Morgunblaðið - 13.08.1988, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 13.08.1988, Qupperneq 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 1988 Kaupfélag Svalbarðseyrar: Bændurnir fá til- boð frá Sambandinu Bændurnir átta, er gengn á sínum tíma í persónulegar ábyrgðir fyrir hönd Kaupfélags Svalbarðseyrar, hafa nýverið fengið ákveðið tilboð frá SÍS. Ekki hefur fengist uppgefið í hverju tilboðið felst, en að sögn —.Tryggva Stefánssonar á Hallgils- stöðum fyrrverandi stjórnar- formanns KSÞ er um að ræða beinan fjárstuðning til lækkunar þeim kröfum sem á búunum hvila. „Tilboðið er athugunarvert að okkar mati og erum við þessa dag- ana að skoða málið. Við höfum ósk- að eftir frekari skýringum frá Sam- bandinu og bíðum eftir svari þar um. Okkur sýnist tilboðið ekki leysa mjög mikinn vanda, en á meðan Sambandið sýnir vilja til lausnar málinu er það af hinu góða,“ sagði Tryggvi. Hann sagðist helst vilja koma málinu í höfn áður en Valur Amþórsson stjómarformaður Sam- bandsins léti af störfum því erfiðara yrði að koma nýjum manni inn í allt það sem á undan væri gengið. Utgerðarfélag Akureyringa: Flökunarvél lofar góðu NÝJA flakaskurðarvélin, sem Út- gerðarfélag Akureyringa hefur verið að prufukeyra í sumar, lofar góðu að sögn Gfsla Konráðssonar '"'íramkvæmdastjóra og er fastlega gert ráð fyrir kaupum á vélinni þegar reynslutímanum líkur eftir nokkra mánuði. Vélin sker flökin með hárflnni vatnsbunu, 0,4 millimetrar að sver- leika, eftir útreikningi tölvu til að ná sem mestri hagkvæmni út úr hveiju flaki. Vélin er bandarísk, nú í eigu Coldwater Seafood Corpora- tion. „Ákvörðun um kaup á vélinni liggur ekki fyrir, en okkur sýnist hún skila árangri. Við fáum betri nýtingu úr flakinu og náum stærri hluta af flakinu í verðmeiri pakkningar en áður. Vélin sker flökin niður eftir ormahreinsun og er tölvustýrð. Hún tekur í fyrstu mynd af flakinu til að reikna út hvemig skera megi það þannig að hvert stykki nái sem mestri nýtingu," sagði Gísli. Vélin er sú eina sinnar tegundar í heimin- um, en hún er byggð eftir teikningum sams konar vélar, sem notuð hefur verið í laxaskúrð vestanhafs. Blaðburðarfólk óskast í eftirtalin hverfi: Bjarkarstíg, Helgamagrastræti, Munka- þverárstræti - Brekkugötu, Klapparstíg. PtnrjjímÍJ ití» Uppl. á afgreiðslu Morgunblaðsins, Hafnarstræ’ti 85, Akureyri, sími 23905. Morgunblaðið/Rúnar Þór Hluti hópsins hélt af stað um miðjan dag í gær frá Umferðamiðstöðinni á Akureyri. Akureyringar fjölmenna á vinabæjamót í Randers Vinabæjamót hefst í Randers í Danmörku á morgun, sunnudag, og stendur í viku. Randers er vinabær Akureyrar og halda 54 Akureyringar utan í dag. Aðaláhersla verður lögð á myndlist og tónlist, en yfirleitt hafa samskipti vinabæjanna verið á sviði íþrótta- og æskulýðsmála. Tuttugu manna hópur stór- sveitar Tónlistarskólans á Akur- eyri, svokallað Big Band, verður á meðal þátttakenda auk þriggja nytjalistarmanna, þeirra Margr- étar Jónsdóttur, Jóns Geirs Ágústssonar og Ásdísar Frímannsdóttur. Tveir fulltrúar frá Norræna félaginu fylgja hópnum. íþróttakennarar fjalla um íþróttamál á mótinu og ungl- ingar fjalla um myndlist í menntaskóla, framtíðarbæ og myndbandagerð. Fararstjórar í ferðinni verða Þorleifur Þór Jónsson atvinnumálafulltrúi, Ingólfur Armannsson skóla- og menningarfulltrúi og Hermann Sigtryggsson íþrótta- og æsku- lýðsfulltrúi. Af hálfu bæjar- stjómar fara þær Úlfhildur Rögnvaldsdóttir og Bergljót Rafnar. Vinabæir Akureyrar auk Randers eru Álasund í Noregi, Lahti í Finnlandi og Vasteras í Svíþjóð. Fulltrúar allra þessara bæja fjölmenna einnig á mótið. Jafnhliða vinabæjamótinu verður haldin árleg Randers-vika. Siík vika hefur farið fram síðustu tólf árin og er mikill hátiðarbrag- ur á bænum á meðan vikan stendur. Vinabæjamótið í Rand- ers er fyrsta mótið í fimm ára áætlun þar sem ætlunin er að stefna að mun víðtækara sam- starfi en til þessa hefur tíðkast. Kaffisala að Hólavatni RIKISUTVARPID AAKUREYRI Þáttur um 70 ára afmæli Sigluf jarðar á Rás tvö í kvöld kl. 19.30. Margrét Blöndal sér um þáttinn, en Siglfirðingarnir Karl E. Pálsson og SigurðurT. Björgvinsson koma einnig viðsögu. Margrét Blöndal Kaffisala verður í sumarbúð- um KFUM og KFUK að Hóla- vatni á morgun, sunnudag, á milli kl. 14.30 og 18.00, en venja er að sumarstarfinu ljúki með kaffisölu. í sumar hafa tveir hópar drengja og tveir hópar stúlkna dvalið að Hólavatni undir stjóm Björgvins Jörgenssonar og Þóreyjar Sigurðar- dóttur. Kaffisalan er liður I ljáröfl- unarstarfí félaganna og hún gefur einnig velunnurum starfsins og öðr- um tækifæri til að koma að Hóla- vatni og skoða sumarbúðimar. Kaffísala á Hólavatni hefur verið mjög vel sótt undanfarin ár og greinilegt er að margir líta á það sem fastan þátt að aka fram Eyja- fjörðinn og fá sér kaffi að Hóla- vatni. Bifreiðastjórar: Hafið bílbænina í bílnum og orð hennar hugföst þegar þið akið. Fæst í Kirkjuhúsinu, Klapparstíg 27, í verslun- inni Jötu, Hátúni 2, Reykjavík og í Hljómveri, Akureyri. Verð kr. 50,- Orð dagsins, Akureyri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.