Morgunblaðið - 21.05.1988, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1988
31
Málverki eftir van
Gogh stolið úr safni
Amsterdam, Reuter.
BROTIST var inn í listasafn í
Amsterdam í gær og þaðan stolið
málverki eftir Vincent van Gogh
sem metið er á allt að 35 milijón
dollara (1.500 millj. ísl. kr.).
Wim Beeren yfirmaður Stedelijk-
-safnsins sagði í gær að starfsfólk
þess hefði komið að brotnum glugga
í gærmorgun og við eftirgrennslan
kom í ljós að þtjár myndir voru
horfnar úr safninu. Ein mynd eftir
van Gogh, „Nellikumar", auk mál-
verka eftir Hollendinginn Johann
Jongkind og Frakkann Paul Cez-
anne. Allar eru myndimar litlar
(50x50 cm) og því hægur vandi að
flylja þær.
Lögregla segir að þjófamir hafi
farið fagmennlega að við innbrotið
og þeir hafi greinilega vitað hvaða
myndum þeir ætluðu að stela og
hvar þær væri að fínna. Safnið
hefur verið illa statt fjárhagslega
undanfarið ár og er ekki tryggt
fyrir þjófnaði.
Sovésk sendinefnd stödd hér á landi:
Áhugí á innflutningi á ís-
lenskum fiskvinnslubúnaði
Poul Schliiter með
takmarkað umboð
Horfur á langvarandi stjórn
arkreppu í Danmörku
Árósum. Frá Jens Anker Boje, ReportageGruppen.
POUL Schliiter forsætisráð-
herra hefur nú fengið það erf-
iða verkefni að koma saman
ríkisstjórn í Danmörku og i
svipinn er ekki búist við, að
honum gangi það betur en
þeim, sem áður höfðu umboðið,
Svend Jakobsen og Niels Hel-
veg Petersen. SchlUter getur
nefnilega ekki myndað minni-
hlutastjórn borgaraflokkanna
eins og eftir síðustu kosningar
þvi að Radikale venstre vill
ekki heyra á annað minnst en
breiða meirihlutastjórn.
„Þetta er hvorki lítið verk né
löðurmannlegt og alls óvíst um
útkomuna," sagði Schluter en
mörgum þykir virðing þingsins
liggja við, að ný stjóm verði kom-
in á laggimar nk. fímmtudag þeg-
ar þingmennimir koma aftur sam-
an í Kristjánsborgarhöll.
Allir borgaraflokkamir, radik-
alar einnig, bentu á Poul Schluter
sem umboðshafa að þessu sinni
en þó fylgdi nokkur böggull
skammrifí. Radikalar komu því
nefnilega til leiðar, að Schluter
hefur ekki beint umboð til stjóm-
armyndunar, aðeins til að setja
saman drög að stjómarsáttmála,
sem notið getur meirihlutastuðn-
ings á þingi. Er hér um að ræða
enn eina tilraun Niels Helvegs
Petersens, leiðtoga radikala, til
að koma stóru flokkunum saman
þótt bæði Venstre og íhaldsmenn
hafi lagt á það áherslu í gær, að
þeir ætluðu ekki í stjóm með jafn-
aðarmönnum.
Róið á bæði borð
Það vom þessar sömu yfirlýs-
ingar, sem ollu því, að Niels Hel-
veg gafst upp við sínar tilraunir
og þá var talið, að nú yrðu radikal-
ar að taka afstöðu: Með jafnaðar-
mönnum eða borgaraflokkunum
— með Auken eða Schluter. Rad-
ikalar sitja þó enn við sinn keip
og ætla að neyða þá Auken og
Schlúter að samningaborðinu. Ni-
els Helveg hefur orðið við ósk
Schlúters um umboðið og hann
hefur samþykkt þá kröfu jafnað-
armanna, að viðræðumar snúist
í fyrstu aðeins um stjómmál en
ekki um forystuna. Allt er opið í
báða enda.
Klofningsótti
Niels Helveg og radikalar
segja, að Schlúter hafi ekki feng-
ið umboð til að mynda minnihluta-
stjóm borgaraflokkanna vegna
þess, að komið hafi í ljós í viðræð-
um, að stóru flokkana greini í
raun lítið á um landsstjómina. Það
sé aðeins persónulegur metnaður,
sem komi í veg fyrir stjómarsam-
starf.
Því má þó við bæta, að ágrein-
ingur innan Radikale venstre á
hér einnig hlut að máli. Ef flokk-
urinn játast öðrum hvomm, Au-
ken eða Schlúter, þykir hætt við
klofningi í flokknum.
Radikalar hafa margsagt, að
þeir vilji ekki vera í stjóm undir
forsæti Svends Aukens og náin
samvinna við borgaraflokkana er
einnig erfiðleikum bundin vegna
ólíkrar afstöðu til öryggismál-
anna. Samstarf við borgaraflokk-
ana gerði líka að engu þær ástir,
sem hafa verið að takast með
radikölum, Sósialfska vinstri-
flokknum og jafnaðarmönnum.
Vegna alls þessa telja margir,
að radikalar eigi þann kost
grænstan að vera utan stjómar
náist ekki samkomulag um breiða
meirihlutastjóm.
Reuter
Myndin er af málverkinu „Nellikurnar", sem var eitt þriggja mál-
verka eftir Vincent van Gogh, sem stolið var í Amsterdam í gær.
Verðmæti nellikumyndarinnar er talið vera á bilinu 15-35 milljónir
dollara (650 til 1500 miUj. kr.).
Frjálsir demókratar duttu
út
Úrslitin í kosningunum eru alvar-
legt áfall fyrir Frjálsa demókrata
sem duttu út af fylkisþinginu í Kiel
vegna þess að þeir náðu ekki til-
skildum 5% atkvæða. Þeir ætluðu
sér að njóta góðs af Barschel-
hneykslinu og frá þeim er komið
hugtakið um „svínastíuna í Kiel“.
Líkt og í Baden-Wúrttemberg fyrr
á árinu hefur sýnt sig að flokkurinn
getur ekki treyst þvf að fá til sín
þá kjósendur sem snúa baki við
kristilegum demókrötum. Flokkur
sem stöðugt verður að sitja á hak-
anum við stjómarmyndun hlýtur
að þurfa sérstakan sannfæringar-
kraft til að halda velli. Hvað stefnu
flokksins varðar er hún samt löngu
úr sér gengin. Utanríkisráðherrann,
Hans Dietrich Genscher, er líka sá
eini sem eitthvað kveður að í flokkn-
um. Takist aukið samstarf með
Fijálsum demókrötum og jafnaðar-
mönnum er eins vfst að pólitískir
dagar Martins Bangemanns, efna-
hagsmálaráðherra og sérlegs fylg-
ismanns Helmuts Kohls, séu taldir.
Blávatn í stað
táragass
Þingið í Kiel hefur skipt um svip
en spumingin um afleiðingamar er
jafn opin og fyrr. Eitt fyrsta verk
jafnaðarmanna var að fyrirskipa
nýbreytni í_ tækjakosti óeirðalög-
reglunnar. A meðan Uwe Barschel
var innanríkisráðherra í fylkinu á
ámnum 1979-82 óx lögreglunni
mjög ásmegin ekki síst til að unnt
væri að reisa kjamorkuverin þrátt
fyrir mótmæli. Til sinna nota hafa
laganna verðir mikilúðlega tankbíla
sem sprauta vatni blönduðu tára-
gasi á óeirðaseggi. Innanríkisráð-
herra í ráðuneyti Engholms hefur
nú fyrirskipað að framvegis skuli
blávatn látið nægja. pp
FJÖGURRA manna sovésk sendinefnd frá Sambandi sovéskra vin-
áttufélaga við erlend lönd, hefur dvalist hér á landi frá því á þriðju-
dag. Hingað kom hópurinn til að sitja ráðstefnu norrænna vináttufé-
laga við Sovétríkin, sem hófst á fimmtudag en lýkur í dag, laugar-
dag. Boðað var til blaðamannafundar af þessu tilefni í gær í bústað
sovéska sendiherrans við Túngötu í Reykjavík og sat Nikolaj Pavlo-
vits Kúdijavtsjev, formaður sendinefndarinnar, þar fyrir svörum
en hann er jafnframt fyrsti aðstoðarsjávarútvegsráðherra Sovétríkj-
anna og stjómarformaður félagsins Sovétríkin-Ísland.
Kúdijavtsjev ræddi útflutning
íslendinga á sjávarafurðum til Sov-
étríkjanna og sagði ráðamenn
eystra gera sér fyllilega grein fyrir
mikilvægi fiskútflutnings fýrir
efnahag íslendinga. 35 ár væru nú
liðin frá upphafí viðskiptatengsla
íslands og Sovétríkjanna og inn-
flutningur á fiskafurðum frá Islandi
hefði aldrei verið meiri en í ár eða
alls um 30.000 tonn. „Almenningur
í Sovétríkjunum telur íslenskar fisk-
Bardagar blossuðu upp í flótta-
mannabúðunum Shatila og Bouij
al- Barajneh og beittu liðsmenn
Fatah (stuðningsmenn Arafats) og
Abu Musa (klofningshópur studdur
af Sýrlendingum) vélbyssum,
sprengivörpum og handsprengjum.
Skammt frá börðust shítar með öll-
um tiltækum vopnum.
Með átökum þessum lauk vopna-
hléi, sem ríkt hafði í Beirút frá 14.
síðastliðnum.
afurðir fyrsta flokks og þetta er
mjög eftirsótt vara," sagði hann.
Áhugi á samvinnu
Svo sem alkunna er hafa stjóm-
völd í Sovétríkjunum uppi áætlanir
um gjörbyltingu efnahagslífsins og
er einn liður þeirrar áætlunar að
auka og efla sjálfstæði einstakra
fyrirtækja. Fram kom í máli Ni-
kolajs Kúdijavtsjevs að mikiil áhugi
Sýrlendingar hafa um 7.000
manna herlið í borginni, en hafa
enn ekki blandað sér í átökin. Um
síðustu helgi tóku hersveitir þeirra
þó stöðu í suðurhluta borgarinnar
og hótuðu Sýrlendingar því að sker-
ast í leikinn ef ekki hægðist um.
Talið er að Sýrlendingar undirbúi
nú afskipti af bardögunum, því í
gær hlóðu hersveitir þeirra sand-
pokavirki og bægðu allri umferð frá
hverfunum þar sem barist er.
Morgunblaðið/Þorkell
Nikolaj Pavlovits Kúdijavtsjev,
fyrsti aðstoðarsjávarútvegsráð-
herra Sovétríkjanna, ræðir við
blaðamenn í gær á heimili sendi-
herra Sovétríkjanna á íslandi.
væri í Sovétríkjunum á að taka upp
samvinnu við íslensk fyrirtæki, sem
framleiddu tæknibúnað ýmsan
tengdan fiskvinnslu. Þegar hefðu
verið lögð drög að samningi við eitt
íslenskt fyrirtæki um kaup á vélum
til vinnslu á þorskhausum og kvaðst
hann raunar telja að fyrsti samning-
urinn í þessa veru hefði verið undir-
ritaður í Moskvu í gær. Þá nefndi
hann að Sovétmenn hefðu áhuga á
vélum til skelfisksvinnslu, sem
framleiddar væru hér á landi. Er
nefnd sovéskra sérfræðinga vænt-
anleg hingað til lands fyrir næstu
mánaðamót til að kynna sér búnað
þennan.
Aðstoðarráðherrann sagðist telja
hugsanlegt að samningar næðust
um allviðamikinn útflutning á
íslenskum fiskverkunarvélum og
öðrum tækjabúnaðj til fiskvinnslu
til Sovétríkjanna. „íslendingar hafa
náð mjög góðum árangri og kynnt
ýmsar nýjungar á sviði tæknibúnað-
ar til fískvinnslu," sagði
Kúdijavtsjev.
Vísindaleg fiskveiðistefna
Nokkuð var rætt um fískveiði-
stefnu Sovétríkjanna og sagði að-
stoðarráðherrann að þess væri gætt
í hvívetna að tilteknir stofnar væru
ekki ofveiddir. Engin breyting hefði
orðið þar á þó svo að áhafnir fiski-
skipa fengju nú laun í samræmi við
afla og gæði hans. 16.000 vísinda-
menn störfuðu í 23 vísindastofnun-
um sovéska sjávarútvegsráðuneyt-
isins og væri stefnan mótuð í sam-
ræmi við tillögur þeirra um nýtingu
fiskistofna. Að auki væri starfrækt
sérstök stofnun sem hefði eftirlit
með því að í engu væri vikið frá
þeim ákvörðunum. Ásakanir sem
fram hefðu komið um að Sovétríkin
stunduðu ofveiðar undan ströndum
Afríku og í eigin lögsögu ættu þvi
ekki við rök að styðjast. Sovétríkin
hefðu á hinn bóginn gert tvíhliða
fiskveiðisamninga við fjölmörg ríki
og kvaðst Kúdijavtsjev ekki vita til
þess að komið hefðu fram kvartan-
ir í þessa veru.
Ópólitísk vináttufélög
Jafnframt því að gegna stöðu
ráðherra er Kúdijavtsjev stjómar-
formaður vináttufélagsins Island-
Sovétríkin. Sagði hann félög þessi
öldungis ópólitísk og tilganginn með
starfseminni vera þann að auka
menningartengsl ríkjanna tveggja.
Almenning í Sovétríkjunum kvað
hann tæpast geta talist fróðan um
íslenskt þjóðfélag og menningu en
þó væri áhuginn til staðar sem
sæist best á því að félagar í hinum
ýmsu vináttusamtökum og vináttu-
félögum, sem starfrækt væru í
verksmiðjum víða um Sovétríkin,
væru um 45.000 talsins. Sjálfur
hefur stjómarformaðurinn oft kom-
ið hingað til lands en aðrir nefndar-
menn hyggjast nota tækifærið og
ferðast lítillega um landið áður en
heimsókninni lýkur á mánudag.
Beirút:
Palestínuarabar
beijast innbyrðis
Beirút, Reuter.
PALESTÍNSKIR skæruliðar, sem studdir eru af Sýrlendingum,
beittu í gær fallbyssum gegn félögum sínum í tveimur flóttamanna-
búðum í Beirút, en skæruliðarnir sem þar hafast við eru hollir Yass-
er Arafat. Þá voru harðir götubardagar í Beirút milli andstæðra
fylkinga shíta og er talið að mannfall hafi verið nokkuð.