Morgunblaðið - 21.05.1988, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1988
á áheyrendum. Þegar upp-
hafstónar næsta lags, Mótor-
slys, heyrðust, fór og kösin
rétt framan við sviðið, 5—600
manns, á hreyfingu og var á
hreyfingu það sem eftir lifði
tónleikanna með hápunktum á
viðeigandi stöðum. Næst á
eftir Mótorslysi kom nýtt lag
með íslenskum texta, sem ég
kann ekki að nefna, og þar á
eftir kom kunnuglegt lag af
tónleikum á íslandi, sem kalla
má Plánetulagið. Kábboj var
næst og á meðan sveitin lék
það lag dansaði fólk „slam“-
dansinn góðkunna, þ.e. kast-
aði sér hvert á annað, enda
lagið vel til þess fallið. Næst
á eftir kom Guð, sem flestir
kunnu greinilega utan að og
sungu hástöfum með. Svikari
gaf síðan tóninn fyrir Heitt
kjöt, sem var hreint fyrirtak.
Þegar hér var komið sögu var
mikið hrópað utan úr sal á
Veik í leikföng, en áður en
röðin kom að því kom nýtt lag
eða nýlegt og hljómaði vel.
Veik í leikföng var vel flutt
þetta kvöfd sem og reyndar
öll lögin sem sveitin lék. Hið
óumflýjanlega Ammæli róaði
menn og enn kom nýtt lag
með íslenskum texta sem ég
kann ekki að nefna. Tekið í
takt og trega hleypti lífi í
áheyrendur á ný og var nú
orðið vel heitt í húsinu.
Mamma fylgdi í kjölfarið, fram-
úrskarandi vel flutt, og strax á
eftir mögnuð útsetning á Hei-
lögum skratta. Við svo búið
hvarf sveitin af sviðinu. Ekki
voru menn þó búnir að fá nóg
og eftir langvarandi lófatak og
hróp á meira, kom Einar Örn
á svið og tók sér í hönd raf-
magnsgítar. Lék hann af fing-
rum fram í rúma mínútu (Björk
tók tímann) og sýndi ámóta
tilþrif og á trompettinn góða.
Fyrsta uppklappslagið var nýtt
lag og gott, en strax og því
var lokið vatt hljómsveitin sér
í Kött. Þá bættist í hópinn sjö-
undi liðsmaðurinn, uppblásinn
górilluapi, sem hjálpaði til við
flutning lagsins. Lokalag tón-
leikanna var Bláeygt popp, eitt
besta lagið af Life’s too Good.
Það er kannski táknrænt fyrir
tónlist sveitarinnar, sem er
reyndar flest annað en bláeygt
popp. Textinn í því lagi, þó
hann hafi verið á ensku, sýnir
og það að Sykurmolarnir eru
íslensk sveit, því hann byggir
á íslenskum aðstæðum og
líklega skilja menn ekki vísan-
irnar í honum hafi þeir ekki
stundað íslenskt næturlíf að
einhverju marki.
Áhorfendur reyndu að
klappa sveitina upp að nýju,
en Einar kom fram á sviðiö,
sagði þeim aö þetta væri allt
og sumt og kvaddi með þeim
orðum að þetta hefðu veriö
Sykurmolarnirfrá Spáni og þar
með voru Ijósin kveikt.
Ljósmynd/BS
Ljósmynd/BS
m acvqt POPP
ur til lífsins. Textarnir voru all-
ir á íslensku sem enn gerði
hljómsveitinni erfitt fyrir, en
allt gekk þó vonum framar og
ekki varð vart við að neinum
þætti Draumurinn vera of
lengi á sviðinu. Gunnar bassa-
leikari * sveitarinnar braut
meira að segja odd af oflæti
sínu og lét falla einstaka orð
á ensku, en það var þó allt i
lágmarki.
Þrátt fyrir framúrskarandi
frammistöðu sveitarinnar, er
ekki örgrannt um að það hafi
haft eitthvað að segja að sveit-
in var að leika sem upphitunar-
sveit, en líklega réð taugaó-
styrkur einhverju.
Sykurmolarnir
Sykurmolarnir voru hljóm-
sveitin sem menn voru að bíða
eftir og það mátti líka heyra
það þegar sveitin kom á svið,
því mannfjöldinn gaf frá sér
mikið öskur og kastaði til
þeirra rósum. Fyrsta lag tón-
leikanna var Taktu bensín
elskan, lokalag breiðskífu
sveitarinnar Life’s too Good
sem sumir kalla reyndar ekki
lag. Það átti þó vel við þarna
og Molarnir náðu þegartökum
Ljósmynd/BS
Sykurmolarnir, stærsta
bílskúrshljómsveit Vestur-
Evrópu, er nú í þann mund
að Ijúka tveggja vikna tón-
leikaför um Bretland. í kvöld
heldur sveitin síðustu tón-
leikana í Bretlandi að þessu
sinni og á morgun heldur
sveitin áleiðis til Banda-
rfkjanna til tónleikahalds.
Fyrstu Lundúnatónleikarnir í
þessari för voru haldnir fyrir
fullu húsi í London Astoria
sl. fimmtudagskvöld og lók
þar með Sykurmolunum
íslenska hljómsveitin S.h.
draumur auk breska dúetts-
ins Judas 2.
Tónleikastaðurinn, London
Astoria, rúmar vel á annað
þúsund áheyrenda og var vel
troðinn. Reyndar seldist upp
á tónleikana fyrir um fjórum
vikum, og víst komust færri
að en vildu, því mikið var um
að fólk væri að reyna að snapa
sér miða fyrir utan staðinn
þegar að var komið. Það hefur
verið hent gaman að því að
Sykurmolarnir sóu fyrsta
„uppa“hljómsveitin og reynd-
ar voru margir áheyrenda
þesslegir að þar færi ungt fólk
á uppleið. Það var þó ógjörn-
ingur að gera sér einhverja
hugmynd um samsetningu
áheyrendahópsins þegar á
leið, enda höguðu menn sér
ámóta; æptu og skóku sig á
milli þess sem þeir sungu
meö.
Fyrstur á svið var breskur
dúett sem fékk að kenna á þvi
Ég dansa við lík, en einnig
voru þrjú ný lög, Trúboði, Dýr
á braut, sem var frumflutt á
tónleikum í Hótel íslandi sl.
haust, og Grænir frostpinnar.
Eins og áður sagði voru áheyr-
endur erfiðir, enda er það ekki
vaninn í Bretlandi að taka mik-
ið mark á upphitunarhljóm-
sveitum og reyndar sýndu
Ijósmyndarar sveitinni ekki
mikinn áhuga framan af. Það
bráði þó af mönnum áhuga-
leysið, því sjaldan hefursveitin
verið betri og lagaval vel til
þess fallið að vekja áheyrend-
Hljómsveitln S. H. Draumur
vera fyrstur; fékk í sig
bjórglös og sígarettustubba
þegar fólki fannst vera nóg
komið; það vildi fá Sykurmol-
ana. Það var því erfitt fyrir
S.h. draum að eiga við þá sem
í salnum voru, en Draumurinn
var næstur á svið.
S.h. draumur
Lögin sem Draumurinn lék
voru flest af plötunni Goð,
sem gefin var út af enska fyrir-
tækinu Lakeland á sínum tíma,
s.s. Dauð Hola, Mónakó, Engl-
arnir, Helmút á mótorhjóli og
Vogar:
Matvöruverslunin flytur
í þjónustumiðstöðina
Matvöruverslun Kaupfélags
Suðurnesja hefur flutt f nýju þjón-
ustumiðstöðina i Iðndal 2 og er
verslunin fyrsta fyrirtœkið sem
tekur tíl starfa í byggingunni.
Við opnun verslunarinnar sagði
Gunnar Sveinsson kaupfélagsstjóri
að kaupfélagið hefði fyrst opnað
verslun f Vogunum f október 1985
til eins árs. En verslunin var rekin
af góðu fólki og reksturinn gekk vel
þrátt fyrir smávægilegan halla, og
það var talin ástæða til að halda
verslunarrekstrinum áfram. Verslun-
in var í leiguhúsnæði sem þurfti að
losa og á sama tfma og kaupfélags-
menn voru að ræða hugmyndir um
byggingu verslunarhúss kom fram
hugmynd að byggingu þjónustumið-
stöðvar með nokkrum aðilum. Komu
menn sér saman um að þetta væri
tilraun sem ætti að rejma.
Gunnar sagði að síðan hefði öllum
vandanum verið ýtt á Guðlaug R.
Guðmundsson, byggingameistara hjá
Lyngholt sf., sem hefur byggt þetta
myndarlega hús.
Verslunin er á 150 m2 gólffleti,
en með sameign er kaupfélagið með
um 190 m2 sem ætti að duga verslun-
inni um nokkum tfma.
í Vatnsleysustrandardeild kaup-
félagsins eru 76 félagar og er ætlun-
in að gera átak f að fjölga félögum
f eitt hundrað.
f versluninni starfa 5 manns.
Deildarstjóri er Selma Jónsdóttir.
- EG
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson
Guðlaugur R. Guðmundsson hjá Lyngholti sf. afhendir Gunnari
Sveinssyni kaupfélagsstjóra lykla að verslunarhúsnæðinu.