Morgunblaðið - 19.06.1988, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 19.06.1988, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 1988 59 KORFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN Reuter Adrian Dantley og Vlnnle Johnson sjást hér fagna þriðja sigri Detroit Pistons yfir Los Angeles Lakers. Lakers í erfiðri stöðu - eftir tap í fimmta leiknum við Detroit DETROIT Pistons sigraði Los Angeles Lakers 104:94 í fimmta leik liðanna í Detroit að viðstöddum 44.732 áhorf- endum, sem er nýtt aðsóknar- met í úrslitakeppni í NBA-deild- inni. Eftir þennan þriðja sigur sinn þarf Detroit aðeins að vinna einn leik í viðbót til að ná titlinum en meistararnir þurfa að vinna tvo síðustu leik- ina til að halda titlinum. Það Nð, sem nær að vinna fjóra leiki, verður meistari. Lakers byrjaði af miklum krafti og komst í 12:0. Detroit minnk- aði forskotið fljótlega og var mun- urinn þrjú stig, 30:27 fyrir Lakers eftir fyrsta leikhluta af fjórum. Strax í upphafi annars leikhluta lenti lið Lakers í villuvandræðum. Þetta notfærði Detroit sér og náði yfirhöndinni með mjög góðum leik. Liðið hafði 13 stiga forystu á tíma- bili og var yfir 59:50 í hálfleik. í byrjun seinni hálfleiks komst lið Lakers meira inn í leikinn en Detro- it hafði þó 6 stiga forystu 81:75 eftir þijá leikhluta. í Qórða leik- hluta náði Detroit brátt 10 stiga SJÖTTA umferð íslandsmóts- ins í knattspyrnu fer f ram um helgina. Einn leikur veröur í kvöld og fjórir á morgun og hefjast allir klukkan 20. Reykjavíkurfélögin Víkingur og Valur leika á nýja Víkingsvell- inum í kvöld. Valsmenn virðast vera að rétta úr kútnum eftir slaka byij- un og verða að sigra til að halda í við efstu liðin, en sigur er ekki síður mikilvægur fyrir nýliðana, sem eru nálægt fallsæti. Atli Eðvaldsson leikur sinn fyrsta leik með Val í átta ár. Keflvíkingar fá Skagamenn í heim- sókn annað kvöld. Skagamenn eru í öðru sæti, en Keflvíkingar um miðja deild. Tvö neðstu iiðin, Völsungur og Þór, Reuter Kareem Abdul-Jabbar átti mjög góðan leik með Lakers. forskoti og átti ekki í miklum erfið- leikum með að halda því til leiks- loka. Lokatölumar urðu 104:94. Þetta var sanngjam sigur, því að leika á Húsavík. Völsungur er án stiga, en Þór hefur þrisvar gert jafntefli. KR-ingar taka á móti Leifturs- mönnum. KR er þremur stigum á eftir FVam í þriðja sæti, en Leiftur, sem leikur sinn fyrsta leik gegn Vesturbæingunum, er í fjórða neðsta sæti. A Akureyrarvelli mætast KA og Fram. Bæði liðin eru í topp bar- áttunni, Framarar taplausir, en KA hefur aðeins tapað fýrir KR. 2.deild í dag verða fímm leikir í 2. deild. Klukkan 14 leika ÍBV og ÍR í Eyj- um, Þróttur og FH í Laugardal og Fylkir og Tindastóll á Fylkisvelli. Klukkan 20 leika KS og Selfoss á Siglufirði og Víðir og UBK í Garðin- um. lið Detroit var einfaldlega betra í þessum leik. Uðin Hjá Detroit átti Adrian Dantley enn einn stjömuleikinn og skoraði 25 stig, þar af 19 í seinni hálfleik. Joe Dumars átti sinn bezta leik í þess- ari úrslitakeppni og skoraði 19 stig. Þá hitti Vinnie „örbylgjuofn" Jo- hnson vel eða úr 8 af 10 skotum og skoraði 16 stig. Að vanda var Isiah Thomas traustur, stjómaði leik liðsins vel og skoraði 15 stig. í liði Lakers var það hinn 41 árs gamli Abdul-Jabbar, sem var bezt- ur. Hann skoraði 26 stig en Magic Johnson 15 stig. Þeir vom einu leik- menn Lakers, sem eitthvað kvað að í þessum leik en aðrir vom frem- ur daufir. Detroit hefur nú unnið þijá leiki en Lakers tvo. Liðin flytja sig nú til Los Angeles þar sem tveir síðustu leikimir fara fram. Detroit þarf aðeins að vinna einn leik til að ná titlinum en það verður ekki auðvelt á heimavelli Lakers. Lið Lakers verður hins vegar undir mikilli pressu. Það þarf að eiga tvo góða leiki, ef það ætlar að halda titlinum. HANDBOLTI Tveir sigrar í Portugal ÍSLENSKA kvennalandsliðið í handknattleik hefur byrjað vel á móti í Portúgal. Liðið hefur leikið tvo leiki, gegn Portúgal og Spáni, og sigrað í þeim báðum, en liðið er nú i efsta sæti. m Island mætti Portúgal í fyrsta leiknum og sigraði 16:15. í leikhléi var staðan, 9:5, íslend- ingum í vil og sigurinn ömggari en töiumar gefa til kynna. Inga Lára Þórisdóttir, Guðríður Guðjónsdóttir, Katrín Friðriksen og Margrét Theodórsdóttir skor- uðu þijú mörk hver, Ema Lúðvíksdóttir setti tvö og þær Kristín Pétursdóttir og Guðrún Kristjánsdóttir eitt. íslensku stúlkumar unnu þær spænsku, 17:15 í mjög góðum leik. í leikhléi var staðan jöfn 7:7. Spánska liðið var talið það besta á þessu móti og sigur Islands kom því á óvart Inga Lára Þór- isdóttir var markahæst í íslenska liðinu með 6 mörk, en aðrar sem skomðu, vom: Guðríðir Guðjónsdóttir 2, Katrín Friðriksen 2, Guðný Gunnsteins- dóttir 2, Margrét Theódódórs- dóttir 2/1, Ema Lúðvíksdóttir 1/1, Ama Steinsen 1 og Guðný Guðjónsdóttir 1. GOLF Ver Simpson titilinn? Scott Simpson var með eins höggs forystu á opna banda- riska meistaramótinu í golfi að 36 holum loknum. Simpson fór annan daginn á fimm undir pari og eftir 36 holur var hann á 135 höggum, en Larry Mize var í öðm sæti á 136 höggum. „Ég taldi möguleika á að veija titil- inn og nú er staðan góð,“ sagði Simpson, en sami kylfingur hefur ekki sigrað í keppninni tvö ár í röð síðan Ben Hogan tókst það fyrir 37 ámm. Mm FOLK B BÚIÐ er að draga í v-þýsku úrvalsdeildinni _ í knattspymu. Stuttgart, lið Asgeirs Sigurvins- sonar, mætir Dortmund á útivelli í fyrstu umferð, en tekur á móti Hannover í 2. umferð. I 4. umferð er svo stórleikur í Stuttgart, en þá mætast nágrannamir VfB Stuttgart og Stuttgarter Kickers. Meistarar, Werder Bremen, mæta ^ Hamburg í 1. umferð, en þessi lið mættust í næst síðustu umferðinni í vor. Þá sigraði Hamburg 4:1. ■ BA YER Uerdingen hefur keypt belgískan leikmanna frá Lo- keren. Hann heitir Nijkeus og á að fylla skarðið sem Dierhof skilur eftir sig, en hann er á leið til Hamb- urg SV. ■ HEINS Griindel, sem leikið hefur með Hamburg í v-þýsku úr- valsdeildinni, hefur nú skrifað undir tveggja ára samnigng við Frank- furt. Grttndel lék lengi með v- þýska landsliðinu. ■ ARIE Haan, þjálfari Stuttg- art, hefur átt í viðræðum við danska leikmanninn Per Frimann, sem leikur með Arnóri Guðjohnsen hjá Anderlecht. Arie Haan þjálfaði Anderlecht áður en hann fór til Stuttgart. ■ HANS Peter Briegel, sem leikið hefur með ítalska liðinu Sampdoria, segist vera búinn að fá nóg af Italíu. Hann vill fara heim til Þýskalands og ’oúist er við að hann skrifi undir samning við Kaiserslautern i sumar. ■ ORJAN Berg, leikmaður norska liðsins Rosenborg, frá Þrándheimi, hefur æft með Dort- mund síðustu vikur. Búist er við að hann skrifi undir samnig við lið- ið fljótlega. ■ TÓRÍNÓ og Bologna, sem leika í 1. deild ítölsku knattspym- unnar, hafa keypt fjóra brasilíska leikmenn. Tórínó keypti Mttller og Silas fyrir 4,2 milljónir dollara og Bologna keypti Guarandi Evair og Ricardo Roberto fyrir 1,5 millj- ónir dollara. I JOHN Brenner, bandaríski kúluvarparinn sem vann bronsverð- laun á heimsmeistarmótinu 1987, getur ekki tekið þátt í Ólympíu- leikunum i Seoul i S-Kóreu vegna hnémeiðsla. Brenner var helsta von Bandaríkjamanna í kúluvarpinu í Seoul. Hann á bandaríska metið, 22,52 metra sem hann setti 1987 og er talinn fjórði besti kúluvarpari heims. ■ NELSON Gutierrez, lands- liðsmaður Uruguay í knattspymu, leikur með Lazio í 2. deild ítölsku knattspymunnar næsta vetur. Gutierrez lék með River Plate í ALrgentínu síðasta keppnistímabil. River Plate, sem nýlega réð Cesar Luis Menotti sem þjálfara, hefur nýlega selt Pedro Troglio og Claudio Caniggia til Verona á ítaliu. ■ GREG Norman, kylfingur- inn snjalli frá Ástralíu, varð að hætta keppni í opna bandaríska meistaramótinu í golfí sem hófst á föstudag. Norman, sem var sex höggum á eftir Larry Mize sem var í efsta sæti eftir fyrsta dag keppninnar, meiddist á hendi eftir að hann hafði tekið víti á níundu holu á laugardaginn eftir slæmt teigskot. „Eg lét boltann falla á klöpp sem ég vissi ekki að væri þar. Ég notaði 6-jám en það gekk ekki,“ sagði Norman. Hann hætti því keppni og flaug heim til Ástr- alíu með hönd í fatla. ■ EVRÓPUMEISTARINN, Jordanka Donkovafrá Búlgaríu, náði bezta tíma ársins í 100 metra grindahlaupi kvenna þegar hún hljóp á tímanum 12,36 sekúndum á móti í Austurríki á miðvikudag- inn. Heimsmethafinn, Ginka Zag- ortscheva frá Búlgaríu, datt í hlaupinu og meiddist á hné. Heims- met hennar er 12,25 sekúndur. KNATTSPYRNA / 1.DEILD Fyrsti leikur Atla í áttaármeðVal KNATTSPYRNA / AGOÐALEIKUR ■ ■■ _ — ■ MorgunblaðúVSverrir >fHeimavarnarliðiðM sigraði Amór Guðjohnsen skorar hér eitt af þremur mörkum „heimavamarliðsins" gegn vestur-þýska úrvalsliðinu á Laugardalsvelli 17. júní i ágóðaleik til styrkt- ar Vemd - vegna uppbyggingar á iþróttaaðstöðu við Litla Hraun. Leiknum lauk með sigri „heimavamarliðins" 3:2. Veðrið setti strik í reikninginn og mættu aðeins 400 áhorfendur á leikinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.