Morgunblaðið - 13.08.1988, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 1988
41
í ÞIIMGHLÉI
STEFÁN FRIÐBJARNARSON
Hvernig heilsast ríkisstjóminni?
Eru kosningar
á næsta leiti?
Sjávarafli og verðþróun sjáv-
arvöru á erlendum mörkuðum
hafa löngum ráðið mestu um
þjóðartekjur og lífslqör íslend-
inga. Ytri aðstæður valda því
tiðum sveiflum i þjóðarbúskap
okkar.
Af þessum sökum, og reynd-
ar fleiri, höfum við siglt undan-
farið inni i efnahagslægð, eina
ferðina enn.
Afli hefur dregizt saman,
meðal annars vegna nauðsyn-
legrar veiðistýringar. Sam-
keppni við aðrar fiskveiðiþjóðir
— og reyndar fleiri matvæla-
framleiðendur — hefur lækkað
söluverð fiskafurða. Þessu til
viðbótar hefur Bandaríkjadal-
ur (sem gjarnan er sölumynt
sjávarvöru) staðið höllurn fæti
gagnvart annarri erlendri
mynt (sem gjarnan er kaup-
mynt innflutnings okkar).
„Sveiflan“ hefur fækkað út-
flutningskrónum okkar, lækk-
að kaupmátt þeirra — og þyngt
erlendar skuldir.
Þessar ytri aðstæður hafa
gert okkur lífið leitt, ítem sam-
býiiserfiðleikar í ríkisstjórn-
inni.
I
Þær ytri aðstæður, sem vikið
var að, bitna þyngst á útflutn-
ings- og samkeppnisatvinnuveg-
um. Innlendur tilkostnaður hvers
konar hefur hækkað umtalsvert,
þar eð verðbólgan (verðlag/kaup)
hefur losnað úr böndum á ný.
Söluverð framleiðslunnar i
íslenzkum krónum hefur hinsveg-
ar lækkað. Það kostar einfaldlega
meira að framleiða vöru sem
minna fæst fyrir. Verðbólgan
hækkar síðan lánsfjárkostnað,
sem er umtalsverður hluti rekstr-
arútgjalda hér á landi. íslenzkum
fyrirtækjum hefur verið og er ill-
gerlegt að mynda eigið fé í rekstri.
Eigið fé í erlendum fyrirtækjum,
sem keppa um sömu markaði, er
mun meira.
Rekstrarstaða flestra sjávarút-
Steingrímur Hermannsson
vegs- og útflutningsfyrirtækja er
af þessum sökum slæm. Mörg
þeirra eru á þröskuldi stöðvunar.
Rekstraröryggi fyrirtækja, ekki
sízt í undirstöðugreinum, og al-
mennt atvinnu'öiyggi eru síðan
tvær hliðar á sama fyrirbærinu.
Það var því meira en tímabært
þegar ríkisstjómin skipaði sér-
staka nefnd til þess að gera tillög-
ur um ráðstafanir til að bæta
rekstrarskilyrði útflutnings- og
samkeppnisgreina, sem og til að
treysta eiginfjárstöðu íslenzkra
atvinnufyrirtækj a.
II
En hvemig heilsast ríkisstjóm-
inni? Hefur hún burði til að leiða
þjóðina út úr efnahagslægðinni —
til jafnvægis og stöðugleika í þjóð-
arbúskapnum?
Það hefur ekki farið fram hjá
neinum að ríkisstjómin, sem fór
vel af stað og færði sitt hvað til
betri vegar, á við vissa „heimilis-
erfiðleika" að stríða. Að hluta til
kunna þeir að felast í skoðanaá-
greiningi um starfsaðferðir eða
„lausnir" á viðfangsefnum stjóm-
arinnar. Fleira kemur þó til. Sitt-
Þorsteinn Pálsson
hvað bendir til þess að utanríkis-
ráðherra, sem var forsætisráð-
herra f fyrri ríkisstjóm, sé enn í
„forsætisráðherrastellingum".
Framsóknarflokkurinn virðist
ekki alheill í samstarfsstjómum
sem hann leiðir' ekki.
Ríkisstjómin gengur nú undir
mikilvægt reynslupróf. Framtíð
hennar ræðst næstu vikur. Hún
ræðst af því, hver verða efnisat-
riði efnahagsaðgerðanna — og
hver samstaða stjómarflokkanna
(ráðherranna) verður um fram-
kvæmdina. Komist ríkisstjómin
þokkalega frá þessu mikilvæga
reynsluprófi kann hún að ná fyrri
stöðu í hugum fólks. Ef ekki em
dagar hennar taldir. Þá reynir á
Alþingi — þingheim — um mynd-
un nýrrar ríkissjómar. Bregðist
þingið því skylduhlutverki em
haust- eða vorkosningar framund-
Sterk öfl í stjómarflokkunum
þremur vinna heilshugar að því
að ná samstöðu um nauðsynlegar
aðgerðir í efnahagsmálum. Þær
ytri aðstæður, sem valdið hafa
eftiahagslægð í þjóðarbúskapn-
Jón Baldvin Hannibalsson
um, em ekki kjörtími til átaka,
sem jafnan fylgja kosningum.
Þvert á móti. Nýta verður næstu
vikur og mánuði til vamarað-
gerða. Það er ekki sízt mikilvægt
fyrir rekstraröryggi undirstöðu-
greina atvinnulífsins, með öðmm
orðum almennt atvinnuöiyggi, að
vel takist til að þessu leyti. Þess
vegna standa vonir fólks til þess
að ríkisstjómin reynist vandanum
vaxin.
Fari stjómin frá er heldur ekki
sjálfgefið að gengið verði til kosn-
inga strax. Þá reynir á Alþingi
um myndun nýrrar stjómar. Það
er eitt helzta skylduverk þing-
heims að sjá landi og lýð fyrir
meirihlutastjóm.
Telja verður líklegt að Alþýðu-
bandalag, Alþýðuflokkur og
Borgaraflokkur vilji eitthvað á sig
leggja til að fresta kosningum,
með hliðsjón af niðurstöðum í
skoðanakönnunum um kjósenda-
fylgi á líðandi stundu. Öðm máli
gegnir um Kvennalista, sem hefur
ennþá góðan byr, þó að slegið
hafi í baksegl hans. Framsóknar-
flokkur og Sjálfstæðisflokkur
koma og ekki illa út úr skoðana-
könnunum — miðað við aðstæður.
Em „fræðilegir" möguleikar á
meirihlutastjóm, ef ríkisstjóm
Þorsteins Pálssonar fer frá?
Reyndar; þeir em nokkrir. í fyrsta
lagi vinstri stjórn Framsóknar-
flokks, A-flokka og Kvennalista
(37 þingmenn). í annan stað ný-
sköpunarstjóm Sjálfstæðisflokks
og A-flokka (36 þingmenn). í
þriðja lagi samstjóm Sjálfstæðis-
flokks, Alþýðuflokks og Borgara-
flokks (35 þingmenn). Fleiri
möguleikar em fyrir hendi, hvað
sem líkum líður.
Ekki er heldur hægt að afskrifa
möguleika á einhvers konar
minnihlutastjóm, sem studd yrði
með hlutleysi flokka, er fresta
vildu kosningum — að minnsta
kosti fram á vorið. Utanþings-
stjóm kemur og til greina, ef þing-
ið er ekki vandanum vaxið.
Haustkosningar yrðu síðan
þrautalending, ef allt annað
bregst. Enginn getur í það spáð,
hvað talið yrði upp úr kjörkössun-
um. Naumast yiði það þó annað
en einhvers konar margflokka-
stjóm, eins og allt er í pottinn
búið. Hvenær bemm við gæfu til
að smíða okkur einhvers konar
tveggja flokka kerfi — með
hreinni þjóðmálalínum — svo fólk
viti í aðalatriðum hvað það er að
kjósa yfir sig?
IV
Máske og vonandi leysir ríkis-
stjómin vandamál sín og þjóðar-
innar. Sameiginlegir hagsmunir
allra starfsstétta em í húfi. En
til þess þarf hún að leggja innri
átök til hliðar — og ráðherrar að
róa til sömu áttar, inn á lygnari
sjó jafnvægis í þjóðarbúskapnum.
Ríkisstjómin hefur að vísu ekki
gengið heil til skógar undanfarið.
„Flensan" gerir víða vart við sig!
Hún er engu að síður hress, meira
að segja bráðhress, í samanburði
við stjómarandstöðuna. Tveir af
þremur stjórnarandstöðuflokkun-
um hafa tálgast upp, ef marka
má skoðanakannanir, þótt þeir
hafi ekki þurft að axla stjómar-
ábyrgð. Það, eitt út af fyrir sig,
er ekki traustvekjandi.
Stjóminni stendur heldur ekki
ógn af stjómarandstöðunni. Fáar
ríkisstjómir hafa búið við „ákjós-
anlegri" stjómarandstöðu. Það
sem hún þarf að óttast er innan
heimilisveggja hennar sjálfrar.
Sigurður Sigurgeirs-
son - Kveðjuorð
Það fór það orð af Sigurði þegar
ég kom til Stykkishólms í fyrstu
að hann bókstaflega gæti allt, það
léki allt í höndunum á honum, og
ef færi eitthvað aflaga væri eina
ráðið að ná í hann, því hann gæti
leyst vandann. Hann hafði unnið
sér það traust í hugum fólksins að
öllu væri óhætt hvað sem á dyndi,
því hann vissi alveg hvemig ætti
að gera við. Og fljótt varð ég vísari
þeim sannleik sem bjó í þessum
orðum.
Sigurður hafði verið í námi hjá
einu virtasta vélaverkstæði lands-
ins, hjá Guðmundi á Þingeyri. Það
var góður skóli og undirbúningur.
Hann lærði margt af Guðmundi sem
kom vel að notum seinna. Hann var
einn af þeim sem var með fyrsta
bílpróf í sýslunni, og í félagi við vin
sinn Láms Rögnvaldsson byijaði
hann bifreiðarekstur. Þegar frysti-
húsið hér í Hólminum byijaði var
ekki annað sjálfsagt en að fá Sigga
til að sjá um vélamar. Fljótt kunni
hann skil á rafmagninu og nota-
gildi þess og margt rafmagnstækið
fór af stað á þeim byijunartímum
fyrir tilstilli Sigurðar. Þá var ekki
ónýtt að leita til hans þegar síminn
bilaði alvarlega og það var mikil
bilun gæti Siggi ekki fundið út
hvað amaði að. Því fengum við
Möller póstmeistari að kynnast,
enda oft leitað aðstoðar.
Margt annað væri hægt að telja
upp og þar sem svo margir þurftu
að leita til hans var vinnudagurinn
langur og oft gat að líta ljós á verk-
stæði hans eftir miðnætti. Ekki
held ég að sumarfríin hafi verið
löng eða mörg hjá honum, enda þá
ekki tími sumarfría eins og nú.
Menn héldu sér að vinnunni og við
efnið. Við kynntumst fljótt og rædd-
um mikið saman. Það var erfitt að
eignast bíl um þær mundir og minn
fyrsta bíl eignaðist ég í félagi við
Sigga, frægan bíl og góðan, og
gekk það vel þann tíma sem við
áttum. Og ekki var mikið til ásteyt-
ingar. Við skipulögðum bara notk-
unina og af því að í garð gekk
kaldur vetur var sjálfsagt að geyma
hann á rafstöðinni í hlýjunni og
auðvitað vakti það eftirtekt. Mér
reyndist Sigurður vel og svo geta
fleiri sagt. Meðan hann gat var
hann sístarfandi, en seinustu árin
dvaldi hann á sjúkrahúsinu hér og
vissulega var það djúp reynsla fyrir
sívinnandi mann.
Sigurður var nær 85 ára er hann
lést. Fæddur að Bjamarhöfn 1903.
Ég mun ekki rekja æviþætti hans.
Þeim verða gerð góð skil af öðrum.
En þessi fáu orð eru til að minnast
starfs hans og vináttu sem ég af
einlægum huga þakka fyrir á
kveðjustund og sendi ættingjum
hans einlægar samúðarkveðjur og
blessuð veri minning dugnaðar-
manns og góðs íslendings. Hann
stóð fyrir sínu og Hólmurinn mun
lengi geyma nafn hans.
Árni Helgason
Bæklunar-
skósmiðurinn
mælirmeðþéssum
naturo\\
\ChasallaJ11
skóm.
Fást í mörgum
breiddum.
Sendum í póstkröfu.
GÍSLI
FERDIIViANDSSON HF
skóbúð,
Lækjargötu 6a. sími 20937.
Fróöleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
Eigum
fyrirliggjandi
PASLODE
loftverkfæri
KAMBSAUMSBYSSUR
NAGLABYSSUR
OÚKKSAUMSBYSSUR
HEFTIBYSSUR
GASBYSSUR
SALA-SALA-SALA-SALA
LEIGA-LEIGA-LEIQA-LEIGA
VÉLA- OG PALLALEIGAN
Sími 687160.
Fosshálsi 27,
Reykjavík.