Morgunblaðið - 21.05.1988, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1988
17
Hvað varð
um hjólreiða-
daginn?
eftir Þór Jakobsson
Oft hef ég verið spurður þessarar
spumingar og sjálfsagt hafa aðrir
sem viðriðnir voru hinn árlega Hjól-
reiðadag verið spurðir hins sama.
Hjólreiðadagurinn var haldinn hvert
vor árin fimm 1981 til 1985 með
glæsibrag og þátttöku þúsunda
ungra og gamalla hjólreiðagarpa.
Samdægurs fór fram afhending
söfnunarfjár sem safnast hafði
meðal almennings vikumar fyrir
Hjólreiðadaginn. Féð fór til upp-
Dyggingar í Reykjadal í Mosfells-
sveit, en þar er sumardvalarheimili
fyrir fötluð böm.
Riðið var á vaðið með skipulagn-
ingu Hjólreiðadags og framkvæmd
árið 1981 eins og áður gat — að
nokkm leyti að erlendri fyrirmynd
eins og margt gott. Þessi nýja úti-
hátíð var haldin á vegum Styrktar-
félags lamaðra og fatlaðra, en þá
var Sigurður Magnússon fram-
kvæmdastjóri félagsins, núverandi
framkvæmdastjóri ÍSÍ. Síðari árin
vann Kvennadeild Styrktarfélags
lamaðra og fatlaðra að Hjólreiða-
deginum af miklum skörungsskap.
Samtímis undirbúningi og skipu-
lagningu á sjálfum Hjólreiðadegin-
um stóð kvennadeildin að mikils-
verðri kynningu á starfí Reykja-
dals. Sú kynning fór fram víðs veg-
ar í skólum á höfuðborgarsvæðinu
og þótti takast vel sem dálítil brúar-
gerð milli fatlaðra og ófatlaðra
bama.
Þessi sjálfboðavinna kvenna-
„Haf in verður endur-
reisn Hjólreiðadagsins
í vor og stefnt er að
fullkomnum Hjólreiða-
degi á öllu höfuðborg-
arsvæðinu - og vonandi
víðar — vorið 1989.
Hjólreiðadagur verður
sunnudaginn 29. maí
nk. í Reykjavík“
deildar var mikil og tímafrek, enda
jukust vinsældir dagsins ár frá ári.
Einsýnt var, að starfíð yrði ofviða
fáeinum hamhleypum og þörf á enn
öflugri undirbúningsnefnd. Því mið-
ur virtist sjálft Styrktarfélagið ekki
hafa áhuga eða þrótt í sér til að
halda við Hjólreiðadeginum. Und-
anfarin tvö ár hefur ekki verið hald-
inn Hjólreiðadagur og útlit fyrir að
hann Iognaðist út af. Hann yrði
ekki hefð sem fjölþættur dagur til
kynningar á málefnum fatlaðra
heldur 5 ára tímabil meðan nokk-
urra dugnaðarforka nyti við.
En fljótt skipast veður í lofti og
nú til hins betra. Hafín verður end-
urreisn Hjólreiðadagsins í vor og
stefnt er að fullkomnum Hjólreiða-
degi á öllu höfuðborgarsvæðinu -
og vonandi víðar — vorið 1989.
Hjólreiðadagur verður sunnu-
daginn 29. maí nk. í Reykjavík
og verður hjólað úr hverfum borgar-
Frá Hjólreiðadeginum 1984.
innar sem leið liggur í Kringluna.
Bílatorg Kringlunnar verður vænt-
anlega að reiðhjólatorgi þennan dag
— hressingardag til styrktar þörfum
málefnum. Nánar verður greint frá
skipulagi í blöðum og öðrum fjöl-
miðlum næstu daga.
Undirbúningur að Hjólreiðadeg-
inum núna er skjótur en hnitmiðað-
ur og hófst með því er komið var
að máli við okkur fyrri aðstandend-
ur Hjólreiðadagsins. Hefur nú tek-
ist hin ágætasta samvinna. Frum-
kvöðull að uppvakningu hátíðarinn-
ar strax í vor er Magnús Pálsson
viðskiptafræðingur og íþróttakenn-
ari, framkvæmdastjóri Hjólreiða-
dagsins 1988. Kaupmenn í Kringl-
unni hafa af rausn sinni boðið að-
stöðu, stuðning við kynningu og
síðast en ekki síst að verða við
áheitum um fjárstyrk til málefnis-
ins. Þau verða í réttu hlutfalli við
þátttöku almennings á hjólreiða-
deginum.
Vitanlega eru fjárgjafír almenn-
ings vel þegnar eftir sem áður,
þótt ekki verði staðið að söfnun
með fyrri hætti.
Ágóði verður til styrktar Reykja-
dal sem fyrr var nefndur og íþrótta-
félagi fatlaðra í Reykavík, sem
vinnur af alefli að bráðnauðsynlegu
endurhæfingarstarfi meðal fatl-
aðra.
Á Hjólreiðadögum fyrri ára tókst
flest vel og er ánægjulegt til þess
að vita, að hafist verður handa á
ný. Hins vegar var sitthvað sem
aflaga fór.
Það verður haft í huga og stefnt
að úrbótum að fenginni reynslu.
Mest er um vert, að ungir og aldn-
ir hjólreiðamenn munu njóta vand-
virkni og vemdar lögreglunnar í
Reykjavík — og væntanlega velvild-
ar ökumanna. Auk ofantaldra eru
í undirbúnigsnefnd Baldvin Ottóson
lögregluvarðstjóri og Björg Stef-
ánsdóttir frá Kvennadeild Styrktar-
félags lamaðra og fatlaðrá, gamal-
reyndir skipuleggjarar fyrri Hjól-
reiðadaga. Ennfremur er í nefnd-
inni Sigurgeir Þorgrímsson, for-
maður íþróttafélags fatlaðra i
Reykjavík.
Að lokum skora ég á fólk að
gera við hjólin og stefna að þátt-
töku, hvort sem bjartviðrið helst eða
ekki. Heitið á kaupmennina ykkar
til stuðnings þeim sem síður geta
hjólað en temja sér samt einurð við
hið gerlega — og dugnað sem er
ófötluðum til fyrirmyndar.
Höfundur er veðurfræðingur.
Menningin
- burðarás norræns samstarfs
Norræni blaðamannaskólinn og upplýsingadeild
Norðurlandaráðs efna til námstefnu/námskeiðs
fyrir fulltrúa norrænna fjölmiðla dagana 20. ágúst
til 2. september 1988 um viðfangsefnið „Menning-
in - burðarás norræns samstarfs".
Námskeiðið verður haldið í Gautaborg, á Skagan-
um og í Árósum. Farnar verða nokkrar kynnis-
ferðir um Danmörku.
í hópi fyrirlesara verða stjórnmálamenn, m.a. ráð-
herrar og ýmsir áhrifamenn úr menningarlífinu.
Meðal umfjöllunarefna má nefna:
- Nær nýja menningarmálaáætlunin tilgangi sínum?
- Eru Danir að yfirgefa norræna menningarsam-
félagið?
- Norræn sjónvarpsstefna í nýju Ijósi.
- Norræn aðföng í kennslustarfi.
- Hlutur hinna vestlægu Norðurlanda í norrænni
menningarumræðu.
- Innflytjendur og norræn menning.
- Stuðningur fyrirtækja við menningarstarfsemi.
Námskeiðið er ætlað ritsjórum, blaðamönnum, rit-
stjórnarfulltrúum og sjónvarps- og útvarpsmönnum
hvaðanæva af Norðurlöndum.
Gisting, matur og ferðir meðan á námskeiðinu
stendur er þátttakendum að kostnaðarlausu. Hins
vegar greiða þeir sjálfir ferðir til og frá námskeið-
inu, en það hefst síðdegis hinn 20. ágúst í Gauta-
borg.
Hægt er að sækja um sérstakan ferðastyrk.
Umsóknir má stíla á neðangreind heimilisföng og
skulu þær hafa borist eigi síðar en 14. júní nk.
Val þátttakenda á námskeiðið verður tilkynnt eftir
20. júní.
Nordisk Journalistkursus,
Vennelystparken, DK-8000 Árhus C.
Nordiska rádets presidiesekretariat,
Box 19506, S-104 32 Stockholm.
J
K. AUÐUNSSON HF
Hefur tekið að
sér einkaumboð
(áður Leonard)
Við munum sjá
um alla sölu og
þjónustu fyrir þessa vöru.
RADA er í háum gæðaflokki og
sérhæfir sig í hitastýrðum
blöndunartækjum,fyrir iðnað,
sundlaugar,sjúkrahús
og einstaklinga.
K. AUÐUNSSON H.F.
Grensásvegur 8
108 Reykjavik
simi: 686088 & 686775