Morgunblaðið - 21.05.1988, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1988
Allants-
haf
TUNiS;
16/erAtíhal
MÁRITANlA
Eyöimerkurenai-J
eprettan er 7;5-J
10cmlör>g
KRGN / Morgunblafiid / AM
Svíþjóð:
Stór eiturlyfja-
hringiir upprættur
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morjjunblaðsins.
SÆNSKA lögreglan hefur brotíð
upp einn stersta eiturlyfjahring,
sem sögur fara af í Svíþjóð, og
handtekið sjö menn. Voru þeir
gripnir í fyrrinótt en 35 annarra
er enn leitað.
Mennimir sjö, fjórir karlmenn og
þijár konur, voru handteknir í Táby
skammt fyrir norðan Stokkhólm og
höfðu þá undir höndum tíu kfló af
amfetamíni og eitthvað af kannab-
isefnum og LSD. Síðustu tvö árin
hefur eiturlyfjalögreglan sænska
fylgst með starfsemi alþjóðlegs eit-
urlyfjahrings, sem hefur smyglað
til Svíþjóðar miklu af amfetamíni,
heróíni, kannabis og LSD, og þeir,
sem nú voru teknir, voru höfuð-
pauramir.
Smyglaramir skýldu sér á bak
við gervifyrirtæki en eiturlyfín vom
flutt með bflum frá Hollandi til
Svíþjóðar. Hafa þau verið seld víða
um landið og einnig i Norégi og
vom flestar eiturtegundir á boðstól-
um.
Meðal viðskiptavina eiturlyfjasal-
anna hafa verið margir skólakrakk-
ar á 16. árinu og hafði lögreglan
fylgst með því hvernig þeir söfnuðu
saman peningum fyrir eitrinu.
Það, sem af er árinu, hefur lög-
reglan í Stokkhólmi komist yfir 16
kfló af amfetamíni en aðeins þtjú
allt síðasta ár. Þá hafa nú fundist
90 kfló af kannabis á móti tveimur
Sovétríkin:
Vilja opna
verzlunar-
skrifstofu
í Seoul
Seoul. Reuter.
SOVÉTMENN vilja opna verzl-
unarskrifstofu í Seoul, höfuð-
borg Suður-Kóreu, að loknum
Ólympíuleikunum, sem fram
fara þar i borg f haust, að því
er yfirmaður suður-kóresks iðn-
fyrirtækis sagði í gær.
Koo Yong-su, yfírmaður hjá
Goldstar-fyrirtækinu í Suður-
Kóreu, sagði blaðamönnum í gær
að I. T. Kanaev, varaformaður
sovézka verzlunarráðsins, hefði
skýrt sér frá áformum Sovétmanna
um opnun verzlunarskrifstofu í Seo-
ul þegar hann var viðstaddur vöru-
sýningu í Leníngrad.
Stjómmálasamband er ekki milli
Suður-Kóreu og Sovétríkjanna og
viðskipti milli þeirra fer um hendur
milliliða í þriðja landinu.
Sovétmenn og flestöll fylgiríki
þeirra hafa sagst ætla að senda
íþróttamenn til þátttöku í Ólympíu-
leikunum, sem hefjast í Seoul 17.
september og standa yfir í tvær
vikur.
í fyrra, 4,5 kg af heróíni, 4,7 í
fyrra, og tvö kg af kókaíni en að-
eins 14 grömm síðasta ár.
Lögreglumenn segja, að eitur-
lyfjaframboðið hafí aukist mikið og
eru nú þeir og tollverðir að leggja
á ráðin um nýjar aðferðir í barátt-
unni við þennan vágest.
Stærsti engisprettufarald-
ur í 30 ár heriar á N-Afríku
Riyadh, Port Louis á Máritíus, Túnis. New York Times, Reuter. WU
Engisprettufaraldur heijar nú
á Norður-Afríku. Hefur þess ver-
ið vænst i rúmlega ár, að farald-
urinn yrði að alvarlegu vanda-
máli. Engispretturnar vaxa upp
á ófriðarsvæðunum í Eþíópíu,
Tíger og Erítreu. Halda siðan til
Súdan og um Tchad til Marokkó,
Alsir og Túnis. Faraldurinn nú
er hinn mestí i 30 ár. Engisprett-
an vegur 1,5 tíl 3 grömm. Á
hveijum ferkílómetra er talið að
50 milljón kvikindi þrífist og éti
um 100 tonn af gróðri á hveijum
degi. Engiprettusvermamir geta
náð yfir marga tugi ferkílómetra
og fara allt að 18 kílómetra á
klukkustund. Eftir að þeir eru
famir yfir er jörðin nöguð og
allur gróður uppétinn. FAO,
rnatvælastofnun Sameinuðu
þjóðanna, stjóraar alþjóðlegu
átaki til að sporaa við faraldrin-
um en það er erfitt því að ekki
er unnt að gera út af við engi-
spretturnar á uppeldisstöðvum
þeirra.
í Túnis, Alsír og Marokkó er
barist við engisprettumar eins og
hvem annan innrásarher. Þrátt fyr-
ir ráðstafanir hafa þær náð að valda
miklu tjóni á uppskeru nú þegar
og ógnar það efnahagslífi í löndum
Norður-Afríku. Milljónum dala hef-
ur verið varið til þess að stemma
stigu við faraldrinum sem enn er
ekki talinn hafa náð hámarki.
S-Evrópulönd uggandi
Lönd í Suður-Evrópu er farin að
óttast að engisprettumar berist með
vindum yfír Miðjarðarhaf ef ekki
næst að eyða kvikindunum í Norð-
ur-Afríku. Evrópuþingið hefur beð-
ið aðildarlönd um að veita aðstoð
og Evrópubandalagið hefur veitt
2,5 milljón dollara til hjálpar lönd-
um Norður-Afríku í baráttunni við
engisprettumar. Fjöldi annarra
stofnana og ríkja hefur veitt að-
stoð, þeirra á meðal Bandaríkin og
Kanada.
í höfuðborg Túnis em engisprett-
umar famar að gera vart við sig
og skammt utan borgarinnar em
stórir svermar. Stærsta ógnunin við
landið er þó suðvestur af höfuð-
borginni, þar sem engisprettur í
milljónatali em að §ölga sér og
hópa sig áður en þær taka sig upp
og vindur ber þær af stað. Milljónir
engispretta em einnig í Atlas-fjöll-
Engiprettuský í Marokkó.
um í Marokkó þar sem íjallahrygg-
ir hafa komið í veg fyrir að ferð
þeirra héldi áfram til aðalland-
búnaðarhéraða landsins og til borg-
anna Casablanca, Fez og Mar-
rakech.
„Við emm viðbúnir neyðar-
ástandi," sagði Edouard Saouma,
framkvæmdastjóri FAO í samtali
við blaðamann New York Times.
„Það þarf að grípa til skjótra að-
gerða til þessa að koma í veg fyrir
matarskort á ákveðnum svæðum."
Mikill fjöldi engispretta er einnig
á eyðimerkursvæðum Alsír. Sér-
fræðingar telja að eðlileg þróun sé
að þær fari í austurátt og ógna þær
því Túnis og nágrannalöndum þess.
Vart hefur orðið við engisprettumar
á Ítalíu og Möltu fyrir nokkmm
vikum.
Sameiginlegt átak
Ógnin af engisprettunum hefur
orðið til þess að bæta sambúð þjóða
í Norður-Afríku. Hafa Alsír og
Marokkó lagt til hliðar deilur vegna
Polisario-stríðsins sem geisar í
Vestur-Sahara um hríð meðan bar-
ist er við pláguna. Betur má ef
duga skal. Sérfræðingar telja þó
að þjóðimar verði að gera enn bet-
ur í sáttaviðleitni sinni til þess að
hægt sé að beita öllu því sem til er
til þess að stemma stigu við engi-
sprettunum.
Opinber embættismaður í Mar-
okkó sagði að þjóðimar á þessu
svæði hefðu í hyggju að koma á fót
stofnun þar sem starfsfólk yrði
EB-COMECON:
Líkur á samskiptasamningi
Brilssel. Frá Kristófer MÁ Kristinssyni, fréttaritara Morgfunblaðsins í Belgiu.
hagsmuni. Viðskiptasamningar
LÍKUR líkur eru taldar á að fram-
kvæmdastjórn Evrópubandalags-
ins undirrití samskiptasamkomu-
lag við COMECON, Efnahags-
bandalag Austur-Evrópu, í
Moskvu i júní Samningurinn hefur
fram undir þetta strandað á af-
stöðunni tíl Berlínar.
Samningurinn felur í sér að opin-
ber samskipti verða tekin upp á milli
þessara aðila og samstarf á þeim
sviðum sem snerta sameiginlega
verða ekki gerðir samkvæmt sam-
komulaginu. Þá verður að gera milli
EB og einstakra aðildarríkja
COMECON.
Búist er við því að 1 Igölfar þessa
samkomulags verði gengið frá samn-
ingum við Sovétríkin um gagn-
kvæma viðurkenningu sem mjmdi
leiða til þess að sérstakt sendiráð
Sovétríkjanna yrði stofnað í Briissel.
Með þessu lyki rúmlega 30 ára,
leyndum og ljósum, fjandskap sové-
skra stjómvalda í garð EB.
í samningnum er í engu vikið að
Berlín heldur er talað um þau land-
svæði sem Rómarsáttmálinn gildir
á, þar með viðurkenna aðildarríki
COMECON að Vestur-Berlín tilheyri
Vestur-Evrópu, a.m.k. í efnahags-
legu tilliti. Samningurinn þarf síðan
að leggjast fyrir Evrópuþingið til
umræðu og ráðherranefhdina til
samþykktar.
Eyðimerkurengispretta.
þjálfað í notkun nýjasta tæknibún-
aðar til að beijast gegn engisprettu-
faröldrum. Fulltrúar Alsírs, Mar-
okkó, Túnis, Máritaníu og Líbíu
hafa fundað um þetta mál en nokk-
uð hefur borið á ágreiningi. Hafa
deilur vaknað um hversu hátt fram-
lag hverar þjóðar um sig skal vera.
Stjómvöld í Túnis hafa sett upp
sérstaka stjómstöð til þess að hafa
eftirlit með engisprettunum. Stjóm-
endur stöðvarinnar, sem eru yfir-
menn í landbúnaðarráðuneytinu,
innanríkisráðuneytinu og ýmsum
öðrum stofnunum, hittast tvisvar á
dag til þess að bera saman bækur
sínar. í stjómstöðinni sjálfri er fólk
að störfum allan sólarhringinn.
Veðurfræðingar, flugmenn frá
hemum og loftskeytamenn sjá um
að nýjustu upplýsingar um veður
og staðsetningu svermanna séu fyr-
ir hendi og sjá um að til aðgerða
sé gripið á réttum stöðum og tíma.
Mikilvægt er að fylgjast náið með
öllum breytingum. „Ástandið breyt-
ist frá degi til dags,“ er haft eftir
flugmanni í flughemum sem starfar
við stöðina. „Ástandið fer eftir
veðri, hitastigi, vindhraða og vind-
átt. Engisprettumar ferðast um að
deginum til en halda kyrru fyrir á
nóttunni. Við ráðumst gegn þeim
með skordýraeitri jafnt að nóttu
sem degi," sagði flugmaðurinn.
„Tæki og skordýraeitrið nægja til
þess að við getum haldið aftur af
þeim eins og ástatt er nú, en ef
svermamir koma frá Alsír gæti það
ekki dugað okkur,“ sagði flugpmað-
urinn.
L’Express
Frá Máritíus til Malí
Fréttir hafa nýverið borist frá
eynni Máritíus á Indlandshafi, um
að engisprettuský sem huldi 750
ferkflómetra landsvæði hafi verið á
leið til Afríkuríkisins Malí. Nokkrir
minni svermar fylgdu f kjölfarið. í
Saudi-Arabíu hefur hver svermur-
inn á fætur öðrum heijað á norður-
héröðin á síðustu vikum vegna vest-
lægra vinda. Gripið hefur til allra
tiltækra ráða til að hefta för engi-
sprettanna. Jórdanir eru einnig
famir að ugga um sinn hag og em
þegar hafnar fyrirbyggjandi að-
gerðir við landamæri Jórdaníu og
Saudi-Arabíu.
Sérfræðingur sagðist telja að um
90% allra engispretta í heiminum
væri nú í Norður-Afríku. Embættis-
maður sem starfar hjá Þróunar-
hjálpinni sagði engisprettufaraldur-
inn vera hluta af eðlilegri hringrás
í náttúmnni. Hringrásin hefst í
Pakistan og Indlandi þaðan sem
engisprettumar koma til Afríku.
Þær snúa síðan til baka eftir að
hafa fjölgað sér og fara yfír landið
og gjöreyða öllum gróðri sem á
vegi verður.
Milljónir, ef ekki milljarðar, engi-
spretta hefja sig til flugs á morgn-.
ana og mynda stóra sverma sem í
fjarska em eins og óveðursský sem
birgja fyrir sólu. Fyrir tveimur ámm
gekk yfír engisprettufaraldur sem
ógnaði uppskem í löndum Norður-
Afríku en að sögn sérfræðinga var
þar á ferðinni smáplága miðað við
það sem nú er. Áð sögn starfs-
manna Þróunarhjálparinnar em
veðurskilyrði nú hagstæð fyrir engi-
sprettumar sem þá fjölga sér
margfalt miðað við venjulega og
gereyðileggja uppskem á afar stór-
um landssvæðum. Á 10-15 ára
fresti em veðurskilyrði með þeim
hætti að faraldur gengur yfir. „Það
hefur rignt geysilega á þessu ári á
svæðum sem alla jafna er lítil úr-
koma. Þetta olli miklum vand-
kvæðum í október og nóvember á
síðasta ári. Miðað við úrkomuna í
ár megum við eiga von á að ástand-
ið versni enn,“ segja sérfræðingar.
Það sem þeir óttast mest er að
vegna mikillar uppskem sem allt
útlit er fyrir að verði í ár eflist
engisprettumar enn frekar.