Morgunblaðið - 19.06.1988, Page 51
900 r
i qi
oa
51
TT/fftl
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 1988
DAGVIST BAHW.
EFRA-BREIÐHOLT
Hugheilar þakkir fceri ég öllum þeim fjölmörgu
sem sýndu mér vináttu og hlýhug meÖ heim-
sóknum, gjöfum og skeytum á afmœli minu
4.júní sl. oggerðu mérdaginn ógleymanlegan.
GuÖ blessi ykkur öll.
Magnús Ólafsson,
Belgsholti.
Dóra Mirjam Jónasdóttir og
Ernst Olsson kapteinar.
Yfirmenn
Hjálpræðis-
hersins kveðja
Kveðjusamkoma verður haldin
í Herkastalanum, Kirkjustræti
2, í dag, 19. júní, fyrir majórana
Dóru Miijam Jónasdóttur og
Ernst Olsson en þau láta af opin-
berum störfum um þessar mund-
ir fyrir aldurs sakir.
Síðastliðin þijú ár hefur majór
Emst gegnt embætti deildarstjóra
(yfirmanns) Hjálpræðishersins á
Isíandi og í Færeyjum ásamt konu
sinni, Dóru, sem á þessum tíma
hefur m.a. haft umsjón með útgáfu
Herópsins, svo eitthvað sé nefnt.
Hjálpræðisherinn á íslandi þakk-
ar þeim hjónunum fyrir störf þeirra
þessi þijú ár. Dóra og Emst flytja
'til Oslóar í Noregi en í byijun sept-
ember nk. taka kapteinamir Anne
Gurine og Daníel Óskarsson við
þessum störfum.
Á kveðjusamkomunni verður
einnig boðið upp á „Her-kaffi“ og
eru allir velkomnir. Áthugið breytt-
an samkomutíma kl. 17.00 vegna
sameiginlegrar hljómleikasamkomu
hljómsveitarinnar Anno-Domini um
kvöldið í íslensku ópemnni.
(Fréttatilkynning)
Morgunblaðið/Einar Falur
Hákon Jóhannesson og Mike
Wagner
Nýja postula-
kirkjan:
Prestur frá
Kanada staddur
hér á landi
Hingað er kominn Mike Wagner,
prestur Nýju postulakirkjunnar
í Kanada á vegum íslensku deild-
ar hennar. Wagner mun aðstoða
Hákon Jóhannesson, prest
íslenska safnaðarins við störf
hans.
í stuttu spjalli við Wagner og
Hákon kom fram að íslenska deild
Nýju postulakirkjunnar var stofnuð
1980 en söfnuðurinn væri mjög
fámennur enn sem komið er. Að
sögn Wagners eru um fimm milljón-
ir manna í postulakirkjunni um víða
veröld, en starf hennar er virkast
í Þýskalandi og Indlandi. Hákon
kvað Nýju postulakirkjuna byggja
á frumkirkjunni og kallast höfuð-
menn kirkjunnar postular. Hann
sagði presta kirkjunnar ekki þurfa
neina sérstaka prestsmenntun og
að þeir gegndu ýmsum störfum í
þjóðfélaginu. Að sögn Wagners
leggur Nýja postulakirkjan áherslu
á andlega umhyggju félaga sinna,
meðal annars með því að heim-
sækja reglulega aldraða og sjúka
félaga.
Guðsþjonustur postulakirkjunnar
eru haldnar í kirkju Nýju postula-
kirkjunnar á annarri hæð að Háa-
leitisbraut 58-60, fimmtudaga kl.
20.00 og sunnudaga kl. 11.00 og
eru þær öllum opnar.
Á dagvistarheimilinu Ösp er að fara í gang
starfsemi með almenna dagheimilisdeild fyrir
17 börn og deild fyrir 6 fötluð börn.
Til starfa á þessu heimili vantar okkur for-
stöðumann, fóstra með sérmenntun æskileg.
Ennfremur vantar fóstrur og þroskaþjálfa.
Starfíð býður upp á að móta nýja starfsemi
frá byrjun með markvissa blöndun í huga.
Upplýsingar veitir framkvœmdastjóri Dagvistar barna
Bergur Felixson eða yjirmaður sálfræði- og sérkennslu-
deildar Málfríður Lorange, í síma 27277.
DAGV18T BARNA.
BREIÐHOLT
Hálsakot — Hálsaseli
Skóladagh./leiksk. Hálsakot vantar fóstru á
skóladagheimilisdeild.
Einnig fóstru eða starfsmann á leikskóladeild
eftir hádegi.
Einnig vantar fóstru eða uppeldismenntaðan
starfsmann í stuðning.
Vantar matráðskonu í 5 klst. starf.
Upplýsingar gefa forstöðumenn
í síma 77275.
AUSTURBÆR
Múlaborg — Ármúla 8a
Dagheimilið Múlaborg óskar eftir yfírfóstru
og deildarfóstru frá 1. ágúst eða eftir sam-
komulagi.
Einnig vantar okkur starfsfólk til almennra
uppeldisstarfa frá sama tíma.
Upplýsingar veita forstöðumenn á staðnum
og í síma 685154.
DAGVI8T BARIMA.
HOLLUSTA í FVRIRRÚMI
Dagheimilið Sunnuborg, Sólheimum 19, ósk-
ar eftir ráðskonu frá 1. ágúst.
Starfíð krefst undirstöðuþekkingar í næring-
arfræði og felst í matargerð og matarinnkaup-
um í samráði við starfsfólk heimilisins.
Upplýsingar hiá forstöðumanni
í síma 36385.
PASSA
MYN
fyrir þá
sem er
alveg sama
BERIÐ SAMAN
•S M Y N D A S T 0 F A
GUÐMUNDUR KR JÓHANNESS0N
LAUGAVEGI178 SlMI689220
Vönduð vinna og góð þjónusta skiptir máli.
Þessi fjaðravagn úr áli er til sölu
Sjálfstæð fjöðrun fyrir hvert hjól. Vagninn er yfirfarinn
og í góðu standi. Nýleg dekk og góð burðargeta.
Upplýsingar í símum 42001 og 687676.
☆ SCHILLER ☆
HÓTELSTJÓRNUNARSKQLI
Leggið stund
á nám í Sviss
við hótelskólann okkar í Engelberg - sem er fyrsta flokks skíða-
og sumarleyfisstaður. Nemendur læra, starfa og búa á Hotel Europe,
sem gefur þeim kost á að kynnast rekstri og starfsemi hótela og
veitingahúsa bæði bóklega og verklega. Kennt er á ensku.
Námiðveitir:
★ Kunnáttu í tungumálum og störfum við móttöku á hótelum, sem
staðfest er með vottorði frá skólanum.
★ Próf i hótelstjórnun.
★ Starfstimi á hóteli erlendis.
★ Fyrri hluta til námsgráðu í viðskiptastjórnun (ABA).
Schillerereini hótelstjórnunarskólinn á háskólastigi sem kallast
getur alþjóðlegur. Skólinn starfar í tengslum við hótel í Engelberg
í Sviss, Strassborg, Paris og Lundúnum. Skólinn býður uppá styttri
námskeiö, fyrrihlutanám til háskólaprófs og háskólagráðu í hótel-
stjórnun og fleiri námsbrautum. Frekari upplýsingar:
SCHILLER INTERNATIONAL UNIVERSITY
(Dept SW5)
51 Waterloo Road, London SE1 8TX
Tel (01) 928 8484 Telex 8812438 SCOL FAX 6201226
UTFLUTNINGSI^XÐ ISIANDS
EXfORT COUNCILOF ICEIAND
LAGMÚU5 128REYKJAVÍK S-688777
///
Námsstefna um vöruþróun matvæla
verður haldin á Hótel Sögu, hliðarsal, kl. 14.00 þriðjudaginn
21. júní nk.
Dagskrá:
Kl. 14.00 Námsstefnan sett af Ingjaldi Hannibalssyni, fram-
kvæmdastjóra Útflutningsráðs íslands.
Kl. 14.10 Möguleikar islenskra matvæla í Bandaríkjunum:
Sylvia Schur, Creative Food Service.
Kl. 14.55 Kaffi.
Kl. 15.15 Útflutningur tilbúinna rétta frá íslandi: Örn Daníel
Jónsson, Iðntæknistofnun íslands.
Kl. 15.35 Kynning á vöruþróunarverkefni fyrir Bandaríkjamark-
að á vegum Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna:
Dr. Hannes Hafsteinsson, SH.
Kl. 15.55 Fyrirspurnir og almennar umræður.
Kl. 16.15 Námsstefnu slitið.
Þátttökugjald kr. 900,-.
Fjölmennið og nýtið ykkur þetta einstaka tækifæri.
t