Morgunblaðið - 13.08.1988, Side 23

Morgunblaðið - 13.08.1988, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 1988 23 íslendingar eru eina þjóðin á Vesturlöndum þar sem búfjáreigandi ber ekki fulla ábyrgð á fénaði sínum. urinn skerðir tekjur af sauðfjárrækt hjá þeim bændum sem fyrir honum verða, og þar er stundum um veru- legar upphæðir að ræða. Við framtíðarskipulagningu landbúnaðar í þessu landi hlýtur að verða lögð á það áhersla að lag- færa slík mistök. Einnig þurfa for- ystumenn landbúnaðar að hafa for- Gróður og jarðvegseyðing er alvarlegasta umhverfisvandamál þjóð- Með breyttum þjóðfé- lagsháttum eru kröfur um landafnot orðnar fjölþættari. ^ göngu um aukna stjóm á beitinni og endurskoðun á nýtingu afréttar- landa í sama augnamiði. Til álita kemur hvort stjómvöld ættu ekki að hlaupa undir bagga og aðstoða bændur við að girða af beitilönd sín, líkt og gert var á Nýja-Sjálandi á sínum tíma. Nútímaþjóðfélag gerir kröfur til þess að búféð sé innan girðinga eins víða og við verður komið. Þetta annnar. er regla sem t.d. Danir komu á fyrir meira en 150 ámm. Með nýtísku rafgirðingum er slíkt miklu auðveldara og ódýrara en áður var. Ymsir bændur em þegar famir að hólfa land sitt niður með girðingum, eins og starfsbræður þeirra erlend- is, og beita þau til skiptis með hlið- sjón af næringargildi gróðurs. Þannig ná þeir auknum afurðum. Þetta er það sem koma skal, því þama fara framleiðni- og gróður- vemdarsjónarmið saman. Girðingar em reyndar forsenda þess að unnt sé að ná tökum á gróðurvemdinni, hér sem annars staðar. Kröfur um friðun viðkvæmra eða illa leikinna afréttar- og heimalanda em að verða sífellt háværari. Þess- ar kröfur em svo sem ekki nýjar af nálinni. Þær hafa t.d. verið sett- ar fram af öllum landgræðslustjór- um sem starfað hafa hér á landi — án þess að stjómvöld hafi haft ein- urð til að takast á við þær. Þannig lagði fyrsti sandgræðslustjórinn, Gunnlaugur heitinn Kristmundsson, það oft til í ræðu og riti á fyrra helmingi aldarinnar — að á eld- fjallasvæðum landsins yrði ein- göngu stundaður ræktunarbúskap- ur en sauðijárbúskapur hins vegar á þeim jörðum sem þola betur beit. Á þessu belti er allur gróður mjög viðkvæmur og uppblásturshætta mikil ef út af ber. Viðhorf Landgræðslunnar til nýt- ingar þessa landsvæðis em enn óbreytt, en nú hafa þau loks hlotið þann hljómgmnn að von er til að fá framgengt fleiri nauðsynlegum úrbótum sem stuðli að aukinni gróð- urvemd. Nú er svo komið að gróðurhula sumra afrétta á Suðurlandi er að- eins á bilinu 5—15% af heildarflat- armáli þeirra. Það er ljóst að svo lítil gróðurhula stafar einkum af jarðvegseyðingu í tímans rás sem Melgresið er eina plantan sem getur bundið sandfok — og það þarf frið til að vaxa. Það er fráleitt að flytja fé úr gróskumiklum sveitum til beitar á auðnir miðhálendisins. Hver á að girða sig af, sá sem viU rækta sitt land eða eigandi búfj árins? orsakast hefur af samverkandi áhrifum búfjárbeitar, eldvirkni og erfiðra veðurskilyrða. í rauninni er það fátt sem réttlætir áframhald- andi beit á slíkum svæðum, alira síst nú á tímum offramleiðslu í sauðfjárrækt,. Gmndvöllur fyrir nýtingu sumra þessara afréttar- landa er reyndar þegar brostinn, bæði vegna þess hve gróðurinn er orðinn rýr og kostnaður við nýtingu þeirra óheyrilega mikill miðað við þann fjárfjölda sem á þeim gengur. Þannig mætti nefna að á einum afrétti með rúmlega 5% gróðurlendi Gróðurhula sumra af- rétta á Suðurlandi er aðeins á bilinu 5—15% af heildarf latarmáli þeirra. ^ námu fjallskil í fyrra rúmlega 800 þúsund krónum — en á fjalli gengu um 1.400 lambær! Algengt er að slíkur kostnaður deilist niður á alla sauðflárbændur í viðkomandi sveit- arfélagi — óháð því hvort þeir eiga kind á fjalli eða eru með allt fé sitt í heimahögum. Mörgum er það þvert um geð að þurfa að greiða verulegar fjárhæðir fyrir fjallskil á fénaði annarra, þar að auki oft gegn sannfæringu sinni vegna ólíkra skoðana á beitarmálum. Vaxandi óánægju gætir því í mörgum sveitum með áframhald- andi upprekstur, einkum sunnan- lands þar sem graslendi er víða mikið í byggðum en afréttir við- kvæmir og illa leiknir. Auðvelt ætti að vera að tryggja vemdun þeirra með aukinni hagræðingu — ef vilji er fyrir hendi og samstaða næst. Mestu uppblásturssvæði landsins er nú að finna í Þingeyjarsýslum. Þar virðast aðstæður að mörgu leyti svipaðar og voru í Landsveit, á Rangárvöllum og víðar á Suður- landi í upphafi aldarinnar. — Sand- urinn er þar víða að leggja grósku- mikið land í auðn án þess að kom- ist hafi verið fyrir rætur eyðingar- innar. Menn verða að rífa sig úr viðjum vanans því á þessum við- kvæmu svæðum stoiðar ekkert nema náð sé fullkomnum tökum á búfjárbeitinni. Rétt er að taka það fram að gróð- ur er víða í góðu ástandi — þ.e. ekkert er athugavert við nýtingu mjög stórra landsvæða. En augu okkar landgræðslumanna og al- mennings beinast fyrst og fremst að þeim svæðum sem þola beitina verr og hafa farið illa út úr landnýt- ingunni. Ég tel blasa við augum að á næstu árum muni verða stórfelldar breytingar á nýtingu landsins — og það af ýmsum ástæðum. Fram á allra síðustu ár miðaðist landnýting fyrst og fremst við beit. Með breytt- um þjóðfélagsháttum eru kröfur um .landafnot hins vegar orðnar §öl- þættari. Friðun lands og efling aðl- aðandi gróðurs t.d. til útivistar er þannig orðið eitt af markmiðum landgræðslu og gróðurvemdar. Stjómvöld, og þar með Landgræðsl- an, verða að koma til móts við slíkar kröfur eftir því sem við á, t.d. með friðun Reykjanesskaga, Þórsmerk- ur og fleiri svæða þar sem sauð- fjárbeit á ekki lengur við. Annars vegar er því um að ræða að bæta fyrir syndir forfeðranna — sem er skylda hvers samfélags — og hinsvegar að taka okkur sjálfum tak með skynsamlegri nýtingu lands í nútíð og framtíð. Þar hafa bændur landsins þyngstum skyld- um að gegna — því enn er langmest- ur hluti landsins opinn fyrir beit. Eins og ég sagði áður em ýmsir samverkandi þættir orsakir upp- blásturs og jarðvegseyðingar, en yfir 3 milljónir hektara hafa orðið örfoka frá því er land byggðist. Margir, og ekki síst ýmsir bændur og forystumenn þeirra, hafa viljað skella meginskuldinni á veðurfar og eldvirkni, sem vitaskuld hafa haft mikil áhrif — en þeir gæta þess ekki að landnýtingin er eini þátturinn sem við getum haft ein- hveija stjóm á. Þannig hefur til- hneigingar gætt hjá mörgum í land- búnaði að víkjast undan skyldum sínum við landið — í stað þess að reyna að hafa sjálfir forystuna um að laga búskapinn betur að land- gæðum. Ef atvinnuvegurinn á hér eftir sem hingað til að njóta hylli þjóðarinnar og samúðar á þrenging- artímum bænda verður hann að koma til móts við kröfur hennar um aukna gróðurvemd." Gróðurvemdarmálum á íslandi verða að sjálfsögðu ekki gerð full- nægjandi skil í stuttu viðtali en þess má geta að í næsta mánuði kemur út bók sem ber heitið GRÆÐUM ÍSLAND og er tileinkuð 80 ára afmæli Landgræðslu ríkis- ins. Þar er mikinn fróðleik að finna um störf landgræðslunnar frá upp- hafi og gróðursögu landsins fram til þessa. H.V.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.