Morgunblaðið - 21.05.1988, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, -LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1988
5
Fegurðardrottning íslands 1988:
Fjölbreytt dagskrá á krýningarhátíð
KRÝNING F egu rðardrottningar
íslands 1988 fer fram á Hótel
íslandi næstkomandi mánudags-
kvöld, 23. mai. Boðið verður upp
á fjölbreytta dagskrá en há-
punktur kvöldsins er sjálf krýn-
ingarathöfnin, sem verður um
miðnætti. Fegurðardrottning ís-
lands 1988 verður valin úr hópi
ellefu stúlkna, sem keppa til
úrslita en auk þess munu stúlk-
umar sjálfar velja vinsælustu
stúlkuna úr sinum hópi og ljós-
myndarar velja bestu ljósmynda-
fyrirsætuna.
Salarkynni Hótel íslands verða
opnuð klukkan 18.30 með fordrykk
en dagskráin hefst með því að
stúlkumar ganga pelsklæddar í
salinn um klukkan 20.00. Boðið
verður upp á þríréttaðan hátíðar-
matseðil og mun píanóleikarinn
Eliza Emery leika undir borðum.
Þá verður fluttur dans, saminn af
Ástrósu Gunnarsdóttur, við verk
Gunnars Þórðarsonar, „Tilbrigði
við fegurð". Dansarar eru frá
Dansstúdíói Sóleyjar. Því næst
munu keppendur koma fram á bað-
fötum. Þá munu Módel ’79 sýna
fatnað frá Tískuhúsi Markus og
að því loknu koma stúlkumar fram
á samkvæmiskjólum. Einar Júlíus-
son mun syngja nokkur lög og
Dansflokkur Auðar Haralds sýnir
Kamivaldansa. Gert er ráð fyrir
að krýning Fegurðardrottningar
íslands fari fram um miðnætti og
að því loknu mun hljómsveitin „Ðe
Lónlí Blú Bojs" leika fyrir dansi
fram eftir nóttu.
Stúlkumar ellefu sem keppa til
úrslita eru: Guðbjörg Gissurardóttir
19 ára Reykjavík, Guðbjörg Fríða
Guðmundsdóttir 19 ára Keflavík,
Guðný Elísabet Ólafsdóttir 20 ára
Reykjavík, Guðrún Margrét Hann-
esdóttir 20 ára Reykjavík, Halldfs
Höm Höskuldsdóttir 20 ára Eyja-
hreppi á Snæfellsnesi, Kamilla Rún
Jóhannsdóttir 17 ára Akureyri,
Karen Kristjánsdóttir 23 ára Olf-
usi, Kristín Birgitta Gunnarsdóttir
22 ára Reykjavík, Linda Péturs-
dóttir 18 ára Vopnafirði, Marta
Jörundsdóttir 18 ára ísafirði og
Sigrún Eyflörð 20 ára Garðabæ.
Dómneftid skipa Ólafur Laufdal
veitingamaður, Erla Haralds dans-
kennari, Friðþjófur Helgason ljós-
myndari, Öm Guðmundsson bal-
lettdansari, Sigtryggur Sigtryggs-
son fréttastjóri, Sóley Jóhanns-
dóttir danskennarí og María Bald-
ursdóttir fyrrum fegurðardrottning
fslands. Krýningu nýrrar fegurðar-
drottningar annast þær Magnea
Magnúsdóttir og Sigríður Guð-
laugsdóttir sem urðu í öðm og
þriðja sæti í fegurðarsamkeppninni
í fyira og kynningu annast Berg-
þór Pálsson og Sigrún Waage.
Heiðursgestir verða Davíð Oddsson
borgarstjóri, Richard Birtchenell
frá Top Shop í London og David
Naidoo frá írlandi, sem hefur ann-
ast framkvæmdastjóm á fegurð-
arsamkeppninni þar í landi. Umsjón
með framkvæmd keppninnar hér á
landi í ár var í höndum Gróu Ás-
geirsdóttur.
Gæti orðið
erfitt að fá
sumarvinnu
Atvinnuleysi
0,5% í apríl
Atvinnuleysisdagar í apríl
voru 14.000, sem jafngildir því
að 640 manns hafi verið á at-
vinnuleysisskrá allan mánuðinn,
eða 0,5% vinnandi manna. Vinnu-
málaskrifstofu Félagsmálaráðu-
neytisins hafa borist tilkynning-
ar um uppsagnir allt að 300
starfsmanna að undanförnu, sem
margar koma til framkvæmda á
sama tíma og skólafólk kemur á
vinnumarkaðinn í sumar og kann
þvi að verða erfiðara að fá sum-
arvinnu en undanfarin ár, að því
að segir í tilkynningu frá Vinnu-
málaskrifstofunni.
Skráðum atvinnuleysisdögum
fækkaði um 3.400 frá mánuðinum
á undan, eða um 20%, en voru þó
2.000 fleiri en í aprílmánuði í fyrra.
Vinnumálaskrifstofan telur þetta
þó minni breytingu en vænta hefði
mátt, því atvinnuástand í aprílmán-
uði 1987 hafí verið mjög gott og
reyndar verið mannekla víða.
Um 380 konur voru að meðaltali
á atvinnuleysisskrá í apríl, en 260
karlar. Skipt eftir landshlutum voru
flestir skráðir atvinnuleysisdagar á
Suðurlandi, eða 2.514, en miðað við
fólksfjölda voru þeir flestir á Norð-
urlandi vestra, eða 2.475, nærri
jafn margir og á höfuðborgarsvæð-
inu, þar sem þeir voru 2.482. Fæst-
ir atvinnuleysisdagar voru á Vest-
fjörðum, einungis 119.
Vandi refabænda:
Beðið könn-
unar Stofn-
lánadeildar
TILLAGNA og ákvarðana til
lausnar á vanda refabúskaparins
i landinu er ekki að vænta fyrr
en eftir að Stofnlánadeild land-
búnaðarins hefur gengið frá
könnun á fjárhagsvanda einstakra
bænda sem þar er unnið að. Búist
er við að skýrsla Stofnlánadeildar
liggi fyrir í annarri viku eftir
hvitasunnu.
Starfshópur landbúnaðarráðherra
kom saman í vikunni. Þar var lögð
fram tillaga Sambands íslenskra loð-
dýraræktenda. Sveinbjöm Eyjólfsson
deildarstjóri í landbúnaðarráðuneyt-
inu segir að lítið sé hægt að gera í
málinu fyrr en skýrsla Stofnlána-
deildar liggi fyrir.
Aðspurður sagði Sveinbjöm að ný
loðdýraleyfi hefðu ekki verið veitt
undanfama mánuði. Hann sagði þó
að einhverjar umsóknir biðu af-
greiðslu, þrátt fyrir erfiða stöðu í
greininni, og væri það mest umsókn-
ir um leyfi til að rækta mink. Bjóst
hann við að umsóknimar yrðu tsknar
fyrir fljótlega.
VERÐUR HALDIÐ 23. MAÍ
(ANNAN í HVÍTASUNNU)
Á HVALEYRARVELLI
KEPPNISFYRIRKOMULAG:
Stableford punktakeppni
1. VERÐLAUN:
SLP-220 geislaspilari fráTechnics/Panasonic.
2. VERÐLAUN:
RX-FW17 ferðaútvarps- og kassettutæki frá
Panasonic.
3. VERÐLAUN:
MCE-89 1000 vatta ryksuga frá Panasonic.
AUKAVERÐLAUN:
Panasonic myndbandstæki NV-G21 fyrir að
fara holu í höggi á 17. braut.
Panasonic útvarps- og vekjaraklukka
fyrir að vera næstur holu á 11. og 17. braut.
Ræst verður út frá kl. 08.30 til 14.00.
Skrásetning og upplýsingar verða
í skálanum laugardag og sunnudag
til kl. 20.00. Sími 53360.
C>
JAPIS BRAUTARHOLTI 2 — PANASONIC — GOLFKLÚBBURINN KEILIR —