Morgunblaðið - 19.06.1988, Síða 25

Morgunblaðið - 19.06.1988, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 1988 25 Morgunblaðið/Einar Falur Hollenska myndlistarkonan Saskia de Vriendt fyrir framan eitt verka sinna Saskia de 4? Góðan daginn! FÁST í NÆSTU VERSLUN POTTÞÉTTAR Vriendt sýn- ir í Svörtu á hvítu SÝNING á verkum hollensku listakonunnar Saskiu de Vriendt var opnuð í gallerí Svart á hvítu, Laufásvegi 17 í gær. Þetta er í annað sinn sem verk hennar eru sýnd hér á landi, en hún tók þátt í samsýningu í Nýlistasafninu árið 1986. Saskia stundaði nám við Ríkis- akademíuna í Amsterdam frá 1983 til 1986 og býr og starfar í Amst- erdam. Hún hefur sýnt verk sín í Hollandi, Danmörku og Finnlandi. Efniviðinn í myndir sýnar sækir hún í landslag og náttúrufyrirbæri og síðan hún fór sína fyrstu ferð um ísland árið 1983 hafa myndir hennar að mestu snúist um form og fyrirbæri íslenskrar náttúru. Hér er þó ekki um eiginlegar landslags- myndir að ræða heldur er landslag- ið notað á frjálslegan hátt til að draga fram stemmningar og tilfinn- ingar. Sýningin samanstendur af mál- verkum og grafík og stendur til 3. júlí. Gallerí Svart á hvítu er opið frá kl. 14 til 18 alla daga nema mánudaga. (Fréttatilkynning) Prestafélag íslands 70 ára PRESTAFÉLAG íslands verður 70 ára á þessu ári en félagið var stofnað 1918. Afmælisins verður fyrst og fremst minnst með því að mánudaginn 20. júní funda félagsmenn í Fella- og Hólakirkju um starfskjör presta. Hefst sá fundur kl. 9.00 árdegis og stendur fram eftir degi. í október 1986 var gefin út álitsgerð nefndar sem kirkjumála- ráðherra skipaði til að fjalla um starfskjör presta. í vetur hafa átta starfshópar víðs vegar um landið unnið að því að móta stefnu í kjaramálum á grundvelli þessarar skýrslu. Munu fulltrúar þessara hópa flytja framsöguerindi á fund- inum og síðan verða almennar umræður og afstaða tekin til þess hvernig starfínu skuli haldið áfram.l Þennan sama dag verður svo hátíðarsamkoma í Neskirkju kl. 18.00. Þar munu gestir frá presta- félögum Norðurlanda flytja kveðj- ur og útnefndir verða heiðursfé- lagar. Seinna um kvöldið verður sameiginlegur kvöldverður félags- manna. Þriðjudaginn 21. júní verður svo aðalfundur Prestafélags íslands haldinn í Fella- og Hólakirkju og hefst hann kl. 13.00. Á GOODYEAR KEMST ÉG HEIM Á Grand Prix S nýturöu akstursins til fulls. Jafnvel á miklum hraöa heldur Grand Prix S sólinn föstu sambandi viðveginn. Ég kemst heim á Goodyear. GOOD'fYEAR Enn er drjúgur spölur eftir. Bíllinn rennur Ijúflega. Sáralítil umferð. Bráöum veröur þú heima. Grand Prix S. Þú skynjar þau. Hljóðlát. Örugg snerting við veginn. Notalegt. Dekkin grípa vel í beygjunum. Og þú ferð framúr. Traustur og vandaður bíll á Grand Prix S. Hvernig sem ekið er. Smáspölur eftir. Hættu ekki á neitt. Þér miðar vel áfram.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.