- reglan mun eiga náið samstarf við bifreiðaeftirlitið og meðal annars verða með skyndiskoðanir bifreiða fyrir og um helgina," sagði Ómar Smári Ármannsson, aðalvarðstjóri umferðardeildar. „Það verður lögð mest áhersla á ökutæki, sem ekki hafa verið færð til aðal- eða auka- skoðunar, en allar bifreiðar undir R-28000 eiga að hafa verið skoðað- ar í ár. Þá verður sérstaklega fylgst með breyttum jeppa- og torfærubif- reiðum, sem nokkuð virðist vera af á götunum. Loks beinist athyglin að ökutækjum sem einungis hafa eitt skráningamúmer í stað tveggja, eru með ófullnægjandi ljósabúnað, eru enn á negldum dekkjum eða búnaði þeirra áfátt á annan hátt.“ Þjóðvegalögreglan verður með eftirlit á þjóðvegum landsins um hvítasunnuna og verður þyrla Land- helgisgæslunnar henni til styrktar. Þyrlan verður notuð til að fylgjast með umferðarstreyminu og fer eft- irlitsferðir inn á hálendið. Hins veg- ar eru hálendisvegir allir lokaðir, svo engin umferð ætti að vera á þeim. Hjá Landssambandi hjálpar- sveita skáta fengust þær upplýsing- ar að fólk, sem hyggst fara í ferðir utan alfaraleiðar, gæti tilkynnt um slfld í síma sambandsins, 68-60-68. Landssambandið hafði í hyggju að hafa sérstakan viðbúnað um hvíta- sunnuna, vegna reynslu þeirrar er fékkst um páskana þegar fólk lenti víða í erfiðleikum, en ekki þótti ástæða til þess, þar sem hálendið er lokað umferð. Þar er víðast hvar mikil aurbleyta og kolófært, auk þess sem gróður er sérstaklega við- kvæmur á þessum árstíma. Sykurmolarnir: T .ifp’s too Good spáð 3-400.000 eíntaka sölu í Evrópu á árínu Frá Áma Matthlassyni, blaðamanni Morgunblaðaina i Lundúnum. Sykurmolarair ljúka tón- leikaför sinni um Bretland á morgun, sunnudag, en hljóm- sveitin hefur haldið þar níu tónleika í átta borgum siðustu tvær vikur og hefur hvarvetna leikið fyrir fullu húsi. Á sunnu- dag heldur hljómsveitin síðan til Bandaríkjanna til tónleika- halds. Sykurmolamir hafa leikið í átta borgum og hefur hvarvetna verið uppselt á tónleika hljómsveitar- innar, víða einni til tveimur vikum fyrir tónleikana. í kvöld verða síðustu tónleikamir og á morgun heldur hljómsveitin til New York og mun halda tónleika í nokkmm helstu borgum Bandarflganna. Hljómplata hljómsveitarinnar Life’s too Good, var gefín út í Bandaríkjunum 15. þessa mánað- ar, en velgengni plötunnar í Bret- landi varð til þess að útgáfufyrir- tækið Electra, sem gefur plötuna út vestan hafs, ákvað að setja hana ekki í sölu fyrr en nú í mánaðarlokin. Derek Birkett, forstöðumaður hljómplötufyrirtækis Sykurmol- anna í Bretlandi, One Little Indi- an, sagði í viðtali við blaðamann stuttu fyrir tónleika hljómsveitar- innar í Lundúnum á fimmtudag, að Deus væri í efsta sæti vin- sældalista háskólaútvarpsstöðv- anna bandarísku og að Birthday væri í sjöunda sæti á þeim sama lista. Hann sagði að áhugi fyrir hljómsveitinni í Bandaríkjunum væri meiri en menn hefðu þorað að vona. Til marks um það mætti geta þess að á sunnudag, þegar hljómsveitin kemur vestur um haf, væri búið að panta ein fimm til sex viðtöl og á meðal þeirra sem vildu viðtal væru blöð eins og The Washington Post og New York Times. Hann sagði ennfrem- ur að viðtal við hljómsveitina og frásögn af ferli hennar yrði birt í Rolling Stóne um mánaðamótin og að hann hefði fengið það stað- fest að hljómsveitin yrði á forsíðu tímaritsins, sem er virtasta popp- tónlistartímarit hetms. Hvað varð- aði stöðu hljómsveitarinnar í Evr- ópu sagði hann að nú væri búið að selja tæp 80.000 eintök af plöt- unni Life’s too Good í Bretlandi og að hann teldi það öruggt að hún færi í 100.000 eintök seld fyrir veturinn, sem gerði hana að gullplötu. Platan verður gefín út f Þýska- landi á mánudag og þar hafa þeg- ar komið pantanir upp á um 20.000 eintök og annað eins frá Skandinavíu, en hún verður gefín út þar í næstu viku. Hann sagði það fullljóst að platan myndi selj- ast í 3—400.000 eintökum í Evr- ópu einni fyrir áramót. Þess má geta hér að Life’s too Good hefur þegar náð gullsölu á íslandi, 3.000 eintaka sölu. Sjá einnig frásögn af tónleik- unum á fimmtudag á bls. 26

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.