Morgunblaðið - 15.07.1988, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 15.07.1988, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1988 15 Nissan Prairie er lausn- • Sérstaklega lipur. in fyrir fjölskylduna, • Kraftmikil2000ccvél. því lipurðin og rýmið eru meiri en ykkur grunar. • Hæð milli gólfs og lofts 1,4 m. • 5 gíra beinskiptur. • 14 tommu felgur. • 3ja ára ábyrgð. Ingvar Helgason hf. Sýningarsalurinn, Rauðagerði Sími: 91 -33560 Stærðir: 36-41. Litur: Dökkbrúnt. Efni: Mjúkt skinn. 5% staðgreiðsluafsláttur. KRINGWN Kbinewn S. 689212. Fyrir fullorðna, Ixim og ómæklan famngnr! Sandalar Verð: 2390.- og langi til að lesa það að nýju sér til dundurs. Hafi hann eitthvað við innihald skýrslunnar að athuga skal hann eiga það við starfs- mannastjórann án minnar milli- göngu. Hitt fullyrði ég, að aukning á mannahaldi í innlendri dagskrár- deild hefur að verulegu leyti verið í stjómsýslu og þá ekki síst til að- stoðar dagskrárstjóranum, Hrafni Gunnlaugssyni, sem hefur verið langtímum fjarverandi við að sinna kvikmyndagerð og öðrum verkefn- um. Frásögn Baldurs Hermannsson- ar af mínútufjölda innlends efnis í dagskrá Sjónvarpsins árið 1987 er fróðleg lesning þótt ennþá fróð- légra hefði verið að fá að vita einn- ig hlut endursýninga í þessu efni. Er til dæmis viðtal Hrafns Gunn- laugssonar við Ingmar Bergman reiknað 53 mínútur eða tveir klukk- utímar og einn stundarfjórðungur þegar búið var að sýna viðtalið tvisvar sinnum og hluta þess þrisv- ar sinnum? Þá er ljóst að jafnvel þótt tölur Baldurs væru réttar þá segja þær minna en hann baslar við að sýna fram á. Þannig svara flutningsmín- útur ekki spurningu um fram- leiðsluafköst. Stuttar dagskrár geta til að mynda krafist mikillar vinnu en langar langtum minni. Vangaveltur um þessi efni gætu ef til vill orðið Baldri tilefni nýrrar stílæfingar í Morgunblaðinu. Eða væri ef til vill fremur ástæða til þess fyrir Baldur Hermannsson að einbeita sér að starfi sínu, jafnvel þótt hann sé svo ógæfusamur að vera starfsmaður hins íslenska ríkis. Höfundur er formaður Starfs- mannafélags Sjónvarpsins. Endursýningar, innlend dagskrár- gerð og Baldur Hermannsson Athugasemdir vegna greinar fulltrúa dagskrárstjóra Sjónvarpsins mwr eftir Ogmund Jónasson Baldur Hermannsson skrifar grein í Morgunblaðið í síðustu viku og er talsvert mikið niðri fyrir. Svo er að skilja á Baldri, að mér hafi orðið það á að taka bæði hann og starfsfélaga hans, Hrafn Gunn- laugsson, alvarlega og virðist það vera Baldri um megn að gangast við eigin skoðunum. Bæði Hrafn og Baldur sinna því starfi að verkstýra innlendri dag- skrárgerð hjá Ríkissjónvarpinu. Sá fyrmefndi hefur haft um það mörg orð, að Ríkissjónvarpið eigi að fara út á þá braut í ríkari mæli en hing- að til að fela aðilum utan stofnunar- innar dagskrárgerð og þá stundum verið með þá samlíkingu, að líkt og í bókasöfnum riti menn ekki bækur þá búi menn ekki til sjónvarpsefni í sjónvarpi. Og sá síðamefndi bætti síðan um betur í viðtali við Morgun- blaðið í vor þegar hann sagði, að það væru „engin dæmi þess, nokk- urn tíma í mannkynssögunni, að ríkið hafi verið betri framkvæmda- aðili en einkafyrirtæki. Sumum finnst jafnvel orka tvímælis að Sjónvarpið skuli yfirleitt framleiða nokkum skapaðan hlut...“. Látum það vera þótt þetta sé skoðun þessara tveggja ríkisstarfs- manna. Að sjálfsögðu eiga þeir fullan rétt á henni. Sá hængur er þó á, að aðrir starfsmenn Sjón- varpsins töldu sig einnig eiga rétt á skoðun um þessi efni. Þeir töldu þetta full einstrengingslega stefnu hjá þeim félögum og höfðu efa- semdir um að hún væri í þágu stofnunarinnar og eigénda hennar, almennings í landinu. Eftir að aðal- fundur Starfsmannafélags Sjón- varpsins hafði ályktað í þessa vem birtist viðtal við Hrafn Gunnlaugs- son í Morgunblaðinu þar sem hann sagði, að þessi viðbrögð kæmu sér ekki á óvart því þetta fólk væri „öðm fremur að hugsa um eigin hagsmuni, en ekki hag Sjónvarps- ins eða um betri dagskrá .... Þetta fólk tefur fyrir breytingum, og því miður á fólk af þessari gerð alltaf auðveldara uppdráttar innan ríkis- stofnana heldur en úti á hinum ftjálsa vinnumarkaði". Þessum kveðjum vildi Starfs- mannafélagið ekki una og varð það ofan á að skýra sjónarmið félagsins opinberlega. Þar kom fram að nauðsynlegt væri að Ríkissjón- varpið hefði jafnan á að skipa vel þjálfuðu og sérhæfðu starfsliði og góðum tækjabúnaði. íslenska Ríkissjónvarpið væri í rauninni lítil sjónvarpsstöð og ef hún ætti að hafa einhveija burði, þá væri frem- ur ástæða til þess að styrkja og auka framleiðslugetuna í stað þess að draga úr henni. Einstrengings- leg úthlutunarstefna gæti grafið undan stofnuninni og leitt til sóun- ar á fjármunum. Hins vegar var jafnan lögð á það rík áhersla að ekkert væri við það að athuga að fela fyrirtækjum gerð sjónvarps- efnis eða kaupa af þeim efni ef slíkt þætti eftirsóknarvert. Því var einfaldlega mótmælt að þetta yrði gert að stefnu á kostnað Ríkissjón- varpsins. Baldur Hermannsson lætur ógert að vitna til umsagnar Ríkis- endurskoðunar og álits hennar á útboðsstefnu Sjónvarpsins og framkvæmd hennar, sem er þó svipuð því sem Starfsmannafélagið hefur haldið fram. Kannski hefur hann ekki séð hana ennþá eða hann á eftir að reyna að „knésetja" end- urskoðenduma með svipuðum munnsöfnuði og undirritaðan. Persónulegum glósum Baldurs Hermannssonar, ærumeiðingum og atvinnurógi verður ekki svarað hér. A þeim er varla nokkur skýring önnur en vanmegna reiði hans við Ögmundur Jónasson „Svo er að skilja á Baldri, að mér haf i orð- ið það á að taka bæði hann og starfsfélaga hans, Hrafn Gunn- laugsson, alvarlega og virðist það vera Baldri um megn að gangast við eigin skoðunum.“ mann sem leyfir sér að hafa skoðun og hefur gerst svo djarfur að gera athugasemdir við þá stefnu, sem hann er í málsvari fyrir. Það virðist hafa farið mikið fyrir bijóstið á Baldri Hermannssyni, að í grein, sem ég ritaði í Morgun- blaðið í maílok, vísaði ég til skýrslu þar sem vikið var að framleiðslu og mannahaldi í innlendri dag- skrárdeild en í skýrslunni sagði á þá leið að innlend dagskrárdeild í Sjónvarpi hefði ekki aukið fram- leiðslu hlutfallslega miðað við fjölg- un starfsmanna. í umfjöllun Bald- urs Hermannssonar er þetta plagg hugarburður minn eða þá orðið að leyniskýrslu, sem ég er beðinn um að upplýsa um hið snarasta og er í því sambandi skírskotað til Dags Tangens, norska sagnfræðingsins, sem ekki gat tilgreint heimild þeg- ar á þurfti að halda. Ekki fæ ég skilið hvað þessi málflutningur á að þýða. Baldur Hermannsson hef- ur án efa sjálfur séð umrædd gögn, sem eru ekki leynilegri en svo að þau voru til umræðu í fram- kvæmdastjóm Ríkisútvarpsins þar sem fundarmenn og þar á meðal fulltrúar starfsmanna fengu afrit af skýrslunni og síðar var úrdráttur sendur menntamálaráðuneytinu. Starfsmannastjóri Ríkisútvarpsins getur vafalítið sent Baldri eintak af skýrslunni, hafi hann týnt sínu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.