Morgunblaðið - 04.06.1988, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ 1988
Shultz lagður af stað í friðarför:
Allsherjarverkfall á
hemumdu svæðunum
Jerúsalem, Reuter.
HÁLF önnur milljón palestínu-
manna á hernumdu svæðunum
hóf þrijgja daga allsherjarverk-
fall í gær á sama tíma og George
Shultz, utanríkisráðherra Banda-
rikjanna, lagði í sína fjórðu frið-
arferð til Miðausturlanda.
Verslanir voru lokaðar, almenn-
ingssamgöngur lágu niðri og verka-
menn mættu ekki til vinnu í gær
vegna verkfallsins sem leiðtogar
Palestínumanna boðuðu til. Þeir
saka Bandaríkin um að reka stefnu
hliðholla ísraelsstjóm og hafa fram
til þessa neitað að ræða við Shultz.
Leiðtogar araba og ísraela segjast
ekki búast við neinum árangri af för
Shultz í þetta skiptið. Leiðtogar
Palestínumanna segja að til verk-
fallsins hafí einnig verið boðað til
að minnast þess að í dag eru fimm
ár liðin síðan ísraelar réðust inn í
Líbanon. A sunnudaginn er einnig
afmæli Sex daga stríðsins árið 1967.
ísraelsher setti útgöngubann á
tvennar flóttamannabúðir á Gaza-
svæðinu til þess að hindra átök
vegna heimsóknar Shultz. Shultz
kom í gær til Kaíró, höfuðborgar
Egyptalans. Um helgina fer hann
til Jórdaníu, Sýrlands og ísraels.
Friðarförin kemur í kjölfar leið-
togafundar risaveldanna en Míkhaíl
Gorbatsjov Sovétleiðtogi hefur sagt
að fundurinn hafi fært risaveldin
nær hvort öðru í afstöðu til deilu-
mála fyrir botni Miðjarðarhafs. í
næstu viku hefst einnig leiðtoga-
fundur arabaríkja í Alsír. Shultz
hefur lagt til að haldin verði al-
þjóðleg friðarráðstefna og Palestínu-
menn fái takmarkaða sjálfstjóm á
hemumdu svæðunum.
í gær kom til átaka nærri bænum
Hebron milli gyðinga sem búa á
vesturbakka Jórdanar og Palestínu-
manna. Tvítugur Palestínumaður
féll í óeirðunum.
Fjórir ísraelar, sem hittu fulltrúa
PLO að máli í Rúmeníu fyrir tveim-
ur árum, voru í fyrradag fundnir
sekir um að hafa brotið gegn lögum,
sem banna samskipti við „hryðju-
verkamenn". Eiga þeir yfir höfði sér
allt að þriggja ára fangelsi. Veijandi
þeirra hélt því fram, að þeir hefðu
ekki brotið neitt af sér, aðeins rætt
um frið við menn, sem hefðu ekki
tekið þátt í hryðjuverkum, en dómar-
inn vísaði þeirri röksemd á bug.
Ekvador:
Fylgistap hjá finnsk-
um Jafnaðarmönnum
Fyrsta skóflustungan
Systir Josephine Mary Agnew settist upp í jarðýtu 2. júní síðast-
liðinn og tók fyrstu „skóflustunguna", áður en byrjað var á
miklum byggingarframkvæmdum við nýjan 160 rúma fæðing-
arspitala i norðurbæ Sydney i Ástralíu. Ekki er þó á dagskránni
hjá systurinni að leggja fyrir sig jarðrask á stórvirkum tækjum,
þvi að hún verður hjúkrunarkona á nýja spítalanum.
Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttantara Morgunblaðsina í Fmnlandi.
FINNSKI jafnaðarmannaflokk-
urinn hefur orðið fyrir fylgistapi
að undanfömu, samkvæmt skoð-
anakönnun, sem nnnin var fyrir
finnska útvarpið. Hægri flokkur-
inn hefur bætt við sig fylgi á
sama tíma.
Fylgi Jafnaðarmannaflokksins
hefur minnkað úr 25% frá í kosning-
unum í fyrra niður í 21,6% og þar
sem sveiflur eru jafnan litlar á fylgi
flokka hér í landi þykir þessi niður-
staða tíðindum sæta.
Á sama tíma hefur Hægri flokk-
urinn bætt við sig fylgi, hefur 22,5%
samkvæmt könnuninni og er því
kominn uppfyrir Jafnaðarmanna-
flokkinn. Þessir flokkar sitja nú
saman í ríkisstjóm. Aðrir flokkar
halda sína, miðað við niðurstöður
könnunar útvarpsins.
Stjómmálaskýrendur telja að
fylgistap Jafnaðarmannaflokksins
megi að mestu rekja til stjómar-
samstarfsins við Hægri flokkinn,
sem mæltist illa fyrir hjá stómm
hópi jafnaðarmanna. Höfðu for-
ystumenn flokksins vonast til að
sigur Mauno Kovisto f forsetakosn-
ingunum í vetur, myndi skila sér í
fylgisaukningu fyrir Jafnaðar-
mannaflokkinn. Sú hefur ekki orðið
raunin. Kovisto var frambjóðandi
flokksins.
Ítalía:
Yfir 50 eiturlyfja-
salar handteknir
NapAU. Reuter.
ÍTALSKA lögreglan sagði í gær,
að yfir 50 manos, sem stundað
hafa eiturlyfjasölu og aðra glæpa-
starfsemi, hefðu verið handteknir
í umfangsmiklum lögregluaðgerð-
um um allt landið.
Lögreglan sagði, að aðgerðunum
hefði verið stjómað frá Napólí og
35 glæpamenn verið handteknir þar
í borg. Auk þess voru 19 til viðbótar
handteknir í Mflanó, Róm og þremur
öðrum borgum, og standa aðgerðim-
ar enn yfír.
Grunur leikur á, að glæpaflokkar
þessir hafí notað ránsfeng úr banka-
og póstránum til að fjármagna kók-
aín; og heróínkaup.
Ákærumar á hendur hinum hand-
teknu taka til eiturlyfja- ög vopna-
sölu o g skjalafölsunar. Mikið af eitur-
lyQum, skotvopnum og ávísunum
fannst í fórum bófanna.
Allsherjarverkfall undir
strangri öryggisgæslu
Quito, Reuter.
Síðastliðinn miðvikudag var
boðað til allsheijarverkfalls í
Ekvador þrátt fyrir að stjórnvöld
hefðu lýst þvi yfir á þriðjudag
að neyðarástand rikti í landinu.
A meðan á verkfallinu stóð voru
vopnaðir verðir á götum úti og
flokkar hermanna gættu opin-
berra bygginga. í höfuðborginni
Quito beittu lögreglumenn tára-
gasi gegn mótmælendum.
Það var stjóm sameinaða verka-
mannafélgsins (FUT) sem boðað til
verkfallsins til þess að vekja at-
hygli á kröfum félagsins um launa-
hækkanir sem eiga að bæta launa-
fólki 40% verðbólgu sem nú er í
landinu. Að sögn Fausto Duran leið-
toga verkamannafélagsins tókst
verkfallið vel í öllu landinu og frá
höfuðstöðvum félagsins bárust þær
fréttir að um ein miljón starfs-
manna hefðu setið heima í þessu
sjöunda allsheijarverfalli sem boðað
hefur verið til frá því að núverandi
forseti landsins, Febres Cordero,
tók við embætti árið 1984.
Forsetinn, sem er íhaldsmaður,
hefur látið þau orð falla við frétta-
menn að stjóm hans sé staðráðin í
að tryggja frið og reglu í landinu
þær tíu vikur sem sem hún á eftir
að starfa þangað til nýkjörinn for-
seti landsins, sósíaldemókratinn
Rodrigo Boija, tekur við um miðjan
ágúst. Cordero sagði einnig að verk-
fallið væri ólöglegt og stjómmála-
legar ástæður lægju að baki þess.
í opinberri tilkynningu frá núver-
andi stjómvöldum segir að neyðar-
ástandið í landinu muni ekki koma
í veg fyrir að Boija taki við af
Cordero enda verði því aflétt um
Ieið og ástandið í landinu skánar.
Sprenging í S-Afríku:
Fjórir menn bíða bana
Jóhannesarborg, Reuter.
FJÓRIR menn létust og tuttugu
særðust alvarlega er sprengja
sprakk i bænum Roodeport i ná-
grenni Jóhannesarborgar i gær.
Að sögn lögreglu sprakk sprengj-
an í öskutunnu i fjölförnu hverfi
í bænum.
Sprengjan í gær var sú mann-
skæðasta í landinu á þessu ári. í
síðustu viku spmngu flórar sprengjur
í Jóhannesarborg og höfuðborginni
Pretóríu. Sprengjuárásimar hafa
verið settar í samband við 40 ára
afmæli valdatöku Þjóðarflokksins í
landinu. Enginn hefur lýst ábyrgð á
hendur sér á sprengjuárásunum en
stjómin kennir jafnan Afríska þjóð-
arráðinu, hinum bönnuðu samtökum
svartra í Suður-Afiríku, um.
ERLENT
Reuter
Fyrirrennara minnst
Jóhannes Páll páfi annar krýpur við gröf Jóhannesar páfa þrett-
ánda, sem lést 3, júní fyrir 25 árum, í grafhýsi Péturskirkjunnar
í Róm.
Noregur:
Aðild að Evrópubandalag-
inu rædd á Stórþinginu
Óaló, frá Rune Timberlid, fréttaritara Morgiinblaðsina.
UMRÆÐAN um aðild að Evrópu-
bandalaginu hefur verið vakin
upp að nýju í Noregi. Enn hafa
ekki blossað upp deilur á við þær
sem urðu árið 1972 þegar þjóðar-
atkvæðagreiðsla um aðild að EB
fór fram. Eftir öllu að dæma
verður ekki afráðið um aðild að
EB fyrr en eftir þingkosningar
sem fram munu fara árið 1993.
Fleiri og fleiri norskir stjóm-
málamenn hefja máls á að tíma-
bært sé að Norðmenn kjósi-á ný
um aðild að EB, en árið 1972 fór
fram þjóðaratkvæðagreiðsla þar
sem norska þjóðin hafnaði aðild að
bandalaginu. Ekkert bendir þó til
þess að umræðan um aðild að EB
verði að kosningamáli í þingkosn-
ingunum sem fram fara í Noregi
haustið 1989. Hitt er þó augljóst
að eftir að innri markaður í Evrópu
er orðinn að vemleika árið 1992
þurfa Norðmenn að gera upp við
sig hvort þeir ætli að halda áfram
að standa utan við samstarf í Evr-
ópu. Því er líklegt að í kosningum
sem fara fram í Noregi 1993 verði
EB-aðild eitt af kosningamálunum.
Stöðug fleiri stjómmálamenn og
atvinnurekendur í Noregi segja að
þeir óttist að Noregur muni tapa á
því að vera utan EB eftir að innri
markaðurinn er orðinn að vemleika.
Nýju blóði var hleypt í umræðuna
þegar utanríkismálanefnd norska
Stórþingsins skilaði skýrslu um við-
horf Norðmanna til bandalagsins.
Stórþingið mun fjalla um skýrsluna
í byijun næstu viku. Allir stjóm-
malaflokkar vilja auka samstarf við
EB en enginn flokkannna vill taka
afstöðu um aðild núna.
Ljóst er að innan Hægriflokksins
er eindregnir stuðningsmenn þess
að Noregur gerist aðili að EB en
Miðflokkurinn og sósíalistar em á
móti aðild. Báðir flokkamir sem em
á móti aðild að bandalaginu telja
að virða verði úrskurð þjóðarat-
kvæðagreiðslunnar frá 1972 þar til
önnur, sem e.t.v. gefur aðra niður-
stöðu, hefur farið fram.