Morgunblaðið - 13.08.1988, Síða 19

Morgunblaðið - 13.08.1988, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST1988 Í9 „Samferða um sögnna“ með Gorb- atsjov og forstöðumanni náms- efnissviðs N ámsgagnastofnunar eftirSiglaug Brynleifsson Hin „ósköp" venjulega og hefð- bundna kennslubók í mannkynssögu, „Samferða um söguna", er orðin hin mesta hrakfallaútgáfa — tilraun til sögufölsunar, sem misheppnaðist. Eins og kunnugt er, mun önnur út- gáfa vera væntanleg, þar sem birtur verður sá kafli bókarinnar, sem glat- aðist í meðförum Námsgagnastofn- unar og annarra aðstandenda bókar- innar, kaflinn um 1500 ára tímabil vestrænnar menningar. Þrátt fyrir það, sýnir forstöðumaður námseftiis- sviðs Námsgagnastofnunar enga til- burði til að afsaka þessa endemisút- gáfu fyrir hönd stofnunarinnar. Hann biðst heldur ekki afsökunar á þeirri hlutdeild sem hann átti að útg- áfu kristnifræðirita sömu stofnunar, í grein í Morgunblaðinu 19. júlí sl: „Siglaugur fræðimaður og kristin- dómsfræðslan", þar sem hann reynir að hrekja þá staðreynd, að kristin- dómsfræðslan sé áformuð sem undir- grein samfélagsfræðinnar. Þetta kemur glöggt fram í Námsskrá sam- félagsfræðinnar 1977, en þar segir: „Með viðhorfamarkmiðum samfé- lagsfræðinnar er stefnt að siðgæðis- þroska. Samfélagsfræði og kristin- fræði hljóta því að tengjast á ýmsa vegu.“ Einnig er rætt um „tilfinning- £ir, viðhorf og trú eru viðfangsefni í samfélagsfræði og fræðsla um trúar- brögð fléttast inn í viðfangsefni hennar". Forstöðumaður námsefnis- sviðs Námsgagnastofnunar gæti einnig flett upp í Námsskrá 1976 og skrifum hugmyndafræðinga marx- ista um þessi efni, sér til glöggvun- ar, þ.e. aið siðferðiskenningar kristn- innar séu viðurkenndar sem gildar að svo miklu leyti sem þær eru tíma- bærar f nútíma samfélagi. Ef hann skilur ekki stefnuna, þá virðist hann skorta meira en lítið skilning á „sögu- legri efiiishyggju" eða skjöplast tals- vert í skilningi þeirra fræða. Sigurður Pálsson, forstöðumaður námsgagnasviðsins, birtir umsagnir og bréf um skoðanir ýmissa aðila og stofnana á þeim norsku kristinfræði- bókum, sem hann taldi henta hér á landi. Umsagnimar em jákvæðar, sem er ósköp eðlilegt, þar sem hrein villutrú og trúleysi er ekki boðað í þessum norsku ritum né kennsluleið- beiningum, sem þeim fylgja. íslenska þjóðkirlqan er talin fremur ftjálslynd stofnun og innan hennar rúmast ýmsar skoðanir um guðfræði, þar með „sköpunarguðfræði". Einnig virðist forstöðumanni námsefnissviðs Námsgagnastofnunar aðhyllast þá samþættingu kristindómsfræðslu og samfélagsfræði sem boðuð er í náms- skránum. En reynslan af þessum bókum er því miður sú, að magn efnis þeirra er slíkt, að það er algjör- lega ógerlegt að kenna þær allar, og notkun þeirra er því næsta tak- mörkuð og kennsluleiðbeiningamar Siglaugur Brynleifsson „Varðandi bókina „Samferða um söguna“ skal bent á, að á síðustu misserum virðist vera í undirbúningi algjör endurskoðun sögu Sov- étríkjanna frá 1917. Hin opinbera saga þessa 70 ára tímabils er meira og minna fölsuð.“ virðast gera ráð fyrir, að þeim sem þær notar sé fremur fátt gefið. Út- koman er fremur þreytandi moðsuða, en um þessháttar fóður og afleiðing- ar þess hefur ágætt skáld komist svo að orði: „Grate on their scrannell pipes of wretched straw; The hungry sheep look up, and are not fed, But svoln with wind, and the rank mist they draw, Rot inwardly, and foul contagion spread; Besides what the grim wolf with privy paw Daily devours apace, and notking said...“ (Milton: Poetical Works, Lycidas. Oxford 1966.) Sigurður Pálsson vill firra Náms- gagnastofnun allri aðild að tötra- marxískum skoðunum, en því miður bendir útgáfustarfsemi stofnunar- innar til þess, að þær skoðanir séu ríkjandi skoðanir innan þeirrar stofnunar, sbr. útgáfustarfsemi í félagsfræði, íslandssögu og mann- kynssögu. Útgáfustarfsemi stofn- unarinnar á „nútímalegum" móður- málsritum er löngu alræmd. Varðandi bókina „Samferða um söguna" skal bent á, að á síðustu- misserum virðist vera í undirbún- ingi algjör endurskoðun sögu Sov- étríkjanna frá 1917. Hin opinbera saga þessa 70 ára tímabils er meira og minna fölsuð. Þessi skoðun er löngu kunn á Vesturlöndum og nú er svo komið, að Gorbatsjov og fylg- ísmenn hans telja eitt brýnasta verkefni hinnar nýju stefnu að upp- lýsa hinar hrikalegu sögufalsanir, sem stundaðar hafa verið í Sov- étríkjunum sl. 70 ár. Maður hlýtur að spyrja, hvað verður um vesalings hugmynda- fræðina, sögulega efnishyggju og marxíska söguskoðun, ef hin sögu- lega þróun inn í dýrðarríki lífsham- ingjunnar reynist fals eitt og lygi? Er hin grunnmúraða efnishyggja, öll díalektíkin, allur grunnur marx- ískrar söguskoðunar, hruninn? Þær hræringar sem nú eiga sér stað í Sovétríkjunum eru bylting varðandi sögpiskoðun og kenningar og hræra við öllum sem áhuga hafa á sögu og pólitík og vona jafn- framt, að martröð kommúnismans megi létta af hijáðum þjóðum Sov- étríkjanna og leppríkja þeirra. At- hyglin sem yfírlýsingar Gorbatsjovs vekja er gífurleg um öll Vesturlönd, en meðal íslenskra tötramarxista gætir lítið hrifningar, sem vonlegt er, því að í rauninni er verið að steypa undan þeim þeirri tötralegu hugmyndafræði sem þeir hafa ánetjast. Aðalvígi þessarar sérstæðu bar- áttu fyrir marxísku framtíðarsam- félagi er meðal þeirra sem vinna sitt verk með kennslubókaútgáfu samkvæmt kenningunum, puða nú við að dreifa út „ósköp venjulegri mannkynssögu", sem reynist föls- uð. Síðan kemur á daginn, að það sem aðstandendur bókarinnar telja ófalsað og sannarlega rétt, þ.e. sögu Sovétríkjanna eftir 1917, reynist fals eitt samkvæmt kenn- ingum Gorbatsjovs og skoðana- bræðra hans, svo sem Otto Latsis, Mikhaíl Oulianov, Vitaly Ginzburg og Roy Medvedev. Ýmsir úr hópi fremstu sagnfræðinga Sovétríkj- anna virðast nú fyrst fá tækifæri til að tjá sig. En þeir sem móta stefnu Náms- gagnastofnunar og þá væntanlega einnig forstöðumaður námsefnis- sviðsins kippa sér ekki upp við at- burði síðustu missera, þeir halda sinni góðu hugmyndafræðilegu stefnu óhikað. Þeir leitast við að halda uppi merkjunum með ákaf- lega leiðinlegri lumpni, með því að ljúga lygina inn í grunnskólakerfí landsins að minnsta kosti næstkom- andi skólaár. Er ekki kominn tími til þess að aflétta þessu námsbókafargani sem þessi ágæta stofnun ástundar og veita útgefendum tækifæri til kennslubókaútgáfu á sömu efna- hagsforsendum og einokunarfyrir- tækið býr við. Með auknu valfrelsi skóla samkvæmt nýjustu námsskrá ætti þetta ekki að vera neitt álita- mál. Höfundur skifur um erlendar bækur í Morgunblaðið. Baldvin Valdimarsson — Guðmundur Hansson 110 Og eftir 28 spilakvöld í Sum- arbrids, hefur staða efstu manna lítið breyst. Sveinn Sigurgeirsson leiðir enn, en næstu menn eru: Anton R. Gunnarsson, Guðlaugur Sveinsson, Magnús Sverrisson og Jakob Kristinsson. Einsog áður hefur komið fram, mun Sumarbrids standa fram í miðjan september, eða þartil félögin almennt he§a hauststarfsemi sína á höfuðborgarsvæðinu. Spilalok verða auglýst nánar síðar. Spilað er alla þriðjudaga og fímmtudaga í Sigtúni 9 (húsi Brids- sambandsins) og hefst spila- mennska upp úr kl. 17 (fyrsti rið- ill). Síðasti riðill fer af stað upp úr kl. 19, þannig að vonlítið er að mæta rétt fyrir kl. 19.30. Stórmót í brids í Víkurröst Dalvík dagana 27. og 28. ágúst Reiknað með 32 para keppni, 3 spil milli para, spilað eftir baromet- er-fyrirkomulagi. Keppni hefst kl. 13.00 á laugar- dag og verður spilað fram undir kvöldmat. Á sunnudag verður byij- að að spila kl. 10.00 og lýkur keppni um miðjan dag. Fyrstu verðlaun verða 40 þús. krónur. Peningaverðlaun verða fyr- ir fímm efstu sætin, alls 110 þús. krónur. Keppnisstjóri verður úr Reylq'avík. Þátttökutilkynningar þurfa að hafa borist fyrir mánudag- inn 22. ágúst. Skráð verður hjá Bridssambandi íslands í síma 91-689360, Víkur- röst, Dalvík, í síma 96-61354 eða Sæluhúsinu (Ólafi Ámasyni) í síma 61488 og skrifstofu Ungmenna- sambands Eyjafjarðar (UMSE) í síma 96-24011. Keppnisgjald 3000 kr. á par. Innifalið . kaffi meðan á keppni stendur. Hægt er að fá matarpakka og gistingu á staðnum. Ath. Þeir þátttakendur sem koma með flugi til Akureyrar geta komist með öðrum keppendum til Dalvíkur með litlum tilkostnaði, þess þarf að geta við skráningu ef óskað er eftir. o laugardaga 8QP-I8QP! sunnudaga IIQP-I8QP

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.