Morgunblaðið - 21.05.1988, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1988
23
Blásarasveit Tónlistarskóla Sauðárkróks. Morgunblaðið/Bjöm Bjömsson
Sauðárkrókur:
Nýjungar í starfi
Tónlistarskólans
Sauðárkróki.
LOKATÓNLEIKAR og skólasUt
Tónlistarskólans á Sauðárkróki
fóru fram í Safnahúsinu föstu-
daginn 6. maf, að viðstöddu fjöl-
menni. Var þetta síðari hluti
lokatónleika skólans, en fyrri
hluti tónleikanna fór fram á
sama stað þann 30. apríl.
í ræðu skólastjóra, Evu Snæ-
bjamardóttur, kom fram að í vetur
stunduðu 170 nemendur nám í skól-
anum. Það nýmæli er nú í starfí
skólans að nemendur níunda bekkj-
ar geta tekið tónlist sem valgrein
til lokaprófs grunnskólans, og fagn-
aði skólastjóri því að þetta sam-
starf hefði tekist á milli þessara
tveggja skóla. Þá verður nú í vor,
þó að hefðbundnu skólastarfí sé
lokið, boðið upp á viku námskeið,
bæði fyrir byrjendur og einnig þá
sem lengra eru komnir, og er þetta
hugsað til undirbúnings fyrir þá
sem heija vildu tónlistamám að
hausti.
Þá rakti skólastjóri þær áætlanir
sem uppi eru um nýtt húsnæði sem
Tónlistarfélaginu var í vor afhent
til reksturs tónlistarskóla, og er
þess fastlega vænst að starfsemi
geti hafist í húsinu nú fyrir sumarið.
Þá komu fram nemendur skólans
og léku á hin ýmsu hljóðfæri, ein-
leik og samleik. Einnig kom nú fram
í fyrsta sinn nýstofnuð léttsveit
skólans sem skipuð er nemendum
og kennurum og síðan blásarasveit
undir stjóm Sveins Sigurbjömsson-
ar og var báðum þessum hljómsveit-
um fagnað með miklu lófataki.
Þá flutti Marteinn Friðriksson
formaður Tónlistarféiagsins ávarp
og hvatti bæjarbúa tii þess að styðja
vel við Tónlistarskólann, þar sem
nú væru mikil átök framundan við
að búa hið nýja húsnæði hljóðfærum
og öðrum búnaði er þyrfti.
Að lokum afhenti skólastjóri
nemendum prófskírteini, þakkaði
nemendum og gestum komuna og
sagði skóla slitið.
- BB
Hús BSR við Skógarhlíð er um það bil að verða fokhelt og standa
vonir til að það verði tilbúið um næstu áramót.
BSR flytur í Skógarhlíð
BIFREIÐASTÖÐ Reykjavíkur
mun innan tíðar flytja í nýtt hús-
næði, sem fyrirtækið er að reisa
ásamt Böðvari Böðvarssyni hús-
asmíðameistara, við Skógarhlíð.
Að sögn Eggerts Thorarensen
forstjóra BSR, verður bifreiðastöðin
til húsa á neðri hæð hússins, sem
er samtals um 200 fermetrar að
stærð. Inn- og útakstur frá stöðinni
verður fyrst um sinn um Skóg-
arhlíð en með væntaniegum Bú-
staðarvegi ofar í Öskjuhlíð, verður
ekið þar um.
Guðmundur Guðmundsson arki-
tekt hannaði nýja húsið.
BSR var stofnað árið 1921, þeg-
ar nokkrir bifreiðastjórar með að-
setur við Lækjartorg tóku sig sam-
an um að reka stöðina og fengu
þeir aðstöðu fyrir síma í tuminum
á Lækjartorgi. Seinna var tekið á
leigu húsnæði, sem Verslun Harald-
ar Arnasonar átti við Austurstræti
22. Þar var stöðin fram til ársins
1944 þegar BSR varð að víkja úr
Austurstræti í Lækjargötu eins og
aðrar leigubifreiðastöðvar, sem
í-
I
höfðu aðsetur við Lækjartorg en
Strætisvagnar Reykjavíkur fengu
þá aðstöðu við torgið.
Vorferðalag
barnastarfs
Fríkirkjunnar
FARIÐ verður í vorferðalag
bamastarfs Fríkirkjunnar i
Reykjavík á annan f hvftasunnu,
mánudaginn 23. mai nk. Ferðinni
er heitið út í Viðey.
Lagt verður af stað frá Eikju-
brúnni í Sundahöfn kl. 11.00 fyrir
hádegi og siglt út í eyna. Fargjald-
ið verður 100 krónur fyrir böm og
300 krónur fyrir fullorðna. Veiting-
ar em seldar úti i eynni, en þó er
rétt af þátttakendum að hafa með
sér nesti.
Þátttakendur komi að Eikju-
brúnni í Sundahöfn rétt fyrir kl.
11.00 f.h. annan i hvítasunnu.
(Fréttatílkynning)
tölfrædifomtíð
Kynning á SPSS hugbúnaði fyrir einkatölvur verður haldin í stofu 101
í Odda, húsi Háskóla íslands við Sturiugötu, þriðjudaginn 24. maí klukk-
an 13.30. Kynningunni lýkur kl. 15.45.
SPSS er safn forrita til alhliða tölfraeðivinnslu. Það hefur verið notað í
meira en 10 ár við kennslu og rannsóknir í Háskóla íslands. Ýmsar
aðrar stofnanir og fyrirtæki nota þetta forrit til þess að vinna úr rann-
sóknum sínum. I vetur kom á markað ný útgáfa fyrir einkatölvur auk
þess sem forritið er til á flestar algengar flölnotendatölvur.
Dagskrá:
— Kynning á SPSS/pc+: Göran Ek, forstjóri SPSS á Norðuriöndum.
- Notkun SPSS á íslandi. Helgi Þórsson, forstöðumaður Reiknistofn-
unar Háskólans og Elías Héðinsson, lektor. •
- Göran Ek svarar fyrirspumum.
Vegna fyrirhugaðra breytinga í sýningarsal
okkar bjóðum við allar eldhús- og baðinnrétt-
ingar, hreinlætis-
tæki, blöndunar-
tæki auk fataskápa
í sýningarsal okkar
með 40% afslætti.
Opið alla virka. daga
frá kl.09;00-18.00
og laugardaga
frá kl. 10.00-16.00
Ath! TILBOÐ ÞETTA STENDUR FRAM
YFIR NÆSTU HELGI.
innréttingoþjönmton
Smiðjuvegi ÍO — 202 Kópuvaifi — Símar 77100-79800