Morgunblaðið - 19.06.1988, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 19.06.1988, Qupperneq 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 1988 Litið inn á Rannsóknadeild Borgarspítalans -4 ! Rannsóknadeild Borgarspítal ans tók fyrir nokkru í gagnið nýtt tæki til hjartarannsókna sem gefur möguleika á betri og hraðari greiningu ákveðinna hjartasjúkdóma. í tilefni af því átti Morgunblaðið viðtal við nokkra starfsmenn deildarinnar. Verður hér greint frá starfsemi hennar, hinu nýja tæki og öðru sem þar fer fram. Yfirlæknir deildarinnar er dr. med. Eggert Ó. Jóhannsson sem starfað hefur við deildina frá upphafi. Hann lýsir í nokkrum orðum helstu þáttum starfseminnar en nfjar fyrst upp nokkur atriði úr sögu hennar: — Rannsóknadeild Borgarspítalans tók til starfa á haustmánuðum 1962 í húsnæði Heilsuvemdarstöðvar Reykjavíkurborgar. Þar var þá fyrir lyflækningadeild undir stjóm dr. med. Óskars Þ. Þórðarsonar. Deildimar vom báóar fluttar í núverandi húsnæði hér í Borgarspítalanum í árslok 1967. — Við deildina starfa fimm læknar í fullu starfi eða hlutastörfum. Stefán Jónsson og Gizur Gottskálksson sinna klínískri lífeðlisfræði, Guðmundur I. Eyjólfsson sér um blóðmeinafræði, Haraldur Briem og Sigurður Guðmundsson sjá um sýklarannsóknir og sjálfur er ég sérfræðingur í lækningarannsóknum og sé nú mest um meinefnafræði og sinni stjómunarstörfum. Þá er lyfjafræðingur starfandi við deildina, Leifur Franzson, og hefir hann umsjón með hormóna- og lyfjamælingum. f um það bil eitt ár hefir aðstoðarlæknir líka starfað á deildinni. Mannekla — Dagleg rannsóknastörf vinna meinatæknar undir stjóm yfir- meinatæknis og deildarmeina- tækna. Meinatæknamir bera hita og þunga starfseminnar og er oft mikið á þá lagt vegna manneklu en á síðastliðnu einu og hálfu ári hefir vantað mikið á að stöður séu fullskipaðar. Á síðasta sumri urðum við af þessum sökum að loka tíma- bundið þeirri starfsemi er sinnir rannsóknum vegna blóðgjafa eða frá júní til ársloka og sýklarann- sóknum í þijá mánuði. Aðeins dugn- aður og ósérhlífni meinatæknanna fleytti okkur yfir þessi vandræði. Ástandið er nú ívið betra, en við erum kvíðin því sagan gæti endur- tekið sig þar sem aðsókn að náms- braut í meinatækni við Tækniskóla íslands, sem áður var mikil, hefir á síðustu árum hraðminnkað. Mikið hefír þó verið gert til þess að auka og bæta námið enda útskrifast meinatæknar nú með BS-gráðu. Auk áðumefndra starfa tveir rit- arar á deildinni, þrjár stúlkur í af- greiðslu og aðrar þijár annast ýmis aðstoðarstörf. Deildin annast nánast allar rann- sóknir fyrir aðrar deildir spítalans og má segja að svo til allir sjúkling- ar sem inn á Borgarspítalann koma þurfi einhveija rannsókn hjá okkur. Niðurstöður rannsókna og mælinga sem hér eru gerðar að beiðni lækna leggja síðan grundvöll að sjúkdóms- greiningu og viðeigandi meðferð. Auk þessa er mikið um ýmiss konar rannsóknir á utanspítalasjúklingum er koma hingað einkum á morgnana til próftöku og fylgir því umfangs- mikil starfsemi. Heildarfjöldi rannsókna á síðasta ári var kringum 375 þúsund þar af um 20% hjá sjúklingum utan spítalans. Megnið af rannsóknum og mælingum fer fram á venjuleg- um dagvinnutíma. Nú er stundum sagt að margs konar lítt nauðsynlegar rannsóknir séu framkvæmdar á sjúklingum með tilheyrandi kostnaði — kemur slíkt fyrir á þessari deild? Nauðsynlegar rannsóknir — Auðvitað er ekki hægt að úti- loka slíkt en ég held þó að reyndir læknar biðji almennt ekki um annað en nauðsynlegar rannsóknir. Lækn- ar held ég að viti að margar rann- sóknir eru dýrar og þeir gera sér það ekki að leik að safna alls konar ónauðsynlegum upplýsingum. Er deildin vel á vegi stödd hvað varðar aðbúnað og tæki? — Við erum nokkuð vel stödd hvað varðar tæki þó að alltaf sé þörf nýkaupa og endumýjunar eldri tækja. Tækjabúnaður til hjarta- rannsókna er hér mjög fullkominn eins og Gizur mun lýsa hér á eftir. Tæki til blóðmeinafræðirannsókna var síðast endumýjað fyrir 5 árum og er það mjög fullkomið en dýrara í rekstri en nýrri tæki. Það hefir sparað okkur og losað vinnukraft meinatækna til annarra starfa. Sjálfvirk tæki fyrir meinefnafræði eru orðin mjög hlaðin verkefnum og ráða ekki við mikið meira en þeim er ætlað núna. Úr þessu þarf fljótlega að bæta, þannig að fleiri tegundir rannsókna verði um leið gerðar sjálfvirkt. Við fáum á þessu ári lítið fé til tækjakaupa, því önnur ekki síður nauðsynleg starfsemi þarf líka sitt, til dæmis röntgendeild sem þarf að endumýja sumt af dýmm tækja- búnaði sínum. Þú spyrð um að- búnað, ef þú ert að spyija um að- búnað starfsfólks þá er hann orðinn slæmur. Samfara auknum umsvif- um í rannsóknastarfsemi hefir ávallt verið þrengt að aðbúnaði ■ Eggert Ó. Jóhannsson yfirlæknir rannsóknadeildar Borgarspítal- ans. ■ Gizur Gottskálksson er hér við hið nýja ómskoðunartæki sem getur meðal annars mælt blóðflæði i hjartanu og sýnt það í lit á skerminum. ■ Guðmundur I. Eyjólfsson við smásjána. starfsfólks uns hann er nú orðinn illviðunandi. Við erum þá komin að sameiginlegum vanda þjónustu- deilda spítalans, þær búa núorðið allar við meiri eða minni húsnæðis- þrengsli og sumar meiri en Rann- sóknadeild. Deildin er allvel tölvuvædd og vorum við snemma á ferðinni með það, byijuðum í júní 1968. Við höf- um þó dregist aftur úr og nú þarf átak til þess að ná því sem best gerist í notkun tölvu á deildinni. Hvað með aðstöðu til annarra rannsókna? — Við getum ekki bætt við okk- ur rannsóknum nema að fá fleiri starfsmenn. Við höfum óskað eftir heimild fyrir einni stöðu, til dæmis iyfjafræðings, í áhætturannsókna- stofunni. Rannsóknir á áhættusýn- um hafa aukist og vinnuálag er orðið mikið. Tækin sem notuð eru við þessar rannsóknir eru hins veg- ar langt frá því að vera fullnýtt. Með mannskap til viðbótar ykist afkastageta deildarinnar verulega á rannsóknum vegna alnæmis og lifr- arbólgu þannig að Borgarspítalinn gæti eins og áður einn annast þess- ar rannsóknir fyrir allt landið. Þetta hlýtur að vera ódýrasta og einfald- asta lausnin á þessu mikla máli. Haraldur Briem og Sigurður Guðmundsson sinna smitsjúkdóm- um og sýklafræði og starfa bæði á Rannsóknadeildinni og legudeild- um. Þeir greina frá helstu þáttum starfs þeirra: Áhættusýni — Við höfum umsjón með mót- efnamælingu áhættusýna vegna alnæmis- og lifrarbólguveiru en þetta er eini staðurinn á landinu þar sem mæling á þessum áhættu- sýnum hefur farið fram frá því í nóvember 1985. Mælingar á mót- efnum gegn alnæmisveiru hófust í Bandaríkjunum vorið 1985 svo við vorum nokkuð fljót að taka við okkur hérlendis. Fljótlega byijuðu síðan hjá Blóðbankanum mælingar á sýnum frá blóðgjöfum. Þessi starfsemi er orðin allum- fangsmikil hjá okkur og er fjöldi mælinga á mótefnum gegn alnæm- isveiru frá upphafi kominn á 10. þúsund. í ársbyijun 1987 jukust þessar mælingar mjög mikið en nú eru þær kringum 400 á mánuði. Hingað til hafa greinst 40 einstakl- ingar með smit af völdum veirunnar og þar af 5 með alnæmi. Fólk get- ur komið hingað og óskað eftir mælingu vegna alnæmisveirunnar og rætt við okkur um niðurstöðu prófsins. Það kemur því í hlut okk- ar Sigurðar að ræða við fólkið. Þeim sem smitaðir eru er síðan boðið eftirlit og meðferð sérfræð- inga í smitsjúkdómum og ónæmis- fræði ýmist hér á Borgarspítala eða Landspítala. Haraldur segir að milli 80 og 90% þessara mælinga séu frá fólki sem kemur í fyrsta sinn en alltaf er nokkuð um að fólk komi aftur í mælingu. Fyrst í stað kom aðallega fólk úr áhættuhópum, t.d. hommar, en Haraldur segir að þeim fari

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.