Morgunblaðið - 13.08.1988, Side 51

Morgunblaðið - 13.08.1988, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 1988 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS !\JT \l-JVi Hvenær verður næsta flugslys í Reykjavík? Til Velvakanda. Fyrir skömmu var sjaldséðum, óboðnum gesti lætt í póstkassann minn; Þjóðviljanum frá 5. ágiíst 1988. Ég efast ekki um, að það er á vitorði Þjóðviljans, að mörg und- anfarin ár hef ég skrifað í blöð, oftar en flestir aðrir, um hættuna sem Reykj avíkurborg stafar af veru flugvallarins í miðri borginni, og ætti að vera öllum sýnileg. Ég hef bent á leiðir til að leysa þennan vanda, en nú gerir Þjóðvilj- inn mínar hugmyndir að sínum, án þess að hafa nokkum tímann áður tekið undir sjónarmið mín. Eftir hið hörmulega slys, er varð við flugvöll- inn 2. þessa mánaðar er helst að sjá, að menn hafi vaknað af dvala og skynjað hvaða hætta stafar af staðsetningu vallarins. í blaðaviðtáli Þjóðviljans við framkvæmdastjóra Almannavama, Guðjón Petersen koma fram mjög athyglisverð svör hans við spum- ingum blaðamanns. Hann bendir aðallega á Kvosina sem „krítískasta" staðinn í Reykjavík. Kemur þetta skýrt fram í undirfyr- irsögn blaðsins; „Guðjón Petersen framkvæmdastjóri Almannavama ræðir um hversu hörmulegar afleið- ingar flugslyss í Kvosinni gætu orð- ið. Fjarskiptakerfið myndi lamast og Alþingi, Dómkirkjan og væntan- legt ráðhús væm í stórri hættu.“ Enn er spurt; „En hafa Almanna- vamir reynt að meta hveijar eru líkumar á því, að flugvél færi þama niður? Nei, það höfum við ekki gert, Almannavörnum hefur ekki verið fengið það hlutverk að hættumeta svæði vegna samgangna og at- vinnulífs. Það er aðeins gert gangn- vart náttúruhamförum.“ Mér verð- ur á að spyija: Er þetta allt og sumt? Ég var svo lítið gáfaður að halda, að hvers kyns hætta sem steðjaði að almenningi væri verk- efni, s?m Almannavömum væri ætlað að leysa eftir fremsta megni, hvaðan svo sem hættuna bæri að höndum. Eftir þessu að dæma eru flugslys og afleiðingar hemaðarátaka utan starfsviðs Almannavama. Hvorugt þetta heyrir undir náttúruhamfarir. Hitt er annað mál, að hvenær sem flugslys bæri að höndum í miðbæ Reykjavíkur, í átt við það sem Guð- jón Petersen lýsir, er öllum ljóst að flugvellinum yrði lokað samdægurs og hann aldrei opnaður aftur fyrir flugumferð. Er þörf á að bíða eftir því? Flugslysið 2.8. hefur svo áþreif- anlega bent okkur á hvað getur gerst. Fari svo, að rannsóknin á flugslysinu leiði í ljós, eins og talið er hugsanlegt, að mótor á vélinni hafi snögglega bilað, hver segir að það hefði ekki eins getað gerst yfir tönkunum í Orfirisey eða Kvosinni. Ég hef, að nokkru leyti, hlustað á svör „flugvallarsérfræðinga", sem Ekkjan við ána Til Velvakanda. í þættinum Svaraðu strax á Stöð 2 var fyrir nokkru síðan spurt, hver væri höfundur kvæðisins Ekkjan við ána. Ekki vissi sá svarið, er spurður var um höfundinn, en fyrir- spyijandinn sagði að rétta svarið væri Stephan G. Stephansson. Nú spyr ég: Er til kvæði eftir Stephan G. með þessu nafni? Hins vegar er alkunnugt kvæði Guðmundar á Sandi, Ekkjan við ána. Óskað er eftir svari. Áhorfandi. vilja ákafir viðhalda flugsam- göngum um Reykjavíkurflugvöll. Helstu rök þeirra eru að víða erlend- is séu flugvellir inni í borgum. Þeir tala um að bygging nýs flugvallar kosti milljarða króna og fleira í þeim dúr. Ég hef lent á 175 flug- völlum í heiminum, en hvergi séð aðstöðu í líkingu við þá, sem er við Reykjavíkurflugvöll. I skrifum um þessi mál á mörgum undanfömum árum hef ég lagt til að einteinungur (monorail) verði lagður milli Reykjávíkur og Keflavíkurflugvallar. Bygging hans myndi ekki kosta nema lítið brot af verði nýs flugvallar. Einteinung- urinn færi á milli þessara staða á 15 til 20 mínútum, óháð veðurfari. Nú þegar er byijað að byggja völl fyrir smáflugvélar í Kapelluhrauni og eru þær þannig út úr dæminu. í þeim umræðum, sem eiga sér nú stað um þessi flugvallarmál, hef ég orðið fyrir miklum vonbrigðum með afstöðu borgarstjórans í Reykjavík, Davíðs Oddssonar. í Morgunblaðinu frá 3.8. ’88 segir svo: „Davíð Oddsson borgarstjóri sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi að á meðan ekki væri vilji (leturbr. höfundar) til að flytja innanlandsflugið til Keflavíkurflug- vallar, yrði að búa við þær aðstæð- ur sem nú væru til staðar." Vilji hverra, Davíð Oddsson? „Það er engan veginn hlaupið að því að flytja flugvöll, og það gera menn ekki á sama hátt og færa til skrifborð. Reyndar er það svo, að aðflug yfir íbúðarbyggð er sáralítið í Reykjavík, og miðað við hvemig þessum málum er háttað víða er- lendis, þá fæ ég ekki séð, að hér sé meiri hætta á ferðum en þar,“ sagði Davíð Oddsson. Eg dreg það mjög í efa, að skrif- borð borgarstjóra sé nokkurs staðar í heiminum beint undir aðflugi til flugbrautar, eins og er í aðflugi til norður-suður brautarinnar í Reykjavík, og það breytinst ekki með flutningi í nýja ráðhúsið. Hvað sem líður lítilli íbúðabyggð í Kvos- inni eða miðbæ Reykjavíkur er borgarstjóri ekki einn í miðbænum í dagsins önn. Miðað við ákveðni og dugnað Davíðs Oddssonar hefði ég vænst þess, að hann tæki ötula afstöðu til málsins og ynni að því að láta loka flugvellinum hið alíra bráð- asta. Með því hefði hann aukið vin- sældir sínar til muna. Ef hann ótt- ast, að Reykjavíkurborg missi tekj- ur við' það að flugvöllurinn yrði lagður niður, þá dreg ég ekki í efa, að sambærilegar tekjur fengjust af þeim húsum og mannvirkjum, sem örugglega mundu rísa á þessu verð- mæta svæði. í því fælist einnig vissa um aukið öryggi fyrir borgarana. Ég skora því á borgarstjóra, að breyta afstöðu sinni til málsins. Burt með flugvöllinn! Vellíðan fólks og fegurð borgarinnar eykst við réttar ákvarðanir viturra manna. Þórður Halldórsson t»essir hringdu . . . Allir kettir gangi með bjöllur Tóta hringdi: „Ég vil taka undir með Olgu, sem kvartaði undan kattaplágu í Norðurmýrinni. Af hveiju er ekki haft eftirlit með köttunum eins og hundum? Og hvers vegna eru kettimir til dæmis ekki látnir ganga með bjöllur, til að vara fuglana við þeim? Ég hef sjálf orðið vitni að því, þegar köttur drepur allt líf í hreiðri og fundið þrjá. þresti dauða í garðinum mínum. Það er ekki skrítið, þótt þeir séu horfnir héðan úr Norður- mýrinni." Litla Öskjuhlíðin ekki síegin Borgari hringdi: „Hvers vegna er brekkan sem tilheyrir Öskjuhlíðinni (Litla Öskjuhlíðin) ekki slegin nema einu sinni á ári? Það er ekki farið að slá hana enn, þótt komið sé fram í miðjan ágúst, þannig að þessi fallega brekka er í órækt." Páfagaukur hvarf frá Þórufelli Fyrir helgi hvarf páfagaukur frá Þórufelli og flaug í áttina að Æsufelli. Þeir sem kunna að hafa orðið hans varir eru beðnir að hringja í sima 78019. Gleraugu í óskilum Gleraugu með glærri umgjörð, en rauð að ofan fundust um 20. júní. Lögun þeirra er dálítið kisu- leg. Upplýsingar veitir Guðrún í síma 685469. Köttur hvarf í Neðra- Breiðholti Hvítt fress með ljósbrúnum blettum týndist í Neðra-Breiðholti að morgni þriðjudagsins 9. ágúst. Finnandi hringi í síma 77309. Hvað kostaði hanastéls- veislan? Skattgreiðandi hringdi: „Mér finnst að Steingrími ut- anríkisráðherra beri skylda til að gefa okkur skattgreiðendum í landinu svör við tveimur spuming- um. í fyrsta lagi: Hvað kostaði hanastélsveislan, sem haldin var í Osló fyrir íslensku konumar á kvennaráðstefnunni? Óg í öðru lagi lángar mig að spytja hann, hvað í ósköpunum hann hafi að vera að gera þar ytra. Hvemig tengist hann-þessari ráðstefnu?" FREEZEMASTER SOFTECH Um 300 Taylor^vélar á íslandi framleiða mjólkurís. Geta framleitt jógúrt. Eiríkur Ketilsson Heildverslun, Vatnsstíg 3. Símar: 23472, 25234, 19155. Símar 35408 og 83033 AUSTURBÆR Hverfisgata 63-115 Otrateigur Langahlíð Samtún Drekavogur Sogavegur 117-158 o.fl. Stigahlíð 49-97 UTHVERFI Hraunbær JHtfgniiMflifrife

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.