Morgunblaðið - 21.05.1988, Qupperneq 65
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1988
£5
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Láglaunafólk metur
ekki hlunnindi sín
Heiðraði Velvakandi.
Sú persóna sem felur sig í nafn-
númeri sínu og rangfærir að nokkru
leyti það sem ég er að segja um
skattamálin og kjörin hjá almenn-
ingi stendur fast við það að láta
ekkert uppi um öll þau hlunnindi
sem láglaunafólk nýtur í framlagi
því sem við sem hærri laun höfum
veitum því gegnum þjónustu og
framlag frá ríki og bæjarfélögum
' og sem tekið er í skattinum, af
þeim sem bera nú allan þungann
af millifærslu sem felst í félags-
þjónustunni.
Ekkert kemur fram í skrifum
viðmælanda míns sem ég hef misst
af eða veit ekki. Hluti launa okkar
fer til stuðnings þessu fólki, en það
er að engu metið og engu minni
kröfur gerðar til launahækkana
þrátt fyrir það, eins og sjá má í
yfírstandandi verkföllum. Laun
þeirra sem eru að semja um 36 og
37.000 kr. á mán. verða því 51.700
kr. á á mánuði, ég tel skattleysið
verulega launabót, en réttlætingu
sem ríkisvaldið veitir á þennan
máta má ekki nefna og því síður,
að raunin sé sú, að þeir sem skatt-
ana bera séu bjargráðamenn til að
gera hina bjargálna.
„Leiðinleg orð um láglaunafólk"
segir viðmælandi minn um þau orð
sem ég lét falla um lögleidd skatt-
svik, en þessu er tekið á verri Veg
eins og fleiru sem að þessum málum
snýr, þegar ekki er hægt að viður-
kenna staðreyndir og þar af leið-
andi skammast sín fyrir sjálft sig,
hvemig hagað er málflutningi.
Ég held að það hafi verið sjálf-
stæðismenn sem fyrstir hreyfðu því
að koma á þessum skattleysismörk-
um og auðvitað var gleypt við því,
en þeir hafa ekkert þakklæti fýrir
fengið og þetta átti að bæta laun
lágtekjufólks en það virðist glæpi
næst að minnast á þessi hlunnindi.
Þetta er ófyrirgefaniegt tillitsleysi
af launafólki og þar af leiðandi er
ég á móti þessari ráðstöfun Al-
þingis að setja slík lög og tel mikið
ranglæti gegn þeim sem bera nú
skattbyrðamar. Væm nú þessi lög
afnumin aftur er ég viss um að
rekið yrði upp heróp um hærri laun
og aðför að láglaunafólki tíunduð
rækilega.
Þá kæmi í ljós hvað skattleysis-
mörkin hafa að þýða fyrir fólk sem
er á lágum launum og þegar nú
líka er hægt að hafa 84.000 kr. á
mánuði á heimili skattfrítt, þar sem
um hjón eða sambýlisfólk er að
ræða og hver telur fram fyrir sig
og unglingar ennfremur haft hundr-
uð þúsunda króna fyrir sumarvinnu
án skatta, þá er þetta skattafyrir-
komulag með endemum af völdum
stjómvalda, að gefa eftir skatta af
lágu tekjunum auk allra fríðinda
frá ríki og bæjarfélögum þessu fólki
til handa. Ekki að furða þó ríkis-
sjóður sé á heljarþröm. Svo er verið
að æsast og ærast út í þann matar-
skatt sem lagður var á. Ætli komi
ekki í okkar hlut að greiða hann
líka. Persónuafslátt, bamabætur og
margt, margt fleira getum við látið
liggja milli hluta þar sem viðmæl-
andi minn viðurkennir á báða bóga
framlög frá því opinbera, en gleym-
ir því að allnokkur hluti skattgreið-
enda er einstætt fólk og nýtur því
engra framlaga né hlunninda frá
ríki né bæjarfélögum. Þar er ég á
meðal og get því ekki látið hjá líða
að minna á að þið fáið þetta fram-
lag óskert af okkar hálfu. Svo get-
ur þessi viðmælandi minn sagt
óbeinum orðum að ég sé skattsvik-
ari. Alþingi gerði ykkur að löggild-
um skattsvikurum með breytingu á
lögum að öll laun skyldu ekki vera
skattskyld eins og verið hefur.
Tvöfalt skattleysismarkakaup
þarf til að hafa sömu rauntekjur
og skattlausa fólkið. Þið emð í raun
á framfæri okkar sem skattana
greiðum að vemlegum hluta. Þetta
er það sem skapar einna mestu
Fyrirspurn
Til Velvakanda.
í fjölmiðlagagnrýni Ólafs M.
Jóhannessonar 17. þ.m. segir
hann m.a.: „í Bandaríkjunum
þora læknar ekki lengur að
framkvæma vissar aðgerðir af
ótta við málssókn eða fjölmiðla-
fár.“
Spuming mín er þessi: Við
hvað á Ólafur með þessum orð-
um, um hvaða aðgerðir er hann
að tala, og þekkir hann einhver
hliðstæð dæmi þessa hér á ís-
landi. Með kveðju.
Jón Valur Jensson
hættuna í rekstri ríkissjóðs, að
verða að deila miklum hluta tekna
hans til almennings með þeim hætti
sem gert er. Af þessu leiðir að ekk-
ert fé er til, til framkvæmda og
framfara. Allt staðnað, nema að
öðrum kosti auka á skuldasöfnun
erlendis. Ofaná þetta bætist svo
gengisfellingar aftur og aftur með
sömu afleiðingum og gerist í hús-
næðismálunum, skuldimar verða
óviðráðanlegar.
Áþreifanlega hef ég orðið þess
var, að líkast er þvi að búið sé að
heilaþvo fólk í þessum efnum og
þetta eigi bókstaflega að vera svona
og allt sé í sómanum hvað þessi
mál varðar, enginn þurfí að hugsa
til ábyrgðar á neinn veg. Tilgangi
mínum tel ég mig hafa náð hvað
varðar, að margir munu hafa farið
að veitá þessum skrifu’m athygli.
Aðferð mín til þessa gerir lítið
til né frá í raun og veru. Viðmæl-
andi minn þorði ekki að gefa upp
hlunnindi launafólks, sem ríkisvald-
ið og þar með við skattgreiðendur
veitum því til kjarabóta, skattgreið-
endur verða að greiða skatt af öllu
slíku framlagi, sá er munurinn.
Augljóst mál er það að hægt er að
reikna út óteljandi dæmi um efni
og ástæður fólks varðandi skatta
og launakjör. Einfalt dæmi er það
nú samt ef reiknað er dæmi eins
og ég sló lauslega upp í upphafí,
það sýnir í raun að 80.000 krónum-
ar eru álíka í rauntekjum að frá-
dregnum skattinum og 42.000 kr.
tekjum að því viðbættu ef greiða
ætti skatt af þeim. Þetta ætti að
vera augljóst að framangreindum
ástæðum.
Ég hef sýnt fram á ófyrirgefan-
legt vanþakklæti af þeim tugum
þúsunda fólks sem njóta ríkisfram-
Iaga í félagsþjónustunni, það er
þessi ósanngimi sem ég er að for-
dæma. Svo er ríkisstjóminni og
skattgreiðendum kennt um voða-
legt óréttlæti sem láglaunahópurinn
ber stöðugt út, að ekkert sé gert
fyrir lægsta launaflokkinn. Að skil-
greina þetta gæti krafíst nokkurra
arka í viðbót. Hvað þykist þið vilja?
Kommúnisma? Þar sjáið þið góð-
vildina hjá austantjaldsmönnum.
Pólland er nú heyrilegt dæmi um
kjör fólksins, það barið og fangelsað
af ráðamönnum einokunarvaldsins.
Þorleifur Kr. Guðlaugsson
Þessir hringdu . . .
Hjól
Blátt BMX hjól var tekið við
Bakkasel 28 sl. miðvikudag. Þeir
sem hafa orðið varir við hjólið em
vinsamlegast beðnir að hringja í
Gunnar í síma 74158.
Blár páfagaukur
Blár páfagaukur fannst að
Túngötu 4 hinn 16. maí. Upplýs-
ingar í síma 12206.
Skór
Hvítur hægrifótarskór tapaðist
í Lækjartungli laugardagskvöldið
14. maí. Finnandi er vinsamlegast
beðinn að hingja í síma 667010.
Göngustafur
Svartur silfurbúinn göngustaf-
ur tapaðist við Austurvöll síðdegis
miðvikudaginn 18. maí. Skilvís
fínnandi vinsamlegast hringi í
síma 26724 eða 692212. Fundar-
laun.
Blússa
Hvít og grænblá æfingablússa
tapaðist f leið 14 sl. mánudag. í
vösum blússunar vom lyklar o. fl.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að skila blússunni til óskilamuna-
deildar lögreglunnar.
Slæm umgengni
Anna hringdi:
„Ég fór inn í almenningssím-
klefa um daginn og þar blasti við
mér heldur hryggileg sjón. Ekki
var nóg með að síminn væri ónot-
hæfur heldur vantaði símtólið al-
veg. Umgengnin þama var eftir
þessu, krotað hafði verið upp um
alla veggi og heldur óhijálegt um
að litast í símklefanum sem þó
virtist nýlegur. Ég hef verið bú-
sett erlendis og þar tíðkast ekki
að gengið sé um símklefa með
þessum hætti og almenningssímar
verða þar ekki fyrir barðinu á
skemmdarvörgum. íslendingar
virðast hafa heldur dapurlega sér-
stöðu að þessu leyti."
HITACHI RYKSUGAN
litil — kröftug — ódýr
/W*RÖNMNG
•i/f// heimilistæki
KRINGLUNNI -/ SÍMI (91)685868
Skemmtisig/ing
Þýskur siglingaskólf, Hochsee
Yachtschule, Nordsee,
vantar nokkra félaga til að taka þátt iskemmtisiglingu frá
Þýskalandi til íslands núna i sumar.
Snekkjan erafgerðinni SWAN og er40 feta.
Farið verður frá Cuxhaven 30. júlíog áætlaður komutími til
Reykjavikur er20. ágúst. Frá Reykjavik verðursiðan fariö aft-
ur22. ágúst og komið til Cuxhaven 9. september.
Nánarl upplýslngar fást hjá:
Hochsee Yachtschule Nordsee, Richard WagnerStr. 35,2800
Bremen, Vestur-Þýskalandi. Sími: 9049-421-346650.
Q§#§?
hiMlftHi Calgary
Orðsending til Visa-korthafa,
semtaka þáttíboðgreiðsium til
Ólympiunefndaríslands:
Dregið verðurí happdrætti í næsta mánuði um ferð á
Ólympíuleikapa í Seoul, S-Kóreu, sem hefjast 17. sept-
emberíhaust.
Enn er hægrt að gerast þátttakandi íboðgreiðslunum
og freista gæfunnar i happdrættinu.
ÆTLARÐU AÐ LÝSA
UPP GARÐINN?
1. Veldu vandaða lampa, viðurkennda
af Rafmagnseftirliti ríkisins.
2. Athugaðu vind- og veðuráttir. Lampi
á bersvæði þarf að vera þéttari en
sá sem hefur skjól aftrjám, vegg eða
girðingu.
3. Oruggast er að setja upp fiasta lampa
og leggja að þeim jarðstreng.
4. Fáðu rafverktaka til aðstoðar við val
og frágang.
Hafk5 samband við skrifstofu Ótympiunefndar íslands
i Laugandal, sími83377.
RAFMAGNSEFTIRLIT RÍKISINS
iffii AA