Morgunblaðið - 13.08.1988, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 1988
11
BLÓM
VIKUIMNAR
105
Umsjón:
Ágústa Björnsdóttir
stæðum. Eins og áður var nefnt eru
þær þó ekki eins sterkar og gömlu
lúpínunar, einkum þær gulu, skær-
rauðu og sterk-fjólubláu. Best
dafna þær í frekar sendinni jörð á
sólríkum stað, en þola illa þungan
og blautan jarðveg. öruggast er að
skvla þeim með laufi og öðrum
garðúrgangi á vetrum. Ekki ætti
að láta þær þroska fræ heldur
klippa afblómstraða stöngla burtu
jaftióðum, enda eru þær ekki fræ-
ekta og því vissast að fjölga þeim
með græðlingum.
Og næst þegar þið lítið yfír
skrautlega lúpínu-beðið ykkar þá
sendið Russel gamla þakkarþanka.
Að lokum vil ég svo nefna eina
lúpínutegund enn, sem virðist vera
á góðri leið með að vinna sér þegn-
rétt hér á landi, en það er Alaska-
lúpínan (Lup. nootkatensis) sem
Skógræktin flutti inn til þess að
græða upp sanda og mela. Hún
virðist una sér hið besta hér en svo
sterk er hún og yfírgangssöm við
annan gróður að ástæða virðist til
að gæta allrar varúðar við dreifíngu
hennar.
Og lýkur svo lúpínu-spjalli.
ÓI. B. Guðmundsson
Jónas Ingimundarson pianóleik-
ari.
Tónleikar í
Borgarnesi
Jónas Ingimundarson pianóleik-
ari heldur einleikstónleika í Borgar-
neskirkju í dag kl. 16. í frétt í blað-
inu í gær var sagt að tónleikamir
ættu að heíjast kl. 15. Biðst Morg-
unblaðið velvirðingar á mistökun-
um.
Jónas heldur aðra tónleika í sal
Tónlistarskólans á Siglufírði annað
kvöld og eru þeir liður í hátíðar-
höldunum á staðnum sem hefjast
nú um helgina.
Heyskapur í
Arbæjarsafni
HEYSKAPUR verður í Árbæj-
arsafni í dag frá kl. 13 til 17.
Slegið verður með orfi og ljá,
rifjað, rakað og bundið í bagga
og gefst gestum tækifæri til að
táka þátt í heyskapnum.
Einnig verða grasafræðingar á
staðnum og munu þeir leiðbeina
bömum við að þekkja blómin í
hlaðvarpanum og grösin á túninu.
Fréttatilkynning
Lóðafram-
kvæmdirí
Arbæjar-
hverfi
Á opnu svæði milli Ársels
og Árbæjarkirkju í Árbæj-
arhverfí hefur verið unnið
að lóðaframkvæmdum í
sumar fyrir um 6 milljónir
króna og er þeim um það
bila að ljúka. Svæðið hefur
verið tyrft og gróðursett
og lagðir göngustígar
lagðir.
Morgunblaðið/Sverrir
Amarflug á uppleið!
Farþegar okkar verða strax
varir við atikna samkeppni.
Ný rekstrarstefna
- betri afkoma
Það er engin launung að mörg
undanfarin ár hafa verið erfið í
rekstri Arnarflugs.
Til þess að snúa dæminu við
var staða félagsins tekin til gagn-
gerrar endurskoðunar og ný
rekstrarstefna mörkuð; áhættu-
samt leiguflug var látið víkja og
megináherslan lögð á áætlunarflug
til Evrópu.
Önnur Boeing 737-200 þota er staðfesting á
öflugri markaðssókn félagsins.
Þessi endurskipulagning á rekstrinum hefur nú
sannað ágæti sitt og sýndu rekstrartölur fyrirtækisins
hagnað á síðasta ári.
Betri þjónusta með samkeppni
Reksturinn er kominn á rétta braut og bjart
framundan.
Arnarflug stefnir markvisst að því að verða leið-
andi á ýmsum sviðum þjónustu við flugfarþega á
íslandi eins og farþegar okkar hafa
þegar orðið varir við.
Nokkur dæmi um betri þjónustu:
• Farþegar okkar fá brottfarar-
spjald sem gildir alla leið á
áfangastað þótt skipt sé um vél.
Engin hlaup á flugvöllum
erlendis.
• Sætabilið er meira í allri vélinni.
Það jafnast á við „Business
Class“ annarra flugfélaga.
• Tollfrjáls verslun um borð.
• Fyrsta flokks þjónusta í mat og drykk.
Við erum ekki einir um hituna, heldur í hörku
samkeppni.
Þannig viljum við hafa það og því leggur allt
starfsfólk Arnarflugs hart að sér í vinnunni.
Það er staðreynd að samkeppni í flugi, eins og
öðru, tryggir neytendum meira val og betri þjón-
ustu.
Þess vegna er þörf fyrir Amarflug.
ARNARFLUG{# j
- félag í samkeppni!
SÖLUSKRIFSTOFA ARNARFLUGS OG KLM AUSTURSTRÆTI 22 SlMI 623060 SÖLUSKRIFSTOFA ARNARFLUGS LÁGMÚLA 7 SÍMI 84477