Morgunblaðið - 13.08.1988, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 13.08.1988, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 1988 Útgefandi tnHiifeife Árvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar MatthíasJohannessen, Styrmir Gunnarsson. Aðstoðarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, ÁrniJörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ÁgústlngiJónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, simi 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 70 kr. eintakið. Martröð húsnæðiskerfisins Miklar vonir voru bundnar við nýja húsnæðiskerfíð sem kom til framkvæmda í september 1986 eftir að náðst hafði samkomulag um breytta skipan húsnæðismála í lqara- samningum í febrúar fyrr á sama ári. Lána átti allt að 70% af íbúðarverði til 40 ára á breytilegum vöxtum, sem hingað til hafa verið 3,5% raunvextir. Nýja húsnæðis- kerfíð átti að fjármagna með skuldabréfakaupum lífeyns- sjóða. Strax í upphafí sáust hættu- merki á lofti. Nefnd sem vann að tillögum um húsnæðismál í kjölfar febrúarsamninganna 1986 benti á að ef „mismunur- inn á vöxtum og á teknum lánum og veittum hjá Bygg- ingarsjóði ríkisins [verður] meiri en 2-3% til lengdar, mun lánakerfíð sligast," þar sem ríkissjóður þurfti að greiða mismuninn. Síðan segir í áliti nefndarinnar: „Þannig sýna dæmi, sem tekin hafa verið um 5-6% vaxtamun til langs tíma, að slík niðurgreiðsla krefðist sífellt meiri ríkisfram- laga og lántöku hjá lífeyris- sjóðum. Þetta gæti aðeins staðið mjög skamma hríð og hlyti að kalla á gagngera end- urskoðun þessara mála og breytingu á lögum.“ Nú þegar tveggja ára reynsla er komin á nýja hús- næðiskerfíð sést glögglega að eitthvað mjög alvarlegt er að. Félagsmálaráðherra sagði á Alþingi í vetur að ef ekkert yrði að gert myndi Byggingar- sjóður fara að ganga á eigið fé innan nokkurra ára og fljót- lega verða gjaldþrota. Vegna hinna niðurgreiddu vaxta á húsnæðislánum hefur eftirspumin eftir þeim verið gríðarleg. í mars á síðasta ári þurfti Húsnæðisstofnun að hætta að senda út lánsloforð þar sem það fjármagn sem hún hafði til ráðstöfunar var ein- faldlega á þrotum. Útsending lánsloforða hófst síðan í byrjun þessa árs. A þeim mánuðum sem liðu frá þvií að kerfínu var lokað og þar til það var opnað á ný bárust Húsnæðisstofnun 5800 lánsumsóknir og ekkert látvirðistveraþar á. Ihveijum mánuði berast um 430 lánsum- sóknir til viðbótar en útsend lánsloforð eru um 250. Biðröð- in eftir húsnæðislánum heldur því áfram að lengjast. Biðtími eftir lánum hefur hingað til verið um tvö ár en nú stefnir í það að hann verði 3-4 ár. Sá hópur sem á hvað erfíð- ast uppdráttar í þessu kerfí er unga fólkið sem er að fara eignast sitt fyrsta húsnæði. Á meðan beðið er eftir hús- næðisláni verður það oftast að leita á náðir leigumarkaðarins. Slíkt væri kannski hægt að þola í skamman tfma en ekki í 3-4 ár eins og staðan á leigu- markaðinum er í dag. Framboð á leiguhúsnæði er mjög tak- markað og það sem er til stað- ar ér dýrt óg erfítt að fá til lengri tíma. 25.000 til 35.000 krónur í leigu á mánuði fyrir litla íbúð er fremur regla en undantekning. Hvemig á fólk með meðaltekjur, sem greiðir fyrmefndar upphæðir, eða enn hærri, í leigu á hveijum mán- uði, að leggja fyrir fé til íbúð- arkaupa? Þetta kerfí hefur haft hörmulegar afleiðingar í för með sér fyrir fjölda fjöl- skyldna. í örvæntingu sinni selur þetta fólk oft lánsloforð sín með miklum afföllum og flármagnar það sem upp á vantar með dýmm skamm- tímalánum. Slíkt gerir því enn erfíðara fyrir að standa í skil- um með skuldbindingar sínar. Talið er að sá hópur sem lent hefur í alvarlegum erfíðleikum vegna húsnæðiskaupa telji vel á annað þúsund fjölskyldur. Sundraðar fjölskyldur eða fjöl- skyldur í of þröngu, ófullnægj- andi og jafnvel h'eilsuspillandi húsnæði skipta síðan hundmð- um. Rétturinn til húsnæðis er eitt biýnasta mannréttindamál okkar tíma ekkert síður mikil- vægara en rétturinn til atvinnu og menntunar. Það á að vera eitt af helstu forgangsverkefn- um stjómvalda að búa fólki þannig í haginn að það geti notið þessara mannréttinda með eðlilegri fyrirhöfn. Það er ekki hægt í dag. Eins og hið nýja kerfí var kynnt á sínum tíma leit það mjög vel út. Ef ástandið er hins vegar skoðað í ljósi reynsl- unnar sést að það hefur ekk- ert batnað frá því sem var. Opinber heimsókn Þorsteins Pálssonar forsætisráóherra Morgunblaðið/RAX Frá athöfninni i þjóðkirkjugarðinum í Arlington. Þar lagði Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra blómsveig að minnismerki óþekkta hermannsins. Þá vom þjóðsöngvar íslands og Bandaríkjanna leiknir og hleypt var af 19 fallbyssuskotum tíl heiðurs forsætisráðherra. Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra í Bandaríkjunum: Lagði krans að minn- isvarða óþekkta her- mannsins í Arlington Heimsótti eina stærstu flotastöð heims Washington. Frá Ola Birni Kárasyni, fréttaritara Morgunblaðsins. ÞORSTEINN Pálsson, forsætis- ráðherra, lagði krans að minnis- varða óþekkta hermannsins í Arlington, þjóðkirkjugarði Bandaríkjanna, í gærmorgun. Við athöfnina vom þjóðsöngvar íslands og Bandaríkjanna leikn- ir. Síðar um daginn var flogið í forsetaflugvél, sem er sú flugvél sem George Bush, varaforseti Bandarikjanna, notar, til Nor- folk, en þar er ein stærsta flota- stöð heims. Þar skoðaði forsætis- ráðherra USS Theodore Roose- velt, nýjasta flugmóðurskip. Bandaríkjaflota. Athöfnin í Arlington hófst með því að gengið var fram hjá fána- borg, og var gengið með íslenska fánann á eftir forsætisráðherra. Síðan voru leiknir þjóðsöngvar land- anna og lagður krans á minnis- merki óþekkta hermannsins. Þá var einnig skoðað safn í kirkjugarðin- um. 19 fallbyssuskotum var hleypt af til heiðurs forsætisráðherra. Frá þjóðkirkjugarðinum var ekið til Ardrew’s-herflugvallarins og flogið til Norfolk, þar sem Banda- rílq'afloti hefur eina stærstu flota- stöð í heimi. Lee Baggett, flotafor- ingi ingi og yfirmaður flotastöðvar- innar, tók á móti forsætisráðherra og fylgdarliði hans. Þeir áttu síðan fund saman þar sem rædd voru öryggis- og vamarmál, sérstaklega á Atlantshafi. Eftir það var farið um borð í nýjasta flugmóðurskip Bandaríkjanna, USS Theodore Ro- osevelt, sem er kjamorkuknúið. Þar var snæddur hádegisverður og skip- ið skoðað. Að því loknu var farið aftur til Washington. Opinberri heimsókn Þorsteins Pálssonar til Bandaríkjanna lýkur í dag, laugardag. Eftir að minningarathöfninni lauk George Bush, varaforseti Bandarí Þorsteins Pálssonar, Þorsteinn, N á íslandi, Ingvi Ingvarsson, sendihe Um borðí USS Theodore Roosevelt Forsætisráðherra skoðaði nýjasta flugmóðurskip Bandaríkjaflota I gær þegar hann heimsótti flotastöðina í Norfolk. USS Theodore Roosevelt var tekið í notkun í óktóber 1986. Skipið er kjarnorkuknú- ið og eru skipveijar rúmlega 6200 talsins. Tvær sjónvarpsstöðvar og útvarpsstöðvar eru um borð, körfuboltalið, leik- og afþreyingar- salir. Skipherra er Dayton W. Ritt og tók hann á móti forsætisráð- herra og fylgdarliði hans.Á neðri myndinni tekur forsætisráðherra við bók sem Dayton W. Ritt færði honum að gjöf. Lengst til hægri er Lee Bagget, yfirmaður flotastöðvarinnar í Norfolk, en við hlið hans stendur Nicholas Ruwe, sendiherra Bandaríkjanna á íslandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.