Morgunblaðið - 19.06.1988, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 1988
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Frá menntamálaráðuneytinu:
Lausar stöður við
framhaldsskóla
Umsóknarfrestur á áður auglýstum stunda-
kennarastöðum við Fjölbrautaskólann í
Breiðholti í rafeindatækni og handmenntum
(fatahönnuður eða handavinnukennari) fram-
lengist til 27. júní nk.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist skólameistara Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti.
REYKJMJIKURBORG
£au&vi Sfödun,
Kaffiumsjón
Laus er staða við kaffiumsjón í Ártúnsskóla,
80% starf.
Upplýsingar í síma 673500 og í heimasímum
hjá skólastjóra 53454 og yfirkennara 45861.
Smurt brauð
Smurbrauðsdömu vantar í hálft starf.
Vinnu tími frá kl. 6.00 f.h. Góð laun.
Upplýsingar í síma 71667.
Sveinn bakari.
Húsavík-
Sérkennarar
Menntamálaráðuneytið.
Laus staða
Styrkþegastaða við Stofnun Árna Magnús-
sonar á íslandi er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Umsóknir, ásamt rækilegum upplýsingum
um námsferil og störf, skulu sendar mennta-
málaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150
Reykjavík, fyrir 15. júlí nk.
Menntamálaráðuneytið,
14.júní 1988.
m/s Herjólfur
Undirstýrimaður
Undirstýrimaður óskast til afleysinga á m/s
Herjólf. Viðkomandi þarf að hafa atvinnuskír-
teini Bb-1 (certificate of competency Bb-1)
til skipstjórnar á farþegaskipum, varðskipum
og flutningaskipum.
Hér er aðeins um að ræða afleysingar í fjar-
veru undirstýrimanna.
Upplýsingar veitir Jón R. Eyjólfsson skip-
stjóri í síma 985-21040 og eftir kl. 17.00 í
síma 98-12117.
Herjólfurhf.,
Vestmannaeyjum.
Sölu- og markaðs-
mál - ábyrgðarstarf
Viðskiptamenntun/tæknimenntun/
framhaldsnám erlendis skilyrði
Leiðandi, sérhæft þjónustufyrirtæki í borg-
inni, í atvinnugrein sem er í örum vexti, stöð-
ugri þróun og mikilli samkeppni, vill ráða starfs-
mann til starfa að sölu- og markaðsmálum.
Starfið er laust strax en hægt er að bíða
til haustsins eftir réttum aðila.
Viðkomandi á möguleika á ábyrgðarmiklu
stjórnunarstarfi innan árs.
Skilyrði er viðskipta- eða tæknimenntun
ásamt framhaldsnámi erlendis, t.d. aðili sem
er að Ijúka námi. Viðkomandi þarf að hafa
brennandi áhuga á markaðsmálum og búa
yfir stjórnunarhæfileikum.
Allur vinnuaðbúnaður er eins og best verður
á kosið og góð laun eru í boði fýrir réttan
aðila.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrif-
stofu okkar í fullum trúnaði.
Frestur til að skila umsóknum er til 1. júlí nk.
OiðntTónsson
RÁÐGJÖF & RÁÐNI NGARÞJON USTA
TÚNGOTU 5. I0l REYKJAVÍK - PÓSTHÓLF 693 SÍMI 621322
Heildverslun
óskar að ráða starfskraft til þess að sjá um
allt sem viðkemur banka- og tollskjölum, inn-
heimtu, annarra snúninga og jafnframt al-
mennra skrifstofustarfa.
Viðkomandi þarf að hafa bílpróf, en fyrirtæk-
ið leggur til bílinn.
Umsóknir er tilgreini aldur og fyrri störf
sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 22. júní
merktar: „B - 8115“.
Myllan - kaffihúsið
íKringlunni
Óskum að ráða starfsfólk í framreiðslu strax.
Upplýsingar veitir yfirmaður á staðnum.
Kennarar
Almenna kennara vantar í Hjallaskóla í yngri
og eldri deildir, auk þess vantar kennara í
heimilisfræðum og tónmenntun.
Upplýsingar veitir skólastjóri í síma 42574
eða skólafulltrúi í síma.41988.
Skólafulltrúi.
Störf á viðhaldsverk-
stæði skipadeildar
Sambandsins
Skipadeild Sambandsins auglýsir eftir eftir-
farandi starfskröftum til starfa á viðhalds-
verkstæði á Holtabakka:
1. Rafvélavirkja/rafvirkja með reynsju í
almennum rafmagnsviðgerðum, til við-
halds á frystigámum, rafmagnslyfturum
og almennu.viðhaldi á húsum á svæðinu.
2. Starfskrafti til að annast almenna þjón-
ustu á lyfturum og öðrum tækjum félags-
ins, svo sem að smyrja o.fl.
Æskilegt að umsækjendur geti hafið störf
sem fyrst.
Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá starfs-
mannastjóra.
SAMBANDISL. SAMVINNUFEIAGA
STARFSMANNAHALD
Einn sérkennara vantar að barnaskóla
Húsavíkur næsta skólaár.
Nánari upplýsingar um starfið og þá fyrir-
greiðslu sem í boði er, veitir skólastjóri í
símum 96-41660 og 96-41974
Skólanefnd Húsavíkur.
Hrafnista
Hafnarfirði
Hjúkrunarfræðingar óskast í sumarafleysing-
ar og til frambúðar.
Starfsfólk vantar í aðhlynningu, ræstingu og
býtibúr.
Nánari upplýsingar gefur hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri, Ragnheiður, í síma 54288.
Vistheimilið Bjarg
á Seltjarnarnesi
vantar nokkra starfskrafta til heimilisstarfa.
Upplýsingar gefur hjúkrunarfræðingur í síma
612090 milli kl. 16.00 og 19.00 virka daga.
HLfÐABÆR
Markvisst starf
Deildarstjóri á dagdeild
Hlíðabær, þjónustudeild Múlabæjar er dag-
deild fyrir fólk með einkenni um heilabilun
(Alzheimer syndrom). Heimilið tók til starfa
í byrjun árs 1986. A heimilinu starfar nú
iðjuþjálfi, hjúkrunarfræðingur, sjúkraliðar
og annað starfsfólk með fjölbreytta reynslu
í heilbrigðisþjónustu. Forstöðumaður er
félagsráðgjafi. í störfum deildarinnar er
unnið markvisst að færnisþjájfun einstakl-
inganna, bæði á andlegu og líkamlegu sviði.
Við auglýsum nú stöðu deildarstjóra sem
annast gæti stjórnun heimilisins. Skilyrði er
að viðkomandi hafi hjúkrunarfræðimenntun
og/eða menntun og starfsreynslu á sviði
öldrunar- eða geðheilbrigðisfræða.
Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi að baki
reynslu í starfsmannastjórnun, skipulagi
verkefna og sé reiðubúin(n) að hrinda í fram-
kvæmd nýjum hugmyndum sem fallið gætu
að markmiðum heimilisins.
Um er að ræða fullt starf á dagvinnutímabili.
Umsóknum, sem tilgreini menntun og fyrri
störf, sendist forstöðumanni Múlabæjar sem
einnig gefur nánari upplýsingar, sími 687122,
alla virka daga. Umsóknarfrestur er til 30.06 ’88.