Morgunblaðið - 13.08.1988, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 1988
Stiörnu-
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
11. hús
Lykilorin fyrir 11. húsið eru
hópsamvinna, félög, kunn-
ingjar, vonir, óskir og framtíð-
arhugleiðingar. Það er skylt
Vatnsbera og Úranusi/Sat-
úmusi.
Hópsamvinna
Þegar við höfum komið okkur
fyrir í þjóðfélaginu, í 10. húsi,
tökum við að víkka sjónarsvið
okkar enn frekar. í fyrstu ttu
húsunum byggjum við per-
sónulegt ég, þroskum félags-
lega hæfileika, uppskerum
laun erfiðis okkar og náum
hápunkti í persónulegri þróun
í starfi okkar. í 11. og 12.
húsi reynum við að ganga
lengra og komast út fyrir
égið. Við reynum að koma
draumum okkar um þjóðfé-
.lagið í framkvæmd með því
að vinna með öðrum í félags-
legu starfi. 11. húsið er tákn-
rænt fyrir hópsamvinnu og
þann skilning mannsins að
hann kemst lengra með því
að vinna með öðrum heldur
en einn síns liðs. Munurinn á
7. húsi og því 11. er að það
fyrra er táknrænt fyrir náið
samstarf, oftast milli tveggja
aðila, en hið síðara fyrir hóp-
samstarf.
Félagsvitund
Það er í 11. húsi sem við
skynjum áþreifanlega að við
erum hluti af stærri heild, eða
stóru iðandi mannfélagi. Þeg-
ar þessi skynjun hefur einu
sinni vaknað hættum við að
hugsa eingöngu um sjálf okk-
ur og förum að hugsa um
þjóðfélagsheildina. Það má
segja að 11. húsið hafí með
félagsvitund mannsins að
gera. Ifyrir einn mann getur
það verið bæjarfélagið, fyrir
annan þjóðfélagið og fyrir
þann þriðja heimurinn allur.
Aðalatriðið er að horft er út
fyrir hið persónulega.
Umbœtur
Félagsvitund 11. húss hefur
töluvert með umbætur að
gera, eða Úranusarhlið húss-
ins. í níunda húsi eru samin
lög fyrir félagslegt samstarf,
í því tfunda verða lögin að
kerfum. Með tímanum breyt-
ast aðstæður hins vegar og
alltaf verða einhveijir hópar
útundan. í 11. húsi fer þvf
fram barátta fyrir bættum
heimi og endurskoðun á lög-
um og reglum. Líklegt er t.d.
að maður sem hefur Mars þar
verði frekar ákafur í baráttu
sinni fyrir betri aðstæðum sér
og sfnu félagi til handa. Hann
er líklegur til að vera athafna-
samur í félagsstarfi. Maður
sem hefur Úranus eða Plútó
f 11. húsi er á hinn bóginn
næmur á það sem miður fer
f mannlegu samfélagi og vill
breyta þar töluverðu. Þegar á
heildina er litið hugsar 11. hús
maðurinn töluvert um fram-
tíðina.
Félagslíf
Það að hafa margar plánetur
í 11. húsi þarf ekki alltaf að
tákna það að beijast fyrir
bættu þjóðfélagi, en getur
fullt eins þýtt það að vilja lifa
fjölbreytilegu félagslffi og
hafa mikið af fólki í kringum
sig í daglegu lífi. Það getur
t.d. birst í því að vinna á
mannmörgum vinnustað.
Pláneturí 11. húsi
Plánetur og merki í 11. húsi
segja til um það hvernig við
vinnum sem hluti af þjóðfé-
laginu og skynjum hlutverk
okkar innan þess. Plánetur
þar hafa einnig mikið með það
að gera hvemig félög við
sækjum í og hvemig vini og
kunningja við umgöngumst.
Maður sem hefur Venus f 11.
húsi gæti t.d. laðast að lista-
mönnum og viljað taka þátt 1
félagsstarfi sem hefur það að
markmiði að bæta og fegra
heiminn.
GARPUR
EG NÝT þess /tO vee/ HÖfVes-
MfiÐUZ LÍFVfifSPAZ/NS, AVRANDfi .,
N/r V/fíD/NGAe /WNNA fiAANNA,
'ASyRiSÐARJNNAR OS JAFNVEL
Það ERPÁSA/HL EGTAO VERNDA tCON—
UNQSfilKIO, EN ÉGHEEÐ! EKNENT Ý MÓT/
ÞV! AO E/NHVER. HEFOt 'AHVGGJOR AF~
AB HUGSA UA1 A4lS H
GRETTIR
UÓSKA
FERDINAND
SMAFOLK
THERE5 AL10AY5
SOMEBOPY REA VH
T0 R6MIHP YOL)
OF THE PUMB
THIN65 YOUPIP
UIHEN YOU WERE
YOUNS..
© 1988 Unlted Feature Syndicate, Inc.
EZÉHU/F A-z
Þú varst vanur að hoppa
upp og niður og allt í kring
þegar kom að kvöldmatn-
um.
Alltaf er einhver reiðubú-
inn að minna mann á
heimskupör æskunnar...
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Oft er hægt að reikna út
skiptinguna af fullkominni ná-
kvæmni. Hitt er þó algengara
að nauðsynlegt sé að lesa í sagn-
ir og gefa sér litalengdir út frá
því.
Austur gefur; allir á hættu.
Norður
♦ 10852
?K
♦ Á64
+.KD973
Austur
VG107G432
♦ KD2
♦ Á10
Suður
♦ ÁKD74
♦ G873
♦ G865
Vestur Norður Austur Suður
— — Pass 1 spaði
Pass 2 lauf 2 lyörtu 3 lauf
3 hjörtu 4 spaðar 5 hjörtu 5 spaðar
Dobl Pass Pass Pass
Vestur
♦ 963
♦ ÁD985
♦ 1095
♦ 42
Útspil: hjartaás.
Þegar sagnhafi hafði lokið nauð-
synlegri hreingemingu í svörtu litun-
um þurfti hann að lesa skiptinguna í
rauðu litunum áður en hann tœki
ákvörðun um framhaldið. Austur
hafði sýnt þijú svört spil og átti þar
með 10 rauð. En hvernig skiptust þau
— 8—2, 7—3 eða 6—4? Ef sagnhafi
tekur austur með fjóra tígla er senni-
lega best að spila tígulás og tfgli í
þessari stöðu:
Norður ♦ 10
Vestur V- ♦ Á64 ♦ - Austur
♦ - ♦ -
VD II VG
♦ 1095 ♦ KD2
♦ - ♦ - .
Suður ♦ 7 V- ♦ G87 ♦ -
Þá vinnst spilið ef vestur á
Kx eða Dx í tígli. Hinn mögu-
leikinn (sem leiðir til vinnings)
er að spila litlum tígli og treysta
á að austur eigi hjónin.
Sem sagnhafi gerði. Hann
ályktaði sem svo að austur hefði
opnað með áttlit (hann sagði
pass í upphafi) og vestur
strögglaði strax með sexlit!
Ergó: hjartaskiptingin var 7—5.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pótursson
Á opnu móti í Kaupmannahöfn
í sumar kom þessi staða upp i
skák Norðmannsins Rune Djur-
huus, sem hafði hvitt og átti leik
og danska alþjóðameistarans
Klaus Berg.
31. Dh5+! og svartur gafst upp
þvi hann er óveijandi mát i næsta
leik. Karl Þorsteins náði mjög
góðum árangri á þessu móti, varð
í 2.-4. sæti ásamt stórmeisturun-
um Groszpeter, Ungveijalandi, og
Kupreitschik, Sovétrfkjunum með
7 v. af 10 mögulegum. Sigurveg-
ari varð hinn frægi sovézki stór-
meistari Rafael Vaganjan með 8 v.