Morgunblaðið - 21.05.1988, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1988
Píanó-
tónleikar
í Borgar-
neskirkju
ÖRN Magnússon heldur einleiks-
tónleika í Borgarneskirkju á ann-
an í hvítasunnu, að kvöldi hins
23. þessa mánaðar. Tónleikarnir
eru haldnir á vegum Tónlistarfé-
lags Borgarfjarðar og hefjast
þeir kl. 21. A efnisskránni eru
eingöngu verk eftir Johann Se-
bastian Bach.
Öm Magnússon píanóleikari
fæddist á Ólafsfírði árið 1959. Hann
hóf tónlistamám í heimabyggð sinni
en hélt síðan til Akureyrar og lauk
burtfararprófí frá _ Tónlistarskóla
Akureyrar 1979. Árin 1980—86
stundaði hann framhaldsnám á
píanó í Manchester, London og
Áætlaður kostnaður við
hafnar fr amkvæmdir
um 800 milljónir króna
Örn Magnússon píanóleikari.
Berlín. Meðal kennara Amar má
nefna Soffíu Guðmundsdóttur, Ge-
org Hadjinikos og Louis Kentner.
Eftir að Öm kom heim frá námi
1986 hefur hann kennt við Tón-
skóla Sigursveins D. Kristinssonar
og haldið auk þess tónleika í
Reykjavík og úti um landsbyggðina.
(FréttatUkynning)
ÁÆTLAÐ er að veija um 230 milljónum króna á þessu ári til hafnar-
framkvæmda í Reykjavíkurhöfn, en helsta framkvæmdin verður
lenging Kleppsbakka. Kostnaðaráætlun varðandi hafnarframkvæmd-
ir annars staðar á landinu hljóðar upp á 530 milljónir króna, en þar
af greiðir ríkið um 380 milljónir og hafnarsjóðir viðkomandi sveitar-
félaga 150 milljónir. Viðamesta framkvæmdin utan Reykjavíkur
verður við nýja fiskihöfn á Akureyri.
NEWYORK
FLUGLEIDIR
-fyrír þíg-
Um 95 milljónum króna verður
varið til lengingar Kleppsbakka í
Reykjavíkurhöfn og í skjólgarð, sem
tengist honum, verður varið 20
milljónum. Þá verður um 85 milljón-
um króna varið í framkvæmdir við
Kleppsvík, samkvæmt fjárhagsá-
ætlun Reykjavíkurhafnar fyrir
þetta ár.
Að sögn Hermanns Guðjónsson-
ar, vita- og hafnarmálastjóra, er
gert ráð fyrir að á þessu ári verði
unnið fyrir um 530 milljónir í al-
mennum höfnum víðsvegar um
landið auk 22 milljóna sem varið
verður í sjóvamargarða og 6 millj-
óna í ferjubryggjur. Hermann sagði
að unnið yrði við einhveijar nýfram-
kvæmdir í allt að 40 höfnum í ár.
Á tíu stöðum á landinu verður unn-
ið fyrir meira en 20 milljónir á hveij-
um stað.
í Ólafsvík er gert ráð fyrir að
unnið verði fyrir tæpar 40 milljón-
ir, en það er 120 metra langur stál-
opiö u-iavi*aAJL--—
þilsbakki. í Stykkihólmi er gert ráð
fyrir framkvæmdum upp á rúmar
20 milljónir, en þar er áætlað að
leggja gijótgarð úr í Súgandisey.
Þessi framkvæmd er fyrsti áfangi
vegna aðstöðu fyrir nýja Breiða-
fjarðarfeiju, en fyrirhugað er að
bryggja fyrir feijuna verði í eyj-
unni. Þessi garður verður jafnframt
skjólgarður fyrir höfnina í Stykkis-
hólmi. Hin endastöð Breiðaflarðar-
feijunnar verður á Bijánslæk og í
ár er gert ráð fyrir að veija um 20
milljónum króna við gerð 56 metra
langrar stálþilsbryggju þar.
Á Sauðárkróki er verið að lengja
aðalhafnargarðinn um 60 metra og
er kostnaður við það áætlaður um
30 milljónir. Á Akureyri verða
mestu framkvæmdimar utan
Reykjavíkur eins og áður segir, en
gert er ráð fyrir að þar verði unnið
fyrir um 65 milljónir króna á þessu
ári. Helsta framkvæmdin þar er
grjótgarður við nýja fískihöfn og
innan við hann 170 metra langur
viðlegukantur.
Varðandi hafnarframkvæmdir í
Grímsey á þessu ár sagði Hermann
að ætlunin væri að steypa þijú ker
sem síðan verða dregin út í Grímsey
og notuð þar í hafnarbætur. Fyrsta
verkefnið í nýrri rannóknarstöð
Vita- og hafnarmálastofnunar, sem
tekin verður í notkun í júní næst-
komandi, verður líkan af Grímsey
og lokahönnun á Grímseyjarhöfn
verður ekki endanlega ákveðin fyrr
en þeirri líkantilraun er lokið.
A Húsavík er áætlað að vinna
fyrir um 40 milljónir króna, en það
er um 40 þúsund rúmmetra gijót-
vöm utan á aðalhafnargarðinn, sem
jafnframt mun breikka hafnarbak-
kann, sem er helsta vömbryggja
Húsavíkurhafnar. Á Eskifírði er
gert ráð fyrir að vinna fyrir um 35
milljónir, en það er ný 120 metra
viðlega við fískimjölsverksmiðjuna.
Gert er ráð fyrir að sú bryggja
verði tilbúin fyrir næstu loðnu-
vertíð.
í Vestmannaeyjum er áætlað að
veija um 26 milljónum í 80 metra
viðlegukant út við Eiði. Þá er gert
ráð fyrir að veija um 30 milljónum
króna í dýpkunarframkvæmdir við
innsiglinguna í Sandgerðishöfn, en
að sögn Hermanns er hér um eins
konar tilraunaverkefni að ræða, þar
sem framhald framkvæmdanna
ræðst af því hvemig til tekst nú í
sumar. Hér er um að ræða bomn
og sprengingar á klöpp fyrir utan
innsiglinguna og hefur sérstakur
borpallur verið tekin á leigu frá
norsku hafnarmálastofnuninni til
þessa verkefnis.
Skólastjórastaða við Ölduselsskóla:
Fræðsluráð mælir með
Sjöfn Sigurbjörnsdóttur
FRÆÐSLURÁÐ Reykjavíkur
hefur samþykkt að mæla með
Sjöfn Sigurbjömsdóttur í skóla-
stjórastöðu við Ölduselsskóla.
Þrír fulltrúar Sjálfstæðisflokks
og fulltrúi Alþýðuflokks vildu
mæla með Sjöfn. Fulltrúi Al-
þýðubandalagsins tók hins vegar
afstöðu með hinum umsækjand-
anum um stöðuna, Reyni Daníel
Gunnarssyni, yfirkennara við
Ölduselsskóla, en hann hefur
hlotið stuðning 59 starfsmanna
bapa
6KoKFNA£
fo} Perstorp
Vantar þig
tilbreytingu?
Af hverju ekki að
lífga uppá gömlu
innréttinguna?
MEÐ PERSTORP HARÐ-
PLASTI, BORÐPLÖTUM
OG GÓLFEFNI.
HF.OFNASMIBJAN
SÖLUDEILD
HÁTEIGSVEGI7. S: 21220
við skólann, kennararáðs, full-
trúaráðs foreldrafélags skólans
og Kennarafélags Reykjavíkur.
Mál þetta kom til umræðu á fundi
borgarstjórnar sfðastliðinn
fimmtudag. _
Kristín A. Ólafsdóttir, borgarfull-
trúi Alþýðubandalagsins, sagðist
telja að meirihluti fræðsluráðs hefði
komist að undarlegri niðurstöðu
þegar hann ákvað að mæla með
Sjöfn, þrátt fyrir að Reynir hefði
þennan stuðning að baki. Fræðslu-
ráðsmenn Sjálfstæðisflokksins, sem
staddir vom á fundinum, sögðu að
þessi ákvörðun hefði verið tekin
vegna þess að Sjöfn hefði meiri
reynslu en Reynir. Davíð Oddsson
borgarstjóri benti á að áður hefði
fræðsluráð mælt með ákveðnum
umsækjendum þrátt fyrir meðmæli
með öðmm og þar hefðu fulltrúar
Alþýðubandalagsins ekki skorið sig
úr, enda væri til þess ætlast að
fræðsluráð tæki sjálft afstöðu til
umsækjenda, en færi ekki eftir fyr-
irmælum utan úr bæ.
í samþykkt fræðsluráðs segir að
báðir umsækjendur séu mjög hæfír
til þess að gegna starfi skólastjóra,
Sjöfn hafí hins vegar lengri reynslu
af yfírmannsstörfum á sviði skóla-
mála og störfum á opinbemm vett-
vangi. Hæfni Reynis Daníels Gunn-
arssonar er þó ekki dregin í éfa.
Menntamálaráðherra mun ráða í
stöðuna, að fenginni umsögn fræðs-
luráðs og fræðslustjóra Reykjavík-
RITVÉLAR
REIKNIVÉLAR
PRENTARAR
TÖLVUHÚSGÖGN