Morgunblaðið - 25.05.1988, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1988
39
Andrés H. Valberg sýnir gestum safn minja sem hann hefur safnað og gefið Sauðárkróksbæ. Á
myndinni má sjá menntamálaráðherra, Birgi ísleif Gunnarsson og Indriða G. Þorsteinsson rithöf-
und. Sýningin, sem var einn liður M-hátíðar, var opnuð á föstudag.
M-hátíð lokið á Sauðárkróki:
>
Islensk tunga og menn-
ing lifði í Hólaprenti
Saudárkróki
Hátíðardagskrá í íþróttahús-
inu, var síðasti liður M-hátíðar
á Sauðárkróki. Þar flutti
menntamálaráðherra Birgir
ísleifur Gunnarsson ávarp þar
sem hann ræddi stöðu íslenskr-
ar menningar og baráttu menn-
ingar og tungu á fjölmiðlaöld.
Að loknu ávarpi menntamála-
ráðherra tók til máls Þorbjöm
Ámason forseti bæjarstjómar og
gerði að umtalsefni gildi hátíðar
af þessu tagi fyrir hinar dreifðu
byggðir landsins, þar sem bland-
ast saman hið besta sem að er
fengið og þess sem gert er af
heimamönnum. Hvatti Þorbjöm
til þess að ráðherra léti hvergi
deigan síga í því efni að koma
M-hátíðum á laggimar sem víðast
um land, og færa þangað margt
af því besta sem í boði er á
Reykjavíkursvæðinu, en einnig að
hrista upp í heimámönnum og
gera þeim ljóst hvað hægt er að
gera á heimaslóð.
Haraldur Bessason forstöðu-
maður Háskóla íslands á Akur-
eyri flutti erindi um íslenska
tungu. Ræddi Haraldur hvemig
skilgreina ber íslenska tungu og
rakti forsendur þeirrar skilgrein-
ingar, allt til fyrstu ára íslands
byggðar. Sýndi Haraldur fram á
hvemig orðsnilld Egils Skal-
lagrímssonar bjargaði lífí hans er
hann kvað Höfuðlausn, en einnig
hvemig kvæðið Sonartorrek létti
honum hugarvíl vegna sonarmiss-
is, og hann kvað sig frá bráðum
bana. Þá rakti Haraldur í stóram
dráttum hvemig sýna má fram á
að málbygging íslenskrar tungu
er hin sama á nítjándu öld og
hinni níundu.
Þessu næst flutti Gísli Magnús-
son cand mag erindi sem hann
nefndi:“Ég að öllum háska hlæ“
Morgunblaðið/U rður
Sr. Sigurður Guðmundsson vigslubiskup á Hólum skýrir viðgerð-
ir á Hóladómkirkju fyrir menntamálaráðherra, Birgi ísleifi Gunn-
arssyni.
og fjallaði þar um Níels skálda,
samandregið efni'úr ýmsum heim-
ildum.
Indriði G. Þorsteinsson rithöf-
undur ræddi um Menningarlíf í
Skagafírði, þátt Sturlunga, Jóns
biskups Arasonar og Guðbrands
Þorlákssonar í allri menningar-
sögu íslendinga. Taldi Indriði að
þjóðveldi íslendinga hefði liðið
undir lok í Örlygsstaðabardaga,
en á Hólum hefði íslensk tunga
og menning lifað í prenti því sem
þar var unnið.
Milli atriða lék Sigurður Mar-
teinsson einleik á píanó og Jó-
hanna Linnet söng einsöng við
undirleik Sigurðar.
Hátíðinni lauk með því að félag-
ar í kirkjukóram Skagafjarðar-
prófastsdæmis sungu nokkur lög
undir stjóm Rögnvaldar Valbers-
sonar.
Með þessari hátíðardagskrá
lauk M-hátfð á Sauðárkróki, sem
í alla staði tókst hið besta.
BB
Trillukarlarnir á Þingeyri
Skólastjórastaða við Ölduselsskóla:
Undirskriftalistar afhent-
ir menntamálaráðherra
Foreldrar 92,3% barna styðja Daníel Gunnarsson
IFRÉTTI Morgunblaðinu á laug-
ardaginn um námskeið til 30
tonna skipstjórnarréttinda undir
Söngnámskeið
prófessors
Hanne-Lore
Kuhse
PRÓFESSOR Hanne-Lore
Kuhse, Wagner-söngkona frá
Berlín, heldur söngnámskeið i
Fríkirkjunni í Reykjavik dagana
5. til 15. júní nk.
Prafusöngur hefst kl. 16.00
sunnudaginn 5. júní í kirkjunni.
Þeir, sem hafa áhuga að komast á
námskeiðið, hafi samband við
Ágústu Ágústsdóttur, söngkonu,
sem gefur allar nánari upplýsingar.
(Fréttatílkynning)
fyrirsögninni „Trillukarlar i
prófum" urðu þau mistök að
fréttin var sögð frá Flateyri og
merkt fréttaritara Morgunblaðs-
ins þar, en hið rétta er að nám-
skeiðið fór fram á Þingeyri og
kom fréttin frá Huldu Sigmunds-
dóttur, fréttaritara Morgun-
blaðsins þar.
Á meðfylgjandi mynd era þátt-
takendur námskeiðsins. Frá vinstri
era Ólafur V. Þórðarson, Snorri
Guðmundsson, Þórður Sigurðsson,
Gunnar Friðfínnsson, Hólmgrímur
Sigvaldason, fyrir enda borðsins er
kennarinn, Helgi Ámason, þá Ólaf-
ur Gunnarsson, Sigurður FV. Jóns-
son, Magnús Kristjánsson og Guð-
mundur Valgeirsson. Einn nemanda
vantar, Kristján Bjömsson.
Morgunblaðið biðst velvirðingar
á þessum mistökum.
FULLTRÚAR foreldrafélags
Ölduselsskóla í Breiðholti gengu
í gær á fund menntamálaráð-
herra og afhentu honum undir-
skriftir foreldra 759 barna við
skólann til stuðnings Dahíel
Gunnarssyni í stöðu skólastjóra.
822 börn eru í skólanum og
styðja þvi foreldrar 92,3% allra
barna i skólanum Daniel. Auk
Daníels hefur Sjöfn Sigurbjörns-
dóttir sótt um starfið og hefur
fræðsluráð Reykjavikur mælt
með henni við menntamálaráð-
herra, sem skipar i stöðuna.
Stjórn Félags skólastjóra og yfir-
kennara hefur látið í ljós efa-
semdir um að Sjöfn hafi öll áskil-
in réttindi til að gegna stöðunni.
„Benda má á að Daníel Gunnars-
son hefur tvímælalaust þá menntun
sem krafist er til þessa starfs. Þá
hefur hann starfað við skólann í 8
ár, þar af í 3 ár sem yfírkennari
og hefur því ákjósanlega reynslu.
Þegar við þessi tvö atriði bætist
ótvíræður vilji foreldra teljum við
að hann sé sjálfkjörinn til starf-
ans,“ segir f bréfí foreldra til
menntamálaráðherra, sem undir-
skriftunum fylgdi.
í bréfínu er tekið fram að náðst
hafí til foreldra 801 bams, eða
97,4%. Foreldrar 759 bama skrif-
uðu undir, og svarar það til 94,8%
af þeim er náðist til.
I frétt í laugardagsblaði Morgun-
blaðsins er sagt frá því að 59 starfs-
menn við skólann hafí lýst stuðn-
ingi við Daníel. Síðan hafa sjö
starfsmenn til viðbótar sent'
fræðsluráði stuðningsyfírlýsingu
við Daníel og hefur hann því stuðn-
inga allra starfsmanna við skólann,
66 að tölu.
Stjóm Félags skólastjóra og yfír-
kennara hefur sent frá sér fréttatil-
kynningu vegna afgreiðslu fræðslu-
ráðs á umsóknum þeirra Sjafnar
og Daníels. Þar er tekið fram að
stjómin telji óviðunandi ef fólk sem
lokið hefur fullgildu kennaranámi
og aflað sér mikillar starfsreynslu
-sé sett hjá við stöðuveitingar, og
óveijandi ef þeir sem byggja starfs-
leyfí sitt á öðra séu teknir fram
yfír. Stjómin lítur svo á að Sjöfn
Sigurbjömsdóttir uppfylli ekki að
fullu kröfur laga og reglugerðar
um menntun skólastjómenda. Tekið
er fram að Sjöfn hafi ekki lokið
formlegu kennaranámi, heldur virð-
ist leyfísbréf hennar byggt á skip-
unarbréfi frá 1975. „Stjóm FSY
fær ekki séð að útgáfa þess hafi
átt sér stað í grannskólalögum,"
segir í fréttatilkynningunni.
Stjóm FSY átelur meirihluta
fræðsluráðs fyrir að hafa horft
framhjá starfsmenntun Daníels
Gunnarssonar og hunsað margvís-
leg meðmæli hans, auk þess sem
litið hafí verið framhjá reynslu hans
í starfí við Ölduselsskóla. „Stjóm
FSY minnir á að endurtekið hafa
komið fram opinber gögn sem
ítreka mikilvægi góðrar fagmennt-
unar kennara og einkum stjómenda
skóla. Stjómin treystir því að
menntamálaráðherra virði það sjón-
armið og forði starfsfólki og nem-
endum Olduselsskóla, íbúum hverf-
isins svo og skólastarfí í landinu frá
óþörfum átökum," segir að lokum
í fréttatilkynningu FSY.
Ungfrú Thai-
land sigraði
KEPPNIN um titilinn Ungfrú al-
heimur fór fram á Taiwan á
mánudagskvöldið. Sigurvegari
varð ungfrú Thailand, Pomtip
Narkhirunkanok, 20 ára sálfræði-
nemi. Anna Margrét Jónsdóttir,
ungfrú ísland 1987, komst ekki i
úrslit og var ungfrú Noregur eina
stúlkan frá Evrópu meðal tíu
efstu.
Anna Margrét sagði, í símtali við
blaðið, að almenn óánægja væri með
val stúlkna í úrslit. Af þeim tíu sem
áfram komust vora flórar frá Asíu,
fíórar frá Suður-Ameríku, ungfrú
Bandaríki og ungfrú Noregur. í fímm
efstu sætunum voru ungfrú Thai-
land, ungfrú Kórea, ungfrú Mexfkó,
ungfrú Japan og ungfrú Hong Kong.
Anna Margrét sagði að eftir á að
hyggja hefði þátttaka í keppninni
verið skemmtileg reynsla, en þessi
mánuður hefði verið mjög erfíður og
nú væri markmiðið að skemmta sér
ærlega eftir púlið.