Morgunblaðið - 15.07.1988, Qupperneq 45
I
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1988
45
Fyrrverandi eiginkona Rods, Alana Hamilton Stewart, ásamt
börnum þeirra, Kimberley og Sean.Rod Stewart á sviði.
Rod Stewart ásamt Kelly Emberg og dóttur þeirra, Ruby.Rod
Stewart ásamt Kelly Emberg og dóttur þeirra, Ruby.
er augasteinn föður síns. Rod var reynd-
ar ekkert sérlega ánægður þegar hann
vissi að Kelly var ófrísk. Hann sagði að
þetta væri einungis lúalegt bragð hjá
henni til að draga sig upp að altarinu
og fór frá henni um tíma. Það kom þó
ekki í veg fyrir að Rod væri viðstaddur
fæðinguna og síðan hefur hann ekki séð
sólina fyrir þeim mæðgum.
Formlega séð er Rod ennþá giftur
Alönu Hamilton Stewart en hann vonast
til að fá lögskilnað í gegn fyrir næstu
jól. Hann hefur þegar beðið Kelly að
giftast sér og segir að Ruby, sem er
augasteinninn hans, eigi að eignast al-
mennilega fjölskyldu.
Rod hefur ákveðið að brúðkaupið eigi
að fara fram í Englandi. Þá getur öll
fjölskylda hans verið viðstödd auk þess
sem það hentar betur fyrir móður hans
sem er í hjólastól. Rod vildi síður leggja
það á hana að fljúga til Bandaríkjanna.
Rod hefur alla tíð verið veikur fyrir
kvenfólki og gefinn fyrir villt líferni.
Mörgum finnst því mesta furða hvað
Kelly hefur tekist að temja hann vel.
Hann er nú orðinn fyrirmyndarfaðir og
gerir allt fyrir elskurnar sínar, Ruby og
Kelly.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Gróðursett norðan við Sjúkrahúsið. Skjólbeltið er til hægri en það sem af gekk var gróðursett á víð
og dreif. í baksýn eru Ölfusá og Selfosskirkja.
SELFOSS:
Gróðursettu þúsund plöntur
á einni kvöldstund
tarfsfólk Sjúkrahúss Suðurlands
tók sig nýlega til og gróðursetti ríflega eitt þúsund tijáplöntur í skjólbelti austan og norðan við
Sjúkrahúsið. Þetta var gert á einni drjúgri kvöldstund.
Það var stjóm Sjúkrahússins sem útvegaði plönturnar og skoraði á starfsfólkið að koma þeim í jörð.
Hin góða mæting starfsfólksins er lýsandi dæmi um þann áhuga sem nú er meðal almennings fyrir
ræktun og uppgræðslu.
Gróðursett var í þrefalt skjólbelti undir verkstjórn Arnar Óskarssonar formanns Skógræktarfélags
Selfoss. Á vetrum er mjög snjóþungt í nágrenni Sjúkrahússins og er það von manna að með vexti og
viðgangi skjólbeltisins muni snjóþyngslin minnka.
— Sig. Jóns.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
4
SÉRBLAÐ
á fimmtudögum
Dýrari fa«dPÍgnasalar
- en betri?
Gífurleg lóða-
eftirspum
Auglýsingar í viðskiptablaðið
þurfa að hafa borist auglýsinga-
deild fyrir kl. 12.00.
á mánudögum.
ffovðiinWbiMb
- blað allra landsmanna
NÚFÆRÐU. .
105g NIEIRIJOGURT
ÞEGUtÞÚKAIIPIRSOOgDÓSr
* miðað við verð á jógúrt í 180 g dósum.
Starfsfólkið ánægt að lokinni gróðursetningn.