Morgunblaðið - 25.05.1988, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1988
30
Greenpeace í Vestur-Þýskalandi:
Uppblásiun hvalur beið
Ogra í Bremerhaven
Hvalasérfrœðingur Greenpeace sagði að harka íslensku sjómannanna
hefði komið sér á óvart en þeir lögðust að bryggju þó flekinn væri
fyrir og nokkrir menn á honum. Enginn meiddist i mótmælaaðgerð-
íiniim.
ZUrich, frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara
UPPBLÁSINN hvalur og nokkrir
félagar úr Greenpeace i Vestur-
Þýskalandi biðu Ögra RE 72 i
höfninni i Bremerhaven seint
siðdegis á mánudag. Samtökin
ætluðu að hindra að togarinn
gæti landað 330 tonnum af grá-
lúðu og karfa. „Við viljum engan
islenskan fisk af þvi að íslending-
ar drepa hvali“, stóð á borða sem
Greenpeace-menn voru með.
Hafnarstjóri og lögregla voru
kvödd á staðinn og skipið gat
„Við viljum ekki islenskan fisk,
Greenpeace-manna sem hindraði
DPA
drepa hvali,“ stóð á 15 m löngum uppblásnum hval
RE 72 að leggjast að bryggju.
Morgunblaðsins.
lagst að bryggju eftir tæpra
tveggja tima töf.
Hvalurinn, sem er um 15 metra
langur og 4 metrar á breidd, var á
heimagerðum fleka þeirra Green-
peace-manna. Tveir gúmmíbátar
drógu hann á milli sín. Ögri gat
ekki lagst að bryggju fyrir hvalnum
og flekinn var klemmdur á milli
skips og bryggju í tvo tíma. Snæ-
bjöm Ossurarson, skipstjóri, átti
engin orðaskipti við Greenpeace-
menn en gat loks lagst að bryggju
eftir að „framtakssamur hafnar-
verkamaður reif gat á hvalinn með
fískkrók og loftið fór úr blöðrunni.
Eftir það var ekkert gaman að þessu
lengur og fólkið hafði sig í burtu,"
eins og Snæbjöm tók til orða.
Mótmælin fóru friðsamlega fram.
„Fólkinu stóð þó nokkur hætta af
því að vera að flækjast þama fyr-
ir,“ sagði Snæbjöm. „Það er ekki
hlaupið að því að halda svona stóm
skipi kyrru og ég vildi ekki slasa
neinn. Það var ekkert gagn að lög-
reglunni. Annars vom þetta bara
leiðindi sem em yfirstaðin og best
að hafa sem fæst orð um.“
Nokkrir fréttamenn vom á hafn-
arbakkanum. Ludwig Jansen, um-
boðsmaður og aðalræðismaður ís-
lands í Bremerhaven, á von á að
atburðimir muni vekja nokkra at-
hygli. „En ég tel ekki að mótmæli
Greenpeace eigi eftir að draga úr
sölu á íslenskum físki í Vestur-
Þýskaiandi," sagði hann. „Við hér
á norðurströndinni vonum að
minnsta kosti að svo verði ekki. Við
höfum okkar atvinnu af fiskinum
og emm algjörlega á móti aðgerðum
Greenpeace. En það má ekki gera
of lítið úr þeim. Samtökin vita hvað
þau em að gera. Þau höfða til til-
fínninga fólks með því að tala um
hina undursamlegu hvali sem verið
er að drepa og vinna almenning
þannig yfír á sitt band.“
Aróður Greenpeace í Vestur-
Þýskalandi hefur aukist undanfarið
vegna þess að þing Alþjóðahvalveið-
iráðsins er á næsta leiti. Samtökin
vom með kynningu gegn hvalveið-
um í ijölda borga Vestur-Þýska-
lands fyrir 10 dögum og birtu aug-
lýsingar gegn hvalveiðum íslend-
inga í ýmsum vikuritum í síðustu
viku. Hvalavinir em hvattir til að
sneiða hjá íslenskum físki og hringja
eða skrifa í sendiráð íslands i Bonn
til að mótmæla hvalveiðistefnu
landsins. Jónína Sigmundsdóttir,
ritari í sendiráðinu, sagði að það
væri töluvert um hringingar í sendi-
ráðið. „Fólk er yfirleitt kurteist þótt
einn og einn sé ókurteis," sagði-
hún.„Það mótmælir hvaladrápi og
segist
vera hætt að borða íslenskan físk.
Ég spurði einn hvort honum þætti
það ekki miður af því að íslenski
fískurinn væri svo góður. Hann
samsinnti því en sagðist samt vera
hættur að borða hann og allir vinir
hans líka.“
Peter Puecschel, hvalasérfræð-
ingur Greenpeace, sagði að sér hefði
komið á óvart hversu harðir í hom
að taka íslensku sjómennimir á
Ögra hefðu verið. „Ég reyndi að
hafa samband við skipstjórann en
hann svaraði mér ekki. Við áttum
ekki von á að togarinn reyndi að
leggjast upp að bryggju þegar flek-
inn og níu manns vom fyrir," sagði
hann. „Við hættum aðgerðum eftir
að hvalurinn var rifínn en emm feg-
in að við vöktum athygli á baráttu-
máli okkar."
Borðbúnaður
fyrir veitingahús
— GIÖS DUROBAR
- POStlllín PILLIVUYT
- Borðdúkar
- Serviettur
- Hnífapör o.m.fl.
—^feitiúf—
Bíldshöföa 18-sími 688838
••
Orn KE á dragnótarveiðum:
Faum agætt verð fyr-
ir kolann í Hollandi
••
- sag'ði Om Erlingsson útgerðarmaður
Keflavik.
ÖRN KE hefur að undanfömu
stundað veiðar með dragnót og
hefur aflað þokkalega. Aflinn
sem hefur verið að uppistöðu
koli hefur verið seldur & föstu
verði til Hollands og hafa hol-
lensku kaupendurnir greitt um
36 krónur fyrir kílóið af sand-
kolanum. Öra Erlingsson útgerð-
armaður sagði í samtali við
Morgunblaðið að verðið væri
ágætt og hann vonaðist til að
áframhald gæti orðið á þessum
veiðum.
Hollensku kaupendumir sendu
fulltrúa sinn hingað til lands til að
fylgjast með hvemig gengið væri
frá aflanum og fór Hollendingur
sem heitir Jack Kraak og er sjómað-
ur með Eminum í síðustu veiðiferð.
Jack Kraak er frá fiskveiðibænum
Den Helder sem er 60 þúsund
manna bær og sagði hann að mik-
ill skortur væri á flatfíski í Hol-
landi. Sjómenn í Den Helder hefðu
veitt flatfísk í Norðursjó, en nú
væru þær veiðar varla nema orðin
tóm.
Lýður Ægisson skipstjóri sagði
að þeir hefðu aðallega verið að veið-
um í Meðallandsbugt og hefðu þeir
fengið um 30 tonn á 3 dögum í
fyrsta túmum. Aflinn hefði verið
að uppistöðu koli og steinbítur.
Lýður sagði að físktegundir sem
þeir legðu áherslu á að veiða hefði
hingað til ekki verið hirtar t neinum
mæli og því væru þeir að nýta van-
nýttar tegundir.
-BB
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Öra Erlingsson útgerðarmaður, Jack Kraak frá Hollandi og Tómas
ísleifsson frá Seif skoða aflann úr fyrstu veiðiferðinni þjá Erninum.
Sumar-tHhoð
á svínakótilettum
Gott á grillið - Gott á grillið
799,-
þr. kg.
arowaai!^
aaammmmmmBimammamuBmm
——awm ihw «