Morgunblaðið - 13.08.1988, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 13.08.1988, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 1988 BRAUTARHOLTI 20 - SÍMI 29098 Láttu metnaðinn ráða þínu vali OPNUNARTIMI: Miðvikudaga, fimmtudaga og sunnudaga kl. 19.00 - 01.00 Föstudaga og laugardaga kl. 19.00 - 03.00. Pantið borð tímanlega hjá veitingastjóra í síma 29098. GURKUTIÐ Heimilishorn Bergljót Ingólfsdóttit Nú er sannkölluð gúrkutíð, og þá í bókstaflegri merkingu þess orðs, verðlækkun hefur orðið á því ágæta grænmeti vegna mikils framboðs. Það má reyndar segja að agúrkan sé nokkurskonar vor- boði hér á landi, enda fyrsta græn- metistegundin sem berst úr gróður- húsum á borð okkar neytenda ár hvert. Þá er vitað að annað fylgir á eftir. En þó agúrkan hafí ekki verið ræktuð hér nema í nokkra áratugi á hún sér langa ræktunar- sögu, Grikkir munu t.d. hafa neytt hennar nokkrum árhundruðum f. Kr. Agúrkur er hægt að nota á marga vegu við matargerðina eins og allir vita, hún er falleg til skrauts á matarfötin, á smurðu brauði, hún er ómissandi í hrásalatið, hægt er að gera úr henni kalda súpu og nota í samansoðna rétti. Fyllt agiirka með rækjum 1 agúrka, 1 tsk. salt, V4 tsk. pipar, 125 g rækjuslat, sítrónusneiðar, dill Agúrkan þarf helst að vera þykk, hún er skorin þvert í íjóra hluta þar sem hún er breiðust. Kjaminn tekinn úr með skeið, salti og pipar stráð innan í „hylkin" sem síðan eru fyllt með rækjusalati. Sítrónu- sneiðar skomar í tvennt og settur helmingur ofan á til skrauts, dilli stráð yfir. Þetta er ágætis forréttur en einnig hægt að hafa sem með- læti með fiski. Fyllt agúrka með kjöti 1—2 agúrkur, 500 g hakkað kjöt, lítil dós niðursoðnir sveppir, 1 msk. tómatþykkni, u.þ.b. 1 dl. ijómi, salt og pipar. Agúrkunni skipt í tvennt, þvers- um, síðan hvert stykki langsum og úr verða fjórar lengjur úr einni agúrku. Ef vill er hægt að hafa V2—1 agúrku í viðbót og jafna kjöt- inu niður á 6—8 helminga. Kjaminn er tekinn úr agúrkunni sem fyrr. Laukurinn er brytjaður og brún- aður í smjöri á pönnu ásamt hakki og sveppum, látið malla smástund. Tómatþykkni og rjóma bætt út á og látið sjóða saman þar til næstum enginn vökvi er eftir á pönnunni. Bragðbætt með salti og pipar. Kjötið er sett á agúrkuhelmingana vel heitt og borið fram um leið. Fiskur með agúrku 400 g fískflak, roðlaust, 2 tómatar, V2 agúrka IV2 tsk. salt, V4 tsk. pipar, 2 msk. smjör, 1 V2 dl. ijómi, 50 g rækjur. dill. Flakið skorið í stykki, lögð í smurt ofnfast fat, tómatbitar og þykkar agúrkusneiðar lagðar yfír fiskinn. Kryddi stráð á og smjörbitar settir inn á milli og ijómanum hellt yfir. Sett í ofn 180—190°C, og bakað í 20—30 mín. Rækjuniar settar með í lokin og látnar hitna vel. Dilli stráð yfír um leið og borið er fram. Góðar kartöflur ómissandi með. Ef neytendur hafa hugsað sér að gerast hagsýnir og birgja sig upp af agúrkum á meðan að verðið er lágt má geta þess að þær eru ekki vel fallnar til frystingar, þær verða eiginlega alveg að mauki við þá meðhöndlun. Gúrkur geymast ekki mjög lengi í kæliskáp eins og kunnugt er. En það er hægur vandi að geyma agúrkusneiðar í edikslegi og hafa svo sem meðlæti með heitum mat, físki eða kjöti, eða sem álegg á brauð. Agúrkusalat I 2 agúrkur, 1 lítil tsk. salt, 4 msk. sykur, V2 bolli edik, V2 bolli vatn. Agúrkumar skomar í sneiðar, látnar í skál, salti og sykri stráð yfír. Ediki og vatni blandað saman og hellt yfír. Geymist á köldum stað og borið fram kælt. Agúrkusalat II 2 agúrkur, 2 dl. matarolía, 1 tsk. salt, 3—4 msk. edik, 1 tsk. sinnep, 1 msk. sykur. Agúrkumar skomar í sneiðar, salti stráði yfír og látið standa. \ M® A t ö I vu þj á If u n arná mskeiðum TOLVUS KO áhersla á áðírfemeníiur háí tokum á ★ Aðalatriðum várðándifölvúbúna ★ G r u n d va 11 a r awoum t ö Ivu- notkuná NIMIPJI ikerfis og Notkun FO.LV/UJ.aN'AiD' OO (H AfA TR'A.U.STA'N ORMN FTR.IIR LRfJKARA TOLVNN.AM.. ★ No töflafeikms Fyrsta námskeið vetrarins fer fram dagana 5.-23. september, fyrir hádegi. Athugið mogúleika y starfsmenntunarsjóði tilheyrán íSNÁNARI UPPLÝSINGAR OG SKRÁNI ■fé#

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.