Morgunblaðið - 19.06.1988, Side 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 1988
Karólína M. Karls-
dóttir - Minning
Fædd 9. nóvember 1909
Dáin 9. júní 1988
Eitt af því óhjákvæmilega í lífinu
er að deyja, en samt er það alltaf
jafn sárt þegar dauðann ber að
garði. En minningarnar eigum við
alltaf, þess vegna viljum við systk-
inin minnast ömmu okkar, Karólínu
Maríu Karlsdóttur, með nokkrum
fátæklegum orðum.
Amma fæddist í Keflavík 9. nóv-
ember 1909. Hún var dóttir hjón-
anna Maríu Magnúsdóttur og Karls
Axels Guðmundssonar, sjómanns,
er bjuggu á Kirkjuvegi 14 i
Keflavík. Hún var næstelst 8 systk-
ina. Dáin eru Marta, Snorri, Guðjón
og Karitas, en eftir lifa Ingveldur
er dvelur á dvalarheimilinu Garð-
vangi í Garði, Friðrik og Magnús
er búa í Keflavík.
Amma þurfti að reyna margt í
lífinu. Hún giftist 18 ára gömul
Tyrfingi Magnússyni og eignuðust
þau 4 börn. 3 fyrstu börnin sín
misstu þau, stúlku sem dó á öðru
ári, hún hét Ester Hulda, dreng sem
hét Magnús og dó nýfæddur, og
dreng sem dó í fæðingu. Fjórða
bamið, stúlka, lifði og var hún skírð
eftir systur sinni, Ester Hulda. Býr
hún í Kópavogi og er gift Hrafni
t
Sonur okkar og bróöir,
FRIÐRIK DUNGAL,
lést í Landspítalanum 17. júní.
Páll Dungal, Auftur Jónsdóttir,
Marfa Dungal.
t
Eiginkona mín,
ÁSTA HULDA GUÐJÓNSDÓTTIR,
Hlfðarvegi 10,
Kópavogi,
lést í Landspítalanum fimmtudaginn 9. júní. Útförin fer fram frá
Dómkirkjunni í Reykjavík á morgun, mánudaginn 20. júní, kl. 15.00.
Blóm og kransar afbeöin, en þeir sem vilja minnast hennar vinsam-
legast láti Hjálparsjóð Lions (L.C.I.F.) njóta þess. Fénu verður
varið í þágu sérstakra krabbameinsrannsókna á íslandi.
Reikningsnúmer er 103 408 við Landsbanka Islands, aöalbanka.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Björn Guðmundsson.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
KARÓLÍNA MARÍA KARLSDÓTTIR,
HátelgllO,
Keflavfk,
er lést á heimili sínu fimmtudaginn 9. júní verður jarðsungin frá
Keflavíkurkirkju mánudaginn 20. júní.
Þeir sem vildu minnast hennar vinsamlegast láti líknarstofnanir
njóta þess.
Ásdfs Minný Sigurðardóttir, Siguröur Þorsteinsson,
Ester Hulda Tyrfingsdóttir, Hrafn Sæmundsson,
Sigrfður Helga Sigurftardóttir, Kennedy Bruce Kennedy,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Útför eiginkonu minnar, stjúpmóður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
SVÖVU INGVARSDÓTTUR,
Dalbraut 20
(áður Bólstaðarhlfð 11),
fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 20. júní nk. kl. 13.30.
Kristinn Ólason,
Hrafnhildur Kristinsdóttir, Hjörvar Sævaldsson,
Kristinn Ó. Kristinsson,
Einar Á. Kristinsson, Rebekka Ingvarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Stjúpfaðir minn, tengdafaðir og afi,
ÞORSTEINN ERLINGSSON,
Austurbergi 38,
verður jarðsunginn þriðjudaginn 21. júní frá Fossvogskirkju kl.
10.30.
Árni K. Leósson, Kolbrún Jónatansdóttir,
David Árnason, Linda Björk Árnadóttir.
t
Jarðarför móður okkar,
HELGU S. JÓNSDÓTTUR
frá Nöf, Siglufirði,
verður gerð frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 21. júní kl. 3 e.h.
Jón Skaftason,
Stefán Skaftason,
Gunnlaugur Skaftason,
Jóhanna Skaftadóttir.
Sæmundssyni, atvinnumálafulltrúa
þar í bæ. Eiga þau 3 dætur og 3
bamaböm. Tyrfing missti amma
eftir 6 ára hjónaband, hann drukkn-
aði af vélbátnum Garðari frá Vest-
mannaeyjum 28. júní 1934. Eftir
að Tyrfíngur dó bjó hún með bræðr-
um sínum, þeim Friðriki og Snorra,
í nokkur ár.
Árið 1941 giftist amma afa okk-
ar, Sigurði Helgasyni úr Keflavík.
Eignuðust þau 2 dætur, móður okk-
ar, Ásdísi Minný, sem gift er föður
okkar, Sigurði Þorsteinssyni, sem
starfar í Fríhöfninni á Keflavíkur-
flugvelli, og Sigríði Helgu, sem býr
í Bandaríkjunum, hún er gift Bmce
Kennedy og eiga þau einn son.
Amma átti við heilsuleysi að
stríða í mörg ár. Árið 1956 gekkst
hún undir lungnaaðgerð og bjargaði
það heilsu hennar. Var hún við all-
góða heilsu eftir það, þar til fyrir
fáum árum að heilsu hennar fór að
hraka, en hún hafði fótavist til
hinsta dags.
Hjónaband ömmu og afa var alla
tíð mjög ástríkt og gott og reyndist
hann henni einstaklega vel í veik-
indum hennar. Það var mikið áfall
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÓLAFUR PÁLSSON
fyrrverandi verkstjóri,
Hvassaleiti 16,
sem andaðist laugardaginn 11. júnúverður jarðsunginn frá Foss-
vogskirkju miðvikudaginn 22. júní kl. 15.00.
Þóra Stefánsdóttir,
Páll Ólafsson, Hjördís Torfadóttir,
Stefán Ólafsson, Bára Björk Lárusdóttir,
Svava Júlíusdóttir, Gunnar Einarsson
og barnabörn.
t
Eiginmaður minn, stjúpfaðir og bróðir,
BJARNI GUÐMUNDSSON,
Grænuhlfð 20,
Reykjavfk,
iést f Landakotsspítala fimmtudaginn 16. júní.
Sigurbjörg Magnúsdóttir,
Magnea Jónfna Magnúsdóttir,
Margrét Guðmundsdóttir,
og aftrir vandamenn.
t
Móðir okkar,
MONIKA S. HELGADÓTTIR,
Merkigili,
verður jarðsungin að Reykjum miðvikudaginn 22. júní kl. 17.00.
Húskveðja verður á Merkigili kl. 11.30.
Þeir sem vilja minnast hennar, vinsamlegast láti Árbaejarkirkju
njóta þess. Reikningsnúmer 25330 við Búnaðarbanka fslands.
Börn og aðstandendur.
t
Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
GUÐBJARGAR EIRfKSDÓTTUR,
Smjördölum,
Sandvfkurhreppi.
Sigurjón Jónsson,
Eiríkur Sigurjónsson, Guðbjörg Hulda Albertsdóttir,
Jón Kristinn Sigurjónsson, Kristfn Alda Albertsdóttir,
Grétar Sigurjónsson,
Margrét Sigurjónsdóttir.
Lokað
Vegna útfarar ÁSTU HULDU GUÐJÓNSDÓTTUR verður
lokað frá kl. 13.00 mánudaginn 20. júní.
Fasa, Ármúla 5.
Lokað
Skrifstofa Útflutningsráðs íslands verður lokuð frá kl.
13.00 mánudaginn 20. júní vegna jarðarfarar ÁSTU H.
GUÐJÓNSDÓTTUR.
Útflutningsráð íslands.
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöföa 4 — Sími 681960
fyrir ömmu þegar afí veiktist af
krabbameini árið 1968 og reyndi
banalega hans mikið á hana. Hann
lést 8. september 1969. Rétt eftir
að afi dó, flutti Sigríður Helga,
dóttir hennar, til Bandaríkjanna og
flutti þá amma til mömmu okkar
og pabba. Amma var því búin að
búa hjá okkur í rúm 18 ár þegar
hún dó.
Við systkinin dáðum ömmu okkar
og það var alltaf jafngott að sitja
inni í herberginu hennar ömmu
Köllu, eins og við kölluðum hana,
þegar við vorum lítil og hún las
fyrir okkur. Við gátum alltaf komið
til hennar. Amma var mjög dul
kona, en hún var mjög trygg sínum
nánustu. Hún var okkur systkinun-
um sem önnur mamma. í hjarta
okkar er tóm sem aldrei verður
fýllt, en við þökkum ömmu okkar
fyrir allar stundimar sem við áttum
með henni og geymum alltaf í huga
okkar minninguna um hjartahlýju,
trygga og sterka konu sem við biðj-
um Guð að varðveita.
Kalla, Steinunn og Þorsteinn
r/////j
w\
FIGGJO
I NORWAY I
Ódrepandi
postulín
fyrir veitingahús,
mötuneyti og stofnanir.
Sterkari glerungur, staflast betur,
minni fyrirferö, lengri ending.
Gæöi, Þekking,
Þjónusta
A. KARLSSOM HF.
HEILDVERSLUN, BRAUTARHOLTI28
SfMI: 91 -27444
Z/ZZZZI
Blómastofa
FriÖfinm
Suðuriandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
tll kl. 22,- elnnig um helgar.
Skreytingar við öll tllefni.
Gjafavörur.
Höföar til
.fólks í öllum
starfsgreinum!