Morgunblaðið - 13.08.1988, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 13.08.1988, Qupperneq 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 1988 Stiörnu- Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson 11. hús Lykilorin fyrir 11. húsið eru hópsamvinna, félög, kunn- ingjar, vonir, óskir og framtíð- arhugleiðingar. Það er skylt Vatnsbera og Úranusi/Sat- úmusi. Hópsamvinna Þegar við höfum komið okkur fyrir í þjóðfélaginu, í 10. húsi, tökum við að víkka sjónarsvið okkar enn frekar. í fyrstu ttu húsunum byggjum við per- sónulegt ég, þroskum félags- lega hæfileika, uppskerum laun erfiðis okkar og náum hápunkti í persónulegri þróun í starfi okkar. í 11. og 12. húsi reynum við að ganga lengra og komast út fyrir égið. Við reynum að koma draumum okkar um þjóðfé- .lagið í framkvæmd með því að vinna með öðrum í félags- legu starfi. 11. húsið er tákn- rænt fyrir hópsamvinnu og þann skilning mannsins að hann kemst lengra með því að vinna með öðrum heldur en einn síns liðs. Munurinn á 7. húsi og því 11. er að það fyrra er táknrænt fyrir náið samstarf, oftast milli tveggja aðila, en hið síðara fyrir hóp- samstarf. Félagsvitund Það er í 11. húsi sem við skynjum áþreifanlega að við erum hluti af stærri heild, eða stóru iðandi mannfélagi. Þeg- ar þessi skynjun hefur einu sinni vaknað hættum við að hugsa eingöngu um sjálf okk- ur og förum að hugsa um þjóðfélagsheildina. Það má segja að 11. húsið hafí með félagsvitund mannsins að gera. Ifyrir einn mann getur það verið bæjarfélagið, fyrir annan þjóðfélagið og fyrir þann þriðja heimurinn allur. Aðalatriðið er að horft er út fyrir hið persónulega. Umbœtur Félagsvitund 11. húss hefur töluvert með umbætur að gera, eða Úranusarhlið húss- ins. í níunda húsi eru samin lög fyrir félagslegt samstarf, í því tfunda verða lögin að kerfum. Með tímanum breyt- ast aðstæður hins vegar og alltaf verða einhveijir hópar útundan. í 11. húsi fer þvf fram barátta fyrir bættum heimi og endurskoðun á lög- um og reglum. Líklegt er t.d. að maður sem hefur Mars þar verði frekar ákafur í baráttu sinni fyrir betri aðstæðum sér og sfnu félagi til handa. Hann er líklegur til að vera athafna- samur í félagsstarfi. Maður sem hefur Úranus eða Plútó f 11. húsi er á hinn bóginn næmur á það sem miður fer f mannlegu samfélagi og vill breyta þar töluverðu. Þegar á heildina er litið hugsar 11. hús maðurinn töluvert um fram- tíðina. Félagslíf Það að hafa margar plánetur í 11. húsi þarf ekki alltaf að tákna það að beijast fyrir bættu þjóðfélagi, en getur fullt eins þýtt það að vilja lifa fjölbreytilegu félagslffi og hafa mikið af fólki í kringum sig í daglegu lífi. Það getur t.d. birst í því að vinna á mannmörgum vinnustað. Pláneturí 11. húsi Plánetur og merki í 11. húsi segja til um það hvernig við vinnum sem hluti af þjóðfé- laginu og skynjum hlutverk okkar innan þess. Plánetur þar hafa einnig mikið með það að gera hvemig félög við sækjum í og hvemig vini og kunningja við umgöngumst. Maður sem hefur Venus f 11. húsi gæti t.d. laðast að lista- mönnum og viljað taka þátt 1 félagsstarfi sem hefur það að markmiði að bæta og fegra heiminn. GARPUR EG NÝT þess /tO vee/ HÖfVes- MfiÐUZ LÍFVfifSPAZ/NS, AVRANDfi ., N/r V/fíD/NGAe /WNNA fiAANNA, 'ASyRiSÐARJNNAR OS JAFNVEL Það ERPÁSA/HL EGTAO VERNDA tCON— UNQSfilKIO, EN ÉGHEEÐ! EKNENT Ý MÓT/ ÞV! AO E/NHVER. HEFOt 'AHVGGJOR AF~ AB HUGSA UA1 A4lS H GRETTIR UÓSKA FERDINAND SMAFOLK THERE5 AL10AY5 SOMEBOPY REA VH T0 R6MIHP YOL) OF THE PUMB THIN65 YOUPIP UIHEN YOU WERE YOUNS.. © 1988 Unlted Feature Syndicate, Inc. EZÉHU/F A-z Þú varst vanur að hoppa upp og niður og allt í kring þegar kom að kvöldmatn- um. Alltaf er einhver reiðubú- inn að minna mann á heimskupör æskunnar... BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Oft er hægt að reikna út skiptinguna af fullkominni ná- kvæmni. Hitt er þó algengara að nauðsynlegt sé að lesa í sagn- ir og gefa sér litalengdir út frá því. Austur gefur; allir á hættu. Norður ♦ 10852 ?K ♦ Á64 +.KD973 Austur VG107G432 ♦ KD2 ♦ Á10 Suður ♦ ÁKD74 ♦ G873 ♦ G865 Vestur Norður Austur Suður — — Pass 1 spaði Pass 2 lauf 2 lyörtu 3 lauf 3 hjörtu 4 spaðar 5 hjörtu 5 spaðar Dobl Pass Pass Pass Vestur ♦ 963 ♦ ÁD985 ♦ 1095 ♦ 42 Útspil: hjartaás. Þegar sagnhafi hafði lokið nauð- synlegri hreingemingu í svörtu litun- um þurfti hann að lesa skiptinguna í rauðu litunum áður en hann tœki ákvörðun um framhaldið. Austur hafði sýnt þijú svört spil og átti þar með 10 rauð. En hvernig skiptust þau — 8—2, 7—3 eða 6—4? Ef sagnhafi tekur austur með fjóra tígla er senni- lega best að spila tígulás og tfgli í þessari stöðu: Norður ♦ 10 Vestur V- ♦ Á64 ♦ - Austur ♦ - ♦ - VD II VG ♦ 1095 ♦ KD2 ♦ - ♦ - . Suður ♦ 7 V- ♦ G87 ♦ - Þá vinnst spilið ef vestur á Kx eða Dx í tígli. Hinn mögu- leikinn (sem leiðir til vinnings) er að spila litlum tígli og treysta á að austur eigi hjónin. Sem sagnhafi gerði. Hann ályktaði sem svo að austur hefði opnað með áttlit (hann sagði pass í upphafi) og vestur strögglaði strax með sexlit! Ergó: hjartaskiptingin var 7—5. SKÁK Umsjón Margeir Pótursson Á opnu móti í Kaupmannahöfn í sumar kom þessi staða upp i skák Norðmannsins Rune Djur- huus, sem hafði hvitt og átti leik og danska alþjóðameistarans Klaus Berg. 31. Dh5+! og svartur gafst upp þvi hann er óveijandi mát i næsta leik. Karl Þorsteins náði mjög góðum árangri á þessu móti, varð í 2.-4. sæti ásamt stórmeisturun- um Groszpeter, Ungveijalandi, og Kupreitschik, Sovétrfkjunum með 7 v. af 10 mögulegum. Sigurveg- ari varð hinn frægi sovézki stór- meistari Rafael Vaganjan með 8 v.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.