Morgunblaðið - 25.05.1988, Page 53
88ei ÍAM .as flUOAQÖ^IVqiM .ŒOAJaVIUOaOM
Sc
Tóbaks-
notendur
verða háðir
nikótíni
Washington, Reuter.
Sígarettureykingar eru vana-
bindandi líkt og notkun kókaíns
og heróíns, segir í nýrri skýrslu
heilbrigðisráðuneytis Banda-
ríkjanna, sem lögð var fyrir
bandaríska þingið á mánudag.
Nikótín er efnið í tóbaki sem
veldur fíkninni og segja höfund-
ar skýrslunnar, sem berjast fyrir
reyklausum Bandarikjum fyrir
aldamót, að þessi niðurstaða rétt-
læti auknar hömlur á sölu tóbaks
til barna. Skýrslan staðfestir
ýmislegt það sem margur
reykingamaðurinn hefur mátt
reyna á sjálfum sér.
Nikótín er að því leyti líkt öðrum
fíkniefnum að það er vanabindandi.
Regluleg notkun dregur úr nautna-
áhrifunum og því þarf að auka
skammtinn jafnt og þétt. Unnt er
að venja menn af tóbaksnotkun
með atferlismótun en reykinga-
menn mega eiga von á fráhvarfsein-
kennum líkt og notendur annarra
fíkniefna. Draga má úr fráhvarfs-
einkennum með notkun nikótínstað-
gengla.
I skýrslunni segir ennfremur að
streyta auki reykingar og að sé
reykingum hætt þá megi búast við
þyngdaraukningu.
Fyrri skýrslur bandaríska heil-
brigðisráðuneytisins hafa leitt í ljós
skaðsemi reykinga og orðið tilefni
til margvíslegrar lagasetningar sem
draga á úr reykingum. Fýrir tutt-
ugu árum var því lýst yfír að
reykingar væru ógnun við heilsu
almennings og leiddi það til þess
að settu voru lög um merkingu tó-
baksumbúða.
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1988
53
Næstu brottfarin
/um
10 eða 22 daga
12
• ^ #
/um
Brottfarir 1988:
maí 10—22
júní 3-12-24
júlí 3-15-24
ágúst 5—14—26
sept. 4—16—25
okt. 7—28
nóv. 4—11
des. 20
Gististaðir:
Verð frá kr. 28.420.-
(2 fullorðnir, 2 börn í íbúð)
#3
noyai luagaiuf
13 eða 22 daga Royal Cristina
Royal Playa de Palma
Royal Jardin del Mar
141988
roi|albur
1P
DINERS CLUB
FERÐASKRIFSTOFA HALLVEIGARSTÍG 1 SlMAR 28388-28580
m Kærí bfleigandi!
Með reglulegri j afnvægis-
stillingu tekurðu mikið álag af dekkj-
unum, undirvagni og stýrisbúnaði
bflsins. Pannig verður hann þægilegri
og mun öruggari í akstri.
Dekkjavinafélagið ráðleggur jafn-
vægisstillingu í hvert sinn sem skipt er
um dekk. Kostnaðurinn er hverfandi
lítill miðað við hvað bfllinn batnar!
Dekkjavinafélagið
stendur með dekkjavinum