Morgunblaðið - 13.08.1988, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 1988
fclk í
fréttum
jm
-■
SHIRLEY MACLAINE
Elskhugi hennar
var sonur
hennar í fyrra lífi
Núverandi elskhugi minn var sonur minn í einu
af mínu fyrra lffí fullyrðir leikkonan Shirley
Maclaine í nýjustu bók sinni. Kærastinn heitir Andrej
Konchalowski, en í hverju af hennar 144 fyrri lffum
var hann sonur hennar fá lesendur ekki að vita.
Margt athyglisvert er sagt koma fram í þessarri
bók. Meðal annars það að Sachi dóttir hennar hafí
verið móðir hennar í eina tíð. Er sagt að margir hristi
höfuðið og teiji hana þurfa að skipta um geðlækni.
Aðrir furða sig á hvað hún hafi gert til þess að verð-
skulda svo mörg og spennandi líf. Hún hefur að eigin
sögn prófað það helsta, verið nunna, búddisti, þræll,
og sjóræningi. Og nú síðast leikkona. Það er örugg-
lega vitað.
Hún kveðst útvalin vegna þess að hún er græn-
metisæta og stundar jóga hvem dag. Vissulega er
vitað að margir helstu hugsuðir og gáfumenn heims-
ins hafí borðað það sama og hún. Samkvæmt Shir-
ley, sem man langt langt aftur getur grasanart breytt
lífsins gátum í opna bók.
Ekki er allt sem sýnist
i litlu Ufí.
Veldi Rainers fursta er og^iað
MAZDA 323...
EITT MERKI
- ÓTAL GERÐIR
Það fást yfir 20 gerðir af MAZDA
323, ein þeirra hentar þér örugg-
lega. Til dæmis MAZDA 323
SUPER SPECIAL 4 dyra:
Nóg pláss fyrir fjölskylduna
og farangurinn.
Ný, glæsileg luxusinnrétting,
niðurfellanlegt aftursæti.
1.3 L eða 1.5 L vélar.
5 gíra eða sjálfskiptur, fæst
með vökvastýri.
Belti við öll sæti og dagljósa-
búnaður.
Sérlega hagstætt verð.
Athugió sérstaklega:
Ný, hagstæðari greiðslukjör
en áður hafa þekkst!!
Opið laugardaga frá kl. 1-5.
BILABORG HF.
FOSSHALSI 1.S.68 12 99
MONAKO
Hver
tekur
við fursta-
dæminu?
Búist hefur verið við nýjum
arftaka Rainers fursta nú
um nokkurt skeið. En alls er
óvíst hver það verður. Nýr að-
ili hefur nefnilega gert kröfu á
hendur þessarrar eftirsóttu
þjóðfélagsstöðu, maður að
nafni Olivero Grimaldi.
Olivero er ítalskur lögfræð-
ingur sem sjálfur hefur gert
rannsókn á meintum tengslum
sínum við ættina og fundið
veigamikla staðreynd sem hann
rekur allt til 17. aldar. Þá lifðu
og hétu bræður Francesco, sá
eldri og Ercoles sá yngri. Erco-
les tók við krúnunni eftir dag
föður þeirra, en samkvæmt öll-
um hefðum er elsti bróðir rétt-
mætur arftaki.
Sérfræðingur í Mónakómál-
efnum, Aldo Marangoni, heldur
því einnig fram að Olivero eigi
rétt á krúnunni, sama rétt og
drottning Elísabet gangi um
með sína. Látið er að því liggja
að ítölsk stjómvöld hafi vitað
þetta síðan árið 1958, en beðið
um að málið yrði kyrrt látið.
Það gerði Olivero, sem sjálfur
býr í 30 herbergja höll á Norð-
ur Ítalíu. En nú hefur hann
fengið nóg af þögninni og
krefst meints réttar síns.
Staðreyndir liggja fyrir, seg-
ir Aldo Marangoni, gömul skjöl
sanna að Francesco hafí átt
krúnuna, og Olivero getur rakið
ættir sínar til hans. Hins vegar
er Rainer fursti kominn af
yngri bróðumum. Kannski það
verði ekki börn Rainers sem
taka við furstadæminu. Sam-
kvæmt þessu er stríðið hafið
og hver veit nema frægt fólk
vanti vinnu?