Morgunblaðið - 21.05.1988, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1988
43
I ÞIMGHLEI______
Listskreyting
Hailgrímskirkju
Framkvæmd
þinffsályktunar
frá 1986
í aprilmánuði 1986 var sam-
þykkt þingsályktun um list-
skreytingu Hallgrímskirkju í
Reykjavik. Ályktunin fól það í
sér að ráðherra kirkjumála
skipaði sjö manna nefnd „til
þess að skipuleggja og und-
irbúa skreytingu og frágang á
anddyri, kór og kirkjuskipi
Hailgrimskirkju_“
Ályktunin gerði ráð fyrir því
að kirkjumálaráðherra skipaði
formann nefndarinnar. Eftir-
taldir aðilar tilnefndu síðan
einn nefndarmann hver:
menntamálaráðherra, biskup
íslands, húsameistari ríkisins,
byggingarnefnd Hallgrims-
kirkju, Félag íslenzkra mynd-
listarmanna og kirkjulistar-
nefnd.
„Verkefni nefndarinnar skal
vera,“ segir i ályktun Alþingis,
„að gera verkáætlun um þann
tima sem talið er að verkið taki,
svo og kostnaðaráætlun. Jafn-
framt gerir nefndin tillögur um
hvemig fjármögnun verksins
verði bezt tryggð__ Niður-
stöður nefndarinnar verði lagð-
ar fyrir Alþingi fyrir árslok
1987.“
I
Guðrún Helgadóttir (Abl/Rvk),
sem beitt hafði sér fyrir framan-
greindri þingsáiyktun, mælti fyrir
fyrirspum til ráðherra kirkjumála
um framkvæmd hennar síðla
þings, sem nýliðið er.
I máli Guðrúnar kom fram að
nefndin var ekki skipuð fyrr en
10. apríl 1987. Hún vitnar til
skýrslu frá nefndinni en þar segir
m.a.:
„Listskreytingamefndin hefur
frá upphafi talið það mikilvægt
að mótun eða í það minnsta um-
fjöllun um heildarútlit væri nauð-
synleg og raunar óhjákvæmileg í
upphafi verks. Tímans vegna hef-
ur slík heildarmynd þó ekki séð
dagsins ljós enn. Hér skal sérstak-
lega á það bent að langur tími
leið frá því að þingsályktun Al-
þingis var samþykkt 22. apríl
1986 þar til nefndin var skipuð
10. apríl 1987. Með það í huga
er augljóst að starfstími hennar
er mun skemmri, jafiivel einu ári,
en ætlað var í samþykkt Alþing-
is.“
Guðrún spurði síðan: „Hvemig
hugsar hann [núverandi kirkju-
málaráðherra] sér framhald
verksins þar sem augljóst var að
fyrrverandi kirkjumálaráðherra
var þetta verkefni einskis virði og
hann hafðist lítt að til þess að
framkvæma þá samþykkt sem hér
var gerð eftir tveggja ára baráttu.
Ég vil heyra hver sé hugmynd
ráðherra um framkvæmd verks-
ins.“
n
í svari Jóns Sigurðssonar,
kirkjumálaráðherra, kom m.a.
fram, að síðasta tilnefning í list-
skreytingamefndina barst ekki
ráðuneytinu fyrr en í nóvember
1986. Síðan segir hann orðrétt:
„Síðan var spurt hvers vegna
áætluninni um verklok hafi ekki
verið breytt með tilliti til þess
hversu seint nefndin var skipuð.
Um það mál vil ég segja að nefnd-
arstörfín gengu vel og í lok síðast-
liðins árs var þar komið störfum
Stefán Friðbjarnarson
verða hveiju sinni. Ég minni líka
á að þessi nefndarskipan og þessi
þingsályktun em dálítið óvenju-
legar að þvi leyti að þama tekur
þingið sér fyrir hendur að skipa
nefnd til að fjalla um skreytingu
guðshúss sem ekki er í eigu ríkis-
ins heldur safnaðarins í Hallgrí-
mskirkjusókn.
Ég ætla svo að lokum að geta
þess að ég hefi á þessum gmnd-
velli og í samráði við forsvars-
menn kirkjunnar ákveðið að skipa
nýja nefnd til að móta endanlega
kostnaðar- og verkáætlun þeirra
fjögurra þátta sem fyrri nefnd
gafst ekki alveg tóm til að ljúka.
Eg tel það hentugra af fyrirkomu-
lagsástæðum. Ég bind vonir við
að nýstofnaður Jöfnunarsjóður
sókna, en Alþingi setti lög um þá
stofnum t desember síðastliðnum,
geti lagt fé til Hallgrímskirkju,
meðal annars til listskreytingar,
enda hefur þessi sjóður lögunum
samkvæmt sérstakar skyldur við
landskirkjur eins og Hallgríms-
kirkja svo sannarlega má teljast."
hennar að fyrir lá bæði kostnað-
ar- og framkvæmdaáætlum um
fyrsta verkþáttinn, sem fjallar um
skreytingu anddyris kirkjunnar,
um.-lágmjmd og glugga á fram-
hlið kirkjunnar eða á vesturhlið-
inni. Ég vil taka fram að nefndin
telur eðlilegt að listskreytingunni
verði skipt í fimm þætti, á fram-
hlið, kór, forkirkju, kirkjuskipi og
svo umhverfi kirlqunnar.
Ég taldi rétt og lagði reyndar
fyrir nefndina að hún skilaði af
sér á tilsettum tíma í samræmi
við þingsályktun til þess að þing-
mönnum gæfist sem fyrst kostur
á að kynna sér þessa niðurstöðu
nefndarinnar og jafnframt væru
þá meiri líkur á að framkvæmdir
við listskreytinguna gætu haf-
ist...“
ra
Síðan vék ráðherra að fyrirætl-
unum og framhaldi verksins:
„Fyrsti þátturinn í þessari
kostnaðar- og framkvæmdaáætl-
un, sem nefndin hefur^samið, er
í reynd tvískiptur. Annars vegar
skreyting dyra og gerð lágmynd-
ar, hins vegar glugginn. Sam-
kvæmt áætluninni er gert ráð
fyrir að framkvæmdir heljist á
þessu ári og ljúki á því næsta. í
samræmi við tillögur nefndarinn-
ar hef ég ákveðið að skipa dóm-
nefndir og efna til lokaðrar sam-
keppni um skreytingu að þessu
leyti. Ég mun reyna að fylgja
þeirri áætlun sem nefndin samdi,
en auðvitað hlýtur það að ráðast
af fjárveitingum sem heimilaðar
IV
Guðrún Helgadóttir sagðist
„sérstaklega ánægð með þetta
svar ráðherra, einkum þá yfirlýs- “
ingu hans að hann hyggist skipa
nýja nefnd til að Ijúka þessu ætl-
unarverki".
Hún sagði orðrétt:
„Menn hafa verið að horfa á
sjónvarpsþætti um ævi og starf
Guðjóns Samúelssonar, hins mikla
byggin&ameistara, og ég tel, eins
og segir í greinargerð sem tillög-
unni fylgdi, að hann eigi það fylli-
lega skilið af hálfu þjóðarinnar
að séð verði svo til að þetta mikla
verk hans verði að lokum fullfrá-
gengið og til sóma fyrir land og
lýð, að ég ekki tali um sálmaskáld-
ið [Hallgrím Pétursson] sem kirkj-
an er byggð í minningu um. Ég
tel að þessir tveir menn verð-
skuldi, að frá þessu húsi verði
myndarlega og fallega gengið —
og ég trúi því ekki eitt augnablik
að neinn þingmaður sjái ofsjónum
yfir því fé sem til þess færi.“
Akranes:
Ymsar framkvæmd
ir 1 hafnargerð
Akranesi.
Einsöngstónleikar
á Kjarvalsstöðum
ÞESSA dagana er unnið að því
að fylla upp svæði við Akraness-
höfn þar sem áður var aðstaða
til að byggja steinkör til hafnar-
gerðar. A þessu svæði hefur
staðið hálfgert steinkar og verð-
ur það notað til uppfyllingarinn-
ar.
Þetta umrædda ker var byggt
ásamt fleiri kerum fyrir um tuttugu
árum. Á þessum stað var útbúin
aðstaða til að fleyta kerunum og
kom hún að góðum notum við upp-
byggingu hafnarinnar á Akranesi
á sjötta áratugnum. Eftir að því
verki var lokið voru síðan byggð
ker sem flutt voru á aðra staði á
landinu og notuð þar við hafnar-
gerð. Þetta síðasta ker dagaði þó
uppi og hefur staðið þama þennan
langa tíma og hefur verið fáum til
augnayndis. Það er því ánægjulegt
að sjá það hverfa og verða hluti
að uppistöðu undir athafnasvæði
fyrir höfnina. Síðar er ráðgert að
við þetta svæði verði gerður við-
legukantur sem gæti komið hinum
flölmörgu smábátum sem gerðir
eru út frá Akranesi að góðum not-
um því þetta svæði er til hliðar við
núverandi smábátahöfn. Gert er
ráð fyrir hönnunarvinnu í sumar
og verkið verði væntanlega boðið
út S haust.
Af öðrum verkefnum við hafnar-
gerð á Akranesi má nefna að til
stendur að dýpka höfnina. Aðallega
er þar um að ræða hreinsun, en
þó þarf að sprengja um 1200 m8
fyrir fyrmefndu smábátalægi. Nú
er beðið dýptarmælingar á höfninni
sem framkvæmd verður af Hafnar-
málastofnun og er vonast til að það
veiði framkvæmt í sumar.
í gangi er 4 ára áætlun um fram-
kvæmdir við höfnina og eru helstu
framkvæmdir sem unnið verður að
á næstu árum í fyrsta lagi endur-
bygging og breikkun Faxabryggju,
annarsvegar að ljúka brimvöm á
aðalhafnargarði og lagfæra viðlegu
þar. í þriðja lagi hefur verið gerður
samningur við Rafveitu Akraness
um endumýjun á öllu rafkerfi hafn-
arinnar og viðbót við raflýsingu.
Þá er mikið verk óunnið við land-
brotsvamir en framkvæmdir við
þær velta þó mjög á fjárveitingum,
enda um mjög Q'arfrekt verkefni
að ræða. Unnið hefur verið tölvert
að landbrotsvömum og er það gert
eftir framkvæmdaáætlun sem gerð
var eftir flóðin miklu á Akranesi í
janúar 1984 en þá varð stórtjón
að völdum sjógangs. Nú þegar er
lokið framkvæmdum við Bakkatún
og eins við Ægisbraut en þar var
hvað mest eignatjón 1984. Með
næsta áfanga er stefnt að því að
setja vamargarð við Leyni.
—JG
Nýr bóka-
flokkur
PRENTHÚSIÐ hefur hafið útg-
áfu nýs 10 binda bókaflokks,
sem ber yfirskriftina Raija, eftir
aðalsöguhetjunni. Höfundur
bókanna er Bente Pedersen og
er af finnskum uppruna.
„Raija er finnsk stúlka af lágum
stigum, fædd árið 1710. Bam að
aldri er hún send til Noregs vegna
hungursneyðar og fátæktar for-
eldranna. En örlög Raiju verða
grimmilegri en foreldra hennar
grunar. Hún er fögur og skap-
mikil og sífellt í andstöðu við um-
hverfí sitt. Og þegar ástin kemur
inn í líf hennar er hún reiðubúin
að fóma öllu,“ segir í frétt frá
útgáfunni.
ESTHER Helga Guðmundsdóttir
heldur sina fyrstu einsöngstón-
leika hér á landi á Kjarvalsstöðum
á annan i hvitasunnu, 23. mai, kl.
20.00, en hún lýkur prófi i söng
og tónlistarfræðum frá Háskólan-
um f Indiana, Bandaríkj unum i lok
árssins.
Esther hefur sungið tvö hlutverk
við Óperuna í Indiana, auk þess hef-
ur hún ferðast sem einsöngvari með
kómum til Ítalíu og komið fram við
ýmis tækifæri hér heima og erlendis.
Undirleikari er David Knowles.
David útskrifaðist sem píanóundir-
leikarí frá Royal Northem College
of Music í Manchester árið 1980.
Hann hefur verið búsettur hér á
landi um árabil, og starfar sem undir-
leikarí við Söngdeild Garðabæjar og
Söngskólann í Reykjavík. David hef-
ur komið fram sem undirleikari viða
um land.
Á efnisskrá eru Dramatískar aríur
úr Óperum eftir G.H. Gluck og G.C.
Menotti, Sígaunalög eftir A. Dvorák,
þijú lióð eftir R. Strauss, Ljóðaljóð
Páls Isólfssonar og ljóðaflokkurinn
„I hate music" eftir Leonard Bem-
stein, sem líklegast hefur ekki verið
fluttur áður hér á landi.
(FrétUtilkynning)
David Knowles og Esther Helga Guðmundsdóttir.