Morgunblaðið - 04.06.1988, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 04.06.1988, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ 1988 7 Laumufarþeginn frá Marokkó farínn Nesskip ber kostnaðinn Marokkóbúinn, sem laumaðist um borð í ms. Saltnes í byrjun mai og kom hingað til lands með skipinu eftir að norsk yfirvöld neituðu að taka við honum, fór til Kaupmannahafnar í gær með Flugleiða- vél áleiðis til sins heima. Að sögn Jóhanns Jóhannssonar hjá útlend- ingaeftirlitinu var maðurinn sáttur við þetta og engri nauðung var beitt. Kostnaðinn við heimferð mannsins mun Nesskip, útgerðarað- ili ms. Saltness, bera enda hafði maðurinn enga peninga meðferðis. Laumufarþeginn fannst um borð í skipinu þann 6. maí aðframkominn af þorsta og hungri, en honum hafði mistekist að láta skipveija vita af sér þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Saltnesið kom við í Noregi á leið sinni til íslands, en yfírvöld þar neituðu að taka við manninum. Þar strauk hann frá borði, en norska lögreglan náði honum tveim dögum seinna. Hingað til lands kom skipið 27. maí og var laumufarþeginn í vörslu útlendingaeftirlitsins þar til í gær • er hann hélt áleiðis til Marokkó. Ekki kom fram hjá manninum hvað fyrir honum vakti með þessu tiltæki, að sögn Jóhanns. Hann sótti ekki um pólitískt hæli, né óttaðist hann heimförina. Rúmlega mánað- ar löngu ævintýri mannsins lauk því vel, en illa hefði getað farið ef skipverjar á Saltnesinu hefðu ekki fundið hann fyrir tilviljun. Námsmanns enn saknað EKKERT hefur enn spurst til 25 ára Sslensks námsmanns, sem saknað er í Bandaríkjunum. Maðurinn, Halldór ísleifsson, stundar nám við North Texas Uni- versity. Hann fór í frí til Kalifomíu og síðast heyrðist frá honum þaðan er hann hafði samband við félaga sinn þann 14. mars. Atvinnulíf í Hafna- hreppi lamað í mánuð Frystihúsið lokað á háannatíma Grindavfk. Frystihúsið Hafnir hf. í Hafnahreppi á Suðurnesjum hefur nú verið lokað i mánuð eftir að Útvegsbankinn i Keflavík stöðvaði alla fyrir- greiðslu vegna erfiðrar stöðu fyrirtækisins. Fyrir skömmu skrifuðu sextíu manns hreppsnefndinni hvatningu um að láta málið til sin taka enda misstu 25 manns atvinnuna og eigendur þrjátíu til fjörutíu trillu- báta misstu viðskipti á þeim tima sem hefur verið háannatími í höfninni. Að sögn Agnars B. Þorkelssonar, annars eigenda fyrirtækisins, er málið í skoðun hjá Byggðastofnun og bönkunum og hefur Þórarinn St. Sigurðsson sveitarstjóri lagt mikla vinnu í að aðstoða þá. „Málið er á mjög viðkvæmu stigi og fínnst okkur að við þurfum að fara að fá svör, enda erum við tilbúnir að halda áfram frekar en að gefast upp,“ sagði Agnar. „Helstu ástæðumar fyrir erf- iðleikunum em þær sömu og em að drepa íslenskan sjávarútveg eða gífurlega hár fjármagnskostnaður, lægra afurðaverð og hækkanir á öll- um tilkostnaði innanlands auk þess sem við fómm út í útgerð á tveimur bátum sem reyndist okkur gífurlega erfítt dæmi og hefur valdið okkur umtalsverðu Qárhagslegu tjóni. Þennan mánuð sem fyrirtækið hefur verið lokað höfum við tapað veltu upp á lágmark 12 milljónir króna auk þess sem slíkt hefur haft slæm áhrif á sveitarfélagið þegar öll viðskipti við trillusjómennina leggjast af og fólkið sem vann hér missti vinnuna," sagði Agnar. Að sögn Þórarins St. Sigurðssonar sveitarstjóra Hafnar- hrepps er málið mjög þungt og gífur- legt áfall fyrir byggðarlagið. - Kr.Ben. rvminaarsala Nú geta allir fengið sér sportlegan sumar- fatnað frá Henson á verði sem enginn getur slegið út. Allt að afsláttur Dæmi: Háskólabolir........frá kr. 10O.- Regngallar...........frá kr. 1.200.- Æfingagallar........frákr. 1.200.- Barnagallar.........frákr. 450.- T-bolir.............frá kr. 10O.- Sportblússur........frá kr. 1 .OOO.- |þróttapeysur........frá kr. 450.- Fatnaðurinn fæst í barna- og full- orðinsstærðum á konur og karla. Utsalan er í hinni lanc Kjötmiðstöð Opið í dag frá kl. 9-18 og sunnudag 11-18. dsþekktu 5ýnum um helginu hjd Bílnsölu Uesturlunds glœsibílu frn Cenernl mutors: Cheurolet IHonzu, Isuzu Trooper, Opel Kndett, Opel Corsn Opið lougnrdog og sunnudog frn kl. 13 til 17. Bílnsala Uosturlands Bognrbraut 5G S. 93-71577 jUttoL BíLVANGURsf HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687300
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.