Morgunblaðið - 15.07.1988, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR PÖSTUDAGUR 15. JÚIÍ 1988
5S
KNATTSPYRNA / ÍSLANDSMÓTIÐ -1. DEILD
Ekkert fær stöðvað Framara
FRAMARARfóru með öll þrjú
stigin af Hlíðarenda í gær-
kvöldi. Ormarr Örlygsson skor-
aði eina mark leiksins þegar
langt var liðið af fyrri hálfleik.
Markið var nokkuð skondið því
Ormarr ætlaði greinilega að
gefa fyrir markið frá hægri en
há sending hans fauk hreinlega
yfirGuðmund Baldursson,
markvörð Vals, sem var kom-
inn of langt út úr markinu.
„Þetta átti að vera fyrirgjöf, en
vindurinn greip boltann og hef-
ur eflaust ruglað Guðmund í
rýminu," sagði Ormarr.
Framarar hafa nú ellefu stiga
forskot á næsta lið, Val, og fær
lítið stöðvað þá úr þessu á leið
þeirra að íslandsmeisrtaratitlinum.
■■■■IH Þrátt fyrir mikla
Valur pressu Valsmanna í
Jónatansson síðari hálfleik tókst
skrifar þeim ekki að finna
ieið í mark Framara.
Birkir átti stórleik í marki Fram
og bjargaði oft glæsilega.
Fyrri hálfleikur var frekar tíðind-
alítill ef frá er talið markið. Mest
var um baráttu á miðjunni og fá
marktækifæri sköpuðust. Framarar
fengu tvö marktækifæri sem tal-
andi er um. Fyrst er Ómar Torfason
hann átti skalla eftir fyrirgjöf frá
Pétri Ormslev, sem Guðmundur
Baldursson varði meistaralega.
Síðan skallaði Arnljótur rétt yfir
eftir sendingu frá Ormarri. Vals-
menn fengu eitt marktækifæri og
sáu reyndar um að veija það sjálf-
ir. Ingvar fékk boltann við vítateig
eftir laglegt spil og þrumuskot hans
fór beint í afturenda Jóns Grétars.
Valsmenn sóttu látlaust
Síðari hálfleikur var algjörlega eign
Valsmanna sem sóttu látlaust.
Framarar, bökkuðu og freistuðu
þess að halda hreinu út leikinn.
Þeir fóru varla fram á vallarhelming
Vals allan hálfleikinn. Valsmenn
fengu mörg góð færi sem þeir hefðu
nýtt á eðlilegum degi. Siguijón
komst þrívegis í færi en var fyrir-
munað að koma boltanum í netið.
Jón Gunnar Bergs, sem kom inná
sem varamaður, fékk þó bestu
marktækifærin. í fyrra skiptið
skallaði hann rétt yfir og síðan
klúðraði hann fyrirgjöf frá Guð-
mundi Baldurssyni fyrir opnu
marki. Valsmenn settu Guðna
Bergsson í fremstu víglínu undir
lokin og skapaði hann oft mikinn
usla og var nálægt því að jafna á
síðustu mínútunum og hefði það
ekki verið ósanngjarnt.
LiAln
Framarar með Birki markvörð, sem
Valur-Fram
O : 1 (0 : 1)
Valsvöllur, fslandamótið - 1. deild,
fimmtudaginn 14. júlf 1988.
Mark Fram: Ormarr Örlygsson (39.
mín.).
Gult spjald: Pétur Ormslev, Fram (49.
mfn.) og Kristinn R. Jónsson, Fram
(50. mín.). Sævar jónsson, Val (72.
mín.).
Dómari: Haukur Torfason 6.
Línuverðir: Þoroddur Hjaltalín og
Geir Þorsteinsson.
Áhorfendur: Um 2000.
Lið Vals: Guðmundur Baldursson,
Þorgrímur Þráinsson, Siguijón Kristj-
ánsson, Magni Blöndal Pétursson, Atli
Eðvaldsson, Sævar Jonsson, Guðni
Bergsson, Guðmundur Baldursson,
Valur Valsson, (J6n Gunnar Bergs vm.
á 05. mín.), Ingvar Guðmundsson, Jón
Grétar Jónsson, (Steinar Adólfsson vm.
á 74. mín.).
Lið Fram: Birkir Kristinsson, Þor-
steinn Þorsteinsson, Jón Sveinsson,
Pétur Ormslev, Viðar Þorkelsson,
Kristinn R. Jónsson, Pétur Amþórsson,
(Kristján Jónsson vm. á 88. mín.),
Ómar Torfason, Steinn Guðjónsson,
Ormarr Örlygsson, Arljótur Daviðsson.
Framarar hafa nú ellefu stiga forskot í 1. deild
Morgunblaðið/Bjarni
Lok lok og læs...
Þetta var algeng sjón í síðari hálfleik í leiks Vals og Fram að Hlíðarenda í gærkvöldi. Birkir, markvörður, hefur hand-
samað knöttin og var sá sem valdið hafði í vítateig Fram. Vöm Fram bíður átekta á marklínu.
besta mann, léku þennan leik mjög
skynsamlega. Þeir létu boltann
ganga vel í fyrri hálfleik en tóku
samt enga áhættu. í síðari hálfleik
sýndu þeir enn einu sinni hversu
sterk vöm þeirra er, en liðið hefur
aðeins fengið á sig tvö mörk í 10
deildarleikjum. Þeir geta líka skor-
að ef sá gallinn er á þeim eins og
staða þeirra í deildinni sannar. Lið-
ið lék vel sem heild og baráttan v?r-
fyrir hendi. Það má því segja að
úrslit íslandsmótsins séu svo til
ráðin hvað varðar efsta sætið. Það
em ár og dagar síðan lið hefur
haft slíka forystu í miðju móti.
Valsmenn vom taugaóstyrkir í fyrri
hálfleik en fóm í gang í þeim seinni,
en það nægði þó ekki að þessu
sinni, enda við streka vörn Fram
að eiga. Framlína Vals var ekki
nægilega hreyfanleg og var því
auðvelt að valda þá fyrir Framara.
Vöm Vals stóð fyrir sínu og eins
vom miðjumennirnir góðir. Magni
Blöndal átti einn sinn besta leik í
sumar, en hann lék í gær sinn 200.
leik með meistaraflokki Vals.
Urslit Jeiksins em mikil vonbrigði
fyrir íslandsmeistarana því þar
misstu þeir trúlega endanlega af
titlinum í ár til Framara.
Amljótur Davíðsson, Pétur Ormslev,
Viðar Þorkelsson og Jóns Sveinsson,
Pétur Amþórsson, Fram. Guðni
Bergsson, Magni Blöndal Pétursson,
Ingvar Guðmundsson, Guðmundur
Baldursson (nr.8), Val.
Hvað sögðu þeir?
„Þetta em bestu fyrirgjafimar"
- sagði Ormarr Örlygsson, sem skoraði sigurmark Framara að Hlíðarenda
etta átti að vera fyrirgjöf hjá
mér en vindurinn greip bolt-
ann og hann lenti í marknetinu
hjá Guðmundi," sagði Ormarr eft-
ir leikinn. „Það segir sig sjálft að
þetta em bestu fyrirgjafirnar og
þetta var sætur sigur. Valsmenn
pressuðu að vísu mjög stíft í seinni
hálfleiknum og okkur tókst ekki
að spila okkur út úr þeirri
klemmu. Valsmenn fengu góð
færi og höfðu tækifæri til að jafna
en við stóðumst pressuna og sigr-
uðum,“ og þar með var hann rok-
inn inn í búningsklefann til að
taka þátt í sigurhrópum Framara.
Guðmundur Baldursson
„Þetta var fyrirgjöf frá Ormarri.
Ég hafði þurft að fara út í teig
og slá boltann frá, og var því að
færa mig aftur í markið þegar
fyrirgjöfín kom og boltinn ein-
hvem veginn datt mjög hratt nið-
ur í markið. Það var bara ekki
nokkur leið fyrir mig að eiga við
þetta. Svona lagað kemur fyrir
einu sinni á ævinni. Við hefðum
hins vegar átt að geta gert út um
leikinn í seinni hálfleik því við
fengum að minnsta kosti 3-4 mjög
góð færi í leiknum," sagði Guð-
mundur.
Ásgelr Elíasson:
„Mér leið aldrei virkilega illa með-
an ég fylgdist með leiknum af
bekknum því ég hafði það á til-
finningunni að við myndum ekki
fá á okkur mark,“ sagði Ásgeir
Elíasson, þjálfari Fram.
„Valsmenn pressuðu okkur að
vísu mjög stíft, og okkur tókst
ekki að ná okkur út úr henni. Það
má kannski segja að það hafí
vantað Guðmund Steinsson í
framlínuna hjá okkur til að halda
boltanum lengur frammi. Það
kom sem betur fer ekki að sök
.því vömin hjá okkur hefur verið
alveg stórkostleg, þar hafa ailir
spilað stór vel í sumar, og ofan á
það hefur bæst mjög góð mar-
kvarsla.
Við höfum núna mjög þægilega
forystu í deildinni, sem lfklega á
eftir að minnka áður en yfir líkur.
Hins vegar á ég bágt með að trúa
því að helsti keppninautur okkar,
Valur, eigi eftir að vinna hana
upp,“ sagði Ágeir og kvaðst til
vonar og vara verða með hattinn
á öllum leikjum sem eftir væru.
Hörður Helgason:
„Þessi leikur spilaðist eins og ég
átti von á og leikmenn seldu sig
dýrt og gáfu sig alla í þetta. Fram-
arar náðu að skora og það gerði
gæfumuninn," sagði Hörður
Helgason, þjálfari Vals.
„Eftir þennan leik getum við alveg
gleymt þeim möguieika að ná
Fram að stigum, þannig að við
munum bara einbeita okkur að
því að ná öðru sætinu. Þá er bikar-
keppnin ekki heldur búin. Við eig-
um að mæta Fram aftur í næstu
viku og í þeim leik kemur ekkert
annað en sigur til greina. Við
ætlum ekki að tapa tveimur leikj-
um í röð fyrir Frarn," sagði Hörð-
ur að lokum
Hilmar Slghvatsson:
Hilmar Sighvatsson lék ekki með
félögum sfnum í Val í gærkveídi
vegna meiðsla, en hann kvaðst
stefna að því að verða búinn að
ná sér fyrir bikarleikinn.
„Það er alveg sárgrætilegt að
hafa þurft að vera utan vallar í
þessum leik. Þessir leikir við Fram
eru yfirleitt skemmtilegustu leikir
sumarsins, þó þeir séu kannski
ekki alltaf fyrir augað,“ sagði
Hilmar. „Það var alveg hræðilegt
að þurfa að horfa upp á Fram
sigra með svona marki og það
verður ekki skrifað á reikning
neins annars en markvarðarins.
Það verður hins vegar að segjast
að Framarar spiluðu þennan leik
skynsmlega og ég óska þeim bara
til hamingju með sigurinn,'1 sagði
Hilmar.
Guðmundur Steinsson:
Guðmundur Steinsson í liði Fram
þurfti einnig að standa utan vallar
vegna meiðsla og vera þar sem
hver annar áhorfandi.
„Þetta var baráttuleikur eins og
alltaf þegar þessi lið mætast,“
sagði Guðmundur. „Baráttan í
fyrri hálfleiknum fór aðallega
fram á miðjunni en við áttum
samt nokkrar hættulegar sóknir.
í seinni hálfleik vörðumst við hins
vegar mjög vel.
„Það tók alveg ferlega á taugarn-
ar að þurfa að fylgjast með fyrir
utan, en ég verð vonandi með á
miðvikudaginn f bikarleiknum,"
sagði Guðmundur að lokum.