Morgunblaðið - 19.06.1988, Page 1
88 SIÐUR
B
137. tbl. 76. árg.
SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 1988
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Kominn heim
eftir 200 sjó-
mílna sigl-
ingu á rúmi
Þórshöfn, frá Snorra Halldórssyni, frétta-
ritara Morgunblaðsins.
„Nei, ég hafði alls ekki ætlað
mér að sigla rúminu aftur heim
til Færeyja." Þetta sagði Færey-
ingurinn Jóannes Andreassen í
viðtali við fréttamann útvarpsins
i Færeyjum á miðvikudag, þegar
hann kom til Færeyja eftir að
hafa siglt einn um 200 sjómílna
leið frá Færeyjum til Hjaltlands-
eyja á tvíbreiðu rúmi.
Hann lagði af stað frá Þórshöfn
föstudaginn 10. júní, kom við í
Nólsey og lagði af stað þaðan
seinna um kvöldið. Rúmið var sér-
staklega útbúið fyrir siglingar, var
meðal annars með stefni og utan-
borðsvél. Veðrið var gott og engin
vandamál komu upp, þótt hann
hefði sofnað um stund á leiðinni.
Hann sagðist oft hafa fengið yfir
sig sjó og í næstu andrá tekist á
ioft, en hann komst þó heilu og
höldnu til Hjaltlandseyja rúmlega
hálfum sólarhring eftir að hann
lagði af stað.
Jóannes Andreassen sigldi til
Hjaltlandseyja til að safna fyrir
sundhöll í Nólsey. Áður en hann
lagði í þessa ævintýralegu ferð
gátu menn meðal annars veðjað
um hversu langt hann kæmist eða
hvort honum tækist að sigla alla
leið. Seinna kom í ljós að flestir
bjuggust við því að honum tækist
það. Alls söfnuðust um 600.000
krónur færeyskar, eða um 4 millj-
ónir íslenskar, vegna siglingarinn-
ar.
Jóannes sagðist ekki vita hvað
yrði um rúmið eftir siglinguna.
Hann sagði að nefnd sú sem sér
um söfnunina ákvæði hvort rúmið
yrði selt eða geymt og haft til sýn-
is. Ólíklegt væri þó að það yrði
notað eins og ráð var fyrir gert í
upphafi — til að sofa í.
Stoltur ökumaður
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Börnin á Akureyri fengu góða gesti frá Grænlandi á þjóðhátíðina á föstudaginn. Hér sést einn þeirra og
hefur hann fengið að reyna nýjasta glæsivagn bæjarins. Sjá 17. júní-fréttir síðu 3 og 21.
Flokkur Gandhis beið afhroð
í indversku kosningunum
Allahabad, Indlandi. Reuter.
Kongressflokkur (I), flnkkur
Rajivs Gandhis forsætisráðherra,
beið mikinn ósigur í aukakosning-
um i borginni Allahabad á Indl-
andi i gær. Flestir stjórnarand-
stöðuflokkarnir sameinuðust um
að styðja Pratap Singh, fyrrum
varnarmálaráðherra í stjórn
tiandhis, en Singh sagði af sér á
síðasta ári og hóf baráttu gegn
fjármálaspillingu í landinu.
Síðustu tölur bentu til þess að
Singh fengi rúmlega tvöfalt fleiri
atkvæði en frámbjóðandi Kongress-
flokksins en flokkurinn hefur ávallt
sigrað í í kjördæminu frá því að Ind-
land hlaut sjálfstæði árið 1947. Ósig-
urinn er mikið áfall fyrir Gandhi for-
sætisráðherra sem átt hefur í vök
að veijast að undanfömu vegna
ásakana um spillingu í stjórnkerfinu
og jafnvel verið orðaður við mútu-
hneyksli í sambandi við vopnakaup
frá Svíþjóð.
Pratap Singh er nú talinn líklegur
forystumaður í mögulegri fylkingu
stjómarandstöðuafla gegn Gandhi.
Singh er 56 ára að aldri og af forn-
um höfðingjaættum. í kosningabar-
áttunni ferðaðist hann aðallega um
á mótorhjóli og hélt ræður á við-
hafnarlitlum fundum sem minntu lítt
á skrautsýningar stjórnarflokksins
er einnig réð yfir miklum bílaflota.
Singh sagði í gær er úrslitin voru
ljós, að alþýðan hefði unnið sigur á
eyðsluklóm valdakerfisins. Almenn-
ingur hefði einnig kveðið upp sinn
dóm yfir Gandhi og fundið hann sek-
an um spillingu.
„Kosningaúrslitin sýna að hægt
er að fylkja liði gegn stjórnarflokki
Gandhis," bætti Singh við.
Niðurgreiðsl-
um verði hætt
fyrir aldamót
Toronto, Reuter.
RONALD Reagan Bandaríkja-
forseti hvatti á föstudag, tveimur
dögum áður en fundur leiðtoga
sjö helstu iðnríkja heims hefst í
Toronto í Kanada, til þess að
niðurgreiðslum til landbúnaðar
yrði hætt fyrir næstu aldamót.
„Afstaða okkar er einföld: Endi
verði bundinn á niðurgreiðslur og
markaðshöft, sem tröllríða land-
búnaðarviðskiptunum, fyrir árið
2000, án nokkurra undantekninga,“
sagði Reagan meðal annars. Hann
sagði að niðurgreiðslurnar kosti
skattgreiðendur og neytendur í
iðnríkjum heimsins um 200 millj-
arði dala.
Helmut Kohl, kanslari Vestur-
Þýskalands, sem er kominn til Tor-
onto, sagði að þetta vandamál væri
ekki hægt að leysa með skjótum
hætti. Vestur-Þjóðverjar og Frakk-
ar telja að ekki sé raunsætt að
stefna að því að binda enda á niður-
greiðslumar fyrir aldamót.
Bretiand:
Israela vís-
að úr landi
London, Jerúsalem. Reuter.
BROTTREKSTUR ísraelsks
stjórnarerindreka frá Bretlandi,
sem tilkynntur var á föstudag, er
ekki talinn skaða sambúð ríkjanna
til frambúðar að sögn embættis-
manna í ísrael. Stjórnarerindrek-
inn, Arie Regev, er sagður vera
starfsmaður israelsku leyniþjón-
ustunnar, Mossad. Starfsmanni
frelsissamtaka Palestínumanna,
PLO, í London var einnig vísað
úr landi á föstudag.
Breskir heimildarmenn segja að
Regev hafi stjórnað aðgerðum Jórd-
aníumannsins Ismaels Sowans sem
á fímmtudag var dæmdur í 11 ára
fangelsrfyrir að hafa í fórum sínum
vopn ætluð starfsmanni PLO í Lond-
on. Sowan sagði Mossad hafa fengið
sér það verkefni að njósna um meint-
an PLO-félaga, Abder Mústafa, sem
breska lögreglan álítur að hafi átt
þátt í morði eins af andstæðingum
PLO í Englandi á síðasta ári. Sowan
sagði bresku lögreglunni að hann
hefði njósnað bæði fyrir ísraela og
PLO.
Það vakti reiði breskra stjómvalda
að Mossad skyldi ekki gefa breskum
yfírvöldum skýrslu um starfsemi
Sowans og bijóta þar með samkomu-
lag milli ríkisstjórna landanna.
Tyrkland:
Skotíð á Ozal forsætisráðherra
Ankara, Reuter.
VOPNAÐUR maður hóf skothríð
á Turgut Ozal, forsætisráðherra
Tyrklands, þegar hann hélt ræðu
á flokksþingi í íþróttahöll í Ank-
ara í gær. Kúla lenti í hönd forsæt-
isráðherrans og litlu munaði að
hann fengi aðra í höfuðið.
Árásarmaðurinn skaut af tíu
metra færi að ræðupallinum. Að
minnsta kosti ellefu manns særðust
í árásinni. Öryggisverðir náðu tilræð-
ismanninum, sem særðist á hönd.
„Árásarmaðurinn skaut tveimur
skotum að forsætisráðherranum,"
sagði Erkal Zenger, blaðafulltrúi
Ozals, við fréttamenn. „Forsætisráð-
herrann særðist á þumli og ein kúlan
fór rétt yfir ræðupallinn."
Mikil hræðsla greip um sig meðal
þeirra 5.000 stuðningsmanna Ozals
sem voru á flokksþinginu. Ozal hélt
ræðu sinni áfram fímmtán mínútum
síðar við mikil fagnaðarlæti við-
staddra.
Færeyjar:
Bandaríkjaforseti: