Morgunblaðið - 19.06.1988, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 1988
Rætt við Sigríði Ingvarsdóttur
formann barnaverndarráðs
Þegar í harðbakkann sló hjá fólki
í uppeldismálunum var í gamla daga viðkvæðið: „Það
væri réttast að senda barnaverndamefnd á þig.“
Og þá varð sá brotlegi lafhræddur og bætti iðulega ráð
sitt. Svo magnað var orðspor barnaverndarnefnda
á þeim tíma. Síðan komu félagsfræðingar,
sálfræðingar og félagsráðgjafar til sögunnar og þá fengu
nefndirnar að ýmsu leyti fræðilegra yfírbragð.
Enn í dag eimir þó eftir af hinu forna grýluhlutverki
barnavemdaryfírvalda. En er það aðalhlutverk þeirra að
ráðast inn á heimili fólks og taka af því börn þess
ef það hagar sér ekki eins og vera ber?
HrnÖgm
Sigríöur Ingvarsdóttirformaður barnaverndarráös.
bammmdammdir?
Sigríður Ingvars-
dóttir héraðs dóm-
ari í Kópavogi er
formaður bama-
vemdarráðs, sem
hefur yfirnumsjón
með starfi barna-
verndarnefnda í
landinu. Um hlutverk bamavemd-
arnefnda hefir hún þetta að segja:
„Hlutverk bamavemdarnefnda er
m.a. að fylgjast með aðbúnaði
bama. Ef bamavemdamefnd fær
upplýsingar um að einhveiju sé
ábótavant varðandi umhirðu bams
þá ber henni að kanna það mál.
Athuga hvort tilefni sé til afskipta
bamaverndamefndar og þá hvernig
þeim afskiptum skuli háttað. Stund-
um nægir að leiðbeina foreldrum
með eitthvað sem hefur farið úr-
skeiðis en stundum er miklu meiri
aðgerða þörf. í sumum tilvikum er
skipaður tilsjónarmaður með heim-
ilinu og á hann þá gjarnan að leið-
beina fólki um heimilishald og
bamauppeldi. Ef þetta dugir ekki
þarf stundum að grípa til alvarlegri
aðgerða, svo sem að taka bam af
heimili eða svipta foreldra forsjá.
En fyrst og fremst eiga nefndimar
að styðja fólk til þess að geta haft
bömin sjálft, það er gengið út frá
því að bömum sé hollast að alast
upp hjá sínum foreldrum ef þess
er nokkur kostur.
En eru allar barnaverndar-
nefndir í landinu jafn vel starf-
hæfar?
Það er gert ráð fyrir að starf-
andi séu barnavemdarnefndir i
hverjum hreppi og í hvetjum kaup-
stað. Aðstæður á þessum stöðum
geta verið mjög ólíkar. A stærri
stöðunum eru miklu meiri mögu-
ieikar á að fá sérfræðinga til að
vinna fyrir nefndirnar. Eins eru þar
miklu meiri möguleikar á sérfræði-
legri aðstoð af ýmsu tagi. Á minni
stöðunum em möguleikar á slíku
miklu minni. Sérfræðileg aðstoð er
hins vegar mjög nauðsynleg í mörg-
um málum sem barnaverndarnefnd-
ir hafa til umíjöllunar. Þetta eru
oft mjög erfíð og flókin mál að
greiða úr.
Er fólk viyugt að segja til ef
það verður vart við illan aðbúnað
barna?
Það er mjög misjafnt. Fólk getur
lent í þeirri aðstöðu að eiga mjög
erfitt með að gera upp við sig hvort
það er til hins betra eða verra að
láta bamaverndamefnd vita um
erfiðar aðstæður bams. Samkvæmt
lögum um vemd barna og ung-
menna er lögð sérstök skylda á þá
sem hafa með börn að gera í þess-
um efnum. Þessi skylda hvílir m.a.
á kennurum, prestum, læknum,
hjúkmnarkonum, lögreglumönnum,
félagsráðgjöfum og sálfræðingum.
Að auki er öllum mönnum skylt að
tilkynna til yfirvalda ef þeir vita til
að bam er í sérstakri hættu eða
aðbúnaði barns er mjög ábótavant.
En auðvitað getur verið erfítt fyrir
fólk að meta slíkt.
Geta menn tiikynnt um slíkt
án þess að forráðamenn barnsins
fái að vita hver tilkynnir?
Þeir sem starfa við þessi mál em
bundnir þagnarskyldu því þessi mál
snerta mikið einkahagi fólks. Það
þarf að sýna fram á mjög ríka hags-
muni ef farið er fram á aðgang að
upplýsingum sem eiga að fara leynt.
Yfirleitt er engin ástæða til að gera
uppskátt hver hefur tilkynnt. Hins
vegar verða þeir sem vinna að þess-
um málum að gæta þess mjög vand-
lega að staðreyna upplýsingar og
taka ekki við hvaða uppiýsingum
sem er eins og þær væm algildar.
Það verður að afla ömggra heimilda
fyrir því að einhvetju sé raunvem-
lega mjög ábótavant í umönnun
bams.
Hvaða hæfileikum þarf fólk
að vera búið til þess að teljast
hæft til þess að sitja í barna-
verndarnefnd?
Nefndarmenn þurfa að vera
kunnir að grandvarleik og kunna
sem best skil á málum sem barna-
verndarnefndum er ætlað að fjalla
um. I kaupstöðum á að leitast við
að kjósa lögfræðing í barnaverndar-
nefnd. I Reykjavík eiga sjö menn
sæti í barnaverndarnefnd, í öðmm
kaupstöðum fímm menn, en utan
kaupstaða em þrír menn í barna-
verndarnefnd. Venjulega er farið
eftir því ákvæði í lögunum sem
kveður á um að velja skuli þá menn
í bamaverndamefndir sem þekk-
ingu hafa á bömum og bamaupp-
eldi. Það fólk sem þannig er valið
er þó ekki endilega með próf sem
lýtur að uppeldisfræðum. Það er
rétt að taka það fram að þessi störf
em mjög vandasöm og erfíð og oft
á tíðum er nefndarfólkið illa undir
það búið að takast á við vemlega
erfíð mál. Það geta alveg jafnt kom-
ið upp erfið mál á fámennum og
afskekktum stöðum eins og í þétt-
býlinu þar sem sérfræðingar em til
staðar. Gerist slíkt getur það verið
mjög vandasamt við að fást fyrir
fólk sem ekki hefur þá sérþekkingu
og reynslu sem kemur að gangi í
erfiðum málum. Úrvinnsla barna-
verndarmála er yfírleitt í mjög góðu
lagi hjá fjölmennum kaupstöðum.
Kostar starfsemi barnavernd-
aryfirvalda mikla peninga?
Það er á ábyrgð sveitarfélaganna
að sjá barnaverndarnefndum fyrir
nægjanlegu fjármagni til að kosta
starfsemi þeirra. Það er svolítið
mismunandi hve mikið fé sveitarfé-
lögin em tilbúin að reiða af hendi
í þessu skyni. Bamaverndarráð er
rekið á kostnað ríkissjóðs og fjár-
framlög til þess em ákvörðuð í fjár-
lögum.
Hver er munurinn á barna-
verndarráði og barnaverndar-
nefndum?
Barnavemdamefndirnar starfa á
vegum sveitarfélaganna eins og
fyrr sagði en valdsvið barnavemd-
arráðs nær til alls landsins. Það
hefur eftirlit með bamavemdar-
nefndunum og er það sem við köll-
um æðra stjórnvald. Ráðið hefur
leiðbeiningarskyldu og eftirlits-
skyldu hvað snertir nefndirnar.
Ákvörðunum barnaverndarnefnda
má skjóta til barnaverndarráðs til
endanlegrar úrlausnar.
Koma mörg mál til kasta
barnaverndarráðs?
Það em nokkuð mörg mál sem
þangað koma og þau ber að með
ólíkum hætti. Það er mjög mismun-
andi hvað þarf að leggja mikla
vinnu í hvert og eitt mál. Yfírleitt
em það lang erfíðustu málin sem
barnaverndarráð ijallar um.
Hvernig mál koma helst fyrir
barnaverndarráð?
Lang flest málin em varðandi
töku barna af heimilum eða svipt-
ingu forsjár og svo umsagnir í for-
sjárdeilumálum. Svo koma alls kon-
ar önnur erindi frá stjómvöldum,
umsagnir um lagafmmvörp sem
varða börn o.þ.h.
Er fólki yfirleitt mjög illa við
afskipti barnaverndarnefnda af
málum sinum?
Já, þó það sé kannski full mikil
alhæfíng að segja að það sé yfir-
leitt þannig. Þetta era óneitanlega
afskipti af málum sem varða ein-
kalíf manna. Auðvitað vill enginn
að höfð séu afskipti af því sem
mönnum er friðheilagast. En það
er hins vegar af sérstökum ástæð-
um sem þessi afskipti koma til. Það
má segja að þama stangist á réttur
fólks til að fá að ala böm sín upp
eftir eigin höfði og svo réttur barn-
anna til að búa við viðunandi að-
stæður. Þegar foreldrarnir geta
ekki séð til þess að börn þeirra búi
við viðunandi aðstæður þá grípa
yfirvöld í taumana.
Kemur oft til þess að taka
þarf börn af heimilum sínum?
Það kemur stundum fyrir og í
hvert skipti sem það er gert er það
mjög hastarleg aðgerð. En það er
aldrei gert nema um sé að ræða
brýna nauðsyn og er það í samræmi
við það sem lögin kveða á um. Þeg-
ar bam er tekið af heimili sínu er
því yfirleitt komið í fóstur og það
er mjög áríðandi að vel sé að slíku
staðið, bæði að velja fósturforeldra
og búa þá undir að taka barnið.
Oft er framkvæmdin sú að böm em
fyrst sett í fóstur í þijá mánuði til
reynslu en síðan er þeim komið í
endanlegt fóstur, yfírleitt til 16 ára
aldurs, hafí reynslan sýnt að það
sé baminu fyrir bestu að vera áfram
á fósturheimilinu. Það er talið mjög
mikilvægt fyrir börn að hafa vissan
stöðugleika og það er óheppilegt
fyrir böm að þvælast mikið á milli
heimila. Böm eiga rétt á að vera
um kyrrt á því heimili sem þau eiga
þó það sé ekki endilega hjá kynfor-
eldmm þeirra.
Kemur fyrir að starfsmönnum
barnaverndamefnda stafi hætta
af reiðu fólki sem hefur verið
svipt forræði barna sinna?
Það er oft erfitt að útskýra fyrir
fólki hvað svona aðgerðir þýða. Það
skiptir miklu máli fyrir starfsfólk
að gera það með þeim hætti að
fólkinu sé hjálpað til að skilja hvers
vegna þessum hastarlegu aðgerðum
er beitt og fá það til að sætta sig
við þær. Fólk á svo möguleika á
að skjóta málum sínum til bama-
verndarráðs ef það unir ekki úr-
skurði barnaverndarnefndar.
Hvernig gengur að fá stálpuð-
um börnum fósturheimili?
Eftir því sem ég best veit þá
gengur það nokkuð vel. Það virðist
alltaf vera til fólk sem er tilbúið
að opna sín heimili fyrir þeim börn-
um sem þurfa á því að halda. Hins
vegar vantar tilfinnanlega rann-
sóknir á því hvernig þau úrræði
gefast sem beitt er þegar börn em
tekin af heimilum sínum og þeim
komið í fóstur.
Er það hlutverk barnavernd-
aryfirvalda að annast fræðslu
um uppeldismál?
Nei ekki beinlínis, en hins vegar
eiga barnavemdarnefndirnar að
hafa nána samvinnu við aðra sem
fjalla um börn og bamauppeldi, svo
sem kennara og fóstmr og fólk í
heilsugæslustörfum. Barnaverndar-
nefndir og barnaverndarráð geta
sett fram tillögur til stjómvalda um
úrbætur varðandi böm og uppeldi
þeirra og eiga að gera það sam-
kvæmt lögum. Aðal fræðslan um
barnaverndarmál er sú fræðsla sem
barnaverndarráð veitir barnavernd-
arnefndunum. Það hefur verið gert
með því að halda námskeið og gefa
út leiðbeiningabæklinga. Þá má
einnig nefna að nú í sumar verður
haldið norrænt bamaverndarþing
hér á landi og þar er á boðstólum
margvíslegur fróðleikur um þessi
mál. Þetta þing sækja Norður-
landabúar og þar á meðal milli eitt
og tvö hundmð Islendingar.
Hvað telur þú að megi bæta í
starfsemi barnaverndaryfir-
valda?
Þetta má skoða í Ijósi þess að
þróun er mjög ör í barnavernd. Það
sem er gott og gilt í dag er kannski
ekki nægilega góð bamavemd á
morgun. Það þarf stöðugt að fara
fram endurskoðun á því hvernig að
þessum málum er staðið. Ég held
að það sem gæti talist brýnast í
dag sé að það komi til meiri sér-
þekking. Þetta em vandasöm mál
eins og fyrr sagði og bæði erfitt
mat á þeim rannsóknum sem þarf
að gera og mat á því hvaða úrlausn-
ir em bestar í hveiju og einu til-
viki. Eins þyrfti almenningsálitið
að breytast. Menn þyrftu að vita
meira um störf barnaverndarnefnd-
anna því þær geta ekki einar sér
og einangrað unnið í þessum mál-
um. Stuðningur almennings þarf
að koma til og tilkynningaskylda
almennings við nefndirnar er mjög
mikilvæg. Það er nauðsynlegt að
fólk viti hvað felst í þessari skyldu
og hvernig á að bera sig að telji
það nauðsynlegt að hafa samband
við barnaverndarnefnd. Viti menn
af tilvikum þar sem afskipti barna-
verndarnefndar ættu að koma til
þá ættu þeir að snúa sér til félags-
málastofnunar eða barnaverndar-
nefndar í því umdæmi sem viðkom-
andi barn á heima.
Textl: Guðrún Guðlaugsdóttir
Ljósmynd/Morgunblaðið