Morgunblaðið - 04.06.1988, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ 1988
37
Norðurland eystra:
Uppbygging hafna
er brýnt verkefni
MatthSas Á. Mathiesen samgönguráðherra fór um helstu hafnir á
Norðurlandi eystra í fyrri viku.
BRÝNASTA verkefnið á Norður-
landi eystra fyrir utan göng i
gegnum Ólafsfjarðarmúla er
uppbygging og endumýjun hafn-
armannvirkja, að sögn Halldórs
Blöndal alþingismanns. í fyrri
viku var hann ásamt þeim Matt-
híasi Á. Mathiesen s&mgönguráð-
herra, Hreini Loftssyni aðstoðar-
manni hans, Gísla Viggóssyni
forstöðumanni rannsóknadeildar
Hafnamálastofnunar og Krist-
jáni Helgasyni tæknifræðingi á
ferð um björdæmið þar sem þeir
skoðuðu hafnir og mannvirki
þeim tengdum og er ljóst að
byggja þarf upp hafnir fyrir
hundrað milljóna króna.
Þeir sátu fund með bæjarstjóm
Ólafs^arðar þegar tilboð í Múla-
göngin vom opnuð fyrir sunnan og
vom Ólafsfirðingar mjög ánægðir
með að þetta brýna mál þeirra
væri nú loks komið í höfn. Halldór
vildi sérstaklega þakka fmmkvæði
Lámsar Jónssonar hvað göngin
varðar, en sagði jafnframt að þeir
nafnar Matthías Á. Mathiesen og
Matthías Bjamason hefðu verið
Rjúpnatalningu er nú nýlokið
í Hrísey og samkvæmt henni
mega ijúpnaskyttur eiga von á
góðri veiði í haust. Þorsteinn
Þorsteinsson sundlaugavörður á
Akureyri hefur séð um talning-
una í Hrísey á undanförnum
árum fyrir Náttúrufræðistofnun
íslands og taldi hann 295 karra
f eynni að þessu sinni.
Þorsteinn sagði að karramir
veldu sér tiltekin svæði í eynni áður
en kvenrjúpumar létu sjá sig og
hefðu þeir síðan þetta eina og upp
í þijár kvemjúpur hjá sér þar sem
þeir væm fjölkvænisfuglar. Þor-
steinn sagðist fara út í ey eftir að
karramir hefðu valið sín svæði og
fylgjandi óvegaáætluninni svokall-
aðri sem gerð var á sínum tíma.
Áætlunin gerði ráð fyrir að fyrst
yrði ráðist í veg fyrir Ólafsvík-
urenni. Síðan yrði Óshlíðarvegurinn
merkti hann þá einfaldlega inn á
kort, sem hann hefði meðferðis.
Karramir yfírgæfu svæðin sín ekki
auðveldlega, en ef karri vogaði sér
inn á frátekið svæði, upphæfust
slagsmál og læti.
Arið 1986 var ijúpnastofninn í
Hrísey í hámarki, alls 320 karrar,
en árið eftir datt stofninn mikið
niður og taldi Þorsteinn aðeins 252
fugla. Og miðað við 295 karra í ár,
má fastlega gera ráð fyrir mikilli
ijúpu í haust. Þorsteinn sagðist ein-
göngu sjá um talinguna í Hrísey,
en það hefði hinsvegar ekki farið
fram hjá sér að mikill fugl væri
annars staðar á Eyjafjarðarsvæðinu
og jafnvel inni í sjálfum Akur-
eyrarbæ og í Kjamaskógi.
næstur í röðinni og þá göng í gegn-
um Ólafsfjarðarmúla. Ennfremur
kvaðst Halldór ánægður með það
sem hafst hefði í gegn þar sem al-
þýðuflokksmenn sérstaklega hafa
Hótel KEA:
22 ný her-
bergi tekin
í notkun
Vínflöskur á mini-
barina væntanlegar
HÓTEL KEA tekur í notkun 22
ný tveggja manna herbergi á
mánudag. Hótelið hefur þá yfir
72 herbergjum að ráða, þar af
átta eins manns herbergjum. Alls
getur hótelið þá hýst 136 manns
hveiju sinni. Nýju herbergin eru
nákvæmlega eins og þau eldri
og eru búin sömu innréttingum.
Þá hefur hótelinu verið veitt
heimild fyrir vínveitingum á mini-
bömnum svokölluðu, sem hingað
til hafa eingöngu selt gosdrykki,
snakk og súkkulaði. Gunnar Karls-
son hótelstjóri á KEA sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að hóteleig-
endur hefðu barist mikið fyrir þessu
sjálfsagða máli og væri ÁTVR nú
loksins að heíja innflutning á litlu
flöskunum, sem pössuðu í barina.
Hótelgestir mættu því búast við
vínanda á minibörunum í byijun
næsta mánaðar. Gunnar sagðist
reikna með að verðlag á sjússum á
minibörunum yrði svipað því sem
gerðist á bar hótelsins. Þeir yrðu
að minnsta kosti ekki dýrari, eins
og tíðkast erlendis.
Gunnar sagði að bókanir lofuðu
góðu fyrir sumarið og haustið.
„Fullbókað er hjá okkur strax á
mánudag þegar við opnum nýbygg-
inguna og tökum við á móti fimm
ráðstefnum í júnímánuði. Júlí- og
ágústmánuðir, hinir eiginlegu sum-
armánuðir, lofa einnig góðu og eru
nokkuð þétt bókaðir þó nokkur af-
föll hafi verið upp á síðkastið. Sept-
ember er sérstaklega góður og man
ég ekki eftir öðrum eins september-
mánuði. Hann er oft daufur fram
yfir miðjan mánuðinn, en er nú nær
fullbókaður ráðstefnugestum, inn-
lendum og norrænum," sagði Gunn-
ar.
Búast má við góðri
rjúpnaveiði í haust
— segir Þorsteinn Þorsteinsson sem
nýlega lauk talningu rjúpna í Hrísey
Ólafsfjarðarmúli skoðaður.
viljað draga þessa framkvæmd á
langinn, eins og meðal annars hefur
komið opinberlega fram hjá Jóni
Baldvin Hannibalssyni fjármálaráð-
herra. Gert er ráð fyrir að komist
verði inn um Múlann innan tveggja
ára og framkvæmdum verði að fullu
lokið innan Qögurra ára.
Framkvæmdir við Ólafsfjarðar-
höfti hafa verið mjög litlar á undan-
gengnum árum og liggja hafnar-
mannvirki þar undir skemmdum.
Gert verður líkan af Ólafsfjarðar-
höfn síðar á þessu ári þar sem reynt
verður hvemig nýjum gijótgörðum
verði best komið þannig að' það
dragi úr óróleika og sandburði í
höfninni. Halldór sagðist vænta
þess að á næsta ári bærist talsvert
fjármagn til uppbyggingar á Ólafs-
firði. Á Dalvík er nauðsynlegt að
dýpka höfnina þar sem nýr togari
staðarins ristir það djúpt og jafn-
framt er nauðsynlegt að bæta að-
stöðu fyrir vöruflutninga og treysta
Norðurgarðinn. Á Húsavík standa
miklar hafnarframkvæmdir fyrir
dyrum sem talið er að kosti um 400
milljónir króna.
Hafnamálastofnun er þessa dag-
ana að ljúka gerð líkans fyrir
Grímseyjarhöfn og að öllum líkind-
um verður ákveðið í haust með
hvaða hætti hún verður byggð upp.
Gísli Viggósson sagði í samtali við
Morgunblaðið að líkanið yrði pmfu-
keyrt seinnihluta júnímánaðar að
viðstöddum Grímseyingum og yrði
það gert í nýrri þjónustumiðstöð
Vita- og hafnamála í Fossvogi sem
tekin yrði í notkun um miðjan júní.
Gísli sagði að bæta þyrfti aðstöðu
fyrir vöruflutningaskip auk aðstöðu
heimabáta. „Við höfum verið með
ákveðna ffamkvæmdaáætlun í
gangi og þurfum nú aðeins að prófa*
hvort hugmyndimar reynast vel.
Öldumælisdufl hefur verið fyrir ut-
an höfnina svo hægt væri að mæla
sjólag, sem við síðan líkjum eftir
við gerð líkansins. Ef allt gengur
að óskum, má búast við að fyrsti
áfangi við Grímseyjarhöfn verði
boðinn út í haust. Hinsvegar er
ekkert nýtanlegt gijót í eynni til
hafnargerðar og verður því að flytja
allt gijót úr Eyjafirði til hafnar-
framkvæmdanna. “
Fasteignir á AKUREYRI
vaxandi bær
Raðhús við Dalsgerði
130 fm raðhús á tveimur hæðum til sölu.
Laust 1. ágúst.
Skipti hugsanleg á íbúð í Reykjavík.
Fasteigna-Torgiö
Geislagötu 12, Akureyri
Sími: 21967 M
Sölustj. Bjöm Kristjánss.
Verslun í sérflokki
Til sölu er sérverslun í miðbæ Akureyrar.
Um er að ræða lager ásamt tilheyrandi
innréttingum. Góð viðskiptasambönd
fylgja. Verslunin er í öruggu leiguhúsnæði.
Upplýsingar veittar á skrifstofunni.