Morgunblaðið - 19.06.1988, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 19.06.1988, Blaðsíða 41
j • i [/'Öi.i ,J£ 3UBAu>0i4tKÍ!í MORGUNBLAÐIÐ, SUNNÚDÁGUR'l9.~JUNl'Y98¥ ’ 41 Svava Ingvars- dóttir - Minning Fædd 5. ágúst 1911 Dáin 9. júni 1988 Þær verða ekki fleiri ferðirnar á aðfangadag í Bólstaðarhlíðina, þar sem angandi ijúpulykt fyllir forstof- una. Ekkert broshýrt andlit eða koss á kinnina, þegar komið er í heimsókn. Engar gjafir þegar farið er. Hún amma Svava er farin í sitt síðasta ferðalag. Hún hét fullu nafni Inga Svava Ingvarsdóttir og var fædd í Reykjavík 5. ágúst 1911. Foreldrar hennar voru Ingvar Bjarnason, ætt- aður úr Biskupstungum og Stein- unn Gísladóttir, ættuð frá Reykja- koti í Ölfusi. Svava átti eina eldri systur, Huldu, sem lést árið 1972. Ung að aldri fluttist Svava ásamt fjölskyldu sinni til Hafnarfjarðar. Síðar leit hún jafnan á Hafnarfjörð sem sína heimabyggð, þótt lengst af ævinnar byggi hún í Reykjavík. Hún vann verslunarstörf hjá Jacobsen allt fram til ársins 1944, en 22. apríl það ár stofnaði hún, ásamt Huldu systur sinni og tveim- ur öðrum, vefnaðarvöruverslunina Gimli við Laugaveg 1. Síðar keyptu systumar verslunina alfarið og ráku í 26 ár samfleytt. Þær systur voru einstaklega samrýndar og dugmikl- ar athafnakonur. Verslunin dafnaði undir þeirra stjórn og reksturinn gekk mjög vel. Allt var greitt út í hönd og aldrei tekið lán. En þær vom ekki eingöngu saman í við- skiptalífinu, heldur vom þær óað- skiljanlegar vinkonur í sínu einka- lífi. Þær keyptu saman húseignina í Bólstaðarhlíð 11, þar sem þær bjuggu saman í mörg ár og síðar hvor á sinni hæðinni eftir að Svava giftist. Einnig áttu þær sumarbú- stað við Lögberg, þar sem þær ræktuðu sína litlu paradís. Litli- Dalur var þeirra líf og yndi, enda var þar einstaklegg. fallegt og skjólgott. Þegar Hulda dó missti Svava ekki aðeins sína einu systur, heldur og sína bestu vinkonu. Svava hafði mikið yndi af ferða- lögum erlendis. Það var unun að skoða myndaalbúmin hennar og heyra hana ri§a upp minningar úr ferðum sínum víða um heim. Hún mundi staði og atvik svo greinilega að undmm sætti. Það var því vel við hæfí að hún kynntist eigin- manni sínum, Kristni Ólasyni, fyrr- verandi bmnaverði, á einu slíku ferðalagi. Þau vom þá á skemmti- siglingu með Gullfossi gamla og í minningu hennar var sú ferð alltaf hjúpuð sérstökum töfraljóma. Krist- inn og Svava giftu sig árið 1963 og hófu búskap í Bólstaðarhlíð 11, þar sem þau bjuggu allt til síðasta árs, er þau fluttu að Dalbraut 20. Það var erfið ákvörðun að flytja úr Bólstaðarhlíðinni, þar sem þau höfðu komið sér upp einstaklega fallegu og vistlegu heimili. En þar sem Svava var orðin heilsuveil varð slíkt ekki umflúið. Síðustu mánuð- ina dvaldi Svava á öldmnardeild Landspítalans, þar sem hún lést að morgni 9. júní sl. Þau Kristinn áttu saman langt og farsælt hjónaband. Arin saman urðu tæp 25. Þau vom jafnan mjög samhent á heimilinu og saman deildu þau ferðaáhuganum, enda ferðuðust þau víða meðan heilsan leyfði. Böm Kristins úr fyrri hjóna- böndum em Hrafnhildur, Kristinn Óli og Einar Ágúst. Þótt Svava ætti ekki börn sjálf og börn Kristins orðin hálffullorðin, þegar þau giftu sig, eignaðist hún barnabörn og barnabarnabörn. Hún amma Svava átti stóran bamahóp þegar hún lést. Kristni, tengdaföður mínum, vottum við Einar og Ingvar okkar Fróóleikur og skemmtun fyrirháa semlága! innilegustu samúð. Hrafnhildi þökkum við sérstaklega umhyggju hennar og hjálpsemi síðustu mánuð- ina. Blessuð sé minning Svövu Ingv- arsdóttur. Rebekka Ingvarsdóttir '"VJ-’t MEfíKI UM GÓÐAN UTBUNAÐ NÍÐSTERK ÞUNGAVIGTARLÍNA Fœst í nœstu sportvöruverslun. NEXUS ELDHÚS Ávallt fyrirliggjandi Kr. 123.605.- Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7, 103 Reykjavík. Sími 686650
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.