Morgunblaðið - 13.08.1988, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 1988
M«27
t*æ- i • | ••• __ • neuier
Mesti kjorgripur
Ýmsir hafa talið að eyðing skóglendis væri yfirvofandi vegna
mikillar pappirsnotkunar. Afleiðingar þess hafa verið til sérstakr-
ar athugunar lyá þeim á Taipei varðandi möguleikann á því að
klósettpappír gæti skort. Á sýningu, sem nú er haldin þar eystra,
kemur í Ijós að tæknimenn þar hafa leyst þennan vanda með þvi
að finna upp þetta stórmerkilega hreinlætistæki sem gerir klósett-
pappír með öUu óþarfan. í frétt um sýninguna segir að vélin sé
helzti kjörgripur hennar. Hún er tölvustýrð og sjá kröftugar
vatnsbunur og loftblástur um lokalið þessarar athafnar sem al-
mennt er talin persónulegust allra.
Noregur og EB:
Deilt um aflamörk við
Júgóslavía:
Þjóðernisbar-
átta Serba
helduráfram
Nova Pazova. Reuter.
SERBAR hópuðust saman { Voj-
vodina-héraði i Júgóslayíu í gær
tíl að lýsa yfir stuðningi við kröfu
formanns kommúnistaflokksins i
sambandsríkinu Serbíu um að hér-
uðin Kosovo og Vojvodina verði
sett undir bein yfirráð stjómar-
innar í Serbíu.
Með mótmælunum vilja Serbamir
fá yfiryöld í Kosovo og Vojvodina til
að fallast á stjómarskrárbreytingu
sem gerir ráð fyrir að hémðin tvö
verði hluti Serbíu og missi núverandi
sjálfsforræði sitt.
Yfirvöld Í.Kosovo hafa ekki tekið
kröfu Serbanna vel og segjast neydd
til að taka tillit til meirihluta íbú-
anna. Átta af hveijum niu íbúum í
Kosovo em Albanir. Af íbúum Voj-
vodina, sem em tvær miljónir, em
55% Serbar og 45% Ungveijar.
Mótmælin í gær fóm fram i bæn-
um Nova Pazova u.þ.b. 20 kílómetra
frá Belgrad, höfuðborg Júgóslavtu.
Serbar í Nova Pazova, sem em ákaf-
ir stuðningsmenn Milosevics, leið-
toga kommúnistaflokksins i Serbíu,
hafa mikið látið að sér kveða í mót-
mælum að undanfömu.
Talið er að barátta Serba í Kosovo
og Vojvodina muni ná hámarki sinu
með fjöldafundi sem boðað hefur
verið til í Belgrað um miðjan septem-
ber.
Svalbarða
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunbladsins.
Framkvæmdastjórn Evrópu-
bandalagsins hefur hafnað tillög-
um Norðmanna um niðurskurð á
þorskafla bandalagsins við Sval-
barða. Vegna lélegs ástands
þorskstofnsins á þeim slóðum,
hafa Norðmenn lagt til 22% nið-
urskurð á aflaheimildum bæði
sinna eigin skipa og EB. Banda-
lagið vill hins vegar ekki fallast
á meiri niðurskurð en 12% til
eigin flota.
Samningur Norðmanna og EB
gerir ráð fyrir 21 þúsund tonna
þorskafla við Svalbarða á þessu
ári. Bandalagið hefur lýst sig reiðu-
búið til að minnka hann í 18.500
tonn eða um 12%. Ljóst er að
ágreiningur er um þessa tillögu
framkvæmdastjómarinnar bæði af
hálfu Norðmanna, sem telja hana
ganga allt of skammt, og eins innan
bandalagsins sjálfs en Spánveijar
t.d., sem úthlutað var 9.500 tonn-
um, hafna öllum niðurskurði. Fiski-
mið við Svalbarða em undir sameig-
inlegri stjóm Sovétríkjanna og Nor-
egs; bæði ríkin hafa fallist á að
draga úr sókn flota sinna. Gert var
ráð fyrir 630 þúsund tonna þorsk-
afla við Svalbarða á þessu ári sem
eftir niðurskurðinn verður 491 þús-
und tonn. Hlutdeild EB í þessum
afla er nálægt 3,2%.
í erindi, sem framkvæmdastjóm
EB sendi ríkisstjómum aðildarríkj-
anna, kemur fram að EB fellst á
röksemdir Norðmanna fyrir nauð-
syn friðaraðgerða en bent er á að
hlutfallslega muni niðurskurðurinn
koma harðast niður á fiskimönnum
bandalagsins. Aðstæður þeirra til
að sækja á þessi mið séu mun verri
en sovéskra eða norskra físki-
manna. Þá beri og að líta á að hlut-
deild þeirra í heildaraflanum sé lítil.
Það sé því réttlætanlegt að skerðing
bandalagsins sé helmingur þeirrar
skerðingar sem Norðmenn og Sov-
étmenn taka á sig. Norsk stjóm-
vöid halda hins vegar fast í þá kröfu
að EB minnki afla sinn í 16.200
tonn. Vegna sumarleyfa í Brussel
verður ekki unnið að íausn þessara
deilna fyrr en í september.
Eftirlitsmenn með kjarnorkutilraunum
Rússa gómaðir:
Ætluðu að smygla grjóti,
gaddavír og skrúflykli
Washington. Reuter.
Bandaríkjastjóm viðurkenndi um hefði mátt fá upplýsingar um
í gær að þrír bandarískir jarð- sovézkar kjamorkusprengingar.
fræðingar, sem fylgdust með Marlin Fitzwater, talsmaður
Iqarnorkutilraunum Sovét- Bandaríkjastjómar, sagði í gær að
manna, hefðu verið staðnir að mennimir hefðu verið gripnir við
verki er þeir reyndu að smygla „óleyfilega minjagripasöfnun." í
gtjótsýnum og ýmsu dóti burt fórum þeirra fimdust gijótsýni,
af tilraunasvæði 17. júlí sl. gaddavírsbútar, skrúflykill ogham-
Talið er að atvikið geti komið ar. Samkvæmt samningi risaveld-
sér illa fyrir Bandaríkjamenn á anna er óheimilt að taka nokkum
sama tíma og samningi risaveld- skapaðan hlut burt af tilrauna-
anna um eyðingu meðaldrægra svæðum, ekki einu sinni búnað,
kjamaflauga er hrint í framkvæmd sem viðkomandi eftirlitsmenn hafa
og samtímis þvi að þau sýna batn- komið upp og notað.
andi sambúð í verki með því að
ræða sameiginlegar kjamorkutil- Jarðfræðingamir eru starfs-
raunir. ménn verktakafyrirtækis, sem
Bandarísk yfirvöld neituðu því í Bandaríkjastjóm réð til þess að
gær að mennimir hefðu verið fylgjast með kjamorkutilraunum
staðnir að njósnum. í gijótsýnun- Sovétmanna.
Hjartans kveðjur ogþakkir til allra, sem glöddú
mig á 80 ára afmœlisdaginn með heimsóknum,
gjöfum og skeytum.
GuÖ bléssi ykkur öll.
GuÖný Björnsdóttir.
Til sölu
Þessi gullfallegi antik
kolaofn er til sölu
á 120.000 kr.
Upplýsingar í síma
93-12817.
Sérblað
á miðvikudögum
Hvaðerí =~=-
blaðinu? 5*---
d
Myndasögur, þrautír og efni
frá börnum.
Auglýsingar í barnablaðið
þurfa að hafa borist
auglýsingadeild fyrir
kl. 17.00. á föstudögum.
3M*vgunfcIaMfe
- blað allra landsmanna
Breiðholt — Bolholt
Ýfj.
17. ágústtil 1. sept.
í form fyrir veturinn!
90 tíma hörkupúl, og svitatímar
Innritunarsími 83730 frá kl. 16-19
P.s. Karl Barbee frá N.Y.
kemur í september.