Morgunblaðið - 15.07.1988, Side 9

Morgunblaðið - 15.07.1988, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1988 9 Sendi öllum œttingjum mínum og vinum hjart- ans þakkir fyrir þann hlýhug, sem mér var sýndur á 70 ára afmœlisdegi mínum, 2. júli síðastliöinn. Guðrún Júlía Elíasdóttir, AÖalsteini, Stokkseyri. NUFERAÐ HITNA ÍKOLUNUM Framlög til menningar- mála skila sér aftur Ólafur B. Thors segir m.a. í viðtali við Stefni: „Það sem hefur gerst á síðustu árum er það, að fyrirtæki eru farin að sjá að framlög til menning- armála geta skilað sér óbeint aftur. Til dæmis eru fyrirtæki f útflutn- ingi farin að sjá að styrk- ir til menningar geta haft jákvæð áhrif f kynn- ingu landsins, sem skilar sér þannig í betri árangri f sölustarfi. Það eru þess- ar viðhorfsbreytingar, bseði þjá fyrirtækjum og listamönnum til sam- starfs, sem eru hvað þýð- ingarmestar f þessu sam- bandi. Ég tel dálítið vill- andi að taia um styrki. Það er einskonar ölm- usukeimur af þessu orði, hér er mun fremur á ferð samvinna og hrein- Iega eðlilegir viðskipta- hættir. Við verðum að losna út úr ölmusutalinu. Vissulega er reyndar augljósari samvinna milli fþróttafélaga og fyrir- tækja, þar sem knatt- spymumennimir geta borið auglýsingar á bún- ingum sfnum, ólfkt lista- mönnum, en það segir okkur ekki, að um sam- starf geti ekki verið að ræða. Dæmin allt f kring- um okkur um samstarf þessara aðila sýna okkur að þetta er hægt ef áhug- inn er til staðar." Ólafur bætti þvf við að nauðsyn- legt væri fyrir okkur ís- lendinga að fylgjast með því sem væri að gerast f löndunum f kring. ' Kanadamenn væm til dæmis famir að tala um menningariðnað, og lfta á menninguna sem mikil- væga atvinnugrein. Sem dæmi þá væri menning- ariðnaðurinn f Kanada orðinn stærri en allur skógarhöggsiðnaður f landinu." ÓLAFUR THORS Listamenn tilbúnirtil samstarfs Sfðar segir Ólafur B. Thors: „Eins og ég sagði áðan hafa viðhorfin f þessum efnum breyst mikið til hins betra á undanfömiun árum. Listamenn em tilbúnir til samstarfs við fyrirtæki f meira mæli en áður og fyrirtækin em opnari fyrir þessum möguleika en fyrr. Með þessum við- horfsbreytingum hefur skapast verulegur grundvöllur fyrir þessa aðila til þess að skiptast á skoðumun og þekkjast, sem er ákaflega þýðing- armikið. Ég sé þessa þró- un þvf ekki öðmvfsi en jákvæða á næstu árum. INGIMUNDUR SIGFÚSSON Benda má þó á, að er- lendis hefur verið rætt um það, að styrkir einka- aðila séu ekki eins örugg- ur tekjustofn og opin- berir styrkir. Það segir okkur, að einkaaðilar munu aldrei taka alveg yfir hlutverk rikisins f menningarmálum og auðvitað verður það aldr- ei á hinn veginn heldur, eftir að ýmsar jákvapðar hliðar sáust á samstarfi fyrirtækja og menning- arstofnana, meðal ann- ars f formi aukinnar fjöl- breytni í menningarlífi." Stuðningur við ákveðin verkefni Ingimundur Sigfús- son, forstjóri Heklu hf., segir m.a. f viðtali við Stefni: „Listamaðurinn og kaupsýslumaðurinn eiga það sameiginlegt, að þeir em að reyna að skapa eitthvað nýtt. Kaupsýslumaðurinn er að reyna að fínna stystu og hagkvæmustu leiðina frá draumi til veruleika, eins og Matthfas Johann- essen orðaði það einu sinni f merkri grein um athafnaskáld. Listamað- urinn er að finna þörf sinni til sköpunar útrás. Báðir em þeir reknir áfram af ólgandi at- hafnaþrá, og báðir þurfa þeir frelsi og svigrúm, ef þeir eiga að finna kröftum sínum farveg. Þess vegna geta og eiga listamaðurinn og kaup- sýslumaðurinn að vera samferða, og þess vegna er andúð margra lista- manna á fésýslu og at- vinnulífí á misskilningi reist. Hinn borgaralegi húmanismi á Vesturlönd- um, sem spratt upp f verslunarborgum ltalfu og Belgíu á síðmiðöldum, var það skjól, sem lista- menn þurftu þá, og enn sýnir reynslan okkur, að listir þrífast hvergi og dafna betur en f borgara- legu þjóðfélagi. En hvemig eiga þeir, sem aflögufærir em, að styðja listir? Það hefur verið reynsla mfn og ann- arra, að eðlilegast og skemmtilegast sé fyrir okkur að veita liðsinni til einstakra afmarkaðra verkefna. Til dæmis hef- ur Hekla hf. lagt fram fé, svo að kleift yrði að bjóða kunnum erlendum listamönnum til landsins. Með þessu skapast per- sónuleg tengsl. Þiggjend- ur og veitendur vita f hvað féð fer, en það rennur ekki stjóralaust f einhveija ósldlgreinda hít. Mér fínnst sjálfsagt og eðlilegt, að forystu- menn í atvinnulffí reyni eftir megni að styrkja og styðja listsköpun og grósku með þessum hætti, en varast skrif- finnsku og stofnana- hugsunarhátt. Menning og atvinnulíf í nýútkomnu hefti af Stefni, tímariti ungra sjálfstæðismanna, er fjallað um samstarf at- vinnurekenda og þeirra, sem veita menning- arlífinu forystu með einhverjum hætti. Þar er m.a. talað við forstjóra tveggja fyrirtækja, sem báðir hafa lagt sitthvað af mörkum til menningarstarfsemi. Þeir eru Ólafur B. Thors, forstjóri Almennra trygginga hf., sem jafn- framt er formaður stjórnar Sinfóníuhljóm- sveitar íslands og Ingimundur Sigfússon, for- stjóri Heklu hf. í Staksteinum í dag er vitnað til ummæla þeirra í Stefni. Grillveislan er alltaf hinn fasti punktur sumarsins. Góður matur, fjör og útivera. Þig vantar kannski hitt og þetta í grillið: kol, vökva, áhöld, bakka eða jafnvel sjálft grillið. Leitaðu ekki langt yfir skammt. Á næstu Essostöð finnur þú allt sem þarf.. . nema grillmatinn! Gríllkol 2,3 kg 125 kr. Gríllkol 4,5 kg 225 kr. Grillvökvi 0,51 95 kr. Grillvökvi 1,01 145 kr. Grill, grilláhöld og grillbakkar í úrvali. Opið í ESSO, Ártúnshöfða, til kl. 23:30. Olíufélagið hf Bankabréf Landsbankans eru gefin út af Landsbankanum óg aðeins seld þar. Bankabréf eru verðtryggð miðað við lánskjaravísitölu og árs- ávöxtun er nú 9,75% umfram verðtryggingu. Endursölutrygging bankans tryggir ávallt örugga endursölu. Bankabréf Lands- bankans eru eingreiðslubréf, til allt að fimm ára, og eru seld í 50.000,-, 100.000,- og 500.000,- króna einingum. Gjaldfallin bankabréf bera almenna sparisjóðsvexti þar til greiðslu er vitjað. Nánari upplýsingar fást hjá Verðbréfaviðskipt- um, Laugavegi 7 og hjá verðbréfadeildum í útibúum bankans um land allt. Landsbanki íslands Banki allra landsmanna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.