Morgunblaðið - 08.09.1988, Blaðsíða 64
upplýsingar
f um vörur og
» þjónustu.
XÚA
ÞETTA
HRESSANDI.
FRÍSKA BRACÐ
FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1988
VERÐ I LAUSASOLU 70 KR.
Verðstöðvun, lækkun
launa og gengislækkun
ÞORSTEINN Pálsson, forsætísráðherra, mun í dag leggja nýjar efna-
hagstíllögur fyrir rikisstjórnarfund. Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er talið líklegt að í tillögunum felist framhald verðstöðvun-
ar um nokkra mánuði, lækkun launa og einhver gengislækkun. Seðla-
bankinn hefur enn heimild til 3% gengisfellingar síðan í maí. Stjóm-
arflokkarnir þrír hafa allir boðað til þingflokksfunda eftir ríkis-
stjórnarfundinn í dag.
Formenn stjómarflokkanna þriggja
komu saman til fundar í sljómar-
ráðinu í gærmorgun og ræddu
ágreining og hugsanlegar úrlausnir
efnahagsmála.
Þorsteinn Pálsson sagði í samtali
ð Morgunblaðið að svar hans til
forseta ASÍ og faglegt mat Þjóð-
hagsstofnunar og Verðlagsstofnun-
ar á því hvemig hægt væri að
standa að niðurfærslu verðlags hafi
verið borið undir formenn Alþýðu-
f.okks og Framsóknarflokks á
tveimur fundum áður en farið var
tii viðræðna við ASÍ. Það hefði síðan
verið afhent í þeirra nafni eftir að
tekið hefði verið tillit til athuga-
semda þeirra. „Það kemur mér því
Bj örgnnarskipið Grettir:
Sökk vestur af
-Dritvíkurtöngum
DÝPKUNARSKIPIÐ Grettir
sökk aðfaranótt miðvikudags um
2,5 sjómílur vestur af Dritvíkur-
töngum á Snæfellsnesi. Björgun-
arskipið Goðinn var með Grettí
í togj, en verið var að flytja skip-
ið frá Bildudal tíl Sandgerðis.
Enginn maður var um borð í
Gretti þegar óhappið átti sér
stað, og veður á þessum slóðum
var ágætt.
Grettir er í eigu Dýpkunarfélags-
ins h.f. á Siglufirði, og að sögn
Jóhannesar Lárussonar fram-
Þegar hefur verið hatíst handa
með að kanna möguleika á að ná
skipinu upp, og sagði Jóhannes að
hann væri kominn í samband við
aðila í Noregi í því sambandi, en
ljóst væri að það yrði dýrt verkefni
en vel framkvæmanlegt.
Dýpkunarskipið Grettir er syst-
urskip Grettis sem sökk í Faxaflóa
í mars árið 1983.
mjög spánskt fyrir sjónir þegar ég
heyri þá segja að þetta hefði átt
að vera einhvem veginn öðruvísi."
Þorsteinn sagði það ljóst að
óframkvæmanlegt væri að lækka
verðlag um sömu prósentutölu á
alla vöru og þjónustu. „Ég var ekki
tilbúinn og hefði aldrei reynt að
plata Alþýðusambandið inn á þá
leið.“
Steingrímur Hermannsson,
formaður Framsóknarflokksins,
sagðist að afloknum formannafund-
inum í morgun enn halda í vonina
um að niðurfærsluleiðin yrði farin.
Jón Baldvin Hannibalsson, for-
maður Alþýðuflokksins, sagði að
niðurfærsluleiðin væri því aðeins
fær að verðlag — og vextir ef þörf
krefði — yrði lækkað með laga-
þvingunum á sama tíma og laun.
Það hefði aldrei hvarflað að sér að
launþegar sættu sig við umtals-
verða lækkun launa að öðrum kosti.
Sjálfstæðismenn hefðu ekki viljað
fara þá leið og því væri verið að
ræða aðra kosti.
Jón Baldvin kvaðst ekki hafa
verið á hlaupum út úr þessari ríkis-
stjóm og væri ekki enn. „Hitt er
svo annað mál, og ég held að það
eigi ekkért frekar við um mig og
minn flokk en aðra, að ég hef eng-
an áhuga á að sitja í ríkisstjórn sem
er aðgerðalaus og getulaus og end-
ar uppi í óðaverðbólgu."
Börn íbeijamó
Morgunblaðið/Kr. Ben.
Yngstu börn Leikskólans í Grindavík brugðu sér í beijamó í
góða veðrinu í gær. Farið var í Skógræktargirðinguna í Svarts-
engi og undu bömin hag sínum hið besta við beijatínsluna eins
og sjá má.
Skilanefnd tekur við sjóðum Ávöxtunar:
kvæmdastjóra fyrirtækisins er ekki
vitað um ástæðu þess að skipið
-^nökk.
„Það var nýbúið að ganga úr
skugga um að allt væri í lagi, þeg-
ar skyndilega kom mikill hnykkur
á Goðann, og þegar að var gætt
var skipið steinsokkið og dráttar-
taugin slitin. Það er alveg ljóst að
sjór hefur mjög skyndilega komist
í skipið og það síðan oltið á hliðina
og sokkið. Mikil yfirvigt er á skip-
inu ogþað er mjög viðkvæmt í flutn-
ingum, en við höfðum einmitt beðið
t nokkra daga eftir heppilegu veðri
til að flytja skipið til Sandgerðis,"
sagði Jóhannes.
_ Ungur mað-
ur lést af
slysförum
UNGUR maður lést f gær af
völdum áverka er hann hlaut
þegar hann varð undir fjórfyóli,
þegar hann ók fram af malar-
barði í Kópavogi.
Slysið varð í hádeginu í gær, um
kl. 12.15. Maðurinn, sem var 27
ára gamall, var á fjórhjóli sínu í
■■P malargryfjum fyrir austan Dalveg,
í Fífuhvammslandi. Hann ók fram
af íjögurra metra háu barði og
varð undir hjólinu þegar það skall
til jarðar. Hann var fluttur á slysa-
deild Borgarspítalans í Reykjavík,
en lést þar skömmu síðar.
Ekki er unnt að greina frá nafni
mannsins að svo stöddu.
Forsætisráðherra leggur fram nýjar efnahagstillögur í dag:
Rannsókn á viðskiptum
Avöxtunar við undirsjóði
SKRIFSTOFUR Ávöxtunar sf. og
sjóða fyrirtækisins opna á nýjan
leik f dag, en með þvf starfsfyrir-
komulagi að rekstur Verðbréfa-
sjóðsins og Rekstrarsjóðsins er nú
alfarið í höndum skilanef ndar sem
hluthafafundur Verðbréfasjóðs-
ins kaus í gær samkvæmt tilmæl-
um bankaeftirlits Seðlabankans,
um leið og félaginu var slitið.
Frá slysstað f Kópavogi í gær.
Morgunblaðið/Ingvar Guðmundsson
Ávöxtun sf. verður áfram rekin
af þeim Ármanni Reynissyni og
Pétri Björnssyni.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hefur Verðbréfasjóður
Ávöxtunar hf. lánað umtalsverðar
fjárhæðir til Ávöxtunar sf. eða
alls um 110 milljónir króna, en sá
sjóður hefur síðan nýtt fjármagn
þetta til kaupa á eignum og fyrir-
tækjum, eða hluta fyrirtækja.
Rannsóknin beinist að þvi að
kanna hvort hér hafi verið um að
ræða brot á 8. grein laga um verð-
bréfamiðlun.
í 8. grein Iaganna segir: „Verð-
bréfamiðlara er óheimilt að kaupa
verðbréf sem honum er falið til sölu,
eða að selja eigið verðbréf í rekstri
sínum, nema um sé að ræða skráð
verðbréf á Verðbréfaþingi íslands
eða viðsemjenda hans sé kunngert
hver gagnaðili að viðskiptunum er.“
Með öðrum orðum felur þetta í sér
að verðbréfamiðlara, sem hefur leyfi,
er óheimilt að annast um kaup og
sölu á verðbréfum, sem annað hvort
eru útgefin af miðlaranum sjálfum
eða fyrirtækjum í hans eigu og hann
sem prókúruhafi fyrir fyrirtækin.
Til nánarí skýríngar má geta þess
að í greinargerð með þessu laga-
ákvæði segir m.a.: „í ákvæði þessu
er að fínna fyrirmæli sem ætlað er
að koma í veg fyrir að verðbréfamiðl-
ari geti hagnýtt sér aðstöðu til að
afla sér ávinnings með eigin kaupum
eða sölu verðbréfa í starfsemi sinni."
Sjá nánar Af innlendum
Vettvangi á miðopnu.
Ekið á hest
á Reykja-
nesbraut
EKIÐ var á hest á Reykjanesbraut
við Nýbýlaveg í gærkvöldi. Gang-
andi vegfarandi varð fyrir léttu
bifhjóli neðarlega á Laugavegi
skömmu eftír hádegi í gær.
Hestur varð fyrir bifhjóli á Reykja-
nesbraut um kvöldmatarleytið í gær.
Bifhjólið skemmdist talsvert en öku-
maður þess slapp ómeiddur. Hestur-
inn meiddist á fæti og síðu en gert
var ráð fyrir að hann myndi ná sér.
Af öðrum óhöppum í umferðinni
er helst að nefna bifhjólaslys neðar-
lega á Laugavegi síðdegis í gær og
veltu tengivagns við Logafold í gær-
morgun.